Dagblaðið - 16.08.1977, Síða 13
' DAGBLAÐIÐ, ÞKIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977.
13
Eþróttir
Eþróttir
.‘ V; -:
. deild — 3. deild — 3. deild
I gulltryggði sæti í
keppni 3. deildar
en baráttan er í algleymingi á Austurlandi
— en svo varó ekki. 2-1 sigur heima-
manna.
Huginn frá Seyöisfirði fékk
Austra frá Eskifirði í heimsókn —
og Austri heldur efsta sætinu með
góðum sigri, 3-2. Huginn átti heldur
meira í leiknum en leikmenn
Austra voru ákveðnari. Þeir Jón
Baldursson, Ragnar Sigurjónsson og
Bjarni Kristjánsson skoruðu mörk
Austra en Sigmar Guðbjörnsson og
Aðalsteinn Valgeirsson fyrir Hugin.
Höttur frá Egilsstöðum gaf sinn
þriðja leik í F-riðli, ávallt útileiki.
Slíkt er forkastanlegt af Hetti. Það
er ekki nóg að spila heimaleikinn,
og láta lið ferðast upp á Hérað, en
gefa síðan útileikina. Höttur átti að
leika við Hrafnkel á Breiðdalsvík —
þvi tvij stig til Hrafnkels.
Staðan í riðlinum er nú:
Austri
Hrafnkell
Einherji
Huginn
Leiknir
Sindri
Höttur
10 8 0
9
9
11
10
9
10
0 9
19-7
12- 9
21-8
13- 21
17-15
8-15
7-22
- SG
Stefán Jónsson prentari
„þrykkti“ knettinum fjórum
sinnum í netið fyrir Njarðvíkinga
í leik þeirra við ÍR.
B-riðill
Víðir — Stjarnan 3-0 (2-0)
Víðispiltarnir áttu ekki í neinum
vandræðum með Stjörnuna á gras-
vellinum í Garðinum. tJrhellisrign-
ing var á meðan leikurinn stóð en
sandundirlagið í vellinum gleypti
allt vatnið svo að þess gætti ekki
eins og á öðrum völlum. Þrátt fyrir
meðvindinn og stöðuga sókn þurfti
Stjörnumarkvörðurinn aðeins að
hirða knöttinn tvisvar úr netinu í
fyrri hálfleik eftir að Guðmundur
Jens Knútsson, hinn fótfrái mið-
herji Víðis, hafði hlaupið af sér
varnarmenn Stjörnunnar. Guð-
mundur bætti svo þriðja markinu
við snemma í seinni hálfleik en þá
voru Víðismenn búnir að misnota
vítaspyrnu. Ekki undu Stjörnu-
menn úrslitunum og fékk einn
þeirra að sjá rauða spjaldið hjá
ágætum dómara leiksins, Hinriki
Jóhannessyni.
UMFN —ÍR5-0 (1-0)
Eftir óvæntan sigur ÍR yfir Víði
þótti Njarðvíkingum það heldur
lítið að hafa ekki nema eins marks
forskot undan rokinu í leikhléi,
gegn ÍR — mark sem Stefán Jóns-
son skoraði úr vítaspyrnu á seinustu
mínútunni fyrir -hlé. En þegar til
kom reyndist mun auðveldara að
hemja knöttinn gegn rokinu. Njarð-
víkingar bættu fjórum mörkum við í
seinni1 hálfleik þar af „þrykkti"
Stefán.sem er prentari að atvinnu,
þremur í netið til viðbótar því eina
sem hannskoraði í fyrri hálfleik.
Stefán hefur leikið, vegna mikilla
forfalla í UMFN-liðinu, flestar stöð-
ur í sumar, en var að þessu sinni
miðherji — að nýju — og naut sín
sannarlega. Fimmta markið skoraði
Guðmundur Hreinsson. Dómari var
Hafliði Þórðarson, efnispiltur á
þeim vettvangi.
- emm
E-riðill
Siglfirðingar bættu stöðu sína I
E-riðli með góðum sigri á Grenivík,
sigruðu þar 1-0. Leikur liðanna var
jafn og það var ekki fyrr en á 84.
mínútu að sigurmark Siglfirðinga
kom, þá skoraði Hörður .Júlíusson
sigurmark KS.
Árroðinn og Hofsós deildu stigun^
um og juku því líkur KS á sigri í
riðlinum. Leikurinn fór fram í Eyja-
firði og Hofsós náði tveggja marka
forustu fyrir leikhlé með mörkum
Arnar Tryggvasonar. En Árroðinn
átti siðari- hálfleik og þeir Þröstur
Geirsson og Björn Konráðsson skor-
uðu mörk Arroðans, og því jafntefli,’
2-2.
Leiftur frá Ölafsfirði ferðaðist
inn Eyjafjörð og lék við Dagsbrún.
Leiftur sigraði 5-1 eftir 2-0 í leik-
hléi. Gestur Sæmundsson skoraði 2
mörk Leifturs, Guðmundur Garðars-
son, Ölafur og Kolbeinn Ágústsson
eitt hver. Steindór Steindórsson
skoraði eina mark Dagsbrúnar —
hið fyrsta frá fyrsta leiknum í mót-
inu, jafnteflisleiknum á Hofsósi, 3-
3.
Staðan í riðlinum er nú:
KS 8 6 0 2
Hofsós 8
Árroðinn 8
Leiftur 8
Magni 8
Dagsbrún
8 0 1
24-6
18-9
14- 12
22-9
15- 14
4-32
St.A.
Vhelsea skildu jöfn á
irk Head, 2-2
res skoraði síðara mark Celtic
illa að "binda enda á sóknarlotur
liðsins.
„Þrátt fyrir jafntefli var Jock
Stein ánægður með leikinn — sagði
að hann hefði verið mikil framför
frá leiknum við Dundee United á
laugardag," sagði Jóhannes Eð-
valdsson er við ræddum við hann.
Áhorfendur voru um 25 þúsund
og skemmtu sér hið be/.ta eins og oft
í vináttuleikjum — opnir og-
skemmtilegir.
Kunnur kappi skipti um félag í
síðustu viku — ekki leikmaður
heldur Don'Howe þjálfari Leeds
United. Hann tók saman föggur
sínar og hélt á fornar slóðir — til
Arsenal. Þegar Arsenal vann bikar
og deild sama árið var Don Howe
álitinn maðurinn á bak við sigur
félagsins.
Hann fór frá félaginu til WBA og
gerðist þar framkvæmdastjóri en
gekk ekki vel. Hann hætti þar er
WBA féll og hélt til Tyrklands en
þaðan lá leið hans til Leeds þar til
gífurlega gott peningatilboð
Arsenals heillaði hann aftur til
heimaborgarinnar.
Pétur Pétursson skoraði tvívegis i gærkvöld
markverði Víkinga. DB-mynd Bjarnleifur.
og hér sækir hann að Diðriki ölafssyni, hinum örugga
Nú skilur aðeins eitt
stig Skagamenn og Val
—eftir 3-0 sigur ÍA gegn Víkingi ígærkvöld íLaugardal
Skagamenn haida uppi öflugri
baráttu fyrir íslandsmeistaratign
í ár — sigruðu Viking 3-0 á
Laugardalsleikvanginum í gær-
kvöld í 1. deild fslandsmótsins.
Þar með hafa Skagamenn hlotið
24 stig, aðeins stigi minna en ís-
landsmeistarar Vals. Víkingur er
nú hins vegar fallinn niður i
miðja deild — liðið aðeins svipur
hjásjón.
Já, Skagamenn halda uppi
pressu á Val — og þeir sigruðu
verðskuldað í Laugardal. Það var
nánast furðulegt hvað Víkings-
liðið var auðveldur mótherji, gjör-
samlega niðurbrotið. Fyrri hálf-
leikur Víkings og Skagamanna
var samt ákaflega líflegur —
tækifæri á báða bóga. Víkingar
fengu fyrsta marktækifæri leiks-
ins, er Kári Kaaber komst einn
inn fyrir vörn fA, en Jón Þor-
björnsson varði mjög vel með
góðu úthlaupi og hættunni var
bægt frá.
Víkingar réðu leiknum í byrj-,
un, spiluðu oft laglega úti á vell-
inum en leikurinn var opinn.
Þannig komst Pétur í gegn á 5.
mínútu en hættunni var bægt frá
og á 12. mínútu náðu Skagamenn
forustu. Helga Helgasyni urðu á
slæm mistök, Kristinn Björnsson
brunaði upp vinstra megin og
sendi knöttinn fyrir og Pétur
Pétursson skoraði fyrir opnu
marki, 0-1.
A 19. mínútu lék Óskar Tómas-
son laglega á Árna Sveinsson og
inn í vítateig, skaut föstu skoti en
rétt fram hjá. Og Skagamenn
Jafntefli
Þórs og KA
Þór og KA mættust í gærkvöld í
minningarleik um þá Þórarin
Jónsson og Kristján Kristjánsson.
Þeir félagar fórust í Óshlíð og tók
Þór upp að halda minningarleik
um þá félaga fyrir um 4 árum.
Leik Þórs og KA lyktaði í gær-
kvöld með jafntefli, 3-3. KA hafði
yfir í leikhléi með tveimur mörk-
um Gunnars Blöndals en Arni
Gunnarsson hafði náð að minnka
muninn í 2-1.
Sigþór Ómarsson jafnaði fyrir
Þór í síðari hálfleik og Jón Lárus-
son náði forustu, 3-2. en Óskar
Ingimundarson jafnaði á síðustu
mínútu leiksins, 3-3.
St.A.
skoruðu úr sínu þriðja marktæki-
færi — enn slæm mistök í vörn
Víkings. Kristinn Björnsson gaf
laglega á Pétur Pétursson einn og
óvaldaðan. Pétur gaf út til Harðar
Jóhannessonar er skaut föstu
skoti af 20 metra færi neðst 1
markhornið, 0-2.
Þrátt fyrir þessi áföll spiluðu
Víkingar oft laglega úti á vellin-
um og sköpuðu sér ekki síður
marktækifæri. En munurinn á
liðunum var augljós: Vikingar
höfðu ekki leikmenn á borð við
Pétur Pétursson og Kristin
Björnsson, ávallt hættulega,
ávallt ógnandi.
Þannig skaut Gunnlaugur
Kristfinnsson þrumuskoti af 25
metra færi — en Jón Þorbjörns-
son varði vel — og skömmu síðar
var hætta hinum megin, Pétur
komst einn inn fyrir, að því er
virtist rangstæður, en Diðrik
bjargaði vel með úthlaupi.
Já, knötturinn gekk vallar-
helminga á milli. A 36. minútu
skaut Róbert Agnarsson yfir af 6
metra færi, skömmu síðar komst
Kristinn Björnsson inn fyrir, enn
megn rangstöðulykt, en aftur
bjargaði Diðrik Ölafsson vel með
góðu úthlaupi. Knötturinn gekk
svo sannarlega marka á milli,
leikurinn var skemmtilegur fyrir
augað en varnir opnar, sér í lagi
Vikingsvörnin. Þannig átti IA
síðasta góða tækifærið í fyrri hálf-
leik: Ðiðrik Ólafsson varði lag-
lega eftir skot Harðar úr vita-
teignum.
Skagamenn höfðu því yfir 2-0 í
leikhléi og léku eins og þeir gerðu
framan af sumri, af sannfæringu.
Skagamenn lokuðu bókstaflega
síðari hálfleik — sóknir Vikinga
voru máttleysislegar, Skagamenn
áttu alls kostar við Vikinga, ávallt
fljótari á knöttinn.
Það kom því síður en svo á
óvart að Skagamenn juku forskot
sitt í síðari hálfleik, á 35. mínútu,
er Pétur Pétursson, sá mikli
markaskorari, fékk sendingu í
gegnum staða vörn Víkinga og
skoraði án þess að Diðrik kæmi
vörnum við. Víkingar voru sigrað
lið — Skagamenn áttu alls kostar
við þá og höfuð Víkinga sigu sí-
fellt meira og fátt heppnaðist.
Vikingar áttu að vísu síðasta
hættulega marktækifæri leiksins
er Eiríkur Þorsteinsson vippaði
yfir Jón Þorbjörnsson markvörð
ÍA en Sigurður Halldórsson
bjargaði á línu.
Þetta var því sannfærandi
sigur Skagamanna sent eru loks-
ins eftir heldur dapurt timabil að
ná sér á strik, leika af eðlilegri
getu, þeirri sannfæringu er ein-
kenndi leik þeirra í sumar. Að
vísu veittu Vikingar ekki mikla
mótspyrnu, til þess var viirti
þeirra of hriplek. En ekkert ber
að taka frá Skagamönnum, þeir
eru nú af fullri alvöru í barátt-
unni og leikmenn eins og Karl
Þórðarson, Arni Sveinsson, Krist-
inn Björnsson, Pétur Pétursson
og Jón Gunnlaugsson leika nú
aftur af fullri og eðlilegri getu,
Guðjón Þórðarson er traustur
bakvörður, Jón Þorbjörnsson
markvörður hefur staðið vel fyrir
sínu og þá hafa nýliðarnir
Sigurður Halldórsson, Jón
Áskelsson og Hörður Jóhannes-
son vaxið með hverjum leik. Þá er
ónefndur Jón Alfreðsson — hann
stjórnar spilinu vel og dreifir því.
Skagamenn eiga að vísu eftir erf-
itt prógram: Keflavík heima og
ÍBV í Eyjum. En Valsmenn eiga
eftir að leika við Reykjavikurfé-
lögin Víking og Fram.
Skagamenn eru því áfram af
krafti í baráttunni um íslands-
meistaratign en vonir Víkinga
slokknuðu um síðustu helgi í
Keflavík. Nú blasir við sæti um
miðja deild eftir að þeir hafa
fylgt Val og Akranesi eins og
skugginn í sumar. Herzlumuninn
vantar — þá fyrst og fremst í
sókninni. Víkingar hafa átt við
sín vandamál að stríða í sumar —
mikil meiðsli hafa hrjáð leikmenn
og síðari hluta sumars hafa þeir
Óskar Tómasson og Viðar Elías-
son verið meiddir, Óskar lék í
gærkvöld en varð að fara út af i
lokin þar sem hnéð gaf sig.
Víkingar hafa verið gagnrýndir
óvægilega í sumum fjölmiðlum
fyrir „negatíva“ knattspyrnu.
Þeir hafa hins vegar náð að skipa
bekk beztu liða íslenzkrar knatt-
spyrnu. En herzlumuninn vantar
— Víkingar hafa í gegnum árin
ávallt spilað skemmtilega knatt-
spyrnu, oft laglega úti á vellinum.
En það færði ekki árangur, liðið
rokkaði milli fyrstu deildar og
annarrar. Hins vegar hafa Víking-
ar verið á þröskuldi veleengni
síðastliðið sumar og nú — og sér í
lagi nú — verið gagnrýndir fvrir
,,negatíva“ knattspyrnu. Víkingar
spiluðu oft laglega úti á vellinum
í gærkvöld — og sönnuðu að þeir
geta leikið vel — gallinn er sá að
það hefur ekki fært liðinu vel-
gengni. En það tekur tírna og
reynslu að vinna leiki með því að
leika vel. — Víkingar þurfa að
yfirstíga þann þröskuld.
Leikinn í ga'rkvöld da'mdi
Ragnar Magnússon — ákaf-
lega slakur dómari. Ekkert
samra'ini var i dómum hans og
vissu hvorki áhorfendur né leik-
menn sitt rjúkandi ráð á köflum
og var orðió svo í lokin að áhorf-
endur hlógu að vitleysunum í
Ragnari. i sifelldu striði við senti-
metra og smámuni.
- h halls.