Dagblaðið - 04.07.1977, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. JULÍ 1977.
29
Sæla eða söknuður?
Jæja, þá eru allir sem horfa á
sjónvarp komnir í sumarfri
þótt sumir þeirra kæri sig
áreiöanlega ekkert um það.
Aðrir eru ánægðir með þessa
ráðstöfun og er ég í þeirra hópi.
Lesið hef ég einhvers staðar að
Norðmenn séu að hugsa um að
taka íslenska sjónvarpið sér til
fyrirmyndar i þessu efni og
jafnvei að því le.vti líka að hafa
einn frídag í viku.
Vonandi notar sjónvarpsfólk
það, sem ekki er beinlínis í
sumarleyfi þennan mánuð,
tímann til að taka saman eitt-
hvað verulega gott og skemmti-
legt til að bjóða okkur upd á
ekki hvaða erindi hann hefur
átt til okkar hérna.
Miðvikudagurinn var hins
vegar góður, allur svo jafn-
góður að maður bara sat og
horfði ánægður á alla dag-
skrána. Kanadíska myndin um
skyndihjálp á slysstað var þörf
einmitt núna þegar allir fara að
geysast um landið á fjórum
hjólum. Sænska myndin um
flutninga unga fólksins í nýtt
húsnæði var skemmtileg en ég
saknaði þess sem venjulega er
viðkvæðið hjá ungu fólki við
þessar aðstæður, að minnsta
kosti á tslandi: „Við höfum
ekki efni á því“. En ungt fólk í
því velferðarríki Sviþjóð hefur
þegar daginn fer aftur að stytta
með haustinu. Vonandi öðlast
þeir sem matreiða dagskrána
ofan í okkur einnig viðbótar-
skammt af kímnigáfu og lofa
okkur að horfa á méira
skemmtiefni framvegis.
Um þessa þrjá siðustu sjón-
varpsdaga get ég svo sein ekki
sagt nein ósköp þvi ég hef verið
í sumarleyfisskapi undanfarið
og heldur laus við sófann minn.
Mánudeginum sleppti ég alveg
og horfði ekki á neitt á þriðju-
daginn, nema Ellery Queen, því
ég var ekki í skapi til að
meðtaka neitt þungt og hátið-
legt sem ég var alveg viss um að
klukkustundarþáttur um for-
sætisráðherra Norðurlanda yrði
Herra Rossi finnst mér hins
vegar svo mikil þvæla að ég skil
kannski efni á öllu sem það
langar til. Onedin er ágætur,
það er gaman að f.vlgjast með
því hvernig systkinin reyna að
krækja í bitana hvort við nefið
á öðru og gengur alla vega. Þá
er stjórnmálunum frá stríðs-
lokum lokið og sé ég eftir þeim
þáttum. Svona ætti að kenna
mannkynssöguna, þá hefðu
nemendur áreiðanlega meira
gagn af en að stagla ártöl og
þurrar staðreyndir upp úr
steindauðum bókum. Sigurður
Pálsson hefur unnið gott verk
með þýðingu og tali í þessum
þáttum. Það er mun minna upp-
skrúfað og hátíðlegt en yfirleitt
vill verða í fræðsluþáttum. Þar
sem mér liggur ekkert sérstakt
á hjarta þessa stundina óska ég
bara sjónvarpsáhorfendum og
lesendum þessa pistils alls góðs
í sumarleyfinu.
0&B . INNRÉTTINGAR |
BHHaH^^^H^^^aJ^tuðbrekkí^2rKópavogr>B
3 nýjar gerðir af eldhúsinnréttingum, fura, hnota og eik.
Uppstilltar á staðnum. — 1-2 mán. afgreiðslufrestur.
Snjólaug Bragadóttir
Fyrirliggjandi:
G/eru//ar-
einangrun,
glerullar-
hólkar,
plast-
einangrun,
steinullar-
einangrun,
spóna-
plötur,
milliveggja-
plötur.
Kynnið ykkur
verðið — það er
hvergi lægra
JÓNIDFTSSONHF
Hrinsbrau|«»@K>«90
Nýkomiö
Bómullarkjólar
Sól-kjólar
ELÍZUBÚÐIN,
Skipholti 5
Nú er kominn lúxusís frá
Emmess:
appelsínuís og marsipanís með
piparmyntusósu.