Dagblaðið - 10.06.1977, Page 1
3. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1977 — 124. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUULÝSINGAR ÞVERHOLTI 11,- AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI 27022
-------;-------
Samningarnir:
Samkomulag í vísitölu-
málinu í aðalatriðum
Samkomulaf; var« si'mt í kkm'-
kvöldi um aðalatriði visi-
tölumálsins. þaó er hverniM
reikna skuli verðbætur á kaup
á næsta samningstimabili.
Krónutalan, sem greidd verður
fyrir hvert prósent sem verðlag
hækkar um, er þó óákveðin en
verður liklega lítið eitt hærri
en 850 krónur.
Alþýðusambandsmenn létu að
lokum undan kröfum atvinnu-
rekenda um, að fyrsta vísi-
töluprósentið verði óbætt í
svonefndum verðbótarauka, en
með honum á að bæta launþeg-
um það upp, ef verðhækkanír
verða fljótlega eftir
kauphækkun en fást ekki bætt-
ar fyrr en síðar. Á þá að bæta
þá töf með sérstökum verðbóta-
auka. Menn voru farnir að tala
um, að fyrstu 0,75 prósentin í
verðbótaraukanum yrðu ekki
bætt en atvinnurekendur voru
tregir til að samþ.vkkja það, og
gáfu ASt-menn loks eftir seint í
gærkvöldi.
Ætlunin er að reikna nýjan
visitölugrundvöll og bæta hvert
prósent i verðhækkunum með
ákveðinni upphæð. Sáttanefnd
lagði til, að upphæðin yrði 850
krónur fyrir hvert stig, og var
þá miðað við, að kauphækkunin
yrði 15 þúsund krónur Menn
búast almennt við, að
kauphækkunin strax verði
eitthvað meiri en 15 þúsund og
stendur þá til, að vísi-
töluppbótin yrði nokkrum
krónum meiri en 850 krónur
fyrir hvert prósent, sem
verðlag hækkar um. Menn
telja, að ekki sé unnt a$ ganga
frá þeirri upphæð, fyrr en fyrir
liggi, hver kauphækkunin
verður.
ASÍ-menn sögðu að þeir
mundu reyna að fá það upp
bætt með meiri kauphækkun,
að þeir hafi látið undan um
verðbótaaukann og fallizt á, að^
sú búvöruhækkun, er stafar af’
launahækkun bóndans verði
óbætt. Þá muni einnig verða
bætt með hærri kauphækkun,
ef ASÍ verður að falla frá
kröfunni um, að kauphækkun
reiknist frá 1. maí. -HH.
Utgerðarformaðurinn
veiddi fyrsta laxinn
Laxarnir heilsuðu borgarst jóra með
— DR-mynd
Sv. Þorm.
Framköllun
álitfilmum
371%
dýrari hér
ení
Englandi
— sjá lesendadálkana
ábls.2-3
Þorskurinn á
hvergi griða-
stað við ísland
— sjá kjallaragrein
Auðuns Auðunssonar
skipstjöra á bls. 11
Vöxtur án vistkreppu:
Mannkynið hagi
sér eins og
íslenzkur bóndi
— baksíða
Ragnar Júlíusson, skólastjóri Álftamýrar-
skóla og formaður útgerðarráðs BÍJR
hampar hér hróðugur fyrsta laxinum úr
Elliðaánum þetta sumarið.
Það var Ragnar Júlíusson
skólastjóri, formaður stjórnar
Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
forrnaður Veiði- og fiskræktar-
ráðs Reykjavíkur sem dró
fyrsta laxinn úr Elliðáánum á
þessu sumri.
Veiði hófst þar í morgun kl. 7
og mættir voru Birgir ísl.
Gunnarsson, Aðalsteinn Guð-
johnsen rafmagnsveitustjóri,
auk Ragnars. Þótti BÚR sýna
yfirburði yfir aðrar borgar-
stjórnardeildir i veiðimálum.
Liðugur stundarfjórðungur
var liðinn af veiðitímanum er
Ragnar setti i fyrsta laxinn. Það
gerðist undir fagurgrænum
austurbakka Neðra-Móhyls.
Ragnar sýndi snör og örugg
handtök og það tók aðeins
örfáar mínútur að draga laxinn
á land. Þótti sumum nóg um
hraðann. Laxinn reyndist 8
punda hrygna mjög fögur.
„Þetta er yfirstærð af Elliðaár-
laxi“ sagði Garðar Þórhallsson
form. Elliðáarnefndar SVFR.
„Svona laxar ganga oft fyrstir í
árnar.”
Laxinn heilsaði mjög
kurteislega upp á Birgi borgar-
stjóra sem stóð á fossbrúninni.
Léku þeir við öngul hans og
nörtuðu aðeins í maðkinn á
öngli hans, en frestuðu í bili
frekari aðgerðum. Það var
góður morgunn við Elliðaárnar,
hlýtt og hæfilega bjart til veiða.
Marga áhorfendur dreif að og
stjórnarmenn SVFR gáfu hin-
um tignu veiðigestum góð ráð.
En lítið vatn er i ánum og hætt
við að það dragi úr göngum i
hana. -ASt.
Rannsóknarlögregla ríkisins ífæöingu:
Ólga vegna stöðuveitinga
Töluverð ólga og óánægja er
nú meðal rannsóknarlögreglu-
manna í Reykjavik vegna stöðu-
veitinga í hinni nýju Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Hafa þar verið veittar tvær
aðstoðaryfirlögregluþjóns-
stöður, sem ekki voru auglýslar
lausar til umsóknar.
„Við höfum ekkert á móti
þeim mönnum, sem stöðurnar,
fengu heldur virðist okkur
ekki hafa verið farið að settum
lögum,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson, formaður Félags
rannsóknarlögreglumanna í
Re.vkjavík, i samtali við frétta-
mann blaðsins í morgun.
Hefur félagið boðað til
félagsfundar síðdegis í dag, þar
sem þessar stöðuveitingar
verða ræddar og aðgerðir
ígrundaðar.
Yfirlögregluþjónn Rann-
sóknarlögreglu ríkisins hefur
veirð ráðinn Njörður Snæhólm,
en aðstoðaryfirlögregluþjónar
þeir Gísli Guðmundsson og
Ragnar Vignir.
Rúmlega sextíu manns hafa
sótt um þær 29 stöður rann-
sóknarlögreglu- og boðunar-
manria, sem dómsmálaráðu-
ne.vtið leggur til að hefji störf
þegar Rannsóknarlögregla
ríkisins tekur formlega til
starfa 1. júli.
Þrír löglærðir fulltrúar hafa
verið ráðnir. Erla Jónsdóttir,
Örn Ilöskuldsson og Þórir
Oddsson, sem jafnframt mun
verða staðgengill Hallvarðs
Einvarðssonar, rannsóknarlög-
reglustjóra. Fulltrúarnir þrír
munu gegna deildarstjóra-
stöðum, en að sögn Hallvarðs
Einvarðssonar á blaðamanna-
fundi í gær hefur deildaskipt-
ingin ekki endanlega verið
ákveðin. Ekki er afráðið um
launastöðu deildarstjóranna
innan kerfisins, en á blaða-
mannafundinum kom fram að
þau Erla, Örn og Þórir sóttu um
stöðurnar eftir að umsóknar-
fresti lauk. Hafði þá verið
komizt að samkomulagi við þau
um stöðuhækkanir og bætt
laun.
-ÖV/ASt.