Dagblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977.
13
S2\
1 3j
Italir komnir
til Helsinki
— Þetta er þýðingarmesti
leikur okkar það sem af er árinu,
sagði Enzo Bearzot, þjálfari ít-
alska landsliðsins, þegar hann
kom ásamt 16 leikmönnum til
Helsinki i gærkvöld. í dag mæta
ítalir Finnum i Helsinki og sigri
ítalir hafa möguleikar þeirra á að
komast í lokakeppnina á Argen-
tínu aukizt verulega. Finnar og
ítalir eru í riðli ásamt Englend-
ingum og Luxemburgarmönnum.
Ítalir hafa þegar sigrað
Englendinga — 2-0 í Róm.
Síðast þegar Finnar mættu
itölum skildu þjóðirnar jafnar,
0-0 á italíu. Það var í Evrópu-
keppni landsliða og italir unnu
mikinn heppnissigur í Helsinki
þá.
Að stofni verður ítalska liðið
skipað léikmönnum úr liðum
Torino og Juventus en þau höfðu
gifurlega yfirburði yfir önnur lið
á italíu þetta keppnistímabil.
Englendingar hafa þegar lagt
upp í ferðaiag til Suður-Ameríku
þar sem þeir meðal annars munu
mæta Argentínumönnum og
Brasilíumönnum. Don Revie fór
ekki með landsliðsmönnum
sínum heldur hélt hann til
Helsinki og fylgdist með leik
itala og Finna.
Víkingurmætir
Knötturinn í neti Vals — Dlafur Danivalsson sem ber í stöng hefurskailað knöttinn í netið en markið var dæmt af. Aðeins mínútu síðar
skoruou vaismenn sigurmark sitt. DB-mynd Bjarnleifur.
Keflavík f kvöld
Gæfan Val sannarlega
fylgispök gegn FH!
— íslandsmeistarar Vals sigruðu FH1-0 í 1. deild Islandsmótsins
íslandsmeistarar Vals komust
upp í annað sæti 1. deildar
Íslandsmótsins í knattspyrnu er
þeir sigruðu FH — neðsta liðið í
1. deild í gærkvöld, 1-0. Sigur
meistara Vals var mikill heppnis-
sigur — ef annað liðið var nær
sigri þá var það lið FH. FH sýndi
mun betri knattspyrnu en meist-
arar Vals og voru leikmenn FH
nokkrum sinnum nærri að skora.
En inn vildi knötturinn ekki og
Valur skoraði úr eina verulega
marktækifæri sínu, 1-0.
Gengi meistara Vals hefur
verið mikið í síðustu leikjum.
Eftir tvo ósigra í upphafi móts
hafa fimm sigrar fylgt í kjölfarið.
En í þessum sigrum hafa
hamingjudísirnar sannarlega
verið hliðhollar Val. Og lukkan er
oft með hinum sterka, stendur
einhvers staðar. Vörn Vals er þétt
fyrir, markvarzla Sigurðar Dags-
CS Brugge
vill Guðmund
— Það hefur borizt til min fyrir-
spurn frá CS Brugge í Belgíu sem
leikur í 1. deild. Mér er boðið út
til æfinga og viðræðna við félagið,
en ég er lítið spenntur fyrir þessu
og hef að öllu óbreyttu ekki hug á
að fara, sagði Guðmundur Þor-
björnsson, hinn ungi miðherji
Vals og landsliðsins.
CS Brugge er frá samnefndri
borg í Belgíu en þaðan eru einnig
belgísku meistararnir, FC
Brugge. Hefur CS Brugge staðið
mjög í skugga meistaranna. Auk
þess hefur enn eitt félag spurzt
fyrir um Guðmund og Daninn
Jack Johnson hefur reynt að setja
sig í samband við Guðmund.
Litlar líkur eru til að Guðmundur
fari utan — að minnsta kosti
þetta keppnistímabil nema þeim
mun girnilegri tilboð berist þess-
um unga og efnilega miðherja
islenzka landsliðsins.
-h. halls.
sonar stórgóð — en ígærkvöld var
sóknin ákaflega máttlítil og FH
hafði öll völd á miðjunni.
Valur hefur alls ekki náð að
sýna þá glæsiknattspyrnu er þeir
sýndu á síðastliðnu sumri.
Knötturinn gengur ekki eins vel
— leikmenn vilja hafa hann of
lengi. Kantarnir eru ekki notaðir
að sama skapi — og síðast en ekki
sízt er knettinum ekki skilað eins
vel úr vörn og þá. Tengiliðir Vals
hafa alls ekki náð að byggja upp
sþfl.
Valur var með daufara móti í
gærkvöld. í sóknina vantaði Guð-
mund Þorbjörnsson er var í leik-
banni. Ingi Björn lék því framar
en oft áður og naut sín greinilega
ekki sem skyldi. Sá eini sem lék
af eðlilegri getu af framlínu-
mönnum Vals var Atli Eðvalds-
son. Þeir fáu samleikskaflar er
sáust til Valsmanna í gærkvöld
spunnust í kringum Atla — og
hann var raunar upphafsmaður
að marki Vals skömmu fyrir leiks-
lok. Atli átti skot í stöng á 40. min.
síðari hálfléiks. Knötturinn féll
fyrir fætur Inga Björns sem ekki
hitti knöttinn. En ungur nýliði
Vals, unglingalandsliðsmaðurinn
Jón Einarsson, kom þar að og
skoraði sigurmark Vals með góðu
skoti af stuttu færi, 1-0.
Þetta tækifæri var raunar eina
verulega hættulega marktækifæri
Vals. FH hafði hins vegar undir-
tökin lengst af í leiknum og hefði
verðskuldað sigur. FH spilaði
mjög vel úti á vellinum og
nokkrum sinnum skall hurð
nærri hælum. Ólafur Danivalsson
fekk mjög gott tækifæri i fyrri
hálfleik er hann skaut yfir af
aðeins átta metra færi. Janus
Guðlaugsson átti hörkuskot úr
vítateig sem Sigurður Dagsson
varði mjög vel í horn.
Þegar FH lék gegn kaldanum í
síðari hálfleik héldu þeir einnig
undirtökunum í leiknum. Vörnin
var þétt — og miðjumennirnir
höfðu ávallt undirtökin. Þannig
á'tti Ólafur Danivalsson skot í
þverslá á 20. mínútu. Raunar
komu leikmenn FH knettinum i
netið — aðeins mínútu áður en
Valur skoraði. Knötturinn var
gefinn fyrir mark Vals frá vinstri.
Sigurður Dagsson og Janus
Guðlaugsson stukku saman —
knötturinn barst til Ölafs
Danivalssonar,' sem skallaði í
netið. En Eysteinn Guðmundsson
dæmdi hindrun á Sigurð
markvörð — og Valur slapp með
skrekkinn. Aðeins mínútu síðar
kom sigurmark Vals — já, slík er
knattspyrnan.
Alveg er það makalaust hvað
FH hefur verið óheppið í leikjum
sínum það sem af er. Liðið hefur
aðeins hlotið þrjú stig úr leikjum
sínum — 7. Gegn Víking og síðan
sigur gegn ÍBV. FH lék áreiðan-
lega sinn bezta leik það sem af er
sumrinu ef undan er skilið
leikurinn við Víking. Barátta var
mjög góð — vörnin var mjög þétt.
Þéttari en áður og í markinu stóð
Þorvaldur Þórðarson, ungur
nýliði og mikið efni. Hann stóð sig
með mikilli prýði í gærkvöld.
Miðjumenn FH höfðu ávallt
undirtökin með Þóri Jónsson sem
bezta mann. Þeir Janus Guðlaugs-
son, Olafur Danivalsson og Pálmi
Jónsson hættulegir framherjar;
Pálmi, bróðir Þóris er aðeins 17
ára og geysilegt efni. Fljótur og
harðskeyttur leikmaður. En
Júgóslavía sigraði í fimm-iiða
keppni er fram fór í Bjelovar í
Júgósiavíu. Keppnin hefur staðið
i sex daga með þátttöku nokkurra
sterkustu þjóða heims i hand-
knattleik. Sigurvegararnir úr B-
keppninni í Austurríki, Svíþjóð,
hafnaði i neðsta sæti, hlaut aðeins
eitt stig úr fimm leikjum sínum.
1 síðustu umferð skildu Júgó-
slavar og Olympíumeistarar Sovét
jöfn — 17-17. Sovétmenn höfðu
yfir í leikhléi 10-9. Ung-verjaland
vann stórsigur á Póllandi 27-20
gæfan var ekki fylgispök FH í
gærkvöld frekar en í fyrri
leikjum í sumar, það hlýtur að
breytast.
Leikinn dæmdi Eysteinn Guð-
mundsson.
h. halls.
Staðan í
l.deild
Staðan i t. deild islandsmótsins
eftir sigur Vals gegn FH er nú:
Akranes 7 5 11 10-5 11
Valur 7 5 0 2 11-8 10
Keflavík 6 4 11 11-7 9
Breiðablik 6 3 12 10-7 7
Víkingur 5 1 4 0 4-3 6
Fram 7 2 14 10-12 5
Þór 7 2 1 4 8-16 5
KR 5 113 7-53
ÍBV 5 113 2-4 3
FH 7 115 4-10 3
Markhæstu leikmenn íslands-
mótsins cru:
Ingi Björn Albertsson Val 5
Sumarliði Guðbjartsson Fram 5
Kristinn Björnsson ÍA 4
Pétur Pétursson ÍA 4
Heiðar Breiðf jörð Breiðabl. 3
Ólafur Danivalsson FH 3
eftir að hafa haft yfirburði í leik-
hléi, 16-8. Þá léku Svíar við b-lið
Júgóslavíu og skildu liðin jöfn,
16-16. Sviar höfðu vfir í leikhléi,
9-7.
Júgóslavia — a-lið — var eina
liðið er ekki bcið ósigur í mótinu
en lokastaðan frá Bjelovar varð:
Júgóslavia ö 3 2 0 118-98 8
Sovétríkin 5 3 1 1 108-95 7
Ungverjaland 5 3 1 1 114-105 . 7
Júgóslavía b 5 1 2 2 98-112 4
Pólland 5 1 1 3 95-108 3
Svíþjóð 5 0 1 4 96-108 1
Einn leikur fer fram i t. deild
Íslandsmótsins i knattspyrnu i
kvöld. Þá mætast Víkingur og
Keflavík á Laugardalsvelli. Vík-
ingar eru nú eina liðið sem ekki
hefur beðið lægri hlut í 1. deild.
En aðeins einn sigur svo vafalítið
leggja Vikingar mikla áherzlu á
sigur í kvöld.
Keflvíkingar hafa komið mjög
á óvart í 1. deild í sumar. Við litlu
var búizt af liðinu í byrjun móts
en hinir ungu leikmenn liðsins
hafa afsannað allar hrakspár og
ÍBK er nú ásamt ÍA búið að tapa
fæstum stigum í 1. deild — aðeins
þremur.
Kristján
í Víkíng
Víking hefur borizt goour liðs-
auki í handknattleiknum. Það er
hinn ungi landsliðsmarkvörður
Kristján ' Sigmundsson hefur
gengið yfir í raðir Víkings.
Kristján hefur Ieikið með
Þrótti en eins og kunnugt er féll
Þróttur í 2. deild nú í vor.
Kristján er einn okkar efnilegasti
markvörður og undir stjórn
Janusz Czerwinski tók Kristján
miklum framförum.
Ekki er að efa að Kristján
verður Viking mikill styrkur en
markvarzla hefur einmitt háð
Víking mjög síðastliðið keppnis-
timabil. Víkingar hafa þá lagt
fyrir tillögu til ársþings Hand-
knattleikssambands íslands þar
sem erlendum leikmönnum verði
heimilað að leika með islenzkum
félagsliðum.
Kristján Sigmundsson — í Víking.
Júgóslavar
sigruðu í Bjelovar