Dagblaðið - 09.06.1977, Side 1
3. ARG. — FIMMTUn'AGUR 9. JUNÍ 1977 — 123. TBL. RITSTJÖRN SÍDUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022
.VH> ERUM EKKIHER
TIL AÐ SEMJA”
„Við erum ekki hér til að
semja, heldur að koma af stað
viðræðum og sambandi," sagði
Finn Gundelach, forystumaður
i sendinefnd Efnahagsbanda-
lagsins, í viðtaii við DB i
morgun.
,,Við munum ekki ræða nein
sérstök vandamál," sagði
Gundelaeh. Hann kvaðst óska
þess, að viðræðurnar nú kæmu
á sambandi og frekari viðræður
yrðu í náinni framtíð. „Ég er
alls ekki kominn til að ræða
viðskiptamál," sagði hann, þeg-
ar hann var spurður, hvort
EBE hygðist hóta viðskipta-
þvingunum.
Gundelach lagði áherzlu á, að
hann væri hér sem fulltrúi
— sagði Gundelach
ímorgun
Efnahagsbandalagsins sem
heildar en alls ekki Breta.
Viðræður EBE-manna og
íslenzkra ráðherra hófust
klukkan tíu í morgun.
-HH.
Þeir borga
unglingunum
snöggtum betur
— þeir í
Kópavoginum
— bls. 4
Áfrýjar
Korkurinn
til Hæsta-
réttar?
— bls.8
EBE-menn seinir til stefnumótsins
Laugardalslaugin:
Pilti bjargað
bráÁkvaddur
frá drukknun 's6l“
Gunnar Erlendsson — bjarg-
aði lifi ungs manns.
„Blessaðir verið ekki að
hafa orð á þessu, þetta er ekki
annað en okkar starf,“ sagði
Gunnar Erlendsson vörður í
Sundlaugunum í Laugardal í
viðtali við DB. Gunnar var á
vakt klukkan rúmlega eitt í
gær er hann sá ungan pilt
liggjandi á botni laugarinnar.
„Eg sá strax að pilturinn var
lífvana og ég hafði engin um-
svif. Þetta skeður sjálfkrafa,
maður hugsar ekki annað en
ná í viðkomandi. Ég sá það
eftir á að ég hafði ekki einu
sinni varpað af mér klossun-
um,“ sagði Gunnar.
Ciunnar náði piltinum upp
og hóf lífgunartilraunir með
blástursaðferð. Þær báru
árangur þegar eftir 1—2 mín-
útur og pilturinn var kominn
til Iifs er sjúkrabifreið kom og
flutti hann í slysadeild.
Síðdegis í gær virtist hann
hafa náð sér nokkurn veginn
til fulls.
„En blessaðir gerði ekki
mikið úr þessu,“ sagði Gunnar.
„Þetta er skyldustarf og gott
þegar þau takast vel í slysatil-
fellum." Gunnar hefur verið
laugarvörður í hálft fimmta ár
og oft stungið sér eftir fólki
sem átti í erfiðleikum í laug-
inni og blásið í allmarga, bæði
laugargesti og eins aðra sem
átt hafa í öndunarerfiðleikum,
jafnvel inni í baðklefum.
Annað atvik gerðist í Sund-
laugunum í gærdag. Maður
sem þar var gestur, 55 ára
gamall, varð toráðkvaddur í sól-
baði.
- ASt.
Einhver vandamál virtust
hafa skotið upp kollinum hjá
Grundelach og félögum hans
frá Efnahagsbandalaginu í
morgun. Þegar halda átti af
stað til stefnumóts með Einari
Agústssyni í morgun virtist
eitthvað ama að. Klukkan varð
10 og enn voru menn ekki
lagðir af stað frá Loftleiða-
hótelinu. Stefnumótið dróst
um einar 15 mínútur. Hér sjá-
um viðbandalagsmenn í þung-
um þönkum yfir pappírum sín-
um á sama tíma og þeir áttu að
vera mættir hjá ráðherra.
DB-mynd Bjarnleifur.
Von um
samkomu-
lag í vísi-
tölumálinu
— baksíða
Ætli þjóðin
sémeð
sjálf ri sér?
— sjá kjallaragrein
LeósM. Jónssonar
á bls. 10 -11
Lftil stúlka
týndi
aleigunni
í gær fór lítil stúlka í
bæinn og tapaði aleigunni
einhvers staðar á Laugaveg-
inum. Þetta voru 6200
krónur og eru þeir sem
kynnu að hafa fundið þær
beðnir að hringja í síma
72458 eða á Dagblaðið.