Dagblaðið - 22.06.1977, Síða 1

Dagblaðið - 22.06.1977, Síða 1
3. ÁRG. —MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1977 - 130. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞÝERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞFERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 2702% Skrifað undir í morgun „Uppmælingamenn” sættu sig við minni prósentuhækkun Kaupið hækkar í dag Þegar skrifvélavirkjar sömdu klukkan rúmlega fimm í morgun, var brautin rudd tií að undirskrifa samningana. Smiðshöggið á samningana var rekið klukkan fimmtán mínútur fyrir tíu, þegar hópur æðstu manna verkalýðsfélaga og atvinnurekenda kom saman og skrifaði nöfn sín undir samningana. Hinn harði hnútur um kjöf „uppmælingamanna" leystist ekki að fullu fyrr en um eitt- leytið í nótt. Þá var gengið endanlega frá samningum byggingamanna. Uppmælinga- menn héldu ekki nema hluta af þeirri hækkun, sem þeir hefðu fengið á sína taxta, ef hið venjulega hlutfall ákvæðisvinn- unar hefði verið lagt ofan á kauphækkunina. 1 stað þess verða tveir þriðju hlutar af prósentuhækkun kauþs í við- komandi grein settir inn í reiknitöluna fyrir ákvæðis- vinnutaxtann. Þctta þýðir, að uppmælingin hækkar talsvert minna í prósentum en kaup almennt. Uppmælingamenn höfðu upphaflega staðið á því, að taxtar þeirra hækkuðu í hlutfalli við hina almennu kauphækkun,- Þegar byggingamenn höfðu samið komu aðrir hópar, sem svipað var ástatt um, á eftir, svo sem rafvirkjar. I nótt náðist samkomulag um kjör iðnnema og hjá Herði i Hvalfirði. Einnig samdist við rafvirkja hjá Reykjavíkurborg, en þeir hafa ekki aflýst verkfallinu hjá Raf- magnsveitunum sem hefur staðið í um tvær vikur. Smáhópar sem starfa hjá ríki og borg eru eftir, en mál þeirra kemur ekki inn í samninga- málið sem slíkt og tafði því ekki undirskrift. Iðnnemar fengu 2,5 prósent hækkun ofan á viðmiðunar- taxta sveina. Um þeirra mál eins og önnur, sem seint gekk að ganga frá, var samið með málamiðlun þar sem báðir slógu verulega af. Margir hópar neituðu i gær að vinna yfirvinnu, þótt yfir- vinnubann hefði verið af-f numið, af því að kauphækkunin kemur ekki til fyrr en eftiri undirskrift samninganna, það er i dag. Vinnuveitendur vildu ekki skrifa undir fyrr en allt væri frágengið. Jú, þeir gátu skrifað nafnið sitt þrátt fyrir miklar vökur. Undirskriftin í morgun. Ljósm: Sv.Þ. ■ ■■ —II ■ Eskifjörður: Sjómaður klemmdist á milli togvfra Það slys varð um borð í togbátnum Sæljóninu, sem er um 250 tonn að stærð, að einn skipverja klemmdist á hendi milli togvíra er skipið var á veiðum skammt utan við Eskifjörð sl. sunnudag. Varð hægri höndin á milli og missti hann m.a. framan af vísifingri auk annarra meiðsla en honum tókst að rífa sig lausan áður en verr færi. Skipverjinn heitir Hreggviður Eriðbergs- son. Var hann lagður á sjúkra- húsið á Norðfirði og lá þar enn í gær þar sem höndin kann að vera meira sködduð. Regina/G.S. Hvernig er heilsufar samningamanna á Loftleiðum? „Vökumenn” hress- ir í morgunsárið Geir Gunnarsson, alþingis- maður og sáttanofndarmaður. stóð úti fyrir dyrum Loft- leiðahóteisins er DB-menn bar þar að í morgun og gleypti í sig morgunloftið. „Heilsan er góð, allt i lagi með það," sagði Geir. „Þetta hafa engar vökur verið að marki i þetta sinn. Við erum að vísu búnir að vera að núna siðan klukkan eitt í gær og þar áður fengum við stuttan svefn, fjöra tíma eða svo. Þetta var þó iniklu verra í sjómannaverk- fallinu i fyrra, þá endúðum viö á sextiu tíma fundi." (íeir gerði litið úr þvi að erfitt væri að hugsa og seinlegt eftir svo langar vökur. „Aðalatriðið er að halda þessu gangandi," sagði hann. „Það má ekki slitna á milli funda. í rauninni kom aðeins einu sinni upp slík staöa núna, þegar Verkamannasambandið neitaði að fallast á 2,5'lfi sérkriifu- tilboðið. Þá þýddi ekki annað en að halda ál rain." Inni á gangi fyrir framan veitingabúð hótelsins sat Gunnar J. Friðriksson iðn- rekandi. Hann kvað heilsufarið gott, enda hefði hann sjálfur sofið mestalla nóttina. „Vissu- lega geta langar vökur og fund- arsetur tekið á heilsuna og taugarnar," sagði Gunnar, „en mest er þetta sálfræðilegs eðlis á svona fundum. Það er ekki að ménn séu lengur að hugsa eftir langa fundasetu, heldur tekur sinn tíma að sætta sig við að þurfa að slaka á kröfum sínum, láta undan." Þeir Björn Jónsson, forseti ASÍ, og Asmundur Stefánsson, hagfræðingur sambandsins, sátu við kaffibolla við þriðja mann í veitingabúðinni og virtust hinir hressustu. „Eg fæ ekki betur séð en að menn séu frískir," sagði Björn. „Þetta hafa ekKi verið iniklar vökur núna, menn hafa vfirleitt fengið þriggja, fjögurra og fimm tíma svefn á hverri nóttu." „Það er helzt í nótt og svo þarna um daginn að við höfum þurft að vaka eitthvað," sagði Asmundur, En þótt vökur hafi ef til vill ekki verið miklar við gerð þeirra kjarasamninga, sem menn voru að búa sig undir að undirrita er DB-menn voru á Loftleiðahótelinu í morgun, liggur mikil vinna að baki þeim. Fyrsti samningafundur var 8. marz — „og síðan hefur þetta verið stanzlaus vinna," sagði Björn Jónsson, „og raunar lengur, eða allt frá Alþýðusambandsþingi. Að minnsta kosti fyrir starfsmenn sambandsins." Björn kvaðst sjálfur hafa lengst setió á 72 tíma löngum samningafundi ,,og þá voru margir okkar, sem sátu þann fund, búnir að vaka í sólarhring áður. En það hafa verið haldnir lengri fundir, allt upp í níutíu tíma, held ég," Gerir það menn ekki hálfvit- lausa að þurfa að vaka marga sólarhringa i erfiðum sumningaumleitunum? spurðu DB-menn. Þeir félagarmr brostu kankvislega. „Kannski alvit- lausa," sagði Ásmundur. „Já, og það er kannski til marks um það að maður geri sér ekki grein fyrir því," baúti Björn við. -OV.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.