Dagblaðið - 14.06.1977, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNÍ 1977.
I
Útvarp
23
Sjónvarp
D
Utvarpssagan kl. 21.30:
Söguhetjan gerir upp við sjálfan
sig — og tekur afstöðu til lífsins
— Lesin af leikkonunni sem fór ívinnumennsku með prestlærðum eiginmanni sínum
„Þetta er sveitasaga og
kannske ekki svo langt frá
raunveruleikanum eins og
hann er í sveitum landsins í
dag. En vonandi er þetta nú að
breytast,“ sagði Halla
Guðmundsdóttir leikkona, sem
byrjaði að lesa nýja útvarps-
sögu í gærkvöldi, Undir ljásins
egg. Halla hefur sagt skilið við
borgarlífið í bili og hefur verið
í vinnumennsku austur á Asum
í Hreppum með eiginmanni sín-
um, Viðari Gunngeirssyni,
síðan í haust.
„í sögunni segir frá vanda-
málum ungs manns, en foreldr-
ar hans eru orðnir gamlir og
hættir að búa og eru svartsýnir
á að það sé hægt að búa áfram í
sveitum landsins.
Það segir einnig frá uppgjöri
unga mannsins við sjálfan sig
og afstöðu hans til lífsins.
Þetta er ekki löng saga, ekki
nema sex lestrar en mjög at-
hyglisverð," sagði Halla.
— Ertu setzt að í sveitinni fyrir
fullt og allt?
„Eg er kannske eins og ungi
maðurinn í sögunni, get ekki
gert upp við mig hvort ég á að
vera áfram í sveitinni eða hvort
ég á að flytja aftur til
höfuðborgarinnar.
Maðurinn minn og ég höfum
verið í vinnumennsku hérna
síðan í haust og ráðgerum að
vera hér í eitt ár, að minnsta
kosti. Eg er fædd hér og
uppalin, svo ég þekki mig hér
vel. Maðurinn minn hefur 'sjö
ára guðfræðinám að baki og
það gefst vel við
skepnuhirðinguna," sagði
Halla.
— Hvernig eru tómstundirnar í
sveitinni?
„Þær eru nú ekki ýkja marg-
ar, svona þegar sauðburðurinn
er rétt að enda. En ef tími
vinnst til förum við á hestbak.
Vorverkin eru langt komin
núna, búið að láta kýrnar, sem
eru þrjátíu talsins, út.“
— Hefurðu ekki verið í ein-
hverri leikstarfsemi?
„Jú, ég leikstýrði einni
sýningu í vetur. Það var Piltur
og stúlka og tóku um þrjátíu
manns þátt í sýningunni. Við
höfðum níu sýningar, aðallega i
Árnesi og einnig fórum við í
leikför og höfðum tvær sýning-
ar í Kópavogsbíói. Þetta var
mjög skemmtilegt viðfangsefni
þótt það væri dálítið erfitt,“
sagði Halla Guðmundsdóttir.
Undir ljásins egg er á dag-
skránni mánudags- íniðviku-
dags- og föstudagskvöld (þó
ekki næstkomandi föstudag,
því þá er 17. júní) næstu
vikurnar. Bókin kom út árið
1969. Halla taldi að sagan hefði
getað gerzt fyrir svona fimmtán
árum. Höfundur sögunnar,
Guðmundur Halldórsson, er
kenndur við Bergsstaði, en er
nú búsettur á Sauðárkróki.
-A.Bj.
Halla Guðmundsdóttir hefur leikið mörg hlutverk bæði á ieiksviðinu f Iðnó og f sjónvarpinu. Hérna er
hún ásamt Hjalta Rögnvaldssyni í Equus, sem sýnt var í Iðnó fyrir ári. DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Útvarp annað kvöld kl. 19.35: Fjöllin okkar
Fært fyrir fáum árum inn í Kerlingarfjöli
—vantar brú á Sandá sem er viðsjárverður tálmi
Sjónvarp annað kvöld kl. 20.30:
Hvaða áhrif hef ur
kuldi á líkamann?
— Ullin getur bjargað mannslíf um
Þriðja erindið í erinda-
flokknum Fjöllin okkar er á
dagskrá útvarpsins annað kvöld
kl. 19.35. Eiríkur Haraldsson
kennari spjallar um Kerlingar-
fjöll.
„Ég ætla að segja frá
Kerlingarfjöllum frá augum
ferðamannsins. Ég ætla að
útskýra fyrir hlustendum hvar
fjöllin eru staðsett á landinu,
en það eru ekki allir sem átta
sig á því hvar þau eru. Þá mun
ég einnig lýsa gönguleiðum og
staðháttum,1' sagði Eiríkur.
Hann er þaulkunnugur i
Kerlingarfjöllum, búinn að
vera þar öll sumur í sextán ár.
Eiríkur er einn af stofnendum
skíðaskólans í Kerlingar-
fjöllum.
„Eg vonast til þess að dvelja í
Kerlingarfjöllunum öll þau
sumur, sem ég á eftir,“ sagði
Eiríkur.
1 Kerlingarfjöllum er
fjölbreytilegt landslag, mikið
um hverasvæði, há fjöll og
grösugir dalir á milli. Þar er að
finna sérstakt fyrirbæri, sem er
einungis til á norðurhveli,
en það eru hjarnfannir, sem
ekki bráðna efst í háum fjöllun-
um. Það er ekki jökull, heldur
snjór, sem ekki nær að bráðna.
Þetta er aðalskíðalandið okkar.
Einstaka sinnum kemur
jökullinn upp úr, maður sér
sprungur, íshella og allt sem
tilheyrir jöklum."
— Er hægt að komast á litlum
bílum inn í Kerlingarfjöll?
„Það eru um það bil 200 km
þangað, en ekki er hægt að
Fjallið Mænir í Kerlingar-
fjöllum. (Ur bókinni Landið
þitt. Teikning Ragnar Lár.).
komast þangað lengur á fólks-
bílum, aðeins á góðum fjalla- og
ferðabílum. Við ráðleggjum
engum að koma nema á jeppum
og helzt í samfloti. Þetta er
vandræðamál, því hér fyrir
nokkrum árum var fært í
Kerlingarfjöll á hvaða bíl sem
var. En Sandá, sem er rétt
fyrir ofan Gullfoss, er orðin
ískyggilegur farartálmi. A hana
vantar brú, en hún er væntan-
leg eftir svo sem tvö ár. Það var
meira að segja hægt að komast í
Kerlingarfjöll á Austin Mini,“
sagði Eiríkur.
Kerlingarfjöll eru tæpir
1500 metrar á hæð. Til
glöggvunar má geta þess að
Esjan er rúmir 900 m á hæð.
-A.Bj.
Að deyja úr kulda nefnist brezk
heimildarmynd sem sýnd er í
sjónvarpinu annað kvöld kl.
20.30. Myndin er sýnd á vegum
Slysavarnafélagsins. Þýðandi og
þulur er Ellert Sigurbjörnsson og
sýningartími tuttugu og fimm
mínútur.
í mynd þessari er meðal annars
sýnt hvað gerist ef menn falla í
sjóinn eða fara illa búnir á fjöll.
Fer vel á því að sýna íslenzkum
áhorfendum þessa mynd, því
hreinlega getur líf fólks oltið á
því hvort það er vel eða illa klætt
í ferðalögum.
Við erum svo vel sett hér á
landi að geta klætt okkur í
islenzku ullina. Hún heldur hita á
líkamanum þótt viðkomandi
vökni. Leiðsögumenn brýna
jafnan fyrir ferðafólki að fara
ekki í óbyggðaferðir nema með
ullarfatnað meðferðis. Fyrir
nokkrum árum fórust nokkrir
ferðamenn í hvítasunnuferð. Var
talið að þeir hefðu bjargazt ef
þeir hefðu verið í fslenzkum ullar-
fatnaði.
-A.Bj.
Sjónvarp íkvöld kl. 21.55:
HAFIÐ ÓÞRJÓTANDIFÆÐU-
F0RÐABÚR EF RÉTT
ER HALDIÐ Á MÁLUM
Hvers er að vænta? nefnist
bandarisk fræðslum.vnd sem er
á dagskrá sjónvarpsins í kvöld
kl. 21.55. Þýðandi og þulur er
Jón O. Edwald.
Jón sagði í viðtali við DB að
þetta væri gullfalleg mynd um
hafið og rannsóknir sem gerðar
hafa verið á lífriki þess og hafs-
botninum.
Vísindamenn hafa nú loks
komizt að því að hafið tekur
ekki endalaust við úrgangi frá
mannfólkinu. Ibúar jarðar-
innar eru um það bil að eyða
lífinu i hafinu, sem gæti
orðið óþrjótandi forðabúr fæðu
ef rétt væri haldið á máium.
-A.Bj.