Dagblaðið - 20.06.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — MANUDAGUR 20. JtíNÍ 1977 — 128. TBL. RIT.STJÓRN SlÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVEPHOLTI 11," AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AOALSÍMI 2702Z,
HÆTT VIÐ
ALLSHERJAR-
VERKFALLIÐ?
—samkomulag við verzlunarmenn og
prentara í nótt
— iðnaðarmenn vilja hærri krónuhækkun
en hinir
,,Mér þykir sennilegt að alls-
herjarverkfallið á morgun
verði ekki látið koma til fram-
kvæmda," sagði einn
„topp“samningamaðurinn í
morgun. Deilur um kjör upp-
mælingamanna standa enn í
vegi fyrir undirritun samninga
en óvíst að allsherjarverkfall
verði, þótt þau mál yrðu enn
eftir i kvöld.
Iðnaðarmennirnir vilja halda
álögum sínum í hlutföllum, sem
þýðir að þeir fengju meiri
hækkun í krónutölu en aðrir
hafa fengið. Vinnuveitendur
þeirra vitna til láglauna-
stefnunnar og vilja ekki sam-
þykkja þessi hlutföll. Þetta var
enn óafgreitt í morgun, þegar
fundi var hætt. Hins vegar er í
aðalatriðum búið að semja við
verzlunarmenn. í nótt var sam-
komulag um, að í haust yrði
fulltrúatala í stjórn lífeyris-
sjóðsins jöfn eins og verzlunar-
menn höfðu krafizt. Önnur mál
verzlunarmanna eru talin mest
spurning um frágang. Er því að
neita má búið að ganga frá
þeirra málum.
i nótt gamdist um sérkröfur
prentara á grundvelli 2,5
prósenta reglunnar.
Tilmæli um afboðun verk-
falls í dag, sem átti að verða hjá
fjölda félaga víða um land, voru
samþykkt á fundi aðalnefndar
ASl fyrir miðnættið. Eftir það
voru verkföllin í dag afboðuð,
þó ekki í Vestmannaeyjum og
hjá verzlunarmannafélaginu á
ísafirði.
Samningamenn töldu í
morgun fremur ólíklegt að
unnt yrði að ganga svo frá
samningum að undirritun yrði í
dag, en þó ekki óhugsandi.
Samningafundir hafa staðið
mestallá helgina. Fundur stóð
til sex í gærmorgun og hófst
aftur klukkan eitt í gærdag og
stóð til klukkan 'fimm í morgun.
HH
NIÐURGREIÐSLUR AUKNAR
UM 1,5 VrSITÖLUSTIG
— lækkar verðá mjólk og kjöti
Niðurgreiðslur verða auknar
og greitt niður eitt og hálft
vísitölustig í viðbót. Þetta er
hluti af „pakka“
ríkisstjórnarinnar tii lausnar
kjaradeilunni, sem verður
birtur í dag. Niður-
greiðslurnar munu verða bæði
á mjólk og kjöti. Þær eru taldar
kosta um milljarð.
Skattalækkanir koma til með
þeim hætti, að nýtt skattþrep
með 30% skatti kemur til. Fólk
mun greiða 20% skatt af
nokkru hærri nettótekjum en
áður, upp í 1,4 milljónir fýrir
hjón. Þá tekur við 30% þrepið,
á nettótekjum hjóna frá 1,4
milljónum til 2ja milljóna og
frá milljón upp í 1,4 milljónir
fyrir einstaklinga.
Einhleypir tekjutryggingar-
þegar, sem búa einir á eigin
fvegum, eins og það er orðað, fá
10 þúsund krónur á mánuði í
„heimilisuppbót".
„Frítekjumarkið" um lífeyri,
það er þær aðrar tekjur, sem
fólk má hafa án þess að lífeyrir
skerðist, hækkar úr 120
þúsundum í 180 þúsund.
Bætur almannatrygginga
hækka 1. júlí til samræmis við
kauphækkunina nú_
Stefnt verður að endurbötum
á lífeyrissjóðiöterfinu og á
nýskipan að taka gildi 1980.'
Ríkisstjórnin mun skipa
nefndir um vinnuvernd og
húsnæðismál.
Meira fé mun fara til verka-
mannabústaða. Öryggi á
vinnustöðum og hollustuhættir
munu sérstaklega kannaðir.
Alþýðusambandsmenn tóku
þessum aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar vel, þegar DB
ræddi við þá um þau mál í gær.
-HH.
Þar söng og hvein og bensínið rann eins og vatn:
Níu ára trylli-
tæki sigraði
Margt vígalegra tækja kom
saman að Hrauni í Ölfusi til sand-
spyrnukeppni þar í gær á vegum
Kvartmíluklúbbsins. Einna mesta
athygli vakti Triumph árgerð
1968 með 8 strokka 289 cub. Ford
vél og vann hann í fólksbíla-
flokki. Fór hann 100 metra braut
á 7,49 sekúndum og hlaut fæst
refsistig í sínum flokki, 806.
Ökumaður var Kristinn
Kristinsson. sem i fyrra keppti á
Bronco en þá keppti kona á
Triumpnum. Nanar segir fra
keppninni í blaðinu á morgun. —
G.S. DB-mynd: Jakob Guðmtmds-
son.
Þjóðhátíðarhelgin kostaði
fjögur mannslíf
— Siá baksíðu
Hitaveitan íHveragerði erað
eyðileggjast — Sjábls.9
„EIGUMVIÐ EKKI
AÐ FARA AÐ HÆTTA?”
„Eigum við ekki að fara ao nætta þessu?" Sú spurning er
vafalaust efst í hugum flestra samningamanna eftir rúmlega
þriggja mánaða samningaþóf. Fundir „æðstu manna", svo sem
fjögurra, með sáttasemjara áttu mestan þátt í að leysa
aðalmálin. Mál aðalnefn'dar A^í eru frágengin en sérhópar eftir.
Ys og þys voru á fundunum eftir miðnættið í gær og mikið
„makkað“-. Efri myndin Björn Jónsson forseti ASÍ og Björgvin
Sigurðsson fyrrum formaður Vinnuveitendasambandsins og
neðri myndin: Ólafur Jónsson framkvæm'dastjóri Vinnuveit-
endasambandsins og Torfi Hjartarson ríkissáttasemjari.
-Ljósm. Sv. Þ.
A