Dagblaðið - 16.08.1977, Blaðsíða 5
5
DAGBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977.
Grindavík:
— rabbaðvið
Tomma í
Festi
Menningarbylting í
Grindavík undanfarin ár
Á ferð okkar um Grindavík
nýlega rákumst við á úrklippu
úr Dagblaðinu, sem fest var á
bíóauglýsingu félagsheimilis
þeirra Grindvíkinga, Festi. Þar
kvartaði utanbæjarmaður
undan hvimleiðri bíóferð, en
greininni svaraði Tommi í Festi
með vísu. Okkur lék forvitni á
að vita eitthvað nánar um
Tomma í Festi og knúðum dyra.
Jú, Tommi tók vel á móti
okkur, en hann heitir reyndar
Tómas Andrés Tómasson og er
framkvæmdastjóri í Festi. „Það
eru þrjú og hálft ár síðan ég tók
við þessu starfi, en ég hætti 1.
september nk. og fer að læra
hótelrekstur í háskóla í Banda-
ríkjunum. Þessi ár hafa verið
OToöeiúdaMttfcoe. t
Rft TOuift HVÖRVCi MfeftME fets.
- (pt-u »;.v« , ■ PejíV,.
Hvimleið bíóferð
Utl ÍWÍNu*> * (»*,J
>>;U v, d'•*«<< í rikHNMAHfeM
.•ffiS.Vísew.**-»
XPtAbxT! «w fftd Ví
t***t ÍXJ<* U< >*í«« 0«
« rob>RM> »r4ki, vm.
tofU»r n~a*t>
tux-txn ... .... ....
komui i ts>a»í J*»w < »>vr»ruM
>»» »«>» ♦«>>*«« IU-'x*<k**r*.
"*?** ***•* *♦»»»*
>W> v> <> «UHJ toMI
»«»*>« > Mu,
*»*>J*.
t*a* t!
*•»«« *>*««*»
'* trykisi tthnt
m**w tcrrxiit (>rit
n«*x< ewf »<> »,♦> »>*,} *.♦
■>r Utflh*t\ x
Hringiöisdma
83322
kl. 13-15
romas Andrés Tómasson framkvæmdastjóri i Festi.
mjög annasöm, en þetta hefur
gengið mjög vel. Hér í Festi er
þverskurður af skemmtanalífi
fólks í Grindavík, sveitaböll,
erfidrykkjur, móttökur sendi-
herra, bingó, bíó og ýmsir
fundir.“
Telur þú að sjónvarpsmynd-
in „Fiskur undir steini" hafi
aukið menningarlíf í Grinda-
vík?
„Það varð örugglega aukning
í menningarlífi I kjölfar þáttar-
ins, þannig að ég held að hann
hafi haft jákvæð áhrif þótt
hann hafi verið mjög neikvætt
framsettur. Þátturinn kom
mjög flatt upp á menn, en hér
vinna menn mjög mikið eins og
I öðrum sjávarplássum, sem
Bíóauglýsingin frá Festi, þar
sem úrkiippan úr DB og vísan
eftir Tomma eru helzta skraut-
ið.
DB-myndir Ragnar Th. Sig.
standa undir efnahagslífi
þjóðarinnar. En eftir þáttinn
varð hér menningarbylting, t.d.
var stofnað hér leikfélag strax
sumarið eftir, sem síðan hefur
verið með 2—3 sýningar á
hverjum vetri.“
Nú stjórnar þú kvikmynda-
sýningunum hér í Festi, sem
gagnrýndar voru í Dagblaðinu
m.a. vegna reykinga, og mynda-
vaii.
„Já, það er ekkert leyndar-
mál að við reynum að höfða til
fastagesta, þ.e. unga fólksins,
og hasar- og grínmyndir er það
sem gildir. Það þýðir ekki að
sýna hverja mynd nema einu
sinni og við fáum svona
100—150 manns á hverja sýn-
ingu. Við erum hér í beinni
samkeppni við Reykjavíkur-
svæðið, þvi fólk sækir þangað
bæði bió og böll. Hitt er svo
annað að þessi gagnrýni f DB á
að einhverju leyti við rök að
styðjast, m.a. hvað reykingar
snertir."
Eg las i Vikunni fyrir tveim-
ur árum að þú hefðir verið
alkóhóiisti, en hefðir hætt aó
drekka. Stendur það enn?
„Að sjálfsögðu. Það þýðir
ekkert annað en taka þessi mál
föstum tökum. Sem betur fer
eru íslendingar að opnast fyrir
þessum málum, sérstaklega
með tilkomu Freeport klúbbs-
ins. Mín aðstoð, minn Freeport
spítali var Steinar Guðmúnds-
son. Hann veit allt um
áfengismál, en það er hastar-
l^gt hve fáir hafa hlustað á
hann.“
Hvernig er að vera alkóhól-
isti og vinna á stað þar sem allt
flóir i víni?
„Það snertir mig ekki. Mig
langarekki í sjúss. En ég er með
þessa veiki og má ekki drekka
vín eins og sykursjúkur maður'
þolir ekki sykur. En mér finnst
sjálfsagt að annað fólk fái sér
vín og ég lifi m.a. á þvi. En vin
er engin freisting fyrir mig.“
- JH
Bflainnf lutningurinn nýtur sérstakrar fyrirgreiðslu:
VAXTALAUS LAN A TOLLUM
en slíkra kjara njóta aðrar greinar innflutnings naumast
Bilaumboðin frá 11-20 daga
gjaldfrest á aðflutnings-
gjöldum af nýjum bílum.
Svipuð regia gildir um inn-
flytjendur á timbri í förmum,
járni í förmum, innflutning á
skipasmiðavörum til nysmíði og
viðgerða. Þá gilda sérstakar
reglur um olíuinnflutning í
þessu tilliti.
„Það sjónarmið er að baki
þessari tilhögun," sagði Björn
Hermannsson tollstjóri, „að
nokkurn tíma þarf til að undir-
búa bifreiðar til afhendingar,
svo sem ryðvörn og hreinsun
svo eitthvað sé nefnt.“
Verulegur hluti af að-
flutningsgjöldum á skipasmíða-
vörur fæst endurgreiddur
siðar, þegar fyrir liggja vottorð
um notkun þeirra. Því þykir
sanngjarnt að veita nokkurn
gjaldfrest á aðflutnings-
gjöldum þeirra.
„Það væri miklu einfaldara
að ákveða einhver ákveðin lág
innflutningsgjðld af þessum
viirum í eitt skipti fyrir öll
heldur en að hafa þetta fyrir-
komulag, með allri þeirri skrif-
finnsku, sem því fylgir,“ sagði
einn innflytjandi skipasmíða-
vara i viðtali við DB.
Aðflutningsgjöld og
söluskattur af bifreiðum nemur
58.9%. Þar er því um stórar
fúlgur að ræða sem gjald-
frestur fæst á í allt að 20 dögum
vaxtalaust. Innkaupsverð
erlendis er aðeins 28.5% af
heildarsöluverði hér.
Flutningsgjald, uppskipun, vá-
trygging, bankakostnaður og
fleira nemur 6.1%,. Alagning
innflytjanda er aðeins 6.5%. I
þeim hluta er kostnaður við
hluta af undirbúningi til af-
hendingar.
Með sérstöku samkomulagi
við fjármálaráðuneytið er
krafizt ábyrgða fyrir þeim
gjöldum, sem lánuð eru þennan
stutta tíma, sem fyrr greinir.
Þá er mjög hart eftir því gengið
að innflytjendur greiði að-
flutningsgjöldin eigi síðar en
samkomulagið mælir fyrir um.
Að öðrum kosti eru umboðin
svipt heimildinni til að fá gjald-
frest í þrjá mánuði eða að fullu
og öllu, ef ítrekað er út af
brugðið.
„Við njótum venjulega ekki
neinnar fyrirgreiðslu af hálfu
ríkisins,“ sagði Halldór Laxdal
hjá Radíóbúðinni, er hann var
inntur eftir því hvort
sjónvarps- og útvarpstæki féllu
undir þessi sömu ákvæði. „Við
þurfum að láta yfirfara öll
tækin og stilla og láta þau
ganga í tiltekinn tíma, áður en
við getum selt þau, en við
höfum aldrei notið þeirrar
fyrirgreiðslu er bílainn-
flytjendur og aðrir njóta hjá
tollayfirvöldum.
Tollur af hljómtækjum og
sjónvarpstækjum er 75% og við
það bætist 18%, vörugjald,”
sagði Halldór ennfremur.
„Alagningin er ákaflega mis-
jöfn og bútuð niður eftir
stykkjum og einingum, þannig
að’ erfitt er að gera sér grein
fyrir því hver hún er í heild,“
sagði Ilalldór ennfremur.
-BS/HP.
Blaðburðarfólk
öskast strax í
INNRI-NJARÐVÍK
Uppl. í síma 2249
miBUÐIB