Dagblaðið - 10.06.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 10.06.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1977 — 124. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUULÝSINGAR ÞVERHOLTI 11,- AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI 27022 -------;------- Samningarnir: Samkomulag í vísitölu- málinu í aðalatriðum Samkomulaf; var« si'mt í kkm'- kvöldi um aðalatriði visi- tölumálsins. þaó er hverniM reikna skuli verðbætur á kaup á næsta samningstimabili. Krónutalan, sem greidd verður fyrir hvert prósent sem verðlag hækkar um, er þó óákveðin en verður liklega lítið eitt hærri en 850 krónur. Alþýðusambandsmenn létu að lokum undan kröfum atvinnu- rekenda um, að fyrsta vísi- töluprósentið verði óbætt í svonefndum verðbótarauka, en með honum á að bæta launþeg- um það upp, ef verðhækkanír verða fljótlega eftir kauphækkun en fást ekki bætt- ar fyrr en síðar. Á þá að bæta þá töf með sérstökum verðbóta- auka. Menn voru farnir að tala um, að fyrstu 0,75 prósentin í verðbótaraukanum yrðu ekki bætt en atvinnurekendur voru tregir til að samþ.vkkja það, og gáfu ASt-menn loks eftir seint í gærkvöldi. Ætlunin er að reikna nýjan visitölugrundvöll og bæta hvert prósent i verðhækkunum með ákveðinni upphæð. Sáttanefnd lagði til, að upphæðin yrði 850 krónur fyrir hvert stig, og var þá miðað við, að kauphækkunin yrði 15 þúsund krónur Menn búast almennt við, að kauphækkunin strax verði eitthvað meiri en 15 þúsund og stendur þá til, að vísi- töluppbótin yrði nokkrum krónum meiri en 850 krónur fyrir hvert prósent, sem verðlag hækkar um. Menn telja, að ekki sé unnt a$ ganga frá þeirri upphæð, fyrr en fyrir liggi, hver kauphækkunin verður. ASÍ-menn sögðu að þeir mundu reyna að fá það upp bætt með meiri kauphækkun, að þeir hafi látið undan um verðbótaaukann og fallizt á, að^ sú búvöruhækkun, er stafar af’ launahækkun bóndans verði óbætt. Þá muni einnig verða bætt með hærri kauphækkun, ef ASÍ verður að falla frá kröfunni um, að kauphækkun reiknist frá 1. maí. -HH. Utgerðarformaðurinn veiddi fyrsta laxinn Laxarnir heilsuðu borgarst jóra með — DR-mynd Sv. Þorm. Framköllun álitfilmum 371% dýrari hér ení Englandi — sjá lesendadálkana ábls.2-3 Þorskurinn á hvergi griða- stað við ísland — sjá kjallaragrein Auðuns Auðunssonar skipstjöra á bls. 11 Vöxtur án vistkreppu: Mannkynið hagi sér eins og íslenzkur bóndi — baksíða Ragnar Júlíusson, skólastjóri Álftamýrar- skóla og formaður útgerðarráðs BÍJR hampar hér hróðugur fyrsta laxinum úr Elliðaánum þetta sumarið. Það var Ragnar Júlíusson skólastjóri, formaður stjórnar Bæjarútgerðar Reykjavíkur og forrnaður Veiði- og fiskræktar- ráðs Reykjavíkur sem dró fyrsta laxinn úr Elliðáánum á þessu sumri. Veiði hófst þar í morgun kl. 7 og mættir voru Birgir ísl. Gunnarsson, Aðalsteinn Guð- johnsen rafmagnsveitustjóri, auk Ragnars. Þótti BÚR sýna yfirburði yfir aðrar borgar- stjórnardeildir i veiðimálum. Liðugur stundarfjórðungur var liðinn af veiðitímanum er Ragnar setti i fyrsta laxinn. Það gerðist undir fagurgrænum austurbakka Neðra-Móhyls. Ragnar sýndi snör og örugg handtök og það tók aðeins örfáar mínútur að draga laxinn á land. Þótti sumum nóg um hraðann. Laxinn reyndist 8 punda hrygna mjög fögur. „Þetta er yfirstærð af Elliðaár- laxi“ sagði Garðar Þórhallsson form. Elliðáarnefndar SVFR. „Svona laxar ganga oft fyrstir í árnar.” Laxinn heilsaði mjög kurteislega upp á Birgi borgar- stjóra sem stóð á fossbrúninni. Léku þeir við öngul hans og nörtuðu aðeins í maðkinn á öngli hans, en frestuðu í bili frekari aðgerðum. Það var góður morgunn við Elliðaárnar, hlýtt og hæfilega bjart til veiða. Marga áhorfendur dreif að og stjórnarmenn SVFR gáfu hin- um tignu veiðigestum góð ráð. En lítið vatn er i ánum og hætt við að það dragi úr göngum i hana. -ASt. Rannsóknarlögregla ríkisins ífæöingu: Ólga vegna stöðuveitinga Töluverð ólga og óánægja er nú meðal rannsóknarlögreglu- manna í Reykjavik vegna stöðu- veitinga í hinni nýju Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Hafa þar verið veittar tvær aðstoðaryfirlögregluþjóns- stöður, sem ekki voru auglýslar lausar til umsóknar. „Við höfum ekkert á móti þeim mönnum, sem stöðurnar, fengu heldur virðist okkur ekki hafa verið farið að settum lögum,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson, formaður Félags rannsóknarlögreglumanna í Re.vkjavík, i samtali við frétta- mann blaðsins í morgun. Hefur félagið boðað til félagsfundar síðdegis í dag, þar sem þessar stöðuveitingar verða ræddar og aðgerðir ígrundaðar. Yfirlögregluþjónn Rann- sóknarlögreglu ríkisins hefur veirð ráðinn Njörður Snæhólm, en aðstoðaryfirlögregluþjónar þeir Gísli Guðmundsson og Ragnar Vignir. Rúmlega sextíu manns hafa sótt um þær 29 stöður rann- sóknarlögreglu- og boðunar- manria, sem dómsmálaráðu- ne.vtið leggur til að hefji störf þegar Rannsóknarlögregla ríkisins tekur formlega til starfa 1. júli. Þrír löglærðir fulltrúar hafa verið ráðnir. Erla Jónsdóttir, Örn Ilöskuldsson og Þórir Oddsson, sem jafnframt mun verða staðgengill Hallvarðs Einvarðssonar, rannsóknarlög- reglustjóra. Fulltrúarnir þrír munu gegna deildarstjóra- stöðum, en að sögn Hallvarðs Einvarðssonar á blaðamanna- fundi í gær hefur deildaskipt- ingin ekki endanlega verið ákveðin. Ekki er afráðið um launastöðu deildarstjóranna innan kerfisins, en á blaða- mannafundinum kom fram að þau Erla, Örn og Þórir sóttu um stöðurnar eftir að umsóknar- fresti lauk. Hafði þá verið komizt að samkomulagi við þau um stöðuhækkanir og bætt laun. -ÖV/ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.