Dagblaðið - 04.07.1977, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 4. JULÍ 19X7.
iÍ5
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sóknarleikur í
sérf lokki!
— hjá FH-ingum, þegar þeir léku sér að
Framá Laugardalsvelli ígærkvöld
Það var oft hrein unun að sja
sóknarmenn FH — og yfirleitt
liðið í heiid — á Laugardalsvell-
inum í gær. Þeir léku sér að
varnarmönnum Fram og sýndu
sóknarleik í sérfiokki. Hver
cðrum betri Ólafur Danivalsson,
Janus Guðlaugsson og Þórir
Jónsson. Að baki þeim byggði
Viðar Halldórsson upp hverja
sóknarlotuna á fætur annarri.
Lék hreint snilldarlega — og
nýtur sín miklu betur sem
sóknarframvörður Leikmenn
Fram réðu ekki neitt við hina
eldfljótu Hafnfirðinga, sem unnu
auðveldan sigur í ieiknum 1-4, og
staða Reykjavíkurmeistara Fram
er nú ljót i 1. deildinni.
Já, leikmenn FH mega vera í
sjöunda himni — og það var
margt í leik þeirra, sem gladdi
augað. Samleikur — hraði —
leikni. Betri sóknarleikur hefur
varla sézt í mótinu — nema á
stundum hjá Valsmönnum — en
að vísu var leikurinn auðveldur,
þar sem miðverðir Fram, Kristinn
Atlason og Sigurbergur, voru
ákaflega svifaseinir í öllum að-
gerðum gegn hinum eldfljótu FH-.
ingum. Ólafur lék þá grátt með
afburðaleikni sinni — og útsjón-
arsemi, og Janus og Þórir,
Viðar og Arni Geirsson, sem lék
með FH á ný eftir meiðsli, voru
snjallir.
Framan af benti þó lítið til
þess, að FH myndi ná algjörum
yfirburðum í leiknum. Fram
Enn
vinnur
Ragnar
SR keppnin fór fram á Akra-
nesi um helgina. Leiknar voru 36
holur í meistaraflokki í gær. Efst-
ir og jafnir urðu Ragnar Ólafsson,
GR, og Sigurjón Gíslason, GK, á
149 höggum, en Ragnar vann
bráðabana. I þriðja sæti varð
Björgvin Þorsteinsson, GA, á 150.
I 4. til 5. sæti urðu Hannes
Eyvindson, GR, og Sigurður Haf-
steinsson, GR, á 151 höggi. Fyrri::
18 holurnar voru leiknar með for-
gjöf og efstir og jafnir úrðu Einar
Þórisson, GR, og Þorgeir Þor-
steinsson, GS, á 69 höggum, en
Einar vann bráðabana. Á laugar-
daginn léku 2. og 3. fiokkur með
og án forgjafar. Með forgjöf vann
Reynir Þorsteinsson, GL, á 69
höggum, en Pétur Pétursson,
GOS, var annar með 74 högg. Án
forgjafar vann Jón Alfreðsson,
GL, á 87 höggum en Guðmundur
Vigfússon, GR, varð annar á 88
höggum.
Mótið gaf 190 stig til landsliðs.
33 meistaraflokksmenn tóku þátt
í því, en alls voru keppendur í
gær 55, en 35 á laugardag. rl.
skoraði á unaan — strax á 13,min.
þegar Andrés Kristjánsson missti
knöttinn til Sumarliða Guðbjarts-
sonar — enginn FH-ingur
aðvaraði Andrés — og Sumarliði
gaf á Ásgeir Elíasson. Hann
skallaði til Péturs Ormslev inn á
markteig. Pétur skoraði af öryggi.
En góð byrjun nægði Fram ekki.
Á 25. mín. jafnaði FH. Viðar tók
aukaspyrnu vel og Ólafur skallaði
snilldarlega i markhornið. Aðeins
lyfti knettinum með kollinum og
Árni Stefánsson gerði ekki til-
raun að verja. Fleiri urðu mörkin
ekki í f.h. og lítið um marktæki-
færi^
I siðari hálfleik náðu FH-ingar
algjörlega yfirhöndinni. Á 52.
mín. skoraði Viðar. Janus var
fljótari en varnarmenn Fram.
Náði knettinum og gaf á Þóri, sem
skallaði á mark Fram. Árni varði,
en hélt ekki knettinum og Viðar,
sem fylgdi fast eftir, skoraði auð-
veldlega. Á 58. min. komst FH í
3-1 eftir stórgott upphlaup.
Andrés rak endahnútinn á upp-
hlaupið með föstu snúningsskoti,
og Árni missti knöttinn í markið.
Stórhættulegar sóknarlotur FH
hefðu átt að gefa mörk á næstu
mínútum. Þórir datt fyrir opnu
marki — Rafn Rafnsson bjargaði
á marklínu Fram eftir stórkost-
legan einleik Ólafs, en á 68. mín.
skoraði FH sitt fjórða mark. Viðar
tók aukaspyrnu og Helgi Ragnars-
son, sem rétt áður hafði komið
inn sem varamaður, skallaði í
mark — algjörlega óvaldaður og
Árni gérði enga tilraun til að
verja lausan skallknött Helga.
Arni sem hefur átt við meiðsli að
stríða í hendi, var ólíkur sjálfum
sér í þessum leik.
Mjög kom á óvart, að þeim
Ásgeiri og Sumarliða var kippt út
af hjá Fram og komu Kristinn
Jörundsson og Kristýán Sigur-
geirsson í þeirra stað. Asgeir og
Sumarliði höfðu þó verið skástu
menn í daufu liði Fram — og
breytingin var verri en engin. I
heild var lið Fram afar dauft í
þessum leik — ekki baráttuvilji
til og það er ekki góðs viti hjá liði,
sem nú er komið í alyarlega fall-
hættu. Helzt að Fram fengi tæki-
færi til að skora vegna glanna-
legra úthlaupa markvarðar FH —
en ekki einu sinni það gátu leik-
menn Fram nýtt sér. Dómarinn
Kjartan Ólafsson, Keflavík,
dæmdi prýðilega. hsím.
• Olympíumeistarinn
Johanna Klier-Schaller, A-
Þýzkalandi, náði bezta heimstim-
anum í 100 m grindahlaupi
kvenna á móti í Dresden á laugari
dag. Hljóp á 12.93 sek. Á sama
móti setti Olsner, A-Þýzkalandi,
nýtt heimsmet í 100 m hlaupi
kvenna 10.89 sek. Fyrsta kon-
an.sem hleypur innan við 11 sek.
með rafmagnstimatöku.
js * %
Knötturinn i leið í markið hjá Jóni Þorbjörnssyni, markverði ÍA, eftir stangarskot Atla Eðvaldssonar.
Þriðja mark Vals í leiknum.
Sóknarmenn Vals
skref i f I jótari!
—og það réð úrslitum, þegar Valsmenn sigruðu
Akurnesinga í gær og náðu forustu í 1. deildinni
Viðureign toppliðanna í 1.
deild, Akraness og Vals, dró að
sér fjölmarga áhorfendur á
Skipaskaga í gær eða um átján
hundruð. Þeir fengu að sjá mjög
góðan leik — einkum í fyrri hálf-
leik — en sóknarmenn Vals voru
skrefinu fljótari en varnarmenn
ÍA. Það réð úrslitum leiksins.
Valur vann verðskuldað 4-1 —
góður sigur, en í stærra lagi eftir
gangi leiksins. Valsmenn nýttu
vel sin færi hvað ekki er hægt að
segja um Skagamenn. Við sigur-
inn færðist Valur í efsta sæti 1.
deildar. Hefur 16 stig, stigi á und-
an Akurnesingum og Viking svo
að keppnin getur ekki verið tví-
sýnni — og enn sjö umferðir eft-
ir.
Leikurinn byrjaði strax með
miklu fjöri og eftir tæpar tvær
mínútur lá knötturinn í marki
Vals. Óskabyrjun Skagamanna —
og heimamenn héldu, að nú ætl-
aði lið þeirra heldur betur að fara
í gang. Pétur Pétursson lék' upp
miðjuna og gaf síðan á Kristin
Björnsson, sem hljóp af sér tvo
Valsmenn. Sendi knöttinn svo
Tveir beztu kúluvarparar
USA á Reykjavíkurleikana
— Al Feuerbach og Terry Albritton keppa við Hrein á
Laugardalsvelli 16. og 17. ágúst
u
Það er öruggt, að tveir beztu
kúluvarparar Bandaríkjanna,
Al Feuerbach og Terry
Albritton, keppa á Reykjavík-
urleikunum á Laugardalsvelii í
sumar, 16. og 17. ágúst, sagði
Örn Eiðsson, formaður FRÍ,
þegar blaðið náði tali af honum
í gær. Þessir tveir garpar eru
með annan og þriðja bezta
árangur . í heimi í kúluvarpi
áhugamánna. Hafa varpað um
21,80 m. Heimsmet Balashov,
Sovétrikjunum, er 22 metrar
sléttir.
Þá erum við einnig að reyna
að fá Geoff Capes, Bretlandi, og
Norðmanninn Knut Hjeltnes á
leikana, sagði Orn ennfremur.
Capes er með þriðja bezta
árangur i kúluvarpi í ár á eftir
Beyer, A-Þýzkalandi, og Stahl-
berg, Finnlandi, en Hjeltnes er
afar snjall kringlukastari. Þá
kemur danski hlauparinn Tom
B. Hansen — en ekki Mike
Boit, Kenýa. Allt óráðið enn
með Johnny Walker, Nýja-
Sjálandi, heimsinethafann i
míluhlaupi og olympíumeistara
í 1500 m hlaupi.
Hreinn Halldörsson, sem
keppir i Stokkhólmi í dag og á
morgun, sigraði báða Banda-
ríkjamennina, Feuerbach og
Albritton á heimsleikunum í
Helsinki í siðustu viku — og
líklegt er að þeir verði allir
meðal keppenda á Stokkhólms-
Slartion í kvöld.
Þess má geta, að Alhritton er
með beztan árangur í kúluvarpi
i ár 21,50 metra, en hann náði
honum innanhúss. Hann er að-
eins 22ja ára. Udi Beyer,
olympíumeistarinn, sem einnig
er ekki nema 22ja ára, hefur í
ár varpað 21,46 m. Stahlberg,
Finnlandi, 21,22 metra á heims-
leikunum, Mac Wilkins, USA,
21.06 m innanhúss, Geoff
Capes 20.99 m og síðan kemur
llreinn með 20.70 metra.
i
fyrir Valsmarkið, þar sem Pétur
var óvaldaður og skoraði. Ýtti
knettinum yfir marklínuna.
En Valsmenn voru ekki á þeim
buxunum að láta Skagamenn ráða
gangi leiksins. Þeir tvíefldust —
og sóknarlotur þeirra urðu strax
hættulegar. Ingi Björn Alberts-
son átti hörkuskot rétt yfir áður
en Guðmundur Þorbjörnsson
jafnaði á 8. min. Guðmundur var
mjög laus í leiknum — hættulega
laus fyrir vörn Skagamanna, sem
lagði alla áherzlu á að gæta Inga
Bjarnar. Hann fékk knöttinn, lék
á Jón Gunnlaugsson og spyrnti á
markið rétt utan vítateigs. Við
horn teigsins. Gott skot og knött-
urinn hafnaði i marki ÍA — en
heldur fannst mér það ódýrt, því
Jón Þorbjörnsson gerði ekki til-
raun til að verja. Reiknaði knött-
inn greinilega framhjá — en að
öðru leyti átti Jón mjög góðan
leik í markinu.
A næstu mín. var leikurinn í
jafnvægi, en sóknarlotur Vals þó
mun hættulegri. Jón varði hörku-
skot frá Albert Guðmundssyni á
15. mín. og rétt á eftir renndi
Grímur Sæmundsen sér í gegn
eftir hornspyrnu Alberts, en
spyrnti framhjá inn við markteig.
Liðin sýndu hreint ágæta knatt-
spyrnu — nettan samleik og voru
svipað með knöttinn. Undir lok
hálfleiksins voru Skagamenn
ágengir. Árni Sveinsson átti
hörkuskot rétt framhjá á 41. mín.
og á lokamínútu hálfleiksins átti
Kristinn að skora. Karl Þórðarson
gaf þá til Kristins, sem drap
knöttinn niður með brjóstinu og
var i dauðafæri 3-4 metra frá
marki. En spyrna hans var laus og
Sigurður Dagsson varði — hélt
meira að segja knettinum. Þarna
fór Kristinn illa að ráði sínu — og
ég held að þetta atvik hafi skipt
sköpum í leiknum.
Valsmenn byrjuðu mjog vei í síð
ari hálfleik og eftir aðeins þrjár
mín. náðu þeir forustu. Albert
fékk knöttinn við vítateig og
spyrnti á markið. Knötturinn
small í þverslá og hrökk út aftur.
Þar var Ingi Björn fljótari að átta
sig en aðrir og skoraði. 2-1 fyrir
Val. Strax á eftir brunuðu Vals-
menn í sókn og Guðmundur átti
skot frá vítateig, sem Jón varði —
og á 53 mín. komst Valur í 3-1.
Atli Eðvaldsson lék upp kantinn
að endamörkum og gaf fyrir.
Guðmundur skaut, en knötturinn
hrökk í Björn Lárusson og til
Atla, sem sendi knöttinn í mark
úr þröngri stöðu og notaði stöng-
ina sem batta. Á næstu mín. voru
Valsmenn hættulegir.
Guðmundur Þorbjörnsson, sem
lék mjög vel, átti skot framhjá á
57 mín. — en hann ásamt Albert
Guðmundssyni voru aðalmenn
Vals í leiknum. Stórsnjallir leik-
menn báðir tveir.
Akurnesingar reyndu að jafna
metin, en gekk lítið. Þó átti Pétur
gott skot á 65. mln. sem Sigurður
varði og fimm mln. síðar gerðu
Valsmenn alveg út um leikinn.
Valsmenn tættu þá vörn ÍA
sundur. Guðmundur gaf á Albert,
sem kominn var innarlega í vlta-
teiginn og Jón réð ekkert við
spyrnu hans af þessu stutta færi.
4-1 fyrir Val. örfáum mín. síðar
varði Jón hins vegar frá Albert
með góðu úthlaupi, þegar Vals-
maðurinn komst frír I gegn. Tals-
vert los var á leiknum lokamínút-
urnar. Kristinn átti skot yfir Vals-
markið á 82 mín. og síðan gott
skot, sem Sigurður Dagsson varði.
I lokin — eftir að venjulegum
leiktíma var lokið — fékk Pétur
knöttinn í dauðafæri við Vals-
markið, en skaut himinhátt yfir.
Það segir talsvert um skotgæfu
Akurnesinga í leiknum.
Valsmenn virkuðu sterkari sem
liðsheild og voru miklu hættu-
legri — fljótari í öllum sóknarað-
aðgerðum. Sigurður var öryggið
sjálft í marki — en Guðmundur
og Albert aðalmenn liðsins.
Einnig lék Hörður Hilmarsson
prýðilega. Vörnin var ekki sem
öruggust, en það kom lítt að sök
vegna lélegra skota Akurnesinga.
I liði lA léku Jón Alfreðsson, Jón
markvörður og Guðjón Þórðarson
bezt — en leikmenn í heild voru
ekki nógu snöggir gegn hinum
eldfljótu Valsmönnum.
Rafn Hjaltalín dæmdi og var
ekki nógu sannfærandi i dómum
sínum. Mikill fjöldi Valsmanna
var meðal áhorfenda og var fram-
koma þeirra i alla staði óað-
finnanleg.
KP
• Argentina sigraði
Júgóslavíu 1-0 í landsleik í knatt-
spyrnu í Buenos Aires i gær-
kvöld. Daniel Passarella skoraði
eina mark leiksins úr vítaspyrnu
á 33. mín. Sóknarleikur beggja
liða var slakur.