Dagblaðið - 20.06.1977, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JUNÍ 1977.
16
G
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Olafur Fridriksson sendir knöttinn í netið framhjá Þorsteini Bjarnasyni og jafnar, 1-1 í leik IBK og Breiðabliks. DB-mynd Sveinn
Þormóðsson. ^
UBK 0GIBK DEILDU
í KÓPAVOGI
— íl.deildígær 1-1
Breiðablik og Keflvíkingar
skildu jöfn 1-1 í 1. deild íslands-
móstsins í gær á Kópavogsvelli.
Heldur var leikur liðanna
tilþrifalítill — nánast furðulegt
hvað Blikarnir hafa náð sér iiia á
strik í sumar eftir að hafa gefið
svo góð fyrirheit seinni part
síðasta sumars. Lið Keflvíkinga
er hins vegar fullt fyrirheita um
bjarta framtíð — ungir og leiknir
leikmenn, sem með tímanum
skipa ÍBK aftur í fremstu röð
ísienzkra liða.
ÍBK hafði undirtökin i leiknum
gegn Blikunum lengst af. Þrátt
fyrir það voru Blikarnir svo nærri
að skora sigurmark á síðustu
mínútunni en Þorsteinn Bjarna-
son bjargaði vel skalla frá Heiðari
Breiðfjörð.
Blikarnir höfðu undirtökin
framan af gegn ÍBK — án þess þó
að ná að skapa tækifæri. Smám
saman komu leikmenn ÍBK meir
inn í myndina — og þeir Þórður
Karlsson og Ómar Ingvason
fljótir og hættulegir.
ÍBK náði forustu á 32. mínútu
fyrri hálfleiks — Óskar Færseth,
leikinn og skemmtilegur bak-
vörður, sendi knöttinn vel fyrir
mark Blikanna til Olafs
Júlíussonar, sem lék laglega á
varnarmann og skaut síðan föstu
skoti. Knötturinn fór í varnar-
mann Blikanna — breytti stefnu
og Ómar Guðmundsson, mark-
vörður Breiðabliks, fraus.
Knötturinn fór í netið, 0-1.
iBK náði síðan mun betri
tökum á leiknum — og fljótlega í
byrjun síðari hálfleiks hefði
Þórður Karlsson átt að skora.
Hann fékk knöttinn í vítateig
Blikanna — hafði tíma til að
leggja hann fyrir sig en skot hans
fór yfir. Þá komst Ólafur Júlíus-
son einn inn fyrir vörn Blikanna
eftir mistök varnarmanna — en
Þróttur úr Reykjavík sigraði
ísfirðinga 3-2 í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu á laugar-
dag. Þróttarar skoruðu sigurmark
sitt úr ákaflega vafasamri víta-
spyrnu á síðustu mínútu leiksins
og tóku því bæði stigin — mjög
óverðskuldað. Sannleikurinn er
að ísfirðingar voru nær sigri
—léku mun betur en leikmenn
Þróttar og hefðu verðskuldað að
minnsta kosti annað stigið — en
skammt er á milli sigurs og
ósigurs eins og isfirðingar fengu
að reyna.
Það virtist stefna í öruggan
sigur Þróttar því þeir Þorgeir
Þorgeirsson og Halldór Arason
komu Þrótti í 2-0. En ísfirðingar
voru ekki að gefast upp — og þeir
jöfnuðu með tveimur mörkum
með stuttu millibili. Örnólfur
Oddsson var að verki í bæði skipt-
in. Svo virtist sem ísfirðingar
efldust mjög og ykju .sjálfstraust
sitt með mörkunum því þeir tóku
leikinn algjörlega í sínar hendur
og sóttu stíft.
En kapp er bezt með forsjá —
ísfirðingar hættu sér of framar-
lega í leit að sigurmarkinu, sem
svo aldrei kom. Þróttur náði
skyndisókn — einum sóknar-
Ólafur var ekki nógu fljótur að
nýta tækifærið, sem rann út í
sandinn.
Eftir því sem á leikinn leið
náðu leikmenn ÍBK betri tökum
— sóknarlotur Blikanna voru
máttlitlar. Það kom því á óvart er
Blikarnir jöfnuðu. Þeir fengu
aukaspyrnu 30 metra frá marki
ÍBK. Þór Hreiðarsson renndi
knettinum til Heiðars Breiðfjörð
— hann skaut föstu skoti að því er
þó virtist misheppnuðu. En
knötturinn fór til Ólafs Friðriks-
sonar, sem renndi knettinum í
netið framhjá Þorsteini Bjarna-
syni 1-1.
Við markið var sem Blikarnir
vöknuðu — og litlu munaði að
Heiðar Breiðfjörð hefði síðan
skorað sigurmarkið á loka-
mínútunni eins og áður var lýst.
En slíkt hefði verið hrópiegt
óréttlæti — Keflvíkingar
verðskulduðu stig.
Leikinn dæmdi Ragnar
Magnússon.
manni Þróttar var brugðið —
greinilega utan vítateigs. Slakur
dómari leiksins dæmdi auka-
spyrnu — fór síðan til línuvarðar
og dæmdi síðan víti — sem aldrei
átti stoð í veruleikanum. Furðu-
legt hjá Garðari Guðmundssyni
dómara — slökum dómara. Leifur
Harðarson skoraði úr vítinu og
hið efnilega lið ísafjarðar sat
eftir með sárt ennið — bókstaf-
lega rændir stigi.
Hins vegar geta leikmenn
Þróttar gert sér litlar vonir um að
komast í 1. deild — ef þeir leika
jafn illa og gegn ÍBÍ. Raunar hafa
leikmenn Þróttar ekki náð sér á
strik í 2. deild — og verða að
teliast heppnir að vera með í bar-
áttunni. ísfirðingar máttu hins
vegar sætta sig við ósigur gegn
enn einu „toppliði" — því áður
höfðu þeir enn mjög óverð-
skuldað beðið ósigur gegn KA á
ísáfirði.
h.halls.
• Snillingurinn Pele skoraði
þrennu í gær, þegar Cosmos
sigraði Tampa 3-1 í New Jersey.
Ahorfendur voru 62.394 — met á
knattsp.vrnuleik i USA.
KR sótti ekki
stig til Eyja
— ÍBV vann KR 2-0
Eyjamenn unnu sinn þriðja
sigur í 1. deild íslandsmótsins er
þeir mættu KR i Eyjum síðastlið-
inn fimmtudag. Eyjamenn
skoruðu tvívegis án þess að KR
næði að svara fyrir sig og löguðu
stöðu sína í 1. deild verulega.
Eyjamenn fengu óskabyrjun —
Tómas Pálsson skoraði sitt fyrsta
mark á keppnistimabilinu þegar á
þriðju mínútu. Skaut viðstöðu-
lausu skoti eftir fyrirgjöf Karls
Sveinssonar.
Á 15. mínútu bætti Sigurlás
Þorleifsson við öðru marki ÍBV
— laglegt mark eftir að Öskar
Valtýsson hafði leikið laglega á
vörn KR og sent á Sigurlás sem
skoraði með góðu skoti.
ÍBV hafði yfirburði í fyrri hálf-
leik — og á 35. mínútu björguðu
KR-ingar á marklínu. Til marks
um yfirburði ÍBV áttu KR-ingar
fyrstu hættulegu sóknarlotu sína
á 44. mínútu. Þá skaut Eyja-
maðurinn fyrrum — Örn Óskars-
son góðu skoti en rétt framhjá.
KR-ingar mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks og á 12. mínútu
munaði litlu að KR skoraði. Einar
Friðþjófsson ætlaði að senda til
Sigurðar Haraldssonar, mark-
varðar — en ónákvæmt og
Sigurður gerði vel að bjarga.
Sigur ÍBV var aldrei í hættu —
hann var verðskuldaður og Eyja-
menn voru mun ákveðnari en i
fyrstu leikjum í 1. deild. Greini-
legt að endurkoma Sigurlásar
Þorleifssonar hefur fært liðinu
sjálfstraust.
RS
Jafntefli
sanngjarnt
— þegar Reynir,
Sandgerði, og Þrdttur,
Neskaupstað,
léku í 2. deild
„Þetta eru bara þrusarar," og
„þeir eiga bara heima í þriðju
deild,“ voru setningar sem heyra
mátti í leik Reynis og Þróttar á
malarveliinum í Sandgerði á
iaugardaginn, meðan tauga-
spennan var sem mest i upphafi
leiksins og hróp og köll leik-
manna voru meira áberandi en
sjálfur leikurinn. Svo, þegar
lengra leið, fóru menn að sinna
meira knettinum en köllunum,
sérstaklega eftir að Þróttarar
höfðu skorað fyrsta mark
leiksins. Björgúlfur Halldórsson,
fylgdi vel eftir háum knetti sem
hrökk af varnarmanni inn á
markteig, — þaðan kom Björg-
úlfur knettinum í markhornið.
Reynismönnum tókst að jafna á
lokamínútu fyrri hálfleiks eftir
mikinn darraðardans á marklínu
Þróttar þar sem Þórður Marels-
son náði að spyrna föstu skoti í
marksúluna. Þaðan hrökk
knötturinn í þverslá og niður —
og inn fyrir línu að mati línu-
varðarips — en ekki voru allir
jafnsannfærðir um að knötturinn
hefði farið allur inn fyrir mark-
línu, en ágætur dómari leiksins,
Róbert Jónsson, var það, — 1-1.
Þótt Reynismenn hafi verið
öllu meira með knöttinn var það
Magnús Magnússon sem tók for-
ustuna fyrir aðkomuliðið, eftir
gróf varnarmistök heimamanna.
Knötturinn kom frá varnarmanni
til Magnúsar, sem stóð fyrir innan
Reynisvörnina og skoraði með
hnitmiðuðu skoti, 2-1. En
Reynismenn létu ekki hug-
fallast, — á sömu mínútunni,
jafnaði Þórður Marelsson, með
fallegu skoti, eftir að hafa fengið
knöttinn úr aukaspyrnu, 2-2.
Eftir atvikum var jafntefli
sanngjörn úrslit, — Þróttarar
réðu öllu meira um gang leiksins
en Reynismenn áttu fleiri opin
færi, — sérstaklega þegar Ari
Arason, átti hörkuskot að marki,
sem flestir reiknuðu með að
hafnaði í netinu. en markvörður
Þróttar varði með miklum glæsi-
brag.
I tilefni af nýendurbættum
malarvellinum var kei>pendum og
fylgdarliði boðið til kaffidrykkju
i félagsheimilinu. -emm.
/\LLxaA<
5
Frúarskór íC-DogE breiddum
Verðkr.4420.
LitUh: Svart
Verð kr. 6270.-
Litur: Svart.
Verð kr. 6750.
Litur: Drapp
Skósel
Laugavegi 60.
Sími21270.
-h. halls.
ísfirðingar rændir
stigi í Reykjavík