Dagblaðið - 04.07.1977, Qupperneq 32
Islenzkir lögreglumenn
fylgja ísraelsku sundmönn-
mum dag og nótt
— ísraelar lifa f stöðugum ótta um hryðjuverk
Tveir íslenzkir lögreglumenn
gæta ísraelsku sundmannanna,
sem hér eru, dag og nótt. Ósk
um þessa gæzlu kom frá ísraels-
mönnum sjálfum, en sem
kunnugt er er Israelsmanna
gætt sérstaklega á alþjóða-
íþróttamótum eftir hryðiu-
verkin á Ólympíuleikunum
1972.
Dagblaðið hafði samband við
Bjarka Elíasson yfirlögreglu-
þjón í morgun og spurði hann
hvort lögreglumennirnir væru
vopnaðir. „Við erum ekkert að
segja á hvern hátt við gætum
þeirra, en það er okkar hlut-
verk að gæta þeirra.“
En ísraelski fararstjórinn, er
hann vopnaður? „Nei, hann er
ekki vopnaður."
Keppendur frá Israel eru
mjög hræddir þegar þeir keppa
erlendis og óttast mjög hryðju-
verk skæruliða. Þess má geta að
10 öryggisverðir fylgdu
keppnisliði þeirra í Stokkhólmi
fyrir skemmstu.
Fararstjóri þeirra hér virtist
mjög var um sig og fylgdist með
hverri hreyfi'hgu í kringum
Israelana í sundlauginni i
Lauearda' JH-
Fararstjóri tsraelanna fylgdist
með hverri hreyfingu i
kringum sundfólkið.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Volga” þornaði í
hlýindum helgár-
mnar — lítil hætta á að ekki verði bót á!
Urhelli og vega-
skemmdir eystra
— Sólarhringsúrkoman 186 mm á Neskaupstað
Sól- og vatnsdýrkendur stóðu agn-
dofa yfir nær þurrum farveginum
í gær og datt helzt i hug að „bann-
öflunum" hefði irðið að ósk
sinni. En það va. pá aðeins góða
veðrið, sem hafði stöðvað vatns-
rennslið í „Volgu“.
DB-mynd Sveinn Þorm.
Höfðu vondu kallarnir fengið
sfnu framgengt og látið loka fyrir
vatnsrennslið í „Volgu“ — yfir-
fallslæknum í Nauthólsvík.
Þessi spurning brann á vörum
þeirra sem í gær ætluðu að njóta
veðursældarinnar í heita lækn-
um, en komu að honum nær þurr-
um.
„Nei,“ svaraði Jóhannes Zoega,
hitaveitustjóri í Reykjavík, spurn-
ingu DB. „Þetta getur ekki stafað
af öðru en góða veðrinu. Þegar
hitnar í veðri verður vatnsnotkun
borgarbúa mjög litil og þá verður
sáralftið afgangsvatn frá tvöföldu
hitakerfunum. Þetta gerist iíka
þegar mjög kalt er í veðri á vetr-
um, þá þornar lækurinn upp,“
sagði hitaveitustjórinn.
Hann kvaðst ekkert geta sagt
um hvenær yfirfallsvatnið færi að
renna þar um á ný — vonaðist til
að það yrði ekki fyrr en seint og
um síðir, því það þýddi að heitt
yrði í veðri áfram. „En það er víst
lftil ástæða til að óttást það,“
sagði Jóhannes Zoega.
-OV.
Gífurleg úrkoma var á Austur-
landi á laugardag og var sólar-
hringsúrkoman á Neskaupstað
186 mm, á Dalatanga 133 mm, en
þar hófust veðurathuganir 1938
og hefur sólarhringsúrkoma
mælzt þar mest 134 mm árið 1972.
Sólarhringsúrkoman á Kamba-
nesi var 125 mm. Mesta sólar-
hringsúrkoma sem mælzt hefur á
landinu var 234 mm á Vagns-
stöðum í Suðursveit árið 1968.
Talsverðar vegaskemmdir urðu
á Austfjörðum vegna úrhellisins
að sögn Hjörleifs Ölafssonar vega-
eftirlitsmanns. Lónsheiði varð
ófær, þar sem skarð myndaðist í
veginn, en heiðin er orðin fær
aftur. Skriða féll í Berufirði við
Búlandsá og einnig í Kamba-
skriðum og Staðarskriðum, en
gert hefur verið við þær skemmd-
ir. Mestu skemmdirnar urðu í
sunnanverðum Reyðarfirði við
Eyði. Þar flæddi vatn yfir veginn
og ræsið tók ekki við og rofnaði
stórt skarð i veginn. Viðgerð var
ekki lokið seinnihlutann í gær.
Skemmdir urðu einnig í Borgar-
firði eystra, i Njarðvfkurskriðum
og minni skemmdir a víð og dreif
eystra.
Aftur á móti var hringvegurinn
yfir Breiðdalsheiði fær og
skemmdist ekki vegna úrkom-
unnar. JH
Perlusteinninn í Prestahnjúk:
Akumesingar og Borgnesingar
stofna félög um perlusteininn
fyrirsjáanleg samvinna við þriðja félagið í Reykjavík
Fyrirhugað er að stofna al-
menningshlutafélag á Akranesi
um vinnslu á perslusreini úr
Prestahnjúk um mánaðamótin
ágúst-september. A Akranesi er
nú starfandi undirbúnings-
nefnd fimm áhugamanna um
vinnslu á perlusteini og í
Borgarnesi er starfandi undir-
búningsfélagið Prestahnjúkur.
Reynir Kristinsson, bæjar-
tæknifræðingur á Akranesi, er
einn nefndarmanna á Akra-
nesi. Hann sagði í samtali við
fréttamann blaðsins í gær, að
fleiri aðilar en Akurnesingar
og Borgnesingar hefðu sýnt
málinu áhuga og væri fullur
vilji til að sem víðtækust sam-
staða tækist. „Við höfum haft
samráð við Borgnesingana og
fleiri aðila, svo sem Ylfell h.f.
Kristjáns Fnðrikssonar, að til-
hlutan Iðnþróunarstofnunar
íslands," sagði Reynir. „Við
viljum reyna að koma á skipt-
ingu um vinnsluna innbyrðis,
enda er um þrjú vinnslustig að
ræða, frumvinnslu í fjallinu,
þ.e. þurrkun, mölun og flokkun
efnisins, síðan þenslu og loks
vöruþróun, eða sjálfa fram-
leiðsluna. A fundi, sem við
héldum með Borgnesingunum
16. júní sl. urðum við ásáttir um
að stefna að því að halda öllum
þessum stigum í okkar byggðar-
lögum. Á þann fund mætti full-
trúi Ylfells ekki, þannig að ekki
er orðið ljóst hvar þeir koma1'
inn í myndina, en Borgnesing-
arnir hafa sýnt áhuga á að
annast frumvinnsluna, en síðan
höfum við hugsað okkur að
annast þensiuna og vöru-
þróunina.“
Reynir sagði að undirtektir
lána- og fjármagnsstofnana
hefðu til þessa verið góðar, en
beðið væri niðurstaðna úr
athugunum á ýmsum þáttum
perlusteinsvinnslunnar og hag-
kvæmni hennar. Hér væri um
mikla fjárfestingu að ræða, til
dæmis væri áætlað að einfaldur
þenjari og nauðsynlegasti út-
búnaður til vöruþróunarinnar
kostaði um hundrað milljónir.
(Jtreikningar iðnþróunar-
stofnunarinnar sýndu að
perlusteinsvinnsla gæti verið
hagkvæm, en þó væri betra að
nefna engar tölur fyrr en
kannaðir hefðu verið þeir
möguleikar, sem fyrir hendi
væru.
Hagnýtingarmöguleikar á
perlusteini eru að minnsta
kosti tuttugu. Tiiraunir og
rannsóknir á Prestahnjúks-
perlusteininum hafa verið
gerðar hérlendis í um fjögur ár,
og síðan í ársbyrjun 1976 hefur
verið starfræktur þenjari í
Sementsverksmiðjunni á Akra-
nesi á vegum Iðnþróunarstofn-
unarlslands.
Innanlandsmarkaður fyrir
perslustein mun vera allgóður,
en einnig hefur verið gert ráð
fyrir töluverðum útflutningi á
forunnum perlusteini.
tsland er á einkar hentugum
stað fyrir útflutning á perlu-
steini. Næstu námur eru í New
Mexico í Bandaríkjunum fyrir
vestan okkur og á grisku eynni
Milos fyrir austan. ÖV
frjálst, aháð itaghúið
MÁNUDAGURJ^tíLnaZL.
Kona först
í eldsvoða
Kona fórst í eldsvoða að
Laufásvegi 45B aðfaranótt
laugardags. Slökkviliðinu
var tilkynnt um eldinn laust
eftir miðnætti og brutust
tveir reykkafarar inn í hús-
ið, en konan var látin, þegar
að var komið. Líkur beqda
til að eldurinn hafi kviknað
út frá sígarettu. Konan hét
Unnur Aðalheiður Baldvins-
dóttir og var 64 ára gömul.
-JH
Leit undir-
búin að 13
ára dreng
— en hann fannst
heilfl á hiífi
Þrettán ára drengur týnd-
íst frá heimili sínu í Reykja-
vík aðfaranótt sunnudags.
Hafði hann farið zð heiman
frá sér um kl. 4 á laugardag
en kom ekki heim um kvöld-
ið og var þá farið að undrast
um hann. Farið var að undir-
búa leit með sporhundi þeg-
ar drengurinn fannst um kl.
3 um nóttina, heill á húfi.
-JH.
Jötunn til
Kröflu
Nú um nelgina var unnið
að því að flytja borinn Jötun
að Kröflu frá Akureyri.
Borinn var fluttur á tveimur
stórum dráttarvögnum og
tók flutningurinn tvo daga
og var komið með borinn að
Kröflu í gærkvöldi. Nú verð-
ur reynt til þrautar hvort
ekki verður hægt að fá ein-
hverja nýtanlega gufu til
orkuvinnslu í Kröflu-
virkjun.
JH.
BÍLÞJÓFAR
FLÝJA MINK
Grenjaskytta nokkur, sem
óð mýrar hjá Laugarvatni
nú um helgina, varð fyrir
þvi óláni að stolið var bifreið
hennar, nýlegri af Fíat-gerð.
Sá maðurinn til þjófanna
úr fjarska og einnig sá bónd-
inn í Eyvindartungu hvar
tveir ungir menn snöruðu
sér inn í bilinn og óku á'
brott.
Bíllinn fannst skömmu
seinna við Apavatn, yfirgef-
inn og hefur þar vafalaust
haft sín áhrif titrandi yrð-
lingur sem grenjaskyttan
hafði tekið úr greni og kom-
ið fyrir í aftursæti bílsins.
Ekki er ólíklegt að yrðling-
urinn hafi verið farinn að
láta ófriðlega og skotið þjóf-
unum skelk i bringu.
•BH.