Dagblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 6
Lausar stöður
Kennarastöður við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í
Keykjavik eru iausar til umsóknar. Um er að ræða
nokkrar stöður í bóklegum og verklegum greinum, en
kennsludeildir skólans eru sem hér segir: íslenskudeild,
deild erlendra máia, stærðfræðideild, eðlis- og efnafræði-
deild, náttúrufræðideild, samfélags- og uppeldisfræði-
deild, viðskiptadeild, hússtjórnardeild, mynd- og hand-
menntadeild, heiisugæsludeild, máimiðnadeild, rafiðna-
deild, tréiðnadeild og íþróttadeild.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og störf
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, Reykjavík, fyrir 16. júlí nk. Umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu og í fræðsiuskrifstofu Reykjavíkur.
Menntamólaráðuneytið,
21. júní 1977.
«1
Eftir 14 ára
reynslu á Is-
landi hefur
runtal-OFNINN
sannað yfir-
burði sína yfir
aðra ofna sem
framleiddir og scldir eru á Islandi.
Engan forhitara þarf að nota við runtal-OFNINN og eykur það um
30% hitaafköst runtal-OFNSINS.
Það er allstaðarrúm fyrir runtal, runtal-OFNINN er framleiddur úr
svissnesku gæðastáli.
Runtal-OENINN er hægt að staðsetja allstaðar.
Stuttur afgreiðsiutími er á runtal-OFNINUM.
VARIZT EFTIRLlKINGAR. VARIZT EFTIRLÍKINGAR.
rilfvtal OFNAR HF. Síðumúla 27.
Ofnasmiðja Suðurnesja hf. Keftavík.
Aðalskoðun bifreiða í Reykjavík
í jiílí og ágústmánuði
Föstudagur 1. júlí R-34201 til R-34400
Mánudagur 4. júlí R-34401 til R-34600
Þriðjudagur 5. júlí R-34601 til R-34800
Miðvikudagur 6. júlí R-34801 til R-35000
Fimmtudagur 7. júlí R-35001 til R-35200
Föstudagur 8. júlí R-35201 til R-35400
Mánudagur 11. júlí R-35401 til R-45600
Þriðjudagur 12. júlí R-35601 til R-35800
Miðvikudagur 13. júlí R-35801 til R-36000
Fimmtudagur 14. júlí R-36001 til R-36200
Föstudagur 15. júií R-36201 til R-36400
Hlé á aðalskoðun vegna sumarleyfa
starfsfólks Bifreiðaeftirlits ríkisins.
Mánudagur 15. ágúst R-36401 til R-36600
Þriðjudagur 16. ágúst R-36601 til R-36800
Miðvikudagur 17. ágúst R-36801 til R-37000
Fimmtudagur 18. ágúst R-37001 til R-37200
Föstudagur 19. ágúst R-37201 til R-37400
Mánudagur 22. ágúst R-37401 til R-37600
Þriðjudagur 23. ágúst R-37601 til R-37800
Miðvikudagur 24. ágúst R-37801 til R-38000
Fimmtudagur 25. ágúst R-38001 tii R-38200
Föstudagur 26. ágúst R-38201 til R-38400
Mánudagur 29. ágúst R-38401 til R-38600
Þriðjudagur 30. ágúst R-38601 til R-38800
Miðvikudagur 31. ágúst R-38801 til R-39000
Bifreiðaeigendum ber að koma með
bifreiðar sínar til bifreiðaeftirlitsins,
Borgartúni 7, og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 08.00 til
16.00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað ó laugardög-
um. Festivagnar, tengivagnar og far-
þegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til
skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreið-
anna leggja fram fullgild ökuskír-
teini. Sýna ber skilríki fyrir því, aö
bifreiðaskattur og vátrygging fyrir
hverja bifreið sé gild.
Athygli skal vakin á því, að
skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanrœki eintiver að koma bifreið sinni til
skoðunar ó auglýstum tíma verður tiann
látinn sœta sektum samkvœmt umferðarlög-
um og bifreiðin tekin úr umferð tivar sem til
tiennar nœst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut
eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík,
23. júní 1977
Sigurjón Sigurðsson.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. JTJNt 1977.
' ' ' ' \
Formaður Jafnréttisráðs um lögin og persónufrelsi:
í HÚFIERU HAGSMUNIR
SEM RÉTTLÆTA SKERDINGU
— á frelsi til kyngreininga fauglýsingum
í umræðum um jafnréttis-
lögin að undanförnu hefur
þeirri spurningu m.a. verið
varpað fram hvort lögin brjóti í
bága við grundvallarreglur
íslenzkrar stjórnskipunar og
hvort persónufrelsi sé skert
með setningu þeirra.
Sigurður Lindal, prófessor í
lögum við Háskóla íslands,
hefur m.a. í samtali við
Morgunblaðið látið í ljós þá
skoðun að fullkomlega eðli-
legar ástæður gætu legið til
þess að menn kysu heldur að
ráða sér starfsmann af öðru
kyninu en hinu. Einnig telur
Sigurður það koma til álita
hvort ákvæði 4. greinar jafn-
réttislaganna brjóti í bága við
þær mannréttindayfirlýsingar
sem tslendingar hafa undir-
ritað.
Umrædd 4. grein laganna
(nr. 78/1976) hljóðar svo:
„Starf, sem auglýst er laust til
umsóknar, skal standa opið
jafnt konum sem körlum. í
slíkri auglýsingu er óheimilt að
gefa til kynna að fremur sé
óskað starfsmanns af öðru
kyninu en hinu.
t framhaldi af þessum
umræðum sneri Dagblaðið sér
til Guðrúnar Erlendsdóttur
hrl., formanns Jafnréttisráðs,
og leitaði álits hennar.
Guðrún sagði að ekki mætti
gleyma því að ákvæði fjórðu
greinar laganna, sem talað væri
um, ættu eingöngu við atvinnu-
auglýsingar. Tilgangur með
þeirri grein væri að brjóta
niður svokölluð karla- og
kvennastörf. „Með því að aug-
lýsa eftir skrifstofustúlku er
útilokað að karl sæki um
starfið," sagði Guðrún. „Þannig
eru til hefðbundin kvennastörf,
sem greidd eru fyrir kvenna-
laun, þrátt fyrir lögin um
launajafnrétti frá 1973.“
Hún sagðist ekki telja að um
skerðingu á persónufrelsi væri
að ræða og benti á að til dæmis
væri bannað að auglýsa tóbak
og áfengi. Með því banni væri
verið að vernda hagsmuni —
þ.e. heilsu almennings — sem
væru það mikilvægir að rétt-
lætanlegt væri talið að frelsi
manna til auglýsinga að því
leyti væri skert. Menn gætu
engu að síður fengið þann
starfskraft sem þeir óskuðu
eftir.
Dagblaðið beindi þeirri
spúrningu til formanns Jafn-
réttisráðs hvort ekki væri til
lítils að banna kyngreiningu í
auglýsingum ef auglýsendur
gætu síðan mismunað umsækj-
endum eftir kynjum að vild.
Guðrún Erlendsdóttir sagði
að samkvæmt sjöundu grein
jafnréttislaganna gæti sá, er
sækti um stöðu og fengi ekki,
beðið viðkomandi atvinnurek-
anda um rökstudda skýringu á
vali sínu og jafnframt óskað
eftir því að Jafnréttisráð
kannaði málið.
Hún sagði að til þessa hefðu
engir kvartað yfir kyngrein-
ingu í auglýsingum eða öðru
misrétti í þessu sambandi. Jafn-
réttisráð myndi framfylgja
reglum þar um frá og með
fyrsta næsta mánaðar, þótt
lögin sjálf hefðu tekið gildi í
fyrra. „Við ætlum ekki í neina
hörku,“ sagði Guðrún Erlends-
dóttir, „enda á ég ekki von á að
þess gerist þörf.“
OV
Kynnisferðir sf. flytja í Gimli:
STEFNA AÐ 0DYRARI
FERÐUM UM ÍSLAND
Kynnisferðir sf. sem aðallega
vinnast við að skipuleggja ferðir
útlendinga um íslands, fluttu
nýlega starfsemi sína í Gimli við
Lækjargötu. t því húsi var áður
rekin starfsemi Ferðaskrifstofu
ríkisins. Þegar hún flutti í vetur
sem leið inn á Reykjanesbraut
stóð Gimli eftir auður og fannst
borgaryfirvöldum og ríkisstjórn
að við svo búið mætti ekki standa.
Húsið, sem er í eigu ríkissjóðs,
var því leigt Kynnisferðum og
taka þær jafnframt að sér fræðslu
þá um land og þjóð sem áður
hefur verið rekin niðri á Lækjar-
torgi.
Gimli er nokkuð sögufrægt hús
og má til dæmis nefna að það er
fyrsta hús á íslandi sem byggt er,
úr frauðsteini og var það gert í
tilraunaskyni. Tilraunin gafst vel
eins og sjá má og hafa fleiri hús
verið byggð úr sama efni.
Kynnisferðir er sameignarfélag
9 ferðaskrifstofa og var það
stofnað þeim tilgangi fyrst og
fremst að fara með útlenda ferða-
menn til íslands. Ferðir með
Islendinga eru hins vegar
óplægður akur að mestu og að
sögn framkvæmdastjóra Kynnis-
ferða mun félagsskapurinn taka
þær upp í auknum mæli.
Utlendingar kvarta helzt yfir þvi
að matur sé svo dýr á íslandi að
kostnaður við ferðir um það sé
mikill. Ekkert er um ódýra mat-
staði eins og tíðkast víða erlendis.
Framkvæmdastjórinn kvað
þennan kostnað stafa mest og nær
eingöngu af þvi hversu dýrt
hráefni í mat væri á landinu,
vinnulaun væru hverfandi
kostnaður miðað við þau. Hann
kvaðst þó gera sér góðir vonir um
að ferðir um landið yrðu ódýrari
eftir að Kynnisferðir hæfu
samstarf um þær því þá skapaðist
betri nýting á t.d. rútum.
-DS.
„SUMARGLEÐI” RAGNARS BJARNA-
S0NAR 0G FÉLAGA UM LANDIÐ í SUMAR
„Sumargleði" Ragnars
Bjarnasonar og hljómsveitar
hans, auk fleiri skemmtikrafta,
fer um landið í sumar. Fyrsta
skemmtunin verður í Stapa i
Ytri-Njarðvík 1. júlí. Síðan
verða fjórar skemmtanir um
hverja helgi allt fram í lok
ágúst.
Auk hljómsveitar Ragnars
Bjarnasonar skemmta á
„Sumargleðinni" i ár þeir Ómar
Ragnarsson og Bessi Bjarnason.
Söngvarar hljómsveitarinnar
eru auk Ragnars þau Þuríður
Sigurðardóttir og Grímur
Sigurðsson.
Skemmtanirnar i félagsheitn-
ilum landsins i sumar hefjast
með tveggja tíma skemmtidag-
skrá en síðan verður dansað
fram eftir nóttu. Spilað verður
ferðabingó á dansleikjunum og
veittir tveir sólarlandavinn-
ingar á hverju kvöldi. Einnig
verður í sumar haft happdrætti
sem dregið verður úr á síðustu
skemmtuninni, 21. ágúst á
Kirkjubæjarklaustri.
ÓV