Dagblaðið - 20.06.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JÚNI 1977.
Erlendar
fréttir
Tékkneskur leyniþjónustumaður í viðtali við Sunday Times:
Brezhnev að þakka að
Dubcek komst til valda
Hörð landhelgis-
gæzla íBurma:
Varðskip
sökkti
einum
togara og
tökþrjá
Atta thailenzkir fiskimenn
fórust og eitt hundað voru teknir
til fanga er burmanskt varðskip
réðst á fjóra togara undan suður-
strönd Thailands. Opinberir
embættismenn í Bankok, höfuð-
borg Thailands, segja atburðinn
hafa átt sér stað síðastliðinn
föstudag.
Burmanska varðskipið hóf skot-
hríð á togarana og sökkti einum
þeirra. Hinir þrir voru teknir og
færðir til hafnar. Áhafnir þeirra
munu allar hafa verið hnepptar í
varðhald.
Alexander Dubcek átti
Brezhnev forseta Sovét-
ríkjanna að þakka hinn stutta
valdatíma sinn í
Tékkóslóvakíu. Þetta kemur
fram í nýjasta tölublaði brezka
stórblaðsins Sunday Times, þar
sem Josef Frolik fyrrverandi
yfirmaður i tékknesku leyni-
þjónustunni leysir frá
skjóðunni.
Seint á árinu 1967 hugðist
Antonin Novotny þáverandi
æðsti maður í Tékkóslóvakíu
hreinsa verulega til í
kommúnistaflokknum. Alls átti
að taka fyrir 1.081 manns, —
þeirra á meðal Alexander
Dubcek, Josef Smrkovsky,
Vaclav Prchlik hershöfðingja
og prófessor Otto Sik. Allir
voru þessir menn í andstöðu við
Novotny og þótti tíðarandinn
vera orðinn slikur, að tími væri
kominn til mannaskipta í hæstu
stöðum flokksins.
Brezhnev kom hins vegar í
veg fyrir hreinsanirnar. Hann
frétti af því, hvað til stóð og
hringdi beint frá Moskvu til
að hindra Novotny í ætlunar-
verki sínu.
Vörið eftir að þetta gerðist
náði Dubcek völdum í
Tékkóslóvakíu. Hefði Brezhnev
ekki hindrað Novotny í að
hreinsa til í kommúnistaflokkn-
um, hefði ekki komið til tilraun
Dubecks til að koma á
v___
„mannréttinda-kommúnisma“ í
landinu, né heldur hefðu herir
Varsjárbandalagsins þurft að
ryðjast inn í Tékkóslóvakíu
eins og frægt varð.
Það var tékkneskur blaða-
maður, Josef Josten, sem tók
viðtalið við Frolik. Hann er
landflótta og býr í London.
Brezhnev og Dubcek takast í hendur. Mynd þessl var tekin á Bratislava fundinum svokallaða árið 1968.
r-ætt um tramtíö Tékkóslóvakíu og fóru umræðurnar fram „í einlægni og góðum féiagsanda“.
Það þýðir á austur-evrópsku diplómatamáli, að skoðanaágreiningur hafi verið mikiii.
LEIGUBÍLSTJÓRAR
FALLAILISSABON
Hundruð portúgalskra leigubíl-
stjóra söfnuðust saman á laugar-
daginn fyrir utan forsetahöllina í
Lissabon. Með því vildu þeir
vekja athygli á því, að einn félaga
þeirra hafði verið myrtur nóttina
áður. Jafnframt kröfðust þeir
tafarlausra aðgerða lögreglunnar.
Leigubilstjórinn, Luis de
Almeida, var skotinn í hnakkann,
er hann ók um eina af hafnar-
borgum Lissabon. Hann er
sjöundi leigubílstjórinn í Lissa-
bon, sem er myrtur á siðustu
tveimur árum. — Enn sem komið
er hefur aðeins einn af morðingj-
unum náðst. Leigubílstjórarnir
telja stjórnvöld og lögreglu ekki
reyna eins og æskilegt væri að
stemma stigu við þessari ógnun
við stétt sína.
Hann man
sextíu númer
Nýr sjálfvirkur simi, Atlas
kerfið svokallaða, er kominn á
markaðinn. Hann er þeim
ósköpum gæddur að geta
munað allt að sextíu sima-
númer, og hvert þeirra má
innihalda tuttugu tölustafi ef
þörf krefur.
Þetta nýja kerfi er aðallega
ætlað þeim sem þurfa oft að
hringja í sömu númerin. Þegar
símanúmerið, sem á að geyma,
hefur verið stimplað inn, nægir
aðeins að ýta á takka þess,— þá
hringir siminn i það númer.
Ennfremur fylgir kerfinu ný
símskífa, — með tökkum, —
sem flýtir mjög fyrir því að
hringja.
Atlas kerfið er ekki enn orðið
fullkomnara en svo, að sé ekki
hringt í eitthvert af númerun-
um sextíu, sem eru í geymslu,
er hætt við að það gleymist.
Hins vegar ,,,man“ kerfið alltaf
síðasta númerið sem hringt var
í.
Safnaðarferð
Kirkjufélag Digranesprestakalls
efnir til safnaðarferðar sunnudaginn 26. júní. Lagt
verður af stað kl. 9.00 að morgni frá safnaðarheimilinu
við Bjarnhólastíg og er ferðinni heitið um Hvalfjörð að
Hallgrítnskirkju í Saurbæ þar sem guðsþjónusta verður
kl. II. Siðan verður farið um Dragháls. Skorradal og
llxahryggi til Þingvalla.Nánari upplýsingar í síma 40436
kl. 12-19 til miðvikudagskvölds 22. júní.
Stjórnin.
Landsins mesta lampaúrval
Utanbæjarmenn! Lrtid við íleiðinni
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12 — Sími 84488