Dagblaðið - 04.07.1977, Page 29

Dagblaðið - 04.07.1977, Page 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. JULÍ 1977. 29 Sæla eða söknuður? Jæja, þá eru allir sem horfa á sjónvarp komnir í sumarfri þótt sumir þeirra kæri sig áreiöanlega ekkert um það. Aðrir eru ánægðir með þessa ráðstöfun og er ég í þeirra hópi. Lesið hef ég einhvers staðar að Norðmenn séu að hugsa um að taka íslenska sjónvarpið sér til fyrirmyndar i þessu efni og jafnvei að því le.vti líka að hafa einn frídag í viku. Vonandi notar sjónvarpsfólk það, sem ekki er beinlínis í sumarleyfi þennan mánuð, tímann til að taka saman eitt- hvað verulega gott og skemmti- legt til að bjóða okkur upd á ekki hvaða erindi hann hefur átt til okkar hérna. Miðvikudagurinn var hins vegar góður, allur svo jafn- góður að maður bara sat og horfði ánægður á alla dag- skrána. Kanadíska myndin um skyndihjálp á slysstað var þörf einmitt núna þegar allir fara að geysast um landið á fjórum hjólum. Sænska myndin um flutninga unga fólksins í nýtt húsnæði var skemmtileg en ég saknaði þess sem venjulega er viðkvæðið hjá ungu fólki við þessar aðstæður, að minnsta kosti á tslandi: „Við höfum ekki efni á því“. En ungt fólk í því velferðarríki Sviþjóð hefur þegar daginn fer aftur að stytta með haustinu. Vonandi öðlast þeir sem matreiða dagskrána ofan í okkur einnig viðbótar- skammt af kímnigáfu og lofa okkur að horfa á méira skemmtiefni framvegis. Um þessa þrjá siðustu sjón- varpsdaga get ég svo sein ekki sagt nein ósköp þvi ég hef verið í sumarleyfisskapi undanfarið og heldur laus við sófann minn. Mánudeginum sleppti ég alveg og horfði ekki á neitt á þriðju- daginn, nema Ellery Queen, því ég var ekki í skapi til að meðtaka neitt þungt og hátið- legt sem ég var alveg viss um að klukkustundarþáttur um for- sætisráðherra Norðurlanda yrði Herra Rossi finnst mér hins vegar svo mikil þvæla að ég skil kannski efni á öllu sem það langar til. Onedin er ágætur, það er gaman að f.vlgjast með því hvernig systkinin reyna að krækja í bitana hvort við nefið á öðru og gengur alla vega. Þá er stjórnmálunum frá stríðs- lokum lokið og sé ég eftir þeim þáttum. Svona ætti að kenna mannkynssöguna, þá hefðu nemendur áreiðanlega meira gagn af en að stagla ártöl og þurrar staðreyndir upp úr steindauðum bókum. Sigurður Pálsson hefur unnið gott verk með þýðingu og tali í þessum þáttum. Það er mun minna upp- skrúfað og hátíðlegt en yfirleitt vill verða í fræðsluþáttum. Þar sem mér liggur ekkert sérstakt á hjarta þessa stundina óska ég bara sjónvarpsáhorfendum og lesendum þessa pistils alls góðs í sumarleyfinu. 0&B . INNRÉTTINGAR | BHHaH^^^H^^^aJ^tuðbrekkí^2rKópavogr>B 3 nýjar gerðir af eldhúsinnréttingum, fura, hnota og eik. Uppstilltar á staðnum. — 1-2 mán. afgreiðslufrestur. Snjólaug Bragadóttir Fyrirliggjandi: G/eru//ar- einangrun, glerullar- hólkar, plast- einangrun, steinullar- einangrun, spóna- plötur, milliveggja- plötur. Kynnið ykkur verðið — það er hvergi lægra JÓNIDFTSSONHF Hrinsbrau|«»@K>«90 Nýkomiö Bómullarkjólar Sól-kjólar ELÍZUBÚÐIN, Skipholti 5 Nú er kominn lúxusís frá Emmess: appelsínuís og marsipanís með piparmyntusósu.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.