Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 12

Dagblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl 1977. Guðgeir til ÍBV ef hann hættir sem atvinnumaður — Félagaskipti Guðgeirs Leif ssonar f rá Charleroi til ÍBV samþykkt hjá KSÍ í gær. Nokkur erlend félög hafa sett sig ísamband við Charleroi, sem vill fá 25 milljónir kréna fyrir Guðgeir Guðgeir Leifsson — til Eyja. — Þegar samningur minn hjá Charleroi rann út í vor spurði stjórn félagsins hvort ég vildi endurnýja hann og vera áfram hjá félaginu, en ég neitaði því aiveg, sagði Guðgeir Leifsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu þegar Dagblaðið ræddi við hann í gær. Guðgeir kom heim frá Belgíu á sunnudagskvöld — en síðustu tvö árin hefur hann verið atvinnumaður í knattspyrnu með Charleroi, sem leikur í 1. deild. Enn er óráðið hvort Guðgeir heldur áfram í atvinnumennskunni eða gerist áhugamaður á ný með íslenzku félagi. Það ra'ðsl á næstu vikum — en í'gær voru þó félagaskipti Guðgeirs frá Charleroi til íþróttabandalags Vestmannaeyja, ÍBV, samþykkt af stjórn KSÍ. Guðgeir getur þess vegna byrjað að leika með liði ÍBV eftir einn mánuð — eða 6. júlí. Þann dag á ÍBV leik gegn Fram í Vestmannaeyj- um. — Ég get ekki sætt mig við að vera áfram hjá Charleroi meðan Felix Weach ræður þar rikjum sem þjálfari og hann hefur endurnýjað samning sinn við félagið. Ég er ekki einn um það. Atta aðrir leikmenn vilja fara frá félaginu, m.a. fyrirliðinn Böhmer, og einn er þegar farinn auk mín, Júgóslavinn Hadzjabic. Hann var fastamaður í júgóslavneska landslið- inu hér áður fyrr, lék meðal annars alla HM-leiki Júgóslavíu 1969-1970. Kostaði Charleroi stórfé. Það er tals- verð upplausn hjá félaginu, sagði Guðgeir ennfremur. Hann lék með eða var varamaður Charleroi í 26 af 36 leikjum félagsins I 1. deild á síðasta leiktímabili. — Framtiðin er nokkuð óráðin hjá mér, hélt Guðgeir áfram og því tók ég boði IBV að koma til Vestmannaeyja nú fljótlega eftir landsleikinn við Norður-íra, sem verður á laugardag. Ef til vill leik ég með Vestmannaey- ingum í sumar — ef til vill ekki — og ég hef óbundnar hendur um að fara þaðan ef svo ræðst. Ég fæ aftur áhugamannaréttindi mín eftir mánuð, og mun strax fara að æfa með IBV. Nokkur erlend félög hafa sýnt áhuga í sambandí við mig. Eitt belg- ískt félag, La Louviere, hefur snúið sér til stjórnar Charleroi í sambandi við mig, auk þess, sem forráðamenn þess hafa talað við mig. En áhugi félagsins er algjörlega bundinn því, að félagið vinni sér rétt til að leika í 1. deild í Belgíu á ný. Ur því verður skorið á fimmtudag. Watersehei og La Louviere keppa um sætið í 1. deild — Patro Eisden og Royal Union eru úr ieik í þeirri keppni. Ef La Louviere nær sætinu tel ég 99% líkur á, að ég leiki með félaginu næsta keppnistímabil í Belgíu. La Louviere er borg aðeins 30 km frá Charleroi og þjálfari félagsins þekkir vel til tnín, en lið borgarinnar missti sæti sitl í 1. deild, í fyrravor. — Það getur ef til vill gert mér- erfitt fyrir í sambandi við atvinnu- mennskuna, að Charleroi hefur sett upp fjóra og hálfa milljón belgískra franka sem kaupverð ef ég fer til annars atvinnumannafélags. Það er um 25 milljónir íslenzkra króna. Það gæti fælt erlend félög frá. I samningi mínum, sem ég gerði við Charleroi sumarið 1975 var það ákvæði, að ég ferigi 50% af kaupverði í minn hlut ef ég færi til annars atvinnufélags. Auðvitað reyna atvinnumannafélögin að fá sem mest fyrir leikmenn og því getur svo farið, að Charleroi lækki upphæðina verulega ef að samning- um ke.mur i sambandi við mig. Það er betra fyrir félagið að fá eitthvað fyrir mig — heldur en ekki neitt ef ég gerist aftur leikmaður hér á Islandi, sagði Guðgeir og hann hélt áfram: — Eitt annað félag í Belgíu, sem leikur í 1. deild, hefur rætt við stjórn Charleroi, svo og tvö frönsk 1 deildarlið. Einnig þýzka liðið Rot Guðgeir Leifsson í E.vjum ásamt Ásgeiri Sigurvinssyni ieiðbeina ungum knattspyrnumönnum. Haga mér eins1 o'-j krakki. Svona, getum Donni! Við enn staðið í þeim Weiss Essen. Þar er belgískur þjálf- ari, sem áður var með Lierse og þekkir mig vel. Ég hef verið á sölu- lista Charleroi síðustu vikurnar og það spyrst út. 1 Belgíu verða félaga skipti að fara fram fyrir 24. júní næstkomandi, svo þar eru aðeins 17 dagar til stefnu. Eftir það lokas.t markaðurinn milli belgiskra liða i sambandi við næsta leiktímabil. Hins vegar er hægt að kaupa nýja leik- menn erlendis frá miklu lengur. Mikil skipta eiga sér nú stað í Belgiu milli félaga á leikmönnum og gífur- legt framboð. Þar er kaup og sala eins og gerist víða í heiminum þegar í hlut eiga knattspyrnumenn í atvinnu- mennsku. 1 sambandi við frönsku liðin og það þýzka liggur hins vegar ekkert á fyrr en leiktímabilið hefst aftur i byrjun september. — Satt bezt að segja þá hef ég miklu meiri áhuga á að halda áfram að leika erlendis — tvö til þrjú ár enn. Það fer þó eftir ýmsu og ég held ekki áfram í atvinnumennskunni nema að ná góðum samningi hvort sem það verður áfram í Belgíu — Þýzkalandi eða Frakklandi. Að ýmsu leyti hef ég kunnað vel við mig í Belgíu þau tæpu tvö ár, sem ég hef verið þar. Það er gott að búa þar, þó hins vegar Felix Weach hafi gert mér lífið leitt á stundum síðustu mánuð ina. Hann var ekki hjá Charleroi þegar ég byrjaði að leika þar — og þá lék ég mjög frjálsa stöðu i liðinu. Hafði gaman af knattspyrnunni, sem þar var leikin, og var fastamaður í liðinu. Hins vegar tók Weaeh við liðinu á síðasta leiktímabili — og þar er nú allt önnur taktik. Af einhverj- um ástæðum hef ég ekki fallið inn I plön hans. Það er ekki gaman að æfa og æfa. Gera ekkert nema æfa knatt- spyrnu — og vera svo oftlega á vara- mannabekkjum. Þess vegna finnst mér ekki lengur nein framtíð í því að vera áfram hjá Charleroi. Tók þvi ekki boði stjórnar félagsins um nýjan samning. Hvað framtíðin ber hins vegar í skauti sér i sambandi við leikferil minn kemur væntanlega i Ijós fyrr en síðar. — Jafnvel mögu- leiki á því, að ég verði að fara til Belgíu eftir um hálfan mánuð til samninga. En það er allt óráðið hvort ég verð leikmaður hjá IBV næstu mánuði — eða jafnvel ár — eða held áfram í atvinnumennskunni, sagði Guðgeir Leifsson að lokum. Guðgeir bar með sér öll merki at- vinnumannsins, þegar ég ræddi við hann í gær. Tággrannur — hraust- legur. Þar fór greinilega maður. sem lagt hefur hart að sér við æfingar. Ef að líkum lætur verður hann í barátt- unni í HM-leiknum við Norður-tra á Laugardalsvelli á laugardag. Leiknin með knöttinn ákaflega ljúf. — Inn- köst hans og aukaspyrnur í sérflokki. Mjög reyndur leikmaður, þó hann sé aðeins 25 ára og landsliðsmaður um langt árabil. Það munu ekki aðeins íslendingar fylgjast með leik íslenzku strákanna á laugardag. Blaðið hefur frétt erlendis frá, að væntanlegir séu ýmsir útlend- ingar. Ekki aðeins Irar. heldur og útsendarar belgískra, þýzkra og franskra liða, sem munu hafa nánar gætur á tilþrifum leikmanna okkar. tslenzkir knattspyrnumenn eru í sviðsljósinu hvort sem okkur líkar betur eða verr — og atvinnulið sækjast eftir beztu leikmönnum okkar. - hsím. Bein símalína til umsjónarmanna íþróttasíðunnar er 83764

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.