Dagblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 14
14
/■
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977.
V
Hreinlega of mikil aukning
—50 bækur koma út á árinu hjá Iðunni. Aukningin er 10 bækur frá því ífyrra.
Bókaútgáfan Iöunn gefur á
þessu ári út um fimmtíu bækur.
Aukningin frá því í fyrra er um
tíu titlar og fyrirsjáanlegt aö enn
meiri aukning verði á næsta ári.
„Hugmyndaflugið er sennilega
svona frjótt hjá okkur núna,“
sagði Jóhann Páll Valdimarsson
hjá Iðunni er DB ræddi við hann
um útgáfuna. „Ég verð að játa að
mér brá i brún er ég tók saman
lista um útgáfubækur þessa árs
nú um daginn. Þetta er hreinlega
of mikil aukning.“
Að sögn Jóhanns Páls hefur
útkoma bókanna dreifzt mun
meir á allt árið en áður. Megin-
hlutinn kemur þó út þessa dagana
og allt fram undir miðjan nóv-
ember — rúmlega þrjátíu bækur.
Jóhann var að því spurður, hvort
útgáfuaukningin hefði orðið í ein-
hverjum ákveðnum flokki. Hann
kvað nei við því.
„Aukingin hefur orðið ákaflega
jöfn f öllum flokkum," sagði hann
„Þó má benda á, að við höfum
lagt að undanförnu æ meiri
áherzlu á útgáfu vandaðra barna-
bóka.“
Kvœðasafn Hannesar
Af þeim bókum, sem væntan-
legar eru frá Iðunni á næstunni,
skal fyrst nefna Kvæðasafn eftir
Hannes Pétursson skáld. í bók-
inni eru kvæði úr öllum fyrri
ljóðabókum Hannesar, svo og úr
bókinni Hugskoti og úr tímarit-
um. Þá eru í Kvæðasafni nokkur
áður óbirt ljóð. Jóhannes Geir
listmálari myndskreytir bókina.
Gunnar Gunnarsson rithöfund-
ur og fyrrverandi blaðamaður
sendir frá sér skáldsöguna Jakob
og ég. Hún segir frá miðaldra
bankastarfsmanni sem hleypur
frá öruggri tilveru og frama til að
ramba meðal ókunnugra og glotta
framan í gamla vini.
Aður hefur komið út eftir
Gunnar skáldsagan Beta gengur
laus. Hann dvelur nú í Svíþjóð
þar sem hann stundar ritstörf.
Annað bindi Sögu frá Skagfirð-
ingum kemur út innan skamms.
Þarna er á ferðinni viðamikið
heimildarit í árbókarformi um
tíðindi, menn og aldarhátt f
Skagafirði og víðar. Útgáfu þessa
verks annast Kristmundur
Bjarnason fræðimaður á Sjávar-
borg ásamt Hannesi Péturssyni
skáldi og Ögmundi Helgasyni
B.A.
Forsetarónið
fró Alistair McLean
Að vanda sendir Iðunn frá sér
nokkrar þýddai skáldsögur. Skal
þar fyrst nefna bókina Forseta-
ránið eftir þann margfræga AIi-
stair McLean. Að þessu sinni er
Bandaríkjaforseta rænt, og gott
ef ekki fleiri þjóðhöfðingjum. Að
vanda kemur einnig út bók eftir
Hammond Innes. Sú nefnist Loft-
brúin.
Þá er að nefna skáldsöguna
Angist eftir David Morrell. I
fyrra kom út hjá forlaginu bókin
1 greipum dauðans eftir sama höf-
und. Loks kemur út skáldsagan
Örlagaríkt sumar eftir Mary
Stewart. Aður hefur komið út á
íslenzku eftir hana sagan i skjóli
nætur.
Ný bók um Palla
Barna- og unglingabækur skipa
veglegan sess hjá Iðunni fyrir
næstu jól. Af bókum eftir ís-
lenzka höfunda skal fyrsta teija
Pál Vilhjálmsson eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Páll er sú sjónvarps-
stjarna íslenzk sem orðið hefur
hvað vinsælust og jafnframt um-
deildust. Aður hafa komið út eftir
Guðrúnu bækur um Jón Odd og
Jón Bjarna.
Bókin um Pál Vilhjálmsson er
myndskreytt af Gunnari Baldurs-
syni teiknara. Það var einmitt
hann sem bjó til dúkkuna Palla á
sínum tíma, svo að hann ætti að
vera öllum hnútum kunnugur.
Njörður P. Njarðvík sendir frá
sér bókina Sigrún eignast systur.
Hún er sjálfstætt framhald bókar-
innar Sigrún fer á sjúkrahús sem
kom út hjá Iðunni í fyrra. Sigrún
Eldjárn myndskreytir bókina.
Þrjór teiknimynda-
sögubœkur
Þá kemur einnig á markaðinn
nokkurt úrval þýddra barnabóka.
Iðunn hefur nú útgáfu á teikni-
myndasögum og kemur fyrsta
bókin um Sval og fél’aga nú út.
Hún heitir Hrakfallaferð til Felu-
borgar. Höfundur hennar er
Franquin.
Hin fjögur fræknu og kappakst-
urinn mikli og Hin fjögur
fræknu og vofan eru tvær fyrstu
bækurnar í öðrum teiknimynda-
sagnaflokki eftir Francois-
Georges. Þá eru einnig væntan-
legar fjórar nýjar bækur um
Tuma og Emmu. Albin og furðu-
hjólið og Albin og undraregnhlíf
nefnast tvær bækur fyrir yngstu
lesendurna eftir sænska rithöf-
undinn Ulf Lofgren.
Loks skal nefna tvær þýddar
unglingabækur sem Iðunn gefur
út. Sú fyrri nefnist Galdramaður-
inn og er eftir Ursulu Le Guin.
Hin er Stríðsvetur eftir hollenzka
höfundinn Jan Terlouw. Sagan
gerist í seinniheimsstyrjöldinnier
Holland var hersetið af Þjóðverj-
um.
-AT!
c: Verzlun Verzlun Verzlun j
FORN FRÆGDARSEfUR
Bókin FORN FRÆGÐARSETUR er nú
aftur til hjá útgefanda,
Bókamiöstöðinni Laugavegi 29, Reykjavík.
Bókaverzlanir eru vinsamlegast beönar
aö endurnýjapantanirsem ekki var
unnt að afgreiöa síöast. Einstaklingar og
bókasöfn sem ekki var hægt aö afgreiöa
við pöntun, vinsamlegast endurnýiö pöntun.
Eitt hundraö eintök eru tölusett og verða
árituö afhöfundi, séra Ágústi Sigurössyni.
Bókasafnarar og aörir sem hafa áhuga á
sérstökum númerum hafi samband viö
Bókamiöstöðina sem fyrst.
FORN FRÆGÐA RSETUR er með merkustu
bókum í íslenzkri bókaútgáfu síöari árin.
Verö bókarinnar er óbreytt.
BÓKAMIÐSTÖÐIN
Laugavegi 29 — Sími 26050 — Reykjavik
i ^ i'Tii.V'’
FORN FRÆGÐARSETUR
Möðrudalur á Eíra Fjalli -
Vallanes ó Völlum - Klypp-
staður í Loðmundarfirði -
Breiðavikurþing á Snœfells-
nesi - Breiðabólstaður á
Skógarströnd - Breiðaból-
staður í Vesturhópi - Mœli-
fell i Skagafirði - Kviabekk-
ur i ólaisfiröi - Svalbarð i
Þistilfirði.
A bók þessa oru skráðir 9
þcrtlir ai lornum og morkum
hcfðarsotrum og kirkjustöðum
viða um land. Rakin or saga stað-
anna. ábúcnda og kirkjuhaldara.
scm mcst kvað að. fyrr á öldum
og allt fram til vorra daga. og
cru þcssir þœttir samofnir sögu
lands og þjóðar um aldaraðir.
Höfundurinn. sira Agúsl Sig-
urðsson á Mœlifclli. cr löngu
þjóðkunnnr fyrir gagnmcrk crindi
i útvarp. blaða- og timaríta-
groinar. og má tcljast moðal
hinna hœfustu frœðimanna þjóð-
arinnar.
Má furðu gcgna hvo ótrúloga
miklum fróðlcik honum hefur tek-
izt að safna saman um hin fomu
frœgðarsctur. scm hann tckur til
umfjöllunar. og hcimildakönnun
og cinstök cfnistök lýsa fágœtri
vandvirkni. clju og alúð.
Andstœður rikidœmis og ör-
birgðar fyrri alda cru hér dregn-
ar stcrkum litum: rcisn og lall
mannsins i baráttu og önn hins
daglcga lifs. Hrakin or hín þjóð-
sögulcga skýríng og lýst grimmd
og imyndun galdratrúarínnar.
Hcr cr lcitað vitt til fanga. þó að
mogin cfnið s6 söguþráður cin-
stakra staða. Bókina prýða um
200 Ijósmyndir og tcikningar.
Mó bjóða yður Tívolí?
Ekki bara fallegt heldur stórglæsilegt
sófasett sem hentar yður vel.
Viðgerðir og klæðningar.
Vönduð vinna.
Bólstrun Guðmundar H. Þorbjörnssonar
Langholtsvegi 49. Sími 33240
Þungavinnuvélar
Allar gerðir og stærðir vinnuvéla og vörubíla á söluskrá.
Útvegum úrvals vinnuvélar og bíia erlendis frá.
Markaðstorgið, Einholti 8, sími 28390 og 74575 kvöldsími.
MOTOROL A
Alternatorar i híla og báta, ti/12/24/32
volta.
Platínulausar transistorkveikjur i flesta
bíla.
Skrifstofu
SKRIFBORD
Vönduð sterk
skrifstofuskrif-
borð i þrem
stærðum.
Á.GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiója.
Auóbrekku 57. Kópavogi. Simi 43144
Simi 40299
O&B
INNRETTINGAR
I
AuðureKKu 32. Kópavogi.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. Aripúla 32
. Sími 37700.
Eldhúsinnréttingar. Hnota og eik.
Til afgreiðslu innan 2ja tif 3ja vikna.
úppstilltar á staðnum.
Verzíunin ÆSA auglýsir: A
Setjum gutleyrnalokka í eyru
með 'nýrri tækni. A
W Notum dauðhreinsaðar gullkúlur
Pa
Vinsamlega pantið í sima 23622.
iunið að úrvalið af tfzkuskart-
g’ipunum er i ÆSÚ.
A
swm smimiis
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
SmiSastota.Trönuhrauni 5. Sfmi: 51745.
Austurlenzk
undraveröld
opin á |
Grettisgötu 64 t
%&'Sjnfa
SÍMI 11625