Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.06.1977, Qupperneq 8

Dagblaðið - 14.06.1977, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977. — aðeins einn strikaður af veiðiskrá síðan samið var Aflasamsetning könnuð í lest. Lausarstöður Við Flensborgarskðlann í Hafnarfirði, fjölbrautaskóla. eru lausar kennarastöður í eftirtöldum kennslugreinum: viðskiptagreinum (hagfræði, bókfærslu o.fl.), stærð- fræði, sérgreinum heilsugæslubrautar ('A staða), félags- fræði og sálarfræði. Laun samkv. iaunakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 10. júlí nk. — Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið. 10. júní 1977. Lausarstöður Við Menntaskólann við Hamrahlíð eru lausar til umsókn- ar kennarastöður í stærðfræði og eðlisfræði ('A staða). Æskiiegt er að umsækjendur geti kennt báðar jtessar námsgreinar. Laun samkv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsöknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 10. júlí nk. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 10. júní 1977. 17. júní sölutjöld Þeir sem óska eftir að selja Atlas Super samlokur 17. júní vinsamlega hafi samband við okkur strax. Uppl. í simum 73633-27726-86178. Akranes Vegna sumarleyfa sér Amalía Pálsdóttir Presthúsabraut 35 fyrst um sinn um afgreiöslu blaösins. Sími2261 á daginn og2290 á kvöldin. BIABIB Eldhúsinnréttingar 3 nýjar gerðir af eldhúsinnréttingum, hnota, fura og eik. Uppslilltar á staðn- um. Auðbrekka 32 Kópavogi. „Þeir taka þessu flestir allvel og sumir bjóða jafnvel upp á bjór, þótt hann sé ekki þeginn,“ sagði Skúli Hjaltason, háseti á varð- skipinu Óðni, er hann kom með myndir af einu slíku atviki fyrir hálfum mánuði. Þá kom varðskipið að þrem vestur þýzkum togurum i Beru- fjarðarál og voru myndirnar teknar um borð í togaranum Carl Wiederkhes BX-667, sem er gamall skuttogari. Kyrst var togarinn kallaður upp og látinn vita hvað til stóð. Siglt var upp að honum og síðan fóru nokkrir varðskipsmenn yfir í gúmmíbát áður en togarinn hífði trollið. Með því móti eru engin undanbrögð fær. Síðan var trollið híft inn og fylgdust varðskipsmenn með öll- um búnaði og mældu svo möskva- stærð með tilteknu áhaldi. Allt reyndist i stakasta lagi í þessu tilviki, og svo hefur reynd- ar verið síðan i fyrra, að einn vestur-þýzkur togari var strikaður út af veiðiskrá hér vegna ólöglegs veiðarfærabúnaðar. Að möskvaathugunum loknum var aflasamsetningin í lest könnuð en henni bar saman við Baldur Halldórsson mælir möskvastærð með þartilgerðu áhaldi. uppgefnar tölur skipstjórans og var í lagi. Að svo búnu var gefið út vottorð um skoðunina þess efnis að allt hefði verið í lagi og er hún ítarleg og margþætt. Að svo búnu var kvatt og haldið yfir í varðskipið aftur. -Skúli/G.S. Trollið híft inn eftir að varðskipsmenn eru komnir um borð til að fylgjast með. S;e\ar Rerg .'t. sl vrimaður og Fiililbpgi Birgissoii liálsmaður. IHt-niviidir Skúli lljallason. Landhelgisgæzlan fer um borð í v-þýzka togara: SKIPSTJÓRARNIR MISMUN- ANDIHRESSIR, SUMIR BJÓÐAJAFNVEL UPP Á BJÓR

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.