Dagblaðið - 04.07.1977, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. M ANUDAGUR 4. JÚLt <1
Skóbúðin Snorrabraut 38
Sími 14190
sterka rvksusan... V
Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga,
stillanlega og sparneytna
mótors, staðsetning
hans oghámarks
orkunýting, vegna
lágmarks loft-
mótstöðu í
stóru ryksíunni,
stóra. ódýra
pappírspokanum
og nýju kónísku
slöngunni,
afbragðs sog-
stykki og varan-
legt efni, ál og
stál. Svona er
NILFISK:
Vönduð og
tæknilega ósvik-
in, gerð til að
vinna sitt verk
fljótt og vel. ár
eftir ár. með lág-
marks truflunum
og tiikostnaði
Varanleg: til lengdar
ódvrust.
Nýr hljóð-
deyfir:
Hljóðlótasta
ryksugan.
Afborgunarskilmólar
ETOMIY HÁTÚN 6A
IwlllA SÍMI 24420
Raftækjaúrval — Næg bflastæði
Þanka-
brot
Sovét-
manns
Menn eru flestir þannig gerð-
ir að þeir nota hvert tækifæri
sem gefst til að líta yfir farinn
veg og skyggnast inn í framtíð-
ina. Fyrir okkur sovétmenn
gefst enn eitt tækifæri til slíks í
nóvember í ár, þegar við minn-
umst 60 ára afmælis Október-
byltingarinnar.
Það sem er gert verður ekki
aftur tekið. Vissulega eru þeir
hlutir til í fortíðinni sem við
hefðum framkvæmt á annan
hátt ef við hefðum þá búið yfir
þeirri þekkingu og reynslu sem
við höfum nú. Þá hefðum við
getað forðast ýmsar hættur og
mistök.
Stundum er okkur borið það
á brýn á Vesturlöndum að við
tökum of hátíðlega afstöðu til
sögu okkar. Við erum jafnvel
sakaðir um að vera gagnrýnis-
lausir á fortíð okkar. Og vissu-
lega er það rétt að við erum
hrifnir af sögu okkar. Við tök-
um hátíðlega afstöðu til henn-
ar. En það er ekki vegna þess
að við gagnrýnum hana ekki.
Og heldur ekki vegna þess að
við vanmetum það sem aðrar
þjóðir hafa gert.
Leið okkar var ekki rósum
stráð. Við skulum minnast þess
hvernig við byrjuðum. Arfur
okkar frá keisaratimunum var
lítil framleiðsla, hungur og
rústir. Rússland í myrkri — var
sagt um land okkar á þeim ár-
um og var það réttnefni. Vest-
rænir hagspekingar kepptust
um að fullyrða að Rússland
kæmist ekki út úr þessu myrkri
næstu aldirnar. Sérhver ný
hugmynd okkar mætti efasemd-
um og tortryggni. Svo til hver
einasta áætlun sovésku stjórn-
arinnar var talin fáránleg,
óframkvæmanleg, o.s.frv. Þetta
var orðað á ýmsa vegu, en
merkingin var jafnan sú sama :
bolsévikkunum tekst þetta
aldrei. Erfiðleikarnir voru
sannarlega miklir og fáir sem
trúðu að þeir yrðu yfirstignir.
Enski rithöfundurinn
H.G.Wells kallaði Lenín
Draumóramanninn í Kreml.
í fyrri heimsstyrjöldinni
varð mikil eyðilegging. Síðan
kom borgarastyrjöldin og inn-
rásarstríðið og loks fimm ára
stríð gegn Hitlers-Þýskalandi.
Af þessum sextíu árum hafa
þvi u.þ.b. tveir áratugir farið í
styrjaldir, sem þröngvað var
upp á okkur, og uppbyggingu í
kjölfar þeirra. Þetta höfum við
mátt ganga í gegnum.
Við fórum ekki troðnar slóð-
ir. Við byrjuðum eiginlega á
núlli. Sérhvert spor sem við
stigum var í raun og veru stigið
í fyrsta sinn í mannkynssög-
unni. Við gátum ekki miðað við
neina f.vrri reynslu. Þess vegna
var sérhvert skref ný uppgötv-
un. Þessar uppgötvanir voru
erfiðar. Oft þurftum við að
hörfa aftur á bak til þess að
geta byrjað upp á nýtt. Tilraun-
irnar komu hver á fætur ann-
arri. Leiðréttingar voru líka
Sovétríkin
í sextíu ár
ófáar. Og sjálfsagt hefði ýmis-
legt mátt gera betur, með minni
tilkostnaði. Stundum hittir
maður fólk — jafnvel meðal
vina — sem tekur ekki afstöðu
til sósíalismans á grundvelli
þeirrar raunverulegu reynslu
sem unnist hefur og saman-
burðar við þá möguleika sem
fyrir hendi voru, heldur á
grundvelli samanburðar á þvl
sem þegar er fyrir hendi og þvl
sem þeir vildu að væri fyrir
hendi, og gæti gerst við önnur
skilyrði, á öðrum tíma, í öðru
landi. Slík aðferð finnst okkur
vægast sagt hæpin. Ef til vill
mun einhver þjóð í framtíðinni
framkvæma meira á jafnlöngu
tímabili, það yrði okkur til mik-
illar gleði.
Já, við tökum hátíðlega af-
stöðu til sögu okkar og erum
hreykin af ávinningum okkar.
Við erum hreykin af því að
iðnaður okkar framleiðir nú á
tveimur og hálfum degi jafn-
mikið og framleitt var í Rúss-
landi allt árið 1913. Við erum
hreykin af því að land okkar
framleiðir nú einn fimmta
hluta af allri framleiðslu
heimsins, en fyrir byltingu var
þetta hlutfall aðeins um 4%.
Við erum hreykin af því að í
landi okkar, þar sem u.þ.b. þrír
fjórðu hlutar fullorðinna íbúa
voru ólæsir fyrir byltingu, eru
nú yfir 90 milljónir manna við
nám og fjórði hver vísinda-
maður í heiminum er sovéskur.
Við erum hreykin af því að á
ári hverju eru byggðar rúmlega
tvær milljónir íbúða og húsa-
leiga hefur haldist óbreytt í
nær hálfa öld og er sú lægsta i
heimi._ Enn væri hægt að telja
upp margt sem við erum hreyk-
in af.
En þótt við séum hreykin af
sögu okkar tekur enginn jafn-
gagnrýna afstöðu til hennar og
við sjálf. Sem dæmi má nefna
að aðgerðir ýmissa flokks- og
ríkisstofnana gagnvart bænd-
um á árunum 1928 og 1929 hafa
verið harðlega fordæmdar.
Persónudýrkunin hefur oftar
en einu sinni verið fordæmd.
Enn mætti nefna mörg dæmi.
Og þetta eru engin leyndarmál.
Um þetta má lesa í hvaða sögu-
kennslubók sem er og í mörg-
um sovéskum ritverkum, sem
gefin eru út í stórum upplög-
um. En við lítum ekki til baka í
þeim tilgangi að finna aðeins
bresti, heldur til þess að halda
leiðinni áfram og læra af mis-
tökum fortíðarinnar.
Það er okkur til ánægju þeg-
ar vinir okkar — eða óhlut-
drægir fréttaskoðendur —
kynna sér fortíð okkar, jafnvel
frá mjög gagnrýnu sjónarhorni.
Þegar allt kemur til alls getur •
slík skoðun aðeins orðið okkur
til gagns. En að sjálfsögðu get-
um við ekki fallist á tilraunir til
að túlka sögu ókkar sem eina
samfellda keðju af mistökum
og brestum.
Stundum erum við sakaðir
um „umburðarleysi" og „heift-
rækni". Þetta er bæði rétt og
rangt. Það er rangt vegna þess
að sovéska þjóðin er afar um-
burðarlynd og hófsöm í mati
sínu á mönnum og málefnum.
En það er rétt að við erum í
raun og veru umburðarlausir
gagnvart þeim sem reyna að fá
okkur til að afneita sósíalism-
anum og dansa eftir sínum nót-
um. Þetta umburðarleysi okkar
stafar ekki af því að við séum
slæmir í eðli okkar. Það stafar
af því að sagan hefur kennt
okkur margt. Og ein mikilvæg-
asta lexían sem við höfum feng-
ið frá henni er fólgin í þvúað á
meðan til eru þau öfl er stefna
að eyðileggingu sósíalismans
verðum við að vera viðbúnir að
verja hann. Einmitt þess vegna
neyðumst við til að hafa her.
Alls ekki til þess að ráðast á
einn eða neinn. Fyrstu lög sem
sovéska ríkisstjórnin gaf út
voru Tilskipun um frið. Allir
þekkja tillögur Sovétríkjanna
sem miða að stöðvun vígbúnað-
arkapphlaupsins og allsherjar-
afvopnun. Þetta er ekki tómt
orðaglamur. Við erum reiðu-
búnir að koma til móts við
hvert skref sem stigið er í þessa
átt. Okkur finnst það efyki eðli-
legt ástand að halda þjóðunum
stöðugt í viðjum óttans.
Samkvæmt upplýsingum
Sameinuðu þjóðanna er nú eytt
u.þ.b. 300 milljörðum dollara á
ári í vígbúnað í heiminum, sem
þýðir að milljón dollurum er
eytt á tveggja mínútna fresti í
þessu skyni. Þetta gerist á sama
tíma og hungur, fátækt og at-
vinnuleysi eru enn fyrir hendi í
heiminum. Ef allir hermenn
væru leystir frá störfum og
settir í önnur stör-f í þjóðfélag-
inu myndi sparast upphæð sem
nemur 30-40 milljörðum doll-
ara, eða það sem hermönnum
er nú greitt í laun. Þar með
gæfist möguleiki á skatta-
lækkunum, sem því næmi. Er
afvopnun Sovétmönnum í hag?
Að sjálfsögðu. Við eigum enn
við' að glíma nóg af vanda-
málum í þjóðarbúskapnum.
Það fé sem sparast við af-
vopnun gætum við notað til
lausnar þeirra.
Já, við erum umburðarlausir
gagnvart þeim, sem reyna að sá
fræjum fjandskapar meðal
þjóðanna í þeim tilgangi að
koma af stað nýrri styrjöld. Við-
vitum of vel hvað stríð er. í
styrjöldinni gegn nasismanum
misstu Sovétríkin 20 milljónir
mannslífa og 30% af þjóðar-
auðnum.
Við höfum ekkert umburðar-
lyndi gagnvart þeim, sem vilja
troða upp á okkur sínum
skoðunum, sínum lífsstíl. Sér-
hver þjóð hefur rétt á að sinna
sínum málum sjálf. Við höfum
alls ekki í hyggju að einangra
okkur frá umheiminum með
svonefndu „járntjaldi“, við er-
utn reiðubúnir að nota okkur
jákvæða reynslu hvaða
kapitalíska ríkis sem vera skal,
Vegna hagstæðra
innkaupa bjöðum
við hina vel þekktu
verd-
merki-
byssuvél
'LVl ^ iVd áaðeins
kr. 12 þús.m.ssk.
1 árs ábyrgð — Gerið
gæðasamanburð
Varahluta- og
viðgerðarþjónusta
PlflSÚM lll*
GRENSÁSVEG 7 • SÍMI 82655 BOX 4064
Lokað
Verksmiðja vor verður lokuð fró 4. júlí til 2.
ógúst.
Söludeildin verður opin til 15. júlí.
SÆLGÆTISGERÐIN
VÍKINGUR