Dagblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 9
!.' u;m. \hh> i'i I'i rii 1 j.V(;i;k :so. .iiiNi 1977.
Tunnurnará
Keflavíkur-
flugvelli:
EFNIÐ
VAR
FORMA-
LÍN
Nú er búið að kanna hvaða efni
var í tunnunum sem ýtustjórinn á
Keflavíkurflugvelli risti i sundur
á öskuhaugum hersins i siðustu
viku. Kom í ljós að það var förina-
lin, sem er nokkurs konar sótt-
varnar- og rotvarnarefni. Ekki
mun efni þetta vera mjög hiettu-
legt, er það í svonefndum hættu-
flokki C, en bráðdrepandi efni
eru í hættuflokknum X, hækka
efnin síðan upp eftir stafrófinu
eftir því hversu eitruð bau eru.
Efnið veldur mönnum tals-
verðum óþægindum, kláða og
óþægindum í augum, er það gufar
upp í mikiu magni, en er ekki til
tjóns.
Ekki er vitað hvaðan efnið kom
af Keflavíkurflugvelli né til hvers
herinn notar efnið en það mál er i
rannsókn.
BH
Sjómannadag-
urinn á Eskifirði
A sjómannadaginn á Eskifirði
hélt Sturlaugur Stefánsson stutta
en gagnorða ræðu og koin hann
víða við. Það væri betra að ráða-
menn temdu sér slíkt.
Margt var þar til skemmtunar.
Hæst bar stakkasundið. Sigur-
vegari varð Guðmundur Bjarni
Kristinsson, 18 ára unglingur, og
var tími hans 19 sekúndur. Þetta
er í þriðja sinn sem Guðmundur
vinnur í þessari grein. Árið 1965
gaf hraðfrystihúsið farandbikar
úr silfri sem verðlaun til sigur-
vegara í stakkasundi. Var jafn-
framt tekið fram að sá sem ynni
það sund þrisvar í röð hlyti
bikarinn til eignar.' Það gerði
Guðmundur og fær hann því að
halda bikarnum.
Regína/DS.
HELENA
KVEÐURí
KVÖLD
Ef einhver ætlar að ná þvi að
sjá söngleikinn Helenu fiigru i
Þjóðleikhúsinu er ekki seinna
vænna að ná sér í miða, síðasta
sýning leiksins verður í kvöld.
Helena hefur vakið mikla athygli
leikhúsgesta en verkið er
viðamikið og mannmargt, 50
manns koina fram auk 27 hljóð-
færaleikara. Sérstaka athygli
hefur eitt atriðið vakið, það eru
þeir söngvararnir Guðmundur
Jónsson, Kristinn Hallsson,
Garðar Cortes og Sigurður
Bjðrnsson í hlutverkum grfkkra
konnnga sem syngja þó Hvað er
svo glatt i þessari staðfærslu á
leiknum. Á myndinni eru Helena
fagra og Paris prins, Helga Jóns-
dóttir og Arnar Jónsson.