Dagblaðið - 25.08.1977, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 25.08.1977, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. AGUST 1977. Veðrið Hœg bieytileg eða norðaustlœg átt um allt land. Víöa skúrir. Fremur svalt, einkum noröan og austan til á landinu, einna hlýjast suövestan- lands. Klukkan 6 í morgun var hiti í Reykjavík 9. Galtarvita 6, Hom- bjargsvita 5, Akureyri 6, Raufarhöfn 5. Eyvindará 1. Dalatanga 6, Höfn 6, Kirkjubœjarklaustri 6. Vest- mannaoyjum 8. Keflavikurflugvelli 8, Þórshöfn 9, Kaupmannahöfn 16, Ósló 12, London 15, Hamborg 15, Palma Mallorca 13, Barcelone 15, Benidorm 16, Malaga 20, Madrid 11 og New York 17 stig. Margrét Valdlmarsdóttir, sem lézt í Landakotsspítala 16. ágúst sl., var fædd 26. janúar 1903 á Eskifirði. Foreldrar hennar voru Hildur Jónsdóttir ljósmóðir og Valdimar Sigurðsson skipstjóri og útgerðarmaður. Fór hún snemma úr föðurgarði og vann fyrst við sjúkrahúsið á Seyðisfirði og fluttist til Reykjavíkur árið 1928. Hún rak matsölu að Laugavegi 28 með Steinunni systur sinni til 1932 er þær systur keyptu Hótel Skjaldbreið sem þær ráku í tíu ár. Margrét annaðist veitingasölu í Alþingishúsinu til ársins 1972. Þær systur bjuggu saman að Guðrúnargötu 7. Áttu þær fóstur- dóttur, Valdísi Hildi, sem þær ólu upp frá unga aldri. Eftir lát hennar ólu þær upp hennar börn. Margrét verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Ragnhildur Friðriksdóttir, sem dó 16. ágúst sl., var fædd að Rauðhálsi í Mýrdal 6. ágúst 1902. Foreldrar hennar voru Þórunn Sigríður Oddsdóttir frá Pétursey og Friðrik Vigfússon frá Ytri- Sólheimum í Mýrdal. Ragnhildur giftist árið 1926 Guðlaugi Halldórssyni skipstjóra og voru þau búsett í Vestmannaeyjum þar til gosið hófst. Fluttu þau þá til fastalandsins og bjuggu þar æ siðan. Börn þeirra hjóna eru: Friðþór, vélvirki í Vestmanna- eyjum, Alda, húsfreyjá á Húsa- vík, Guðbjörg, húsfreyja í Reykja- vík, Elín, húsfreyja í Vestmanna- eyjum, Vigfúsína, kaupkona og húsfreyja í Reykjavík. Olga Magnúsdóttir, Tjarnargötu 10, d, andaðist í Borgar- spítalanum 23. ágúst. Guðmundur Jónsson, Hrafnistu, áður Nökkvavogi 15, andaðist i Landakotsspítala 23. ágúst. Jón Þórir Lárusson, Hverfisgötu 38 B Hafnarfirði, verður jarð- sunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 14.00. Björn Jakobsson frá Varmalæk verður jarðsunginn frá Bæjar- kirkju næstkomandi laugardag kl. 2 e.h. Sveinn Þórarinsson listmálari verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í fyrramálið kl. 10.30. GENGISSKRANING Eining Kl. 12.00 Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 19«.70 199.20 1 Sterlingspund 3*5.80 346.70 1 Kanadadollar 185.25 185.75* 100 Danskarkrónur 3314.30 3322.60 100 Norskar krónur 3755.40 3764.90 100 Sœnskar krónur 4525.20 4536.50* 100 Finnsk mörk 4935.40 4947.80' 100 Franskir frankar 4065.10 4075.30* 100 Bolg. frankar 560.70 562.10* 100 Svissn. frankar 8324.80 8345.70- 100 Gyllini 8140.40 8160.90' 100 V.-Þýzk mörk 8595.80 8617.40' 100 Lírur 22.52 22.58 100 Austurr. Sch. 1211.90 1215.00' 100 Escudos 514.40 515.70- 100 Pesetar 235.20 235.80' 100 Yen 74.55 74.74* * Broyting frá síöustu skráningu. Fíladelfía Fíladelffa, almenn æskulýðssamkoma í kvöld kl. 20.30. Stjórnandi Sam Glad. Hiálprœðisherinn Hjalpræðisherinn, almenn samkoma f kvöld kl. 20.30. FyriHestrar Frá Ananda Marga á íslandi: Fyrirlestrar verða á hverju fimmtudags- kvöldi kl. 20 og á hverjum laugardegi kl. 15 að Bugðulæk 4, 1. hæð. Hefjast fyrir- lestrarnir nk. fimmtudag 25. ágúst. TJm er að ræða kynningu á hugleiðslu og jóga, andlegri og þjóðfélagslegri heimspeki Ananda Marga. Kennd verður einföld huglæg tækni og jóga- æfingar (Hata yoga) ásamt slökunaræfing- um. 011 kennsla er ókeypis. Norrœna húsið Norræna húsið. Nordens Hus, Islandsaften torsdag den 25. august kl. 20.30: Island í dag. Universitetslektor Haraldur ólafsson. Kl. 22.00: Filmen Homstrandir. Cafetcriet er ábent kl. 20.00 — 23.00. f - , Aðalfundir Aðalfundur Aðalfundur Stéttarsambands bænda verður haldinn að Eiðum dagana 29. og 30. ágúst. Iþróttir J íþróttir í dag. tslandsmótið i knattspyrnu, 1. deild. Laugardalsvöllur kl. 19, Víkingur-Valur. Islandsmótið i knattspyrnu, 3. deild. Háskólavöllur kl. 19, Léttir-óðinn. Golfklúbbur Vestmannaeyia: Faxakeppni verður naldin laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. ágúst. Keppnin hefst kl. 10 á laugardagsmorgun. öllum heimil þátt- taka. Þátttökutilkynningar í sfma 2363 fyrir föstudagskvöld. Norrœna húsið: Listsýning á verkum tveggja danskra lista- kvenna, Lone Plaetner og Mable Rose verður opnnð f sýningarsölutn hússins f kvöld kl. 18.00. Á sýningunni eru teikningar, graffk- myndir, vatnslitamyndir og pastelmyndir, sem flestar eru til sölu. Gallerí Suðurqata 7 Sýning á verkum Hóllendingsins Sef Peeters. er opin daglega kl. 16-22 virka daga og 14-22 >um helgar til 31. ágúst. Gallerístofan Kirkjustræti 10. Opið frá 9-6. Sumarsýning í Ásgrímssafni Bergstaðastræti 74, er opin alla daga nema laugardagák. 1.30-4. Aðgangur ókeypis. Handritasýning í Stofnun Árna Magnússonar Sýning er opin k1. 2-4 á þriðjudögum, fimmtu- dögum og Iaugardögum í sumar. * Gallerí Sólon Islandus Nú stendur yfir sýning tuttugu listamanna í Gallerf Sólon Islandus. A sýningunni eru bæði myndverk og nytjalist ýmiss konar og eru öll verkin til sölu. Sýningin er opin daglega kl. 2-6 virka daga og kl. 2-10 um helgar fram til ágústloka. Lokað á mánu dögum. Loftið A Loftinu, Skólavörðustíg er sýning á vefja- list fjögurra kvenna, sem þær hafa unnið í tómstundum sínum. Konurnar eru: Áslaug Sverrisdóttir, Hólmfrfður Bjartmars, Stefanía Steindórsdóttir og Björg Sverris- dóttir. Er þetta söjusýning. Sýningar Guðmunía Jóna Jónsdóttir frá Hofi í Dýra- firði sýnir að Reykjavíkurvegi 64 hjá m 1- verkainnrömmun Eddu Borg i Hafnarfirði. Sýningin er opin frá'kl. 13.00-22.00 fram á sunnudagskvöld. Konsert Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.30 efna þær Anna Rögnvaldsdóttir fiðluleikari og Agnes Löve píanóleikari til tónleika f Norræna húsinu. Anna Rögnvaldsdóttir er nýkomin héim frá námi í fiðluleik erlcndis, sl. þrjú ár hefur hún dvalið við nám f fiðluleik f London. Útivistarferðir Föstud. 2 6/8. kl. 20. 1. AAalbláberjaferö til Húsavíkur. Einnig gengnar Tjör.i.--;jöi . Svefn,. Kagisting. Fararstjóri: Einar Þ. Guðjohnsen. 2. Laxárgljúfur, Leirárgljúfur, Hrunakrókur. Tunglskinsganga að Gullfossi að austan.Tjöld. Fararstjóri: Kristján M. Baldursson. Upplýsingar og farseðlar á Skrif- stofunni Uekjarg. 6, sími 14606. Ferðafélag íslands. Föstudagur 26.8 kl. 20.00. Þórsmörk. Gist f húsum. Landmannalaugar. Gist i húsum. Hveravellir-Kerlingarfjöll. Síðasta ferð. Gist í húsum. Hltardalur-Smjörhnúkar-Tröllakirkja. Gist i tjöldum. Frá hestamannamóti Faxa I Borgarfirði I sumar: Hestfær fjöiskylda og vel ríðandi. Höskuldur á Hofsstöðum er orðinn 84 ára og situr hest manna bezt og tamdi fimm sl. vetur. Frá vinstri: Höskuidur á Mjöll, börn hans, Gísli á Sval og Perla á Goða, tengdadóttirin Kristfríður á Svölu, og sonarbörnin, Gisli yngri á Hæru, Eyjólfur á Hélu og Lára á Grána. EIÐFAXI — eftir fyrsta íslenzka hestinum „Eiðfaxi hét hann, sonur Flugu og Sinis, fyrsti hesturinn sem sagan greinir að getinn sé og fæddur á íslenzkri grund. Hann gat sér mikillar frægðar, bæði á Islandi og er- lendis, og ber þar allt að einu, fádæma afrek hans þá er hann var uppvaxinn, en ekki síður þann bakgrunn, er var að getnaði hans og fæðingu." Svo segir m.a. í skýringu á nafngift hestafréttablaðsins Eiðfaxa sem nýlega er komið út í fyrsta sinn. Utgefendur eru áhuga- menn um hesta og hesta- rækt um allt land. Tilgangur blaðsins er að birta fréttir af öllum þáttum hestamennsku bæði i leik og starfi, t.d. frá mótum, félagsstarfi, kynbótum og yfirleitt hverju þvi sem að hestamennsku lýtur. Blaðið kemur út einu sinni I mánuði, er 16 síður i A-4 broti. Það verður selt til áskrifenda og einnig í lausasölu Fram- kvæmdastjóri er Gísli B. Björnsson og ritstjóri Sigurjón Valdimarsson. Utanáskrift blaðsins er Eiðfaxi, pósthólf 887, Reykjavík. -ÖV. Alþýðubandalagið Reykjavík Næsti umræðufundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík um verkefni landsfundar verður haldinn í kvöld kl. 20.30 að Grettisgötu 3. Alþýðubandalagið Norðurlandskjördœmi eystra Alþýðubandalagið í Norðurlandskiördæmi eystra heldur kjördæmisþing í Alþýðuhúsinu á Akureyri laugardag og sunnudag þann 27. og 28. ágúst nk. og hefst þingið kl. 13.30 á laugardag. Framsóknarmenn Árnessýslu Sumarhátfo framsóknarmanna í Árnessýslu verður haldin laugardaginn 27. ágúst og hefst kl. 21. Listasafn íslands, Þjóöminjasafninu Sýning á verkum danska myndhöggvarans Robert Jacobsen, opin til sunnudagsins 11. september. Minningarsafn um Jón Sigurðsson í húsi því sem hann bjó 1 á sínum tíma að öster Voldgade 12 í Kaup- mannahöfn, er opið daglega kl. 13—15 yfir sumarmánuðina en auk þess er hægt að skoða safnið á öðrum tímum. Minningarspjöld Minningarkort Flugbjörgunarsveitirnar fást a eftirtöTaum stöðum: Bókabúð Braga Laugavegi 26, Amatörverzluninni Laugavegi 55, Húsgagnaverzlun Guðmundar Hagkaups- húsinu sími 82898, hjá Sigurðir Waage s. 34527, Magnúsi Þórarinssyni s. 37407, Stefáni Bjarnasyni s. 37392 og Sigurði M. Þorsteins- syni s. 13747. Minningarspjöla Menningar- og minningar- sjóAs kvenna eru til sölu í Bókabúð Braga, Jaugavegi 26, Reykjavík, Lyfjabúð Breið- holts, Arnarbakka 4-6 og á skrifstofu sjóðsins að Ilallveigarstöðum við Túngötu. Skrifstofa Menningar- og minningarsjóðs kvenna er opin á fimmtudögum kl. 15-17 (3-5) sími 18156. Upplýsingar um minningarspjöidin og æviminningabók sjóðsins fást hjá formanni sjóðsins: Else Mia Einarsdóttur, s. 24698. Minningarkort Styrktarfélags vangefinna fást í Bókubúð Braga, Verzlanahöllinni. bóka- ver/.lun Snæbjarnar, Hafnarstiieti. og i skrif- stofu félagsins. Skrifstofan tekur á móti samúðarkveðjum símleiðis — isima 15941 og getur þá innheimt upphæðina í giró. Minningarspjöld Sjálfsbjargar fást á eftirtöldúm stöðum. Reykjavík: Vestur- bæjar Apótek , Reykjavíkur Apótek, Garðs jVpótek, Bókabúðin Alfheimum 6, Kjötbo^ Búðagerði 10, Sknfstcrfa Sjálfsbjargar Hátúni 12. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Valtýr Guðmundsson Öldugötu 9, Kópavogur: Pósthús Kópavogs. Mosfells- sveit: Bókaverzlunin Snerra, Þverholti. Minningarspjöld Elliheimilissjóðs Vopnafjarðar fást 1 verzluninni Verið Njálsgötu 86, sími 20978 og hjá Ingibjörgu Jakobsdóttur, slmi 35498. Tiikynmngar Frá Kattgyinafélaginu Nú stendur yfír aflifunheimilislausra katta og mun svo verða um óákveðinn tíma. Vill Kattavin'átélagið í þessu sambandi og af marggefnu tilefni mjög eindregið hvetja kattaeigendur til þess að veita köttum sínum bað sjálfságða öryggi að merkja þá. Mónudagsdeild AA-samtakanna flytur alla starfsemi sína úr Tjarnargötu 3c í safnaðarheimili Langholts- kirkju. Deildin verður rekin áfram sem opin deild. Erum til viðtals milli kl. 8 09 9 á jnánudögum, fundir kl. 9. Munið safnaðar- heimili Langholtskirkju frá og með 2 mtl 1977 Þann 15. júli voru gefin saman í hjónaband af séra Árna Pálssyni i Kóþavogskirkju. Áslaug Sverris- dóttir og Sigurður Kristjánsson. Heimili þeirra er að Seibrekku 40 Kópavogi. Ljósmyndastofa Gunnars Ingimars, Suðurveri. Þann 9. júlí voru gefin saman í hjónaband af séra Magnúsi Guðjónssyni í Fríkirkjunni I Hafnarfirði. Anna Gréta Sigur- björnsdóttir og Sævar Jónsson. Heimili þeirra er að Lyngási 6 Garðabæ. Ljósmyndaþjónustan sf. Laugavegi 178. <1 Þann 17. júní voru gefin saman i hjónaband af séra Frank M. Halldórssyni í Háteigskirkju. Guðrún Ahtonsdóttir og Jón Sverrir Bragason til heimilis að Framnesvegi 34 Reykjavík, og Þorvaldur Kristjánsson og Anna Rut Antonsdóttir til heimilis að Unufelli 23 Reykjavfk. Ljós- myndastofa Gunnars Ingimars; Suðurveri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.