Dagblaðið - 25.06.1977, Page 1
í
fijálst,
áháð
dagblað
3. ÁRG. — LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1977 — 133. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVJÍRHOLTI 11, AFGREIO§LA ÞVERHOLTI_ 2 — ABALSÍMI 27MÍ ’
Þingmaður
sektaður
við „græna
hliðið” í
Keflavík
Sjábls.9
Dýrasti
klæðnaður
á íslandi
kostaði
2,4 millj.
Sjá baksíðu
Sex milljón
króna vinn-
ingar liggja
enn ósóttir
Sjá baksíðu
Vínveit-
ingaleyfið
tekið af
Sesari
Sjá baksíðu
Líkurásól
sunnanlands
Likur eru á því að Sunnlend-
ingar fái aö sjá sólina nú yfir
helgina, eftir langvarandi dumb-
ung og rigningar. Samkvæmt upp-
lýsíngum veöurstofunnar er gert
ráð fyrir því að vindur gangi í
hæga norðanátt. Gert er ráð fyrir
þurru og björtu veðri sunnanlands
en norðanlands má gera ráð fyrir
þokulofti á miðum og annesjum
f yrir norðan.
JH
Meðan rigningin
hrjáir
Reykvíkinginn:
Kaffi-
brúnka
íHall-
ormsstað-
arskógi
„Það er ekki bara að maður
fái peninga fyrir að vinna hér,
— heldur líka mikla ánægju,"
sagði hún Begga, þ.e. Bergljót
Þorsteinsdóttir frá Egils-
stöðum. Hún starfar nú fjórða
árið í röð í skógræktarstöðinni.
Begga var að vinna við plöntun
á blágreni þegar fréttamenn
heimsóttu Hallormsstað í vik-
unni. Plönturnar eru ekki
veigamiklar í dag en eftir nokk-
ur ár verður trúlega orðin veru-
leg bre.vting á þeim, enda búa
bæði plöntur og menn við allt
annað sumar en Reykvíkingar
og næstu nágrannar þeirra
þekkja. Begga og stallsystur
hennar í Hallormsstaðarskógi
voru nánast kaffibrúnar á
skrokkinn en það var eins og
karlmennirnir næðu ekki alveg
sama árangri í þeirri list.
Húsbóndinn í Hallorms-
staðarskógi, Sigurður Blöndal,
verður skógræktarstjóri
ríkisins frá og með mánaða-
mótum. Hann og embætti hans
virðast vera eins konar próf-
steinn á landsbyggðastefnuna
svokölluðu.
-SJA BLS 4.
Verður Bjamarflag
bjargvættur Kröfíu?
Hugmynd um boranir í Bjarnarflagi og
pípulögntil Kröflu sem kostarmilljarð
Athugun hefur verið gerð að
tilhlutan Orkustofnunar á hvaða
möguleiki væri á gufuöflun til
Kröfluvirkjunar- með pípu frá
Bjarnarflagi og kom í ljós að
kostnaður við leiðslu þessa leið
myndi nema um einum milljarði
króna.
Valdimar K. Jónsson prófessor
hefur á vegum Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsens athugað
þennan möguleika á flutningi
gufunnar frá Bjarnarflagi að
Kröflu og kont í Ijós að leggja
þ.vrfti leiðslu allt að einum metra
í þvermál um sjö kílómetra leið
frá Bjarnarflagi að Kröfluvirkj-
un. Kostar hver kilómetri leiðsl-
unnar uppsettur um 150 milljónir
króna.
Auk leiðslunnar þyrfti að sjálf-
sögðu að bora nýjar holur í
Bjarnarflagi og yrði kostnaður
við þær sennilega uin tveir
mill.jarðar. þ.e. átta holur f.vrir
hvora túrbínu.
Orkustofnun inun nú vera að
kanna hvaða mijguleikar eru til
gufuiiflunar við Kriifluvirkjun og
er þelta ein þeirra hugmynda sem
unnið hefur verið að. Ekki hefur
enn verið tekin nein ákvörðun um
hvort þessi leið verður farin til
gufuöflunar eða einhver önnur.
BH
Krossgáta, skákþáttur, vísnaþáttur
og f jölbreytt helgarefni
Töpum hundruðum milljóna
á lúðuveiðum Norðmanna hér
Norðmenn veiða hér töluvert
af lúðu. Mörgum íslenzkum
sjómönnum, sem upp á þetta
horfa, þykir það átakanlegt þvi
að lúðuverðið er margfalt
hierra hér en i Noregi og
"víþjóð. Hundruð milljóna
kunna að tapast af þvi að við
veiðum ekki þá lúðu sjálfir,
sem Norðmenn taka hér við
land, og seljum erlendis.
„Við höfum orðið varir við
lúðu um borð i ýmsum norskum
skipum, allt frá nokkrum tonn-
um upp í þrjátíu í einstökum
skipum," sagði Pétur
Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar. í viðtali við
DB. Hann sagði að alltaf hlyti
að koma einhver annar fiskur
með þegar Norðmenn væru á
þeim þorskveiðum sem þeim
eru heimilar samkvæmt
samningi. Pétur kvað gæzluna
tilkynna sjávarútvegsráðuneyt-
inu um þennan afla jafnóðum.
Þessar lúðuveiðar hafa verið
taldar Norðmönnum heimilar,
af því að ekkert er tekið fram
um þær i fiskveiðisamningi
þjóðanna.
-HH.