Dagblaðið - 25.08.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 25.08.1977, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. AGUST 1977. 12 d Iþróttir Iþróttir Iþróttir iþróttir íþróttfi Tueart óstöðvandi — þegar Manch. City sigraði Aston Villa ígær Munc’h. City vann stórsigur á Aston Villa í Birmingham í gær í 1. deildinni ensku, 1-4, þar sem leikmenn Viila réðu ekkert við enska iandsliðsmanninn Dennis Tueart. Hann skoraði þrennu i leiknum. Strax á 5. mín. náði Villa forustu með marki Deehan en aðeins tveimur mín. síðar jafnaði Tommy Booth. Leikmenn Villa voru að ná undirtökunum í leiknum þegar Tueart skoraði stórgiæsilegt mark á 28. mín., spyrnti knettinum aftur fyrir sig í markið. A fimm síðustu mín. leiksins skoraði hann svo tví- vegis. Úrslit í gær urðu þessi: 1. deild: A. Villa-Man. Citv Chelsea-Birmingham Derby-Ipswich Leeds-WBA Leicester-West Ham Man. Utd.-Coventry Norwich-Middlesbro 2. deild: Biackburn-Tottenham Stoke-Southampton 3. deild: Lincoln-Walsall 4. deild: Aldershot-Stockport 1- 4 2- 0 0-0 2-2 1-0 2-1 1-1 0-0 1-0 2-2 2-1 1 deildabikarnum vann Cariff Torquay 2-1. I skozka deilda- bikarnum vann Rangers St. Johnstone 3-1. Leeds virtist stefna í öruggan sigur gegn WBA í gær, komst í 2-0 með mörkum Joe Jordan og Gordon McQueen. En á síðustu 30 mín. leiksins tókst Cross tví- vegis að skora fyrir WBA og jafna. Enski landsliðseinvaldurinn Ron Greenwood, sem lék hér á fsiandi fyrir 26 árum með Brent- ford, var á leik Manch. Utd. og Coventry. Þar var lítið sem gladdi augað. Gordon Hill skoraði fyrsta mark United úr vítaspyrnu en Wallace jafnaði fyrir Coventry á 30. mín. David McCreery skoraði sigurmark United á 72. mín. og Man. Utd. hefur fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðirnar. Aðeins tvö önnur lið hafa náð þeirri stigatölu, Ulfarnir og Nottingham Forest. Liverpool og Manch. City hafa þrjú stig. I leik Chelsea og Birmingham misnotaði Finneston vítaspyrnu fyrir Chelsea. Það kom ekki að sök. Þeir Stanley og Lewington skoruðu tvö mörk fyrir Lundúna- liðið. Þrenn gull- verðlaun USA Sundkeppnin hófst í gær á heimsleikum stúdenta í Sofia í Búigariu í gær — en þá var níundi keppnisdagurinn á heims- ieikunum. Bandariskt sundfólk sigraði í þremur af fimm grein- um sem keppt var í til úrslita í gær. Rich Hannula, USA, sigraði í 400 m skriðsundi á 4:02.17 mín., en annar varð Nikheyev, Sovét- ríkjunum, á 4:03.78 mín. Ausandi rifning dró taisvert úr árangri. í 100 m baksundi kvenna sigraði Studeenikova, Sovét, á 1:06.68 mín., en McCully, USA, varð önnur á 1:07.25 mín. í 100 m fiugsundi karla sigraði Mike Curringon, USA, á 55.58 sek. Dan Thompson, Kanada, varð annar á 57.05 sek. og landi hans, van Buren, þriðji á 57.12 sek. í 100 m skriðsundi kvenna sigraði Jutta Meeuw, V-Þýzkalandi, á 57.80 sek., Sue Hinderaker, USA, varð önnur á 58.93 sek. I 4x100 m skriðsundi karla sigraði sveit USA á 3:31.49 mín., sveit V- Þýzkalands varð önnur á 3:31.75 mín. og sveit Sovétríkjanna í þriðja sæti á 3:33.24 mín. Sundfólk frá Austur- Þýzkalandi tekur ekki þátt í sund- keppninni. Guðmundur Baldursson, ungur nýliði i marki Fram, stóð vel fyrir sinu á Laugardalsvelii í gær. A DB-mynd Bjarnleifs bjargar hann eftii hættulega sókn KR. KR féll í fyrsta sinn en með fánann við hún — Fram og KR gerðu jafntefli á Laugardalsvelli ígær, 1-1 Bezta knattspyrnuféiag islands gegnum árin, Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, kvaddi 1. deildina í fyrsta skipti í sögunni í gær. Þá iék iiðið siðasta leik sinn á þessu leiktímabiii á Laugardals- veili við Fram. Jafntefli varð, 1-1, þar sem Örn Óskarsson skoraði jöfnunarmark KR rétt fyrir leiks- lok. KR-ingar börðust mjög loka- kafla leiksins og tókst að ná markmiði sínu: að jafna. Það má því segja að KR hafi fallið með fánann við hún og ekki þarf að efa að vera KR í 2. deild verður stutt. Við spáum því að KR-ingar komi upp í 1. dei>'d a ný næsta haust, tviefldir. Þetta var aldrei neinn stór- leikur á Laugardalsvellinum í gær. Jafntefli var að mörgu leyti sanngjörn úrslit. í bæði lið vantaði þekkta leikmenn eins og Magnús Guðmundsson, Ottó Guðmundsson og Hauk Ottesen hjá KR, Árna Stefánsson, Pétur Ormslev og Ágúst Guðmundsson hjá Fram. Utsendari frá norska liðinu Start, sem Fram leikur við í Evrópukeppni, var á leiknum og því vel skiljanlegt að Fram stillti ekki upp sínu bezta liði. Fram skoraði fljótlega í leikn- um. Eftir aðeins 10 mín. lék Sumarliði Guðbjartsson inn í víta- teig KR og var brugðið af Berki Yngvasyni. Dómarinn, Hreiðar Jónsson, dæmdi á stundinni víta- spyrnu. Kristinn Jörundsson tók spyrnuna — spyrnti himinhátt yfir. En markvörður KR, Halldór Pálsson, hafði hreyft sig og dómarinn lét endurtaka spyrn- una. Þá urðu Eggert Steingríms- syni ekki á nein mistök. Leikmenn Fram voru yfirleitt sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og léku á stundum netta knatt- spyrnu. KR-ingar fengu þá sín færi og Vilhelm Fredriksen átti skot i þverslá. A lokamínútu hálf- leiksins lék Simon Kristjánsson, bakvörður Fram, upp og gaf vel fyrir. Sumarliði skallaði í mark af stuttu færi. En flestum til undr- unar dæmdi dómarinn þetta ágæta mark af. Framan af síðari hálfleiknum voru leikmenn Fram betri en voru klaufar að skora ekki, áttu til dæmis tvívegis einir við mark- vörð KR. En eftir því sem leið á leikinn urðu KR-ingar harðskeytt- ari og stefndu ákveðnir í að jafna í blankalogninu á Laugardals- velli. Það tókst þeim líka þegar örn Óskarsson, sem hafði komið inn sem varamaður eftir leik- hléið, skoraði af stuttu færi. Þá voru fjórar min. til leiksloka. KR hlaut 10 stig í leikjunum 18 í fyrstu deildinni í sumar og það nægði auðvitað ekki. Liðið er því fallið niður í 2. deild, varð næst- HALLUR SlMONARSON íþróttir Bein símalína til umsjónarmanna íþróttasíðunnar er 83764 neðst, en Þór, Akureyri, í neðsta sæti með sex stig. Fram varð þriðja neðsta liðið með 14 stig og kom bað á óvart eftir að liðið hafði tryggt sér Reykjavíkur- meistaratitilinn í vor. Beztu menn Fram í gær voru Símon Kristjáns- son bakvörður, markvörðurinn ungi, Guðmundur Baldursson, og Sumarliði í fyrri hálfleik. Asgeir Elíasson var að venju drjúgur — en ekki nálægt því, sem hann hefur sýnt að undanförnu. 1 liði KR bar mest á Birni Péturssyni framan af en Sigurður Indriðason og Stefán örn Sigurðsson áttu einnig ágætan leik. hsfm. Hvar er knötturinn? Hann er alveg horfinn þessum ungu piltum á Laugardalsvelli í gær.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.