Dagblaðið - 22.06.1977, Síða 12

Dagblaðið - 22.06.1977, Síða 12
12 DAdBLAÐIÐ. MIÐVIKUDACUIR 22. JUNÍ 197 DACBLAÐIÐ. MIÐVIKUDACiUR 22. JUNÍ 1977. Ingunn sigraði í tveimur hlaupum í Kaupmannahöfn —en Liíja Guðmundsdóttir getur ekki tekið þátt í Evrópukeppninni ífrjálsum íþróttum vegna meiðsla Ingunn Einarsdóttir, ÍR, gerði sér lítið fyrir og sigraði i báðum þeim hlaupum, sem hún tók þátt í á frjálsíþróttamóti í Kaupmanna- höfn í gær. Arangur var þó ekkert sérstakur — talsverður vindur — en það, sem meira var um vert. Ingunn sigraði spretthörðustu hlaupakonu Dana í 100 m. hiaupinu. Tími hennar þar var 12.1 sekúnda — eða aðeins lakara er nýsett Islandsmet hennar. Margarethe Hansen, sem er spretthörðust danskra kvenna varð önnur á 12.3 sekúndum. Þá keppti Ingunn í 400 m. hlaupi síðar í gærkvöld og þá var farið að blása enn meira. Ingunni tókst því ekki að hnekkja Islandsmeti sínu þar eins og búizt hafði verið við. Hún hljóp á 56.0 sekúndum og. sigraði í hlaupinu. I öðru sæti varð dönsk stúlka á 57.2 sek., sem bezt á 56.3 sek. Islandsmet Ing- unnar í 400 m. hlaupi er 55.9 sekúndur. Jón Sævar Þórðarson, ÍR, keppti í 400 m. hlaupi og varð þriðji í hlaupinu. Ekki vitum við Ingunn Einarsdóttir og Jón-Sævar Þórðarson. Leikið í Eyjum, Kópa- vogi og Laugardalnum — í 1. deild fslandsmótsins í knattspyrnu íkvöld Tíunda umferðin i 1. deild íslandsmótsins i knattspyrnu hefst i kvöld. Þá verða leiknir þrír leikir — í Vestmannaeyjum, Kópavogi og á Laugardalsvelli. Með þessum leikjum hefst síðari umferð mótsins. Öllum ieikjum fyrri umferðarinnar iokið nema leik Víkings við Vestmanna- eyinga, scm fresta varð 28. maí. Sá leikur verður háður nk. laug- ardag á Laugardalsvelli — og eftir hann hafa öll liðin ieikið einn ieik innbyrðis. I kviild leika Vestmannaeying- ar og FH i Eyjum og hefst leikurinn ki. sjö. I fyrri leik liðanna — í Kaplakrika —sigraði FH með 2-0. Þetta ætti að geta orðið baráttuleikur. Vest- mannaoyingar hafa sigrað í tveimur síðustu leikjum sínum. KR í Kaplakrika og Þór á Akur- eyri. I Kópavogi fá Blikarnir Akur- nesinga í heimsókn og það ætti að geta orðið skemmtilegur leikur. Hann hefst kl. átta. I fyrri leik liðanna unnu Akurnesingar öruggan sigur 2-0 á Akranesi. A Laugardalsvelli leika KR og Víkingur. Sá leikur er færður fram um einn dag — átti að vera 23. júní samkvæmt leikjaskránni. I fyrri umferðinni varð jafntefli hjá félögunum 0-0. Leikurinn hefst kl. átta. Tíundu umferðinni lýkur á morgun, fimmtudag. Þá verða tveir leikir. Valur-Keflavík á Laugardalsvelli og Þór-Fram á Akureyri. I fyrri umferðinni sigraði Valur Keflavík 2-1 á grasvellinum i Kefiavík, og Fram vann Þór 3-1 á Melavelli. Eins og áður segir verður hinn frestaði leikur Víkings og Vest- mannaeyinga á Laugardalsvelli á laugardag og hefst kl. tvö. Aðrir leíkir í 1. deild verða ekki um helgina, en landsleikurinn við Norðmenn verður á Laugardals- velli fimmtudaginn 30. júní. Ellefta umferð Islandsmótsins í 1. deild verður háð 2. og 3. júlí. Fjórir leikir laugardaginn 2. júlí, Víkingur-Þór, ÍBK-KR, tA-Valur og UBK-ÍBV, en einn á sunnudag Fram-FH. nöfn þeirra eða árangur, sem á undan honum voru. Jón Sævar hljóp á 51.5 sekúndum eða var rétt við sinn bezta tíma, sem er 51.3 sekúndur. Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, sem einnig er staddur í Kaupmannahöfn, keppti ekki á mótinu. Langstökk var þar ekki á dagskrá. — Það er nú útséð um það, að Lilja Guðmundsdóttir geti tekið þátt í Evrópukeppninni í Kaupmannahöfn um næstu helgi, sagði Örn Eiðsson, formaður Frjálsíþróttasambands tslands í gærkvöld, þegar blaðið ræddi við hann. örn var þá nýbúinn að tala við Lilju, sem á við meiðsli að stríða. Þarf að skera burt brjósk í fæti og Lilja verður því frá keppni um tíma. Þó gerir hún sér vonir um, að það verði aðeins nokkrar vikur. — Þetta veikir talsvert mögu- leika okkar í kvennariðlinum í Kaupmannahöfn og ekki víst að okkur takizt að sigra Luxemborg þar eins og við höfðum gert okkur vonir um, sagði Örn ennfremur. Lilja átti að keppa í þremur greinum. 800 og 1500 m. hlaupum og 4x400 metra boðhlaupi. I hennar stað hefur Aðalbjörg Haf- steinsdóttir, HSK, verið valin — en hún gengur Lilja tvímælalaust næst í 800 og 1500 m. Aðalbjörg er í mikilli framför, en á þó talsvert í að ná árangri Lilju. Þrírleikirá Austurlandi í 3. deildinni Þrír leikir voru háðir í Austur- landsriðiinum (F) í 3. deild á sunnudag. Leikið á Vopnafirði, Hornafirði og á Egilsstöðum. Einherji, Vopnafirði og Hrafnkell Freysgoði, Breiðdals- vík, léku á Vopnafirði. Úrslit urðu þau, að Hrafnkell Freysgoði sigraði með 2-0 í frekar jöfnum leik. Þeir Sigurður Elísson og Pétur Pétursson skoruðu mörkin. Sindri og Huginn, Seyðisfirði, léku í Höfn í Hornafirði. Jafntefli varð 2-2, en Huginn átti mun meira i leiknum. Mörk Sindra skoruðu Eimir Ingólfsson og Halldór Hilmarsson, en Pétur Böðvarsson og Aðalsteinn Val- geirsson tnörk Hugsins. A Egilsstöðum léku Höttur og Austri. Eskifirði. Austri sigraði með marki Péturs tsleifssonar, sem skorað var frá miðju. A fimmtudag áttu Leiknir, Fáskrúðsfirði, og Einherji að leika í Bikarkeppni KSI. Ekki varð af leiknum — og hann í fyrstu dæmdur unninn fyrir Leikni, þar sem Einherji mætti ekki til leiks. Hins vegar hafa forráðamenn Einherja mótmælt þeim úrskurði. Hver niðurstaða af því máli verður er ekki vitað — en í næstu. umferð bikar- keppninnar á sigurliðið úr þess- um leik að leika við Þrótt á Nes- kaupstað. -STG. Frábær spyrna. Staða Spörtu versnar, 0-2. Vonlaust 'Og hið áður ----------L Þú getur ekki \ sterka félag, Sparta, ) unnið alla leiki, 1 tapar enn. j------ r'Þjálfi. Við byrjunv J V að vinna á ný. . > einkum þegar Bommj byrjar _ Ekki satt, Bommi ' j---7 ‘ { '^\ uA L Allir leikirnir i íslandsmótinu i Reykjavík verða háðir á efri grasvellinum í Laugardalnum í sumar — nema síðasti leikurinn í 1. deild. Hins vegar verða landsleikir og Evrópuleikir á aðalvellinum í Laugardalnum. ÞURFUIM FRIÐ 0G TÍMA SVO VðLLURINN NÁISÉR — sagði Baldur Jónsson vallarst jóri Laugardalsvallarins en ákveðið hef ur verið að hafa alla 1. deildarleiki utan síðasta leiks á efri vellinum — Allir leikir í 1. deild íslands- mótsins í knattspyrnu verða leiknir á efri vellinum í Laugar- dal, nema síðasti leikurinn í 1. deild þann 25. ágúst, sagði Baldur Jónnson vallarstjóri Laugardals- vallarsins er DB spurðist fyrir um hvort fyrirhugað væri að leika1 á Laugardalsleikvanginum í sumar í 1. deild. Baldur Jónsson vallarstjóri. — Landsleikir fara að sjálf- sögðu fram á neðri vellinum svo og Evröpuleikir og úrslit bikars- ins, hélt Baldur áfram. Við erum nú að ná neðri vellinum upp — til þess þurfum við frið og tíma svo völlurinn nái sér. Það er ákaflega erfitt að eiga við vellina eins og tíðin er. Aðeins 9 stiga hiti og rigning — grasspretta er því litil. — Efri völlurinn er ágætur knattspyrnuvöllur. Hins vegar vantar þar enn aðstöðu og hún verður markvisst unnin upp. Það tekur tíma. Þar verður að koma aðstaða fyrir leikmenn og stjórn- ertdur liða, svo og blaðamenn. Við biðum í 15 ár eftir þakinu yfir stúkuna — þessi mál taka tíma. Nú er verið að vinna við um 40 milljóna króna framkvæmd á austursvæðinu fyrir frjálsíþrótta- menn. Haustið ’75 var gert mikið við leikvanginn — og síðastliðið sumar fórum við því miður of snemma aftur á völlinn. Slíkt má ekki henda aftur. Draumur okkar er að koma upp góðri aðstöðu á efri vellinum fyrir venjulega leiki í deildinni. Það er aðstöðu fyrir leikmenn, stjórn- endur og blaðamenn og stárfs- menn, einnig stúku fyrir áhorf- endur. Eðlilega tekur þetta upp- byggingarstarf sinn tíma — eins og ég sagði áðan tók það 15 ár að koma þakinu yfir stúkuna. Eg DRENGJASPJOTIÐ FLAUG 56.69 M Á SNÆFELLSNESI Vormót Iléraðssambands Snæfells- og Ilnappadalssýslu var haldió þriðjudaginn 14. júní aó Breiðabliki. Veður var fremur óhagstætt — vindur og úrkoma, en þrátt f.vrir það náðist allgóður árangur i nokkrum greinum. N/Vi 34,81 23,90 5.85* 5.69 Ilelztu úrsiit urðu þessi: Spjólkast konur. 1. María Guðnad., Snæfell, 2. Sigurl. Friðþjófsd.. Snæf. Langslökk karla Sig. Hjörleifss., Snæf., 2. Jónas Kristóferss., Vík. Spjótkasl drengja 1. Þorgrímur Þráinsson, Vík., 56.69 2. Jónas Kristöferss., Vík. 35.52 Arangur Þorgríms er athyglis- verður og nýtt héraðsmet IISII i drengjaflokki. I Laugagerðisskóla standa nú yfir ungmennabúðir á vegum HSH og eru þáttlakendur um 60. Fjölmörg mót eru framundan á vegum sambandsins — og einnig verður keppt við Skarphéðin og UMSB í frjálsum íþróttuin. Það veldur miklum erfiðleikum á Snæfellsnesi, að allir íþróttaveliir á sambandssvæðinu eru einungis hæfir til knattspyrnukeppni og æfinga. Aðstöðu til frjálsíþrólta vantar algerlega. íþróttir HALLUR SlMONARSON vona þó að ekki taki svo langan tíma með efri völlinn. I framtíðinni vonumst við til að leika segjum 12 leiki í 1. deild á leikvanginum og þá yrði þeitn að sjálfsögðu skipt niður á félögin, Annað er svo, að ég bókstaflega veit ekki hvað við gerum ef Mela- völlurinn hverfur — slíkt yrði synd, sagði Baldur Jónsson vallar- stjóri Laugardalsvallarins að lokum. h.halls. Juantorena vann í Prag Ol.vmpíumeistarinn Alberto Juantorena sigraði í 400 m hlaupi á frjálsíþróttamóti í Prag i gær. Hljóp vegalengdina á 47.00 sekúndum. í 100 m hlaupinu sigraði landi hans Silvio Leonard á 10.22 sekúndum rétt á undan Osvaldo Lana, einnig Kúbu. sem hljóp á 10.42 sek. Isabel Ta.vlor, Kúbu, kom á övart i 100 m hlaupi kvenna og sigraði á 11.56 sek. Sigraði löndu sína Silvia Chivas, sem hljöp á 11.61 sek. Taylor sigraði einnig í 200 m hlaupinu á 23.88 sek. í langstökki kvenna sigraði Ildiko Szabo, Ungverjalandi. Stökk 6.56 m, en í sömu grein karla sigraði David Giralt, Kúbu. Stökk 8.11 m. I hástökki karla sigraði Edgar Kirst, Austur-Þýzkalandi. Stökk 2.24 metra, og Monika Schoe setti nýtt, tékkneskt met i 100 m grindahlaupi. Hljóp á 13.82 sek. í 800 m hlaupi karla sigraði Josef Planchy, Tékkóslóvakíu, á 1:48.0 mín. Reykjavík á Adidas-skdm — Ég tel þetta viðurkenningu fyrir islenzkar iþróttir — fyrir þá athygli, sem landslið okkar í knattspyrnu og handknattleik og Hreinn Halldórsson hafa vakið erlendis, sagði Arni Arnason, forstjóri Austurbakka, þegar hann afhenti borgarstjóranum í Reykjavík, Birgi ísleifi Gunnarssyni, fyrstu Adidas-skóna, þar sem REYKJAVÍK er með gylltum stöfum. Það var á hófi að Hótel Sögu. Adidas-f.vrirtækið hefur nokkur undan- farin ár skráð nöfn höfuðborga á íþróttaskó sína, — einkum evrópskra — og er nú nafn Reykjavíkur þar einnig komið. Austurbakki hefur söluumboð hér á landi fyrir Adidas- vörur og eftir að Arni hafði afhent borgar- stjóranum fyrstu skóna, fékk borgarstjóra- frúin, Sonja Backmann, einnig par, svo og Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, Úlfar Þórðar- son, formaður ÍBR, og Sveinn Björnsson, formaður íþróttaráðs Reykjavíklur. A myndinni að neðan sést Þórhildur Arna- dóttir, sölustjóri hjá Austurbakka og borgar- stjórahjónin með skó sína. DB-mynd Sv. Þ.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.