Dagblaðið - 22.06.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. —MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1977 - 130. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞÝERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞFERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 2702%
Skrifað undir í morgun
„Uppmælingamenn” sættu sig við minni prósentuhækkun
Kaupið hækkar í dag
Þegar skrifvélavirkjar
sömdu klukkan rúmlega fimm í
morgun, var brautin rudd tií að
undirskrifa samningana.
Smiðshöggið á samningana var
rekið klukkan fimmtán
mínútur fyrir tíu, þegar hópur
æðstu manna verkalýðsfélaga
og atvinnurekenda kom
saman og skrifaði nöfn sín
undir samningana.
Hinn harði hnútur um kjöf
„uppmælingamanna" leystist
ekki að fullu fyrr en um eitt-
leytið í nótt. Þá var gengið
endanlega frá samningum
byggingamanna. Uppmælinga-
menn héldu ekki nema hluta af
þeirri hækkun, sem þeir hefðu
fengið á sína taxta, ef hið
venjulega hlutfall ákvæðisvinn-
unar hefði verið lagt ofan á
kauphækkunina. 1 stað þess
verða tveir þriðju hlutar af
prósentuhækkun kauþs í við-
komandi grein settir inn í
reiknitöluna fyrir ákvæðis-
vinnutaxtann. Þctta þýðir, að
uppmælingin hækkar talsvert
minna í prósentum en kaup
almennt. Uppmælingamenn
höfðu upphaflega staðið á því,
að taxtar þeirra hækkuðu í
hlutfalli við hina almennu
kauphækkun,-
Þegar byggingamenn höfðu
samið komu aðrir hópar, sem
svipað var ástatt um, á eftir, svo
sem rafvirkjar. I nótt náðist
samkomulag um kjör iðnnema
og hjá Herði i Hvalfirði. Einnig
samdist við rafvirkja hjá
Reykjavíkurborg, en þeir hafa
ekki aflýst verkfallinu hjá Raf-
magnsveitunum sem hefur
staðið í um tvær vikur.
Smáhópar sem starfa hjá ríki
og borg eru eftir, en mál þeirra
kemur ekki inn í samninga-
málið sem slíkt og tafði því ekki
undirskrift.
Iðnnemar fengu 2,5 prósent
hækkun ofan á viðmiðunar-
taxta sveina. Um þeirra mál
eins og önnur, sem seint gekk
að ganga frá, var samið með
málamiðlun þar sem báðir
slógu verulega af.
Margir hópar neituðu i gær
að vinna yfirvinnu, þótt yfir-
vinnubann hefði verið af-f
numið, af því að kauphækkunin
kemur ekki til fyrr en eftiri
undirskrift samninganna, það
er i dag. Vinnuveitendur vildu
ekki skrifa undir fyrr en allt
væri frágengið.
Jú, þeir gátu skrifað nafnið sitt þrátt fyrir miklar vökur. Undirskriftin í morgun. Ljósm: Sv.Þ.
■ ■■ —II ■
Eskifjörður:
Sjómaður
klemmdist
á milli
togvfra
Það slys varð um borð í
togbátnum Sæljóninu, sem
er um 250 tonn að stærð, að
einn skipverja klemmdist á
hendi milli togvíra er skipið
var á veiðum skammt utan
við Eskifjörð sl. sunnudag.
Varð hægri höndin á
milli og missti hann m.a.
framan af vísifingri auk
annarra meiðsla en honum
tókst að rífa sig lausan áður
en verr færi. Skipverjinn
heitir Hreggviður Eriðbergs-
son.
Var hann lagður á sjúkra-
húsið á Norðfirði og lá þar
enn í gær þar sem höndin
kann að vera meira sködduð.
Regina/G.S.
Hvernig er heilsufar samningamanna á Loftleiðum?
„Vökumenn” hress-
ir í morgunsárið
Geir Gunnarsson, alþingis-
maður og sáttanofndarmaður.
stóð úti fyrir dyrum Loft-
leiðahóteisins er DB-menn bar
þar að í morgun og gleypti í sig
morgunloftið.
„Heilsan er góð, allt i lagi
með það," sagði Geir. „Þetta
hafa engar vökur verið að
marki i þetta sinn. Við erum að
vísu búnir að vera að núna
siðan klukkan eitt í gær og þar
áður fengum við stuttan svefn,
fjöra tíma eða svo. Þetta var þó
iniklu verra í sjómannaverk-
fallinu i fyrra, þá endúðum viö
á sextiu tíma fundi."
(íeir gerði litið úr þvi að
erfitt væri að hugsa og seinlegt
eftir svo langar vökur.
„Aðalatriðið er að halda þessu
gangandi," sagði hann. „Það má
ekki slitna á milli funda. í
rauninni kom aðeins einu sinni
upp slík staöa núna, þegar
Verkamannasambandið neitaði
að fallast á 2,5'lfi sérkriifu-
tilboðið. Þá þýddi ekki annað
en að halda ál rain."
Inni á gangi fyrir framan
veitingabúð hótelsins sat
Gunnar J. Friðriksson iðn-
rekandi. Hann kvað heilsufarið
gott, enda hefði hann sjálfur
sofið mestalla nóttina. „Vissu-
lega geta langar vökur og fund-
arsetur tekið á heilsuna og
taugarnar," sagði Gunnar, „en
mest er þetta sálfræðilegs eðlis
á svona fundum. Það er ekki að
ménn séu lengur að hugsa eftir
langa fundasetu, heldur tekur
sinn tíma að sætta sig við að
þurfa að slaka á kröfum sínum,
láta undan."
Þeir Björn Jónsson, forseti
ASÍ, og Asmundur Stefánsson,
hagfræðingur sambandsins,
sátu við kaffibolla við þriðja
mann í veitingabúðinni
og virtust hinir hressustu.
„Eg fæ ekki betur séð en að
menn séu frískir," sagði Björn.
„Þetta hafa ekKi verið iniklar
vökur núna, menn hafa vfirleitt
fengið þriggja, fjögurra og
fimm tíma svefn á hverri
nóttu." „Það er helzt í nótt og
svo þarna um daginn að við
höfum þurft að vaka eitthvað,"
sagði Asmundur,
En þótt vökur hafi ef til vill
ekki verið miklar við gerð
þeirra kjarasamninga, sem
menn voru að búa sig undir að
undirrita er DB-menn voru á
Loftleiðahótelinu í morgun,
liggur mikil vinna að baki
þeim. Fyrsti samningafundur
var 8. marz — „og síðan hefur
þetta verið stanzlaus vinna,"
sagði Björn Jónsson, „og
raunar lengur, eða allt frá
Alþýðusambandsþingi. Að
minnsta kosti fyrir starfsmenn
sambandsins."
Björn kvaðst sjálfur hafa
lengst setió á 72 tíma löngum
samningafundi ,,og þá voru
margir okkar, sem sátu þann
fund, búnir að vaka í sólarhring
áður. En það hafa verið haldnir
lengri fundir, allt upp í níutíu
tíma, held ég,"
Gerir það menn ekki hálfvit-
lausa að þurfa að vaka marga
sólarhringa i erfiðum
sumningaumleitunum? spurðu
DB-menn.
Þeir félagarmr brostu
kankvislega. „Kannski alvit-
lausa," sagði Ásmundur. „Já,
og það er kannski til marks um
það að maður geri sér ekki
grein fyrir því," baúti Björn
við.
-OV.