Dagblaðið - 04.07.1977, Síða 4

Dagblaðið - 04.07.1977, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. JÚLt 1977 Akureyrskur völundur kontrabassa og langspil Þegar viö DB-menn vorum á ferð á Akureyri fyrir nokkru fréttum við af manni nokkrum, Friðgeiri Sigurbjörnssyni, sem í fjölda ára hefur fengizt við að smíða og gera við hljóðfæri. Friðgeir er fæddur árið 1896 og er því orðinn áttræður. Við lit- um inn á verkstæði Friðgeirs „Strengi". — Hefurðu smíðað mikið af hljóðfærum? „Ja, ég hef gert soldið að því. Mest hef ég smíðað af gíturum , bæði venjulegum og rafmagnsgíturum og svo kontrabassa og langspil . Mestur tími fer auðvitað í viðgerðirnar,“ sagði Friðgeir. — Og eftir hverju ferðu þegar þú smíðar? „Ég smíða dálítið eftir því sem ég sé og breyti því eftir því sem mér hentar. Sumt smíða ég á lager en annað eftir pöntun- um. Ég held að segja megi að flestir séu ánægðir með hljóð- færin sem ég smíða. — Og hvernig ganga viðgerðirnar? „Eg hef ekki enn haft undan. Hérna er ég t.d. með elzta orgel í Skagafirði sem ég er að reyna að gera upp og reyna að fá gott. Ég veit ekki nákvæmlega hvað það er gamalt. Hér er svo annað sem er yngra. Ártalið 1896 er skrifað á það en það er líklega ekki smíðaárið. Þetta orgel er ekki nærri því eins gott og það gamla. Hér er svo rafmangsgítar sem ég smíðaði fyrir ca 15 árum, hann var notaður í hljómsveit og er ósköp illa farinn. Ég ætla að vita hvort ég get ekki gert við hann.“ — Hefurðu nokkra hugmynd um hvað þú hefur smíðað mörg hljóðfæri? „Nei, það get ég ekki gizkað á. Ég veit að ég hef smíðað 130 langspil en þori ekki að segja til um annað. Eg hef alltaf unnið að þessu einn á verkstæðinu mínu sem ég kalla Strengi, bara til að það heiti eitthvað." —Og hvað kosta hljóðfæri hjá þér? „Það er svipað og meðalverð í búðum, þó svolítið misjafnt eftir stykkjum." • — Hefurðu hlotið einhverja menntun til þessara smíða? „Ne-i. Eg er lærður hús- gagnasmiður, ég hef hins veg- ar lengi haft áhuga á þessu en ekki leitað mér mennta.“ — Hvaðan færðu aðallega hljóðfæri til viðgerða? „Það er mest héðan, en svo kemur þetta einnig frá Reykja- vík, þaðan kemur þó nokkuð," sagði Friðgeir að lokum. -DS. Friðgeir Sigurbjörnsson heldur á rafmagnsgitar sem hann smíðaði fyrir einum 15 árum og er nú að 'gera upp. r \ i J Vegurinn til Isa- fjaröar býður hættunum heim Hin upprennandi búkona, Gulla Flosadóttir. „Má bjóða þér far?“ sagði ungi maðurinn á Fíatbílnum um leið og hann opnaði dyrnar og bauð blm. að sitja í til Hnífs- dals. „Maður er nú heldur þunnur í dag en það þýðir ekki að láta það á sig fá, heldur að taka ótrauður til við vinnuna," sagði ökumaðurinn og átti þar við afleiðingar skemmtunar gærkvöldins. „Hvað á að gera á Hnífsdal" spurði ökuinaður. Blm. kvaðst ætla að heyra hljóðið í þeim Hnifsdælingum, „þá geturðu byrjað á að ræða við einn,“ sagði ökumaður og átti þar við sjálfan sig. Fór hann síðan með nokkrar ljó.ðiínur á þessa leið: Þingeyri, Flateyri, Bolungarvik eru fyrirheitnir staðir. að komast þangað á einhverri tík og reyna að vera glaðir. Fyrr en varði var bíllinn kominn inn i Hnifsdal, enda ekki nema steinsnar frá tsafirði eftir nýmalbikuðum. breiðuin veginum. Kvaddi þá blm. velgjörðarmann sinn, öku- manninn, og fór að kanna það sem fyrir augum bar., Niðri í fjöru var hús málað í skrautlegum litum og með hall- andi skúrþaki. Stóð á því „Selið" og einnig gaf áletrun á húsinu það til kynna að húsið væri eign Litla leikklúbbsins á ísafirði. ísafjörður og Hnífs- dalur eru nú orðin eitt og sama bæjarfélagið og því ekki rétt að tala lengur um þetta tvénnt sem aðskilda staði. Mikið um slys á nýja veginum Hún Guðbjörg Torfadóttir er búin að vera á Hnífsdal allt frá árinu 1928. Kvaðst hún ekki hafa farið oft út á Djúp en þó hafi hún t.d. verið í Fagra- nesinu, gamla Djúpbátnum, sem strandaði í Vigur hér um árið. Dvaldi hún þá í Vigur þann daginn áður en Fagranesið náðist út á flóðinu um kvöldið. 1 Vigur þótti henni afar fallegt og búsældarlegt. Nýi, malbikaði vegurinn frá ísafirði liggur í fjallshlíðinni fyrir ofan hús Guðbjargar. Ekki er Guðbjörg ýkja hrifin af þeirri vegarframkvæmd, enda hafa slysin þar orðið mörg og alvarleg. Ný sorpeyðingarstöð Skömmu eftir sameiningu sveitarfélaganna, Isafjarðar og Hnífsdals, komu sveitarfélögin sér upp sorpeyðingarstöð sem reist var rétt við þjóðveginn frá Hnífsdal til Bolungarvikur. F.r sorpeyðingarstöðin hin glæsi- legasta þó talsvert draslsem er til lítils augnayndis, safnist þar í kring. Er blm. var á leið út úr Hnífs- dal rakst hann á þessa ungu stúlku á meðfylgjandi mynd þarna við stýrið á drátt- arvélinni. Kvaðst hún heita Gulla og pabbi sinn héti Flosi. Augljóslega hefur hún tals- verðan áhuga á dráttarvélar- akstri ef marka má ibygginn svip hennar á myndinni. Hver Sorpeyöingarstööiii, sein „plássin" viö Djúp reistu saineiginlega. Guðbjörg Torfadóttir i Hnífsdal og hundurinn Mikki. DB-mvndir BH. veit líka nema Gulla litla verði bóndi sem ekur um á dráttarvél á þessum jafnréttistímum k.vnj- anna. -BH.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.