Dagblaðið - 04.07.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 04.07.1977, Blaðsíða 3
l)Ac;ill..U)lt). MANUDAGUK4. JÚLÍ 1977. 3 Enn um Laxalónsmálið: Endanleg niðurstaða var: Seiðin eru nýrnasjúk Guómundur Georgsson skrifar: !Ir. í itsl jóri í bréfi frá Sveini H Skúlasyni, sem birtist í blaði yðar fimmtudaginn 23. júní 1977, gætir nokkurs misskiln- ings sem virðist að einhverju le.vti mega rekja til ummæla minna. Mér þætti því vænt um að þér birtuð i heiðruðu blaði yðar eftirfarandi athugasemd- ir: misskilning sem veldur þvi að bréfritari nefnir ummæli min hringavitleysu. 1 öðru lagi er þeirri spurn- ingu varpað fram hvað ég hafi verið að staðfesta og virðist bréfritara ekki kunnugt um að endanleg niðurstaða hins norska sérfræðings var sú að um „bakteriell nyresyke" væri að ræða. Það sem ég staðfesti var að þessi sjúkdómur væri ennþá í fiskeldisstöðinni í Laxalóni og hefur það reyndar verið áréttað af fisksjúkdóma- fræðingi við háskólann í Stirl- ing í Skotlandi. Þennan sjúk- dóm, sem þekktur er í ensku- mælandi löndum undir heitinu „Bacterial kidney disease“, höfum við nefnt smitandi nýrnasjúkdóm á íslensku. Um nafngiftina má deila, heitið gerlanýrnaveiki kæmi til álita, en alkunna er að sjúkdómurinn er smitandi. í þriðja lagi þykir mér eðli- legt að ég svari spurningu, sem reyndar er beint til Einars Hannessonar, þar eð ég tel mér málið öllu skyldara. Spurningin hljóðaði svo: Er það rétt að ekki hafi tekist að finna á Keldum í seiðunum frá Laxalóni þann smitandi sýkil sem veldur Bact- erial kidney disease? Svarið er: Nei, það er rangt. t vefjum úr sjúkutn seiðuin fannst mikið af slíkum sýklum. Virðingarfyllst, Guðmundur Georgsson. I f.vrsta lagi: Það er rétt eftir mér hafl að sjúkdómurinn í seiðunum frá Laxalóni var fyrst greindur af norskum fisk- sjúkdómafræðingi i f.vrra. Það er einnig staðre.vnd að sjúk- dómur þessi hefur ekki fundist i norskum eldisstöðvum, ám eða vötnum og er því í þeim skilningi óþekktur í Noregi. Þetta hefur sennilega ekki komið nægilega skýrl fram og skýrir væntanlega þann leiða Bjór en ekki eiturlyf Orn Asmuiidsson hringdi lil að leiðrétta misskilning sem kemur fram í lesendabréfi hans þann 1. júli. Þar segir að i Þýzkalandi eigi unglingar auðveldan aðgang að víni og eiturlyfjum. Þetta átti að vera vin og b.jór. Beðizt er vel- virðingar á þessu. Af hverju er bannað að kyngreina í auglýsingum? Mjöll Sigurðardóttir hringdi: Mig langar bara að spyrja að því hvaða forsendur liggi að baki því að bannað er að aug- lýsa fremur eftir öðru kyninu en hinu. Er álitið að það geti skipt höfuðmáli fyrir jafnréttið í landinu? Er hægt að banna mönnum að auglýsa eins og þeir vilja þegar þeir greiða auglýsingar fullu verði? Ef vara er auglýst til kaups eða sölu er hún yfir- leitt nákvæmlega auglýst þannig að ekki kemur upp mis- skilningur um við hvaða vöru er .átt. Af hverju má ekki gera eins með vinnuafl? Auk þess skapar það óþarfa- hlaup hjá fólki ef það sækir um starf sem búið er að ákveða fyrirfram að aðeins eigi að ráða hitt kynið í. Það væri þægilegra ef það væri tekið fram strax i auglýsingunni. í DB fyrir nokkru var rætt við Guðrúnu Erlendsdóttur for- mann Jafnréttisráðs. Hún sagði meðal annars að starf sem aug- lýst er laust skuli standa opið jafnt konum sem körlum. Til- gangurinn með þessu er að brjóta niður svokölluð kven- og karlastörf. Með þvi að auglýsa eftir skrifstofustúlku getur karlmaður ekki sótt um starfið.' Atvinnurekendum á einnig að vera óheimilt að ráða fremur karlmenn en kvenmenn eða öf- ugt eingöngu vegna kyns. Konur og kariar eiga að geta sótt jafnt um öli störf og fengið þau. ✓ TIL SUÐURS MEÐ SUNNU COSTA BRAVA Dagflug á sunnudögum. Brottfarar- dagar: 24.-31. juli, 7.-14.-21.-28. ágúst. 4.-11. september. TRIMARAN- ÍBÚÐIR Fjölskylduparadís. stórfengleg nátt- úrufegurð, fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Við bjóðum gistingu í íbúðum i sérflokki með einkasundlaug og allri aðstöðu rétt við baðströndina. Auk þess góð hótel. rCOSTA DELSOLl t*t g rjm • -eh - "4)^1 , „ y'"' , «> <» ii ^ Dagflug á föstudögum. Brottfarar- dagar: 7.-H.-29. júlí. 5.-12.-19.-26. ágúst. 2.-9.-16.-23.-30.sept. PLAYAMAR- ÍBÚÐIR Við bjóðum gistingu i ibúðum og hótelum i sérflokki. tvimælalaust það besta sem hægt er að fá. svo sem lúxusíbúðirnar Playamar og Hótel Don Pablo. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir, m.a. til Afriku. óviðjafnanleg náttúrufegurð Andalúsíu og frábær baðströnd í Torremolinos'. Barnaheimili og leik- skóli með islenskri fóstru .hótelgarðinum á Playamar. GRIKKLAND Dagflug á þriðjudögum. Brottfarar- dagar: 19. júlí, 2. -9.-16.-23.-30. ágúst. 6.-13.-27. sept. Nú loksins órikklandsferðir frá ís- landi. sem þegar hafa hlotið frábær- ar vinsældir. Heillandi land nátt- úrufegurðar og sögustaða. C.óðar ibúðir og hótel í baðstrandabæjum skammt frá höfuðborginni Aþenu. Evintýraferð sem enginn gíe.vmir. Kynnið ykkur dagskrá listahátíða í Aþcnu í júlí, águstog september. Heimsfrægir skeinmtikraftar. svo sem Bolshoi ballettinn frá Moskvu. KAUPMANNA- HÖFN Ódýrar Kaupmannahafnafferðir í hverri viku. Eigin þjónustuskrifstofa aðeins fyrir Sunnufarþega í miðborg Kaupmannahafnar. Dagflug á sunnudögum. Brottfarar- dagar: 24.-31. júlí. 7.14.-21.-28. ágúst. 4.-11.-18. -25. september. 2.-16. október. 'Fjölsóttasta ferðamannapáradís Evrópu. Nú 2 þjónustuskrifstofur Sunnu á Mallorea. Barnaheimili og leikskóli með íslenskri fóstru. Þjónusta i sérflokki. Eftirsóttustu ibúðir o’g hótel sem til eru á Maliorca. Roval Magaluf. Portonova og splunkunýtt glæsilegt ibúðarhótel. Roval Torrenova. KANARIEYfAR nú allan ársins hring hjá Sunnu. Sólskinsparadis vétur. sumar. vor og haust. Eftirsóttustu íbúðirnar. hótelin og villurnar. svo sem Kóka. Sun Club. Corona Roja. Wikiki o. fl. KANADA: Síðasta beina flugið til Winnipeg 28. júlí. Aðeins kr. 54.800.- Norðurlandafe.rðir—Rínarlandaferðir—0g 6 landa sýn með íslenzkum fararstjórum fró Kaupmannahöfn. Biðjið um nýju, litprentuðu ferðahandbók Sunnu. FERÐASKRIFSTOFAN SDNNA Reykjavík: Lækjargötu 2 - Símar 16400 og 12070 Akureyri: Hafnarstræti 94 - Sími 21835 lí--------7 Spurning dagsins £ ----ii hlver heldur þú að sé rík- asti maður ó íslandi? María Theresía Jónsson hjúkrun- arkona: Geir Hallgrímsson auðvit- að. Það vita allir, meira að segja útlendingar. Ég var að lesa í blöð- unum að þeir í Svíþjóð hafa kom- izt að því. Stefán Kárason póstur: Það veit ég ekki. Ég held ég geti ekki gizkað á neinn því það er ómögu- legt að segja til um. Jóna Þórðardóttir, húsmóðir og amma sem passar börn: Nú veit ég ekki. Það er líklega ekki Einar ríki lengur því hann er dáinn. Hvernig á maður að vita hvað aðrir eiga þegar maður veit varla hvað maður á sjálfur? Elín Kristjánsdóttir, vinnur á Landakoti: Ég veit það ekki. Ætli það sé ekki helzt Rolf. Sverrir Hóimarsson kennari: Það er Geir Hallgrímsson. Eg man ekki eftir neinum öðrum í fljótu bragði sem á eins mörg f.vrirtæki. Helgi Scssiliusson ökukennari: Ég er nú ekki alveg klár á því. Það eru margir sem koma til greiua. Eg held ég viti nú samt hver er rikastur en ég vil ckki segja það þvi ég fengi bágt fyrir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.