Dagblaðið - 29.10.1977, Page 22
KARIN
SCHUBERT
ANGELO
INFANTI
■ EMANUELLE
EMANUELLE
AUSTURBÆJARBIÓ
Sími 11384
Nú kcmur myndin sem allir hafa
beðið eftir:
LED ZEPPELIN
„The song remains
the same“
Stórfengleg, ný, bandarísk músík-
mynd í litum, tekin á hljómleik-
um Led Zeppelin í Madison
Square Garden.
Tónlistin er flutt í stereo-
hljómflutningstækjum.
Sýnd kl 5. 7.30 og 10.
Sin-i 31182
Sjónvarp íkvöld kl. 21,45: Gamla Ijónið
ELSKENDUR SEM GREINIR Á
Katharine Hepburn og Peter O’Toole sem Elenóra drottning og Hinrik annar Englandskóngur.
Bíómynd sjónvarpsins i kvöld
er gerð eftir afar frægu leikriti
sem gekk lengi á Broadway undir
stjórn Rosemary Harris. Þrátt
fyrir að leikritið gengi þar ákaf-
lega vel stóð það engan veginn
undir þeim mikla tilkostnaði sem
það hlaut að hafa í för með sér.
Gamla ljónið, eins og myndin
heitir á íslenzku (Lion in Winter
á frummáli) er gerð árið 1968 og
var sýnd hér í Laugarásbíói fyrir
einu til tveim árum. Fólkið sem
stendur að myndinni og leikur í
henni er þekkt um allan heim
fyrir hæfileika. Leikstjóri er An-
thony Harwey. í tveim stærstu
hlutverkunum eru þau Katharine
Hepburn og Peter O’Toole. Aðrir
þekktir leikarar, sem einnig koma
fram, eru til dæmis John Castle
og jánthony Hopkins. Kvikmynda-
handritið gerði James Goldman.
Myndin gerist árið 1183 á Eng-
landi. Þá rikti þar Hinrik annar.
Kona hans var Elenóra af Aquit-
aine. Þau hjónin geta ekki komið
sér saman um það hvor sona
þeirra skuli erfa ríkið. Þeir eru
Ríkarður ljónshjarta og Jóhann
landlausi eins og þeir síðar voru
nefndir. Flestirmuna áreiðanlega
eftir þeim bræðrum úr sögunum
um Hróa hött.
Myndin fær mikið lof og fjórar
stjörnur i kvikmyndahandbók-
inni okkar. Sérlega er Katharine
Hepburn lofuð fyrir leik. sinn og
þau, hún og Peter O’Toole, eru
sögð vera aldeilis frábær í sam-
leik sínum sem elskendur sem þó
greinir á í skoðunum.
Sjónvarpið hefur gefið út þau
orð að Gamla ljónið sé ekki við
hæfi barna.
Þýðandi myndarinnar er Dóra
Hafsteinsdóttir. Hún ■ er
svört/hvít. Sýningartimi er 2
klukkustundir og 15 mínútur. DS.
Imbakassinn
(The groove tube)
„Brjálæðislega fyndin og
óskammfeilin”
Playboy.
„Framúrskarandi • og skemmst er
frá því að segja að svo til allt bíóið
sat i keng af hlátri myndina í
gegn.”
Vísir.
Aðalhlutverk: William Paxton,
Robert Fleishman. Leikstjóri:
Ken Shapiro.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Aymrrmrtrrm
(Whcrc Th« Nic« Guy» FlnUh Fir»t For A Chcnge.)
___ iwLNntrvi comjwvKj. mtsuín,
ERENCE HILL’ VALERIE PERRINE JMR.BILUON
/pick^^wÍLu^iitDnÉ^ouixwaií .nd JACkPgLEÆSON ..
Herra Billjón
íslenzkur texti.
Spennandi og gamansöm banda-
rfsV ævintýramynd um fátækan
Itala sem erfir mikil auðæfi eftir
rfkan frænda sinn í Ameríku
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Ben Húr
Ein frægasta og stórfenglegasta
kvikm.vnd allra tíma sem hlaut 11
óskarsverðlaun.
Nú sýnd með íslenzkum texta.
Sýndkl.3, 6 og 9.
Venjulegt verð, kr. 400.
Sími 11475
Útvarp í kvöld kl. 21,35: Samtal á sængurstokk
Mæðgur ræða um
jafnrétti kynjanna
—saga eftir f rægasta núlifandi smásagnahöf und
sænskumælandi Finna
„Sagan, greinir frá ungri konu
sem heimsækir móður sína á
sjúkrabeðið. Þær mæður taka að
ræða saman um lífið og tilveruna,
þar á meðal um jafnréttindabar-
áttu kynjanna,” sagði Guðrún Al-
freðsdóttir leikkona um sögu þá
sem hún les í útvarpinu i kvöld.
Sagan heitir Samtal á sængur-
stokk og er eftir Solveigu von
Schoultz. Hefst hún kl. 21.35 og
lýkurkl. 22.00.
„Móðirin er ekki alveg á sömu
skoðun og dóttirin um stöðu kynj-
anna. Hún vill meina að það sé
ekki nóg fyrir konur að hafa sömu
laun og karlar. Til þess að vera
frjálsar megi þær ekki heldur
vera tilfinningalega bundnar
neinum. Móðirin virðist þannig
nokkuð djúphyggnari en dóttir-
in.“ sagði Guðrún Alfreðsdóttir.
Til þess að fræðast nokkuð um
höfund sögunnar höfðum við sam-
band við séra Sigurjón Guðjóns-
son fyrrverandi prófast sem þýtt
hefur söguna. Hann sagði að Sol-
veig von Sehoultz væri einn allra
frægasti núlifandi smásagnahöf-
undur sænskumælandi Finna.
Hún er systir Lennards Seger-
strále sem er mjög frægur finnsk-
ur málari og gerði meðal annars
fresku þá sem er í kirkjunni í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Maður Solveigar er ekki síður
frægur og það fyrir tónlist. Hann
heitir Erik Bergman og er bæði
tónskáld og flytjandi. Hann hefur
komið hingað til lands með
Muntra Musikanterne þeim
fræga finnska karlakór sem hann
stjórnar. Solveig kom einnig hing-
að í fyrrasumar og þá fóru þau
séra Sigurjón og kona hans með
hana vitt um sveitir meðal annars
til Saurbæjar.
Auk smásagnanna hefur Sol-
veig samið töluvert af ljóðum.
Leikrit hafa einnig verið gerð eft-
ir sögum hennar en að sögn séra
Sigurjóns er það auðvelt verk þar
sem þær eru svo mikið f samtals-
formi. Áður hafa nokkrar af sög-
um Solveigar verið lesnar í út-
varpi, allar í þýðingu séra
Sigurjóns.
Laugardagur
12.25 Veóurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Sígild tónlist úr ýmsum Attum.
15.30 „Fótatak þoirra, sem framhjá
ganga". smAsaga eftir Harald A. Sig-
urðsson. Knútur R. Magnússon les.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Létt tónlist.
17.00 Enskukennsla; —annar þéttur i
tengslum við kennslu l sjðnvarpi.
17.30 Við norðurtorún Vatnajökuls.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnír. Dagskrð kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Reykjavíkurskýrsla Jökuls Jakobs-
souar.
20.05 Pianótónleikar: Marcalle Mercender
leikur verk eftir Joseph Jongen.
20.30 Októberdagar á Akurevri 1931.
21.00 Pianótríó nr. 3 í c-moll op. 1 nr. 3
eftir Boethoven.
21.35 „Samtal á snngurstokk", smásaga
eftir Solveigu von Schoultz. Sigurjón
Guðjónsson islenzkaði. Guðrún Al-
freðsdóttir leikkona les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. DagskrArlok.
^ Sjónvarp
Laugardagur
16.30 iþróttir. Umsjónarmaður Bjarm
Felixson.
18.15 On We Go. Fnskukennsla Annar
þáttur endurfluttur.
1^8.30 Rokkveita ríkisins Hljómsveitin
Celsius. Áður á dagskrá 2. febrúar
1977.
19.00 Enska knattspyman.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagakrá.
20.30 Undir sama þaki. Islenzkur fram-
haldsmyndaflokkur 1 sex þðttum eftir
Björn Bjömsson,, Egil Eðvarðsson og
Hrafn Gunnlaugsson. 3. þðttur. Hjarta-
gosinn. Þðtturinn verður endur-
sýndur miðvikudaginn 19. október.
20.55 Gyðja holdi klaadd. Aströlsk
heimildamynd um sérstæða gyðju-
dýrkun i Nepal I Himalajafjöllum.
Gyðjan nefnist Kumari. Hún er vand-
Iega valin úr hópi þriggja tjl fjögurra
ára meybarna og tignuð, uns hún nær
kynþroska. Þýðandi og þulur Krist-
mann Eiðsson.
21.45 Gamia Ijóniö (The Lion in Winter)
Bandarísk bíómynd frð ðrinu 1968.
Leikstjðri Anthony Harvey. Aðalhlut-
verk Peter O’Toole og Katharine
Hepburn. Hinrik annar Englands-
konungur og Elinóra drottning hans
geta ekki orðið ásðtt um, hvor sona
þeirra, Ríkharður Ijónshjarta eða
Jóhann landlausi. eigi að erfa konung-
dóm. Myndin er ekki við hæfi barna.
Þýðandi Dðra Hafsteinsdóttir.
23.50 Dagskráriok.
Útvarp
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. OKTOBER 1977.
Sjónvarp
Frjálsar ástir
Djörf og skemmtileg frönsk lit-
mynd um sérkennilega ástar-
flækju lítillar fjölskyldu.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Ofbeldi beitt
Hörkuspennandi sakamálamynd
með Oharles Bronson, Jill
Ireland og Telly Savalas.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 5.
Bönnuð börnum.
The Streetf ighter
Jlll Ireland Strothcr Marttn
Islenzkur texti.
Hörkuspennandi ný amerísk
kvikmynd í litum.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. -
Bönnuð börnum innan 14 ára.
HÁSKÓLABÍÓ
Sími 22140
Heiður hersveitarinnar
Frábærlega vel leikin og skraut-
leg litmynd. frá þeim tíma, er
Bretar réðu Indlandi.
íslenzkur texti.
Aðalhlutverk Michael York, Rich-
ard Attenborough, Trevor Ho-
ward.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
STJÖRNUBÍÓ
The Streetfighter
It was tough in the streets,
but Bronson was tougher
LAUGARÁSBÍÓ
Svarta Emanuelle
HAFNARBÍO
Sfmi 16444
Eddie og Suzanne
Spennandi ný norsk cinemascope-
litmynd um misskilda unglinga og
hörkulegan eltingaleik. Aðalleik-
urar. Sverre Horge, Yvonne
Sparrbáge, Lauritz Falk. Leik-
stjðri Arild Kristo.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3. 5, 7. 9 og í 1.
Ný, djörf itölsk kvikmynd um
ævintýri svarta kvenljósmyndar-
ans Emanuelle í Afríku.
tsl. texti.
Aðalhlutverk: Karin Schubert og
Angelo Infanti.
Leikstjóri: Albert Thomas.
Sýndkl. 5, 7, 9ogll.
Stranglega bönnuð börnum innan
16 ára.
Charles Bronson
James Coburn
HREVnLL
Sími 8-55-22