Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. H já Jóni Guðb jðrnssyni f æst allt milli himins og jarðar Það gerist æ fátíðara að enn séu við lýði ærleg magasín upp á gamla mátann, þar sem faktor ræður ríkjum og allt milli himins og jarðar fæst á staðnum, þótt stundum verði að leita vel ef árangur á að nást. En á ferð Dagblaðsins nýverið í Stykkishólmi komum við í verzlun og veitingastofu Nonna, þar sem Jón Guðbjörns- son er innanbúðar og býður þjónustu sina meðan hann vak- ir og einhver vill koma, en Jón býr í verzlunarhúsnæðinu eins og góðum faktor sæmir. I verzluninni mátti sjá aðskiljanlega muni frá hár- spennum og eftirprentunum upp á sjógalla og stígvél. Líka mátti fá sælgæti, leikföng og hljómplötur og er þá fátt eitt talið. Jón vinnur einn í verzlun sinni, en fær sér e.t.v. aðstoðar mann með haustinu. „Verzlun- in verður ekki stærri hjá mér en þetta,“ sagði Jón, „ég hugsa ekki stærra en það. Ég rek þetta með kostnað í algeru lág- marki. Spurningin er aðeins hvort ég næ út launum. Ég stila aðallega á sjógallann og vinnu- fatnað, fyrir utan leikföngin og smávöruna. Það er mjög jöfn sala í þessu og ég get næstum talið mánuðinn fyrirfram. Það er gott fyrir bátana að vita að þeir geta gengið að því sem fæst hér á öllum tímum sólar- hringsins, ef svo má segja. Ég finn nú ekki mikið fyrir breytingu hjá mér eftir að stóra vöruhýsið var opnað hér í' Stykkishólmi, en það kemur auðvitað meira við kaupfélagið. En þeim veitir ekkert af því að berjast. Annars fer verzlun hér í Stykkishólmi alveg eftir því hvernig gengur á sjónum. Ef lítið aflast er ekki grundvöllur fyrir neinum loftköstulum. Stykkishólmsbúar hafa einnig litið ferðamenn hýru auga I mörg ár og með tilkomu nýja hótelsins eru líkur á því að aukning verði I þeirri atvinnu- grein.’’ -JH. Jón Guðbjörnsson verzlunarmaður, Stykkishólmi. Litið yfir verzlunina. Þar fæst allt frá hárspennum upp í sjógalla. DB-myndir Hörður. Stykkishólmur: Faktor upp á gamla mátann Hugmyndir um sameiginlega sorpeyðingarstöð sveitarfélaga og varnarliðsins þróast hægt ÓTTAST SMYGL MEÐ SORPINU AFVELLINUM Bændur vantar ung linga íheyskapinn Dagblaðið skýrði fyrir nokkru frá sorpvandamálum á Kefla- víkurflugvelli og reyndar víðar á Suðurnesjum. Kom þar m.a. fram að hugmyndir hafa verið uppi um samstarf sveitarfélaganna og varnarliðsins um lausn þessara mála, en framvindan er hins veg- arhægfara. 1 1 siðasla hefti Suðurnesja- tíðinda er viðtal við Harald Gísla- son, sveitarstjóra Gerðahrepps, þar sem segir frá viðræðum við varnarliðið og áhuga þess á lausn álanna, þótt óljóst sé um fjár- mögnun. Sið ;r í viðtalinu kemur nýtt vandamá! i ljós: „Én þao fylgja líka vandamál sameiginlegri sorpeyðingarstöð og má þar t.d. nefna að ef stöðin yrði utan vallar, þá kemur hræðsla við að eitthvað af tollvarningi gæti kom- ið með sorpi frá vellinum. Svo kemur tollavandamál i sambandi við kaupin á tækjunum. Ef herinn verður með þá greiðir hann engan toll af sinum tækjum eða söluskatt, en ef vð kaupum þetta þá verðum við að greiða hvort tveggja. Það er mjög erfitt að samræma þetta og veldur okkur miklum áhyggjum,” segir sveitarstjórinn í viðtalinu. -G.S. „Við vitum um laus störf í sveit fyrir unglinga 12 til 16 ára og bæði fyrir drengi og stúlkur og getum útvegað þau,“ sagði Guðmundur Jósafatsson, fulltrúi hjá Búnaðarfélagi íslands. Aðeins lítill hluti þessa stóra hóps unglinga, sem fer af Reykja- víkursvæðinu í sveit á sumrin er ráðinn fyrir milligöngu Búnaðar- félagsins, að sögn Guðmundar. Flestar fara ráðningar fram í gegnum bein vinatengsl og Starfsfólk i Skálatúni hefur gert sérstaka samþ.vkkt þar sem það átelur ríkjandi ástand i mál- efnum vangefinna og skorar á stjórnvöld að hækka daggjöld til vistheiinila fvrir vangefna að inun. þannig að starf ineð van- gefnum megi bera jákvæðan árangur. I ál.vktuninni segir að það sé markmið starfsfólksins að hjálpa vistfólki til að verða eins sjálf- hjarga og unnt or. Er skipulögð frændsemi. Þó skipta fyrir- spurnir til félagsins hundruðum. Stærstur hópur þeirra ungiinga, sem ráða sig með aðstoð Búnaðarfélagsins fer i sveitir nærri Reykjavík. Minna fer til Vestfjarða og á Austurland. Eins sagði Guð- mundur, að meira væri um að unglingar frá Akureyri dveldust á sumrin í sveitum Þingeyjar- sýslna heldur en unglingar af Suðvesturlandinu. starfsemi t þetm tngangi frá morgni til kl. 16 á daginn. Vegna ónógra daggjalda er mjög fátt starfsfólk eftir kl. 16 á daginn og um helgar og þykir þá sýnt að ekki náist sá árangur sein næðist ef fleira starfsfólk væri á kvöldin og uin helgar, til þess að f.vlgja eftir þeirri þjálfun sem frain fer á daginn. A þessu vill starfsfólkið að ráðin verði bót. ASt. -ÓG. Slæmt ástand í málefnum vangef inna MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLl I°?7 Lækka pylsur og álegg? — vegna niðurgreiðslu landbiínaðarvara Verðlagsstjóri kannar nú hvort pylsur, álegg og aðrar unnar kjötvörur eiga að lækka vegna aukinna niður- greiðslna og lækkaðs verðs á ýmsum landbúnaðaraf- urðum, samkvæmt upp- lýsingum Kristjáns Andrés- sonar fulltrúa. Að vísu koma hækkuð laun á móti kjötlækkuninni, en úrslit málsins vera væntanlega ljós næstu daga. -ÓG. Aflamagnið 40% meira vegna loðnunnar Rétt um 245 þúsund tonnum meiri afli var kominn á land í lok júní sl. en á.samatíma síðasta ár. Aflinn núna er 846 þúsund lestir, var í fyrra 601 þúsund. Það munar mest um loðnuna. Hálfs- mánaðar verkfall 1976 stöðvaði veiðarnar, sem voru samfelldar nú. Botnfiskafli bátaflotans var 279 þúsund tonn, sem er 23 þúsundum meira en í fyrra. Togararnir komu með rúm 120 þúsund tonn eða 22 þúsund tonn- um meira en 1976. Ekki er enn til sundurliðun á hve miklu þorsk- veiði nam af afla báta og togara, þar sem þetta eru bráðabirgatölur Fiskifélagsins. Kolmunnaveiðar námu 5564 tonnum í ár, en voru engar í fyrra. í fyrra höfðum við veitt 1107 tonn af sild.1 Norðursjónum en nú hefur alveg tekið fyrir þær veiðar. -óG. „MÁNUDAGUR TILMÆÐU” HJÁ HAPPDRÆTTI HÁSKÓLANS? Vinningar í Happdrætti Háskólans eru ekki dregnir út á mánudögum. Margir þeir sem spila i happdrættinu komust að þessu á mánudaginn, er þeir flýttu sér sem mest þeir máttu til að endurnýja, en komust svo að þvi að ekkert lá á. Ekki er þó um neina hjátrú ad ræða nénelduraðorðtakið „mánu- dagur til mæðu“ sé í hávegum haft hjá Háskólahappdrættinu. Umboðin hafa óskað eftir því, að ekki verði dregnir út vinningar á laugardögum og mánudögum vegna erfiðleika við endurnýjun. Breyting þessi er nýtilkomin. -ÁT- 920 fundirá 30árum Þrjátíu ár voru liðin frá stofnun flugráðs 7. júlí s.l. Þann dag var 920. fundur ráðsins haldinn i tilefni afmælisins. Flugráð hefur á hendi stjórn flugmála undir yfirstjórn ráðherra en flugmálastjóri annast framkvæmd ályktana ráðsins og daglegan rekstur flugmála. Ráðið er skipað fimm mönnum. Þrir eru kosnir hlutfallskosningu á Al- þingi en tveir skipaðir af ráð- herra og er annar formaður ráðs- ins. Með sama hætti eru skipaðir 5 varamenn í ráðið. I fyrsta flugráði sátu Agnar Kofoed Hansen, formaður, Berg- ur G. Gíslason, Guðmundur 1. Guðmundsson, Þórður Björnsson og örn Ó. Johnson. t núverandi flu^ráði sitja Agnar Kofoed Hansen forin., Albert Guðmunds- son. Garðar Sigurðsson. Skúli B. Steinþórsson og Steingriinur Herinannsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.