Dagblaðið - 04.07.1977, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. JULÍ1977.
2
Hreinn Níelsson hringdi:
Mig langar að koma nokkru á
framfæri sem sýnir að mínum
dómi bezt hvað kerfið er rotið.
Ég hef í mörg ár verið sjúkling-
úr og því lítið getað unnið.
Núna í vetur var ég svo í endur-
hæfingu uppi á Reykjalundi og
fékk nokkurn bata. En ég fæ
enga vinnu og þar af leiðandi
ekkert húsnæði.
Ég hef leitað til Ráðningar-
skrifstofu Reykjavíkurborgar
og beðið um létta vinnu en af
einhverjum ástæðum hef ég
enga úrlausn fengið.
Ég bý nú í litlu herbergi en
mér hefur verið sagt upp leig-
unni en þar sem ég hef enga
vinnu vill enginn annar leigja
mér. Ég leitaði til borgarinnar
út af þessu og það var auglýst
fyrir mig eftir íbúð. Nokkrir
hringdu en þegar þeir heyrðu
að ég hefði ekki vinnu vildu
þeir ekkert við mig tala. Ekki
virðist vera hægt að útvega mér
borgaríbúð.
Ég ætla að biðja blaðið að
koma þessu á framfæri ef ske
kynni að það rumskaði við ein-
hverjum.
Stœrðir 37-42
Seltimingar löggæzlu-
lausir á nóttunni?
0358—0288 skrifar:
Mig langar að gera það að
tillögu minni að íbúum á Sel-
tjarnarnesi verði hið allra
fyrsta sendur heim bréfmiði
sem veitir upplýsingar um nöfn
og heimasíma lögregluþjóna á
Seltjarnarnesi. — Astæðan
fyrir þessari tillögu minni er sú
að fyrir nokkrum nóttum þurfti
ég að fá lögregluþjón á heimiíi
mitt vegna mjög áríðandi máls.
Enginn svaraði á lögreglu-
stöðinni á Seltjarnarnesi þessa
nótt frekar en endranær. Greip
ég þá til þess ráðs að hringja á
Reykjavíkurlögregluna sem
kom á staðinn og gerði þær
ráðstafanir er þurfti að gera þá
stundina. Eitthvað voru þeir
góðu herrar nú samt ragir við
að framfylgja lögum þessa
lands því aðilinn, sem þeir
fjarlægðu, var kominn á heimil-
ið aftur innan tíðar. Var nú
hringt aftur á Reykjavíkur-
lögregluna og var hún hin
reiðasta yfir þessum látum og
lagði til að hringt yrði á
Seltjarnarneslögregluna. Þegar
ég upplýsti viðkomandi um að
enginn svaraði á stöðinni sagði
hann mér að hringja heim til
lögregluþjónsins. Fékk ég nú
upplýsingar hvað hann héti að
fornafni — og ekkert meira.
Var Reykjavíkurlögreglan nú
orðin afar æst og- fékk ég að
vita það að íbúar Seltjarnar-
ness ÆTTU að vita hvað
lögregluþjónarnir þeirra heita
OG HVAÐA HEIMASÍMA
ÞEIR HAFI. Heldur fannst mér
nú óskemmtilegt að hringja í
500 nafna mannsins í síma-
skránni svona um miðja nótt
svo ég hringdi næst í Hafnar-
fjarðarlögregluna sem á víst að
annast löggæzlu á Seltjarnar-
nesi ef ekki næst í lögregluþjón
þess kaupstaðar. Hafnarfjarðar-
lögreglan var hin elskulegasta,
mun kurteisari en Reykjavíkur-
lögreglan, og þar sem vakt-
hafandi lögregluþjónn
Seltjarnarness svaraði ekki
uppkalli var mér gefinn heima-
sími hans. Og viti menn,
maðurinn býr í Kópavogi.
Reyndist hann ekki vera
sofandi þegar ég hringdi og
kom hann á staðinn, sem
reyndist svo ekki nauðsynlegt
þegar búið var að aka leiðina
milii Kópavogs og Seltjarnar-
ness. Er þetta örugglega ekki í
fyrsta skipti sem Seltirningar
verða varir við að þeir eru svo
að segja löggæzlulausir frá
klukkan 23 á kvöldin.
„Með lögum skal land byggja“
stendur á stjörnunni sem
einkennir lögregluna. En hvað
á að gera þegar ekki næst i
hana?
Atvinnu- og
húsnæðislaus
Enn um sjónvarp
Umsjón:
Dóra Stefánsdóttir
Kr. 5980.-
4218-7801 skrifar:
Þegar ég var að horfa á sjón-
varpið á laugardagskvöldið fór
ég að hugsa um hvaða tilgangi
þulur þjónuðu. Hvað kostar
þetta sjónvarpið með öllu
tilheyrandi á ári, t.d. hár-
greiðsla, förðun og þjálfun?
Það sem að mínu viti mætti
betur gera við fé þetta er að
hafa tvær bíómyndir á
föstudags- og laugardags-
kvöldum (þó ekki væri nema
Hvað skyldi þetta kosta?
Splunku-
nýtt
20-30 ára gamlar bandarískar)
því þá vinna fæstir daginn
eftir. Einnig mætti nota þetta
fé til að flýta fyrir útsendingu í
lit og að síðustu mætti lækka
afnotagjöld. Gott væri að fá
tölur um þessa liði hjá Ríkisút-
varpi.
Kr. 4950.-
Raddir
lesenda