Dagblaðið - 29.06.1977, Blaðsíða 1
ENN A NY ERUM VIÐ ORÐNIR
íslendingar (með stóram staf)
„Við höfum engri bók hent
enn vegna stafsetningabreyt-
inga undanfarið og ég vona að
til þess komi ekki að ráði,“
sagði Jón Emil Guðjónsson, for-
stöðumaður Rikisútgáfu náms-
bóka, í viðtali við DB í morgun
vegna nýjustu stafsetningar-
breytinganna, sem tilkynntar
voru í gærkvöldi.
Skv. þeim erum við íslend-
ingar aftur búnir að fá stórt I,
sömuleiðis Norðlendingar stórt
N, Selfyssingar stórt S og
Afríkubúar stórt A.
Að sögn Jóns prentar útgáf-
an yfirleitt nokkuð fram í tím-
ann en hingað til hefur sá hátt-
ur verið hafður á að nota upp-
lögin upp og koma breytingun-
um smátt og smátt inn í nýjum
upplögum. Undanfarið er búið
að dreifa miklu af kennslubók-
um með litlum stöfum í áður-
nefndum dæmum. Þá hafa
breytingarnar seinkað ýmsu
hjá útgáfunni, þótt vart sé hægt
að tala um verulegan auka-
kostnað í kjölfar breytinganna.
Allt árið er verið að prenta
einhverjar bækur fyrir útgai-
una og sagðist Jón hafa haft
þann hátt á nú að seinka heldur
prentun kennslubóka í íslenzku
vegna óvissuástandsins. Vonað-
ist hann því til að einhverjar
bækur með nýjustu stafsetning-
unni kæmust í gagnið í haust.
t morgun sagði íslenzkukenn-
ari, í stuttu viðtali við blaðið, að
— skólabörn og
kennararvita ekki
sitt rjúkandi ráð
— Alþingismenn
ekki á eitt sáttir
þessi hringlandaháttur kæmi
fyrst og fremst illa niður á
kennurum og nemendum.
Að lokum má geta þess að
alþingismenn eru ekki á eitt
sáttir um þessa ákvörðun
menntamálaráðherra og telja
hann jafnvel ekki hafa haft
leyfi til þessa án samþykkis Al-
þingis. -G.S.
Yfirmenn
ríkisfyrir-
tækja eru
seinir í
vinnuna
Yfirmenn íslenzkra fyrir-
tækja, einkum opinberra
fyrirtækja, mæta seint og
illa til vinnu. Hending er að
ná sambandi við yfirmann
ríkis- eða borgarfyrirtækis
þegar vinna á að hefjast þar
á morgnana kl. 8:45. — Því
miður, er svar stúlknanna á
símanum, — hann mætir
yfirleitt ekki fyrr en upp úr
níu.
Þetta er reynsla okkar
Dagblaðsmanna sem erum
árla á fótum og verðum
vegna vinnslutíma blaðsins
að hringja í marga á milli
átta og níu á morgnana.
Ekki er það einhlítt að
yfirmenn fyrirtækja mæti
ekki á réttum tíma til vinnu
(miðað við að réttur tími sé
sá sem auglýstur er
opnunartími fyrirtækisins),
en það er algengt.
Við höfum stundum reynt
að fá tölfróða menn til að
gizka á hversu mikið þessi
,,morgunskróp“ kosta ríkis-
sjóð. Þeir hafa hrist höfuðið
vonleysislega og sagt sem
svo: Engin leið að segja með
vissu en það kostar mikið,
mikið, mikið.
-OV.
Leiðindaveóur sydra:
EINS OG HELLT ÚR FÖTU - EÐA
SPRAUTAÐ UR GARÐSLÖNGU
„Þetta leiðinlega veður herjar
á hluta af landinu, sem nær frá
Snæfellsnesi og austur í Skafta-
fellssýslu," sagði Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur er hann
var spurður út i slagveður það
er herjar á okkur Sunn-
lendinga þessa stundina. „Það
er heldur í þá áttina að létti til
ef eitthvaðer, þó er svalt loft
um land allt og var hvergi
meira en 8 stiga hiti í morgun,"
sagði Páll einnig. Austanátt
er um alll land og fylgdi henni
22 millimelra úrkoma i Reykja-
vík í nótt. A Stórhiifða mæld-
ust lu vindstig.
Veðurfra'ðingar voru búnir
að spá að rigningin i gær færi
fram hjá landinu, en svo varð
ekki, eins og Reykvíkingar
a.m.k. urðu illilega varir við. Þó
Austfirðingar hafi að visu ekki
sól í dag, þá hefur þurrkur
„Já, sprautaðu bara af krafti,"
segir Þóra Guðmundsdóttir for-
stöðukona Farfuglaheimilsins
á Seyðisfirði, við Ágústu Axels-
dóttur. Þar eystra hefur varla
dropi fallið úr lofti í margar
vikur. Þær stöllurnar voru að
hreinsa málningu af
rúmstæði og eftir var að þrífa
málningareyðínn af gúmbux-
unum. DB-m.vnd R. Th.
leikið bændur grátt þar eystra.
Tún n:er sknelnuð og erfitt að
bera á í þossum þurrki. -BH.
Peninga-
lyktin —
enn óleyst
vandamál
— bls. 9
•
82 ára Mttir
systkini sín
ífyrsta sinn
— sjá bls. 8
Sjónvarps-
hnötturinn
mundi kosta
24 milljarða
—og endast
Í7ár
— Sjá kjallaragrein
Þorbjöms Brodda-
sonarábls. 10-11
Gervigras ein-
faldasta lausnin
Jóhannes
leikurgegn
Noregi
— sjá íþróttir íopnu