Dagblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER1977.
STEFNT AÐ STORMOTIUMFI
Á SELFOSSINÆSTA SUMAR
„Hcimamenn á Selfossi og for-
ráðamenn hrcppsins hafa sýnt
mótshaidinu mikinn áhuga og eru
mjög jákvæðir gagnvart því.
Standa vonir til að aðstaða öll á
Selfossi verði góð og í mörgum
tilfellum ágæt. Stórt íþróttahús
er þar í smíðum og verður allt
kapp lagt á að Ijúka því og raunar
er það algjör nauðsyn að það
takist,“ sagði Jóhannes Sig-
mundsson, þegar hlaðið ræddi við
hann. Jóhannes er formaður
landsmótsnefndar, sem mun hafa
yfirumsjón með 16. landsmóti
Ungmennafélags tsiands. Það
verður haldið á Selfossi dagana
21.-23. júlí næsta sumar.
Síðasta landsmót UMFl var
haldið á Akranesi 1975 við góðan
orðstír og landsmótin eru yfirleitt
haldin á þriggja ára fresti. Fyrir-
hugað hafði verið að landsmótið
1978 færi fram á Dalvík en á sl.
ári varð ljóst, að ekki mundi reyn-
ast unnt að halda slíkt mót þar.
Aðstöðu skorti því ekki hafði
tekizt ^ð fá fjárveitingar til að
ljúka þeirri mannvirkjagerð, "sem
nauðsynleg þótti.
Um s.l. áramót var því leitað til
Héraðssambandsins Skarphéðins
og það beðið að taka að sér að
halda mótið. A héraðsþingi Skarp-
héðins, sem haldið var á Hellu í
febrúarlok var svo samþykkt að
HSK tæki að sér mótshaldið og að
mótið yrði haldið á Selfossi.
Skömmu síðar tilnefndi stjórn
H.S.K. eftirtalda menn í lands-
mótsnefnd, Jóhannes Sigmunds-
son, Hjört Jóhannsson, Gísla
Magnússon og Má Sigurðsson.
Fulltrúi UMFt í nefndinni er
Hafsteinn Þorvaldsson. Formaður
nefndarinnar er Jóhannes
Sigmundsson.
Nefndin hefur þegar haldið
allmarga fundi og rætt við ýmsa
aðila.
Iþróttamannvirkin eru öl! á
sama svæðinu og er að því mikið'
hagræði.
Geta má þess, að golfvöllur
Selfyssinga er skammt frá
íþróttavöllunum og verður golf
væntanlega sýningaríþrótt á
landsmótinu, Ennfremur júdó.
Þá verða sýningar í fimleikum
og þjóðdönsum og fleiru.
Nefna má einnig frímerkja-
sýningu og rætt hefur verið um að
gefa áhugaleikflokkum tækifæri
til að koma með leikþætti til
sýningar landsmótsdagana. Ýmis-
legt fleira er a döfinni.
Mótið er stigakeppni milli
héraðssambanda og félaga innan
UMFÍ. og er ekki að efa að keppni
verður hörð og spennandi. Á
landsmótinu á Akranesi var mjög
jöfn og spennandi keppni um
efsta sætið milli HSK. og UMSK
og sigruðu hinir síðarnefndu með
þriggja stiga mun en áður hafði
HSK sigrað á 9 mótum í röð. Þá
hafa og ýms önnur sambönd
mikinn hug á að blanda sér í
baráttuna.
Keppt verður í 15 greinum
karla og 11 greinum kvenna í
frjálsum íþróttum.
Þá verður keppt í 9 sund-
greinum karla og kvenna. Enn-
fremur í glímu í þremur þyngdar-
flokkum. Keppt verður í knatt-
spyrnu karla, handknattleik
kvenna, körfuknattleik og blaki
karla og borðtennis.
Ennfremur verður keppt í
eftirtöldum greinum starfsíþrótta
í einum aldursflokki jafnt konur
sem karlar:
Lagt á borð, hestadómar, starfs-
hlaup, dráttarvélarakstur, jurta-
greining og linubeiting.
Undankeppni er lokið í knatt-
spyrnu og handknattleik. í knatt-
spyrnu komust eftirtalin lið
áfram: UMSK, HSH HSÞ, UÍA,
HSKog UMFK.
í handknattleik komust þessi
lið áfram: HSÞ, UMSK. Umf.
Grindavík. og Umf. Njarðvíkur.
Einnig mun fara fram undan-
keppni í körfuknattleik og blaki.
Þá fer fram úrslitakeppni skák-
þings UMFÍ.
Ekki hefur gengið átaka- eða
erfiðislaust að ákveða hvaða daga
landsmótið skuli haldið í þetta
sinn.
Á fyrstu fundum landsmóts-
nefndar var ákveðið að mótið
skyldi haldið 7.—9. júlí. Nokkru
síðar spurðist að hestamenn
stefndu að þvl að halda landsmót
sitt að Skógarhólum þessa sömu
helgi. Allir voru sammála um að
ekki kæmi til mála að þessi tvö
stóru iandsmót yrðu sömu
helgina. Eftir nokkrar viðræður
milli hestamanna og ungmenna-
félaga samdist um það, að hesta-
menn færðu sitt mót aftur um
eina viku en ungmennafélagar
héldu sitt landsmót um mánaða -
mótin júní—júlí.
Þetta þótti ýmsum of snemmt
og nú í lok októbermán. barst
landsmótsnefnd bréf frá Selfoss-
hreppi þar sem eindregið var
óskað eftir því að landsmótið yrði
flutt til síðari hluta júlimánaðar,
einkum vegna þess að tími væri
mjög knappur til að koma þeim
íþróttamannvirkjum, sem í bygg-
ingu væru, í nothæft ástand.
A þetta sjónarmið féllst
nefndin og ákvað að mótið yrði
28—30. júlí. Nokkrum dögum
síðar kom svo í ljós, að svonefnd
Kalottkeppni í frjálsum íþróttum
yrði haldin þá helgi. Þar sem
líkur eru til að sumt bezta frjáls-
íþróttafólkið innan UMFI yrði
sent til þeirrar keppni varð að
breyta dagsetningu enn og nú til
21.—23. júlí.
Er það von landsmótsnefndar
að þessi tími reynist heppilegur
fyrir sem flesta og að tíð verði góð
í júlímánuði og veðrið þó albest
helgina sem landsmót UMFÍ
verður haldið.
Nú fást sérstakar möppur fyrir
MYNDASÖGIJBLAÐIÐ
í miðri Viku.
Þær fást 1 afgreiðslu Vikunnar,
verhoiti 11 og kosta kr. 800.- hver.
appa send í póstkröfu kostar hún
kr. 1.120.-.
Enn brást út-
hald Leiknis!
— en Valsmenn voru þó heppnir
að ná jafntef li
íslandsmeistarar Vals — án landsliðs-
manna sinna — voru heppnir að ná jafntefli
gegn 2. deildarliði Leiknis úr Breiðholtinu á
Reykjavíkurmótinu í gær. Þegar s.h. var
rúmlega hálfnaður hafði Leiknir fjögur
mörk yfir, 17—13, en eins og oft áður brást
úthald Leiknismanna lokakaflann. Valur
komst meira að segja yfir 20-19, en Hafliði
Pétursson skoraði lokamarkið. Jafntefli 20-
20.
Fimm mín. fyrir leikslok kom fyrir atvik,
sem miklu breytti. Hörður Sigmarsson
skoraði fallegt mark fyrir Leikni en eftir að
knötturinn var kominn i markið flautaði
dóniarinn Davíð Jónsson. Benti ekki á miðj-
una — heldur dæmdi vítakast á Val. Þá brást
Herði bogalistin — og Valsmenn komust yfir
á næstu mín. Valsmenn, nýkomnir frá
Evrópuleiknum, léku þokkalegan framan af.
Komust í 12-8 en Leiknir skoraði svo síðustu
fimm mörkin í f.h. Hafði yfir 13-12 í leikhléi.
Mörk Leiknir skoruðu Hafliði 9, Hörður 5,
Asmundur Kristinsson, 3, Árni Jóhannesson
2 og Finnbjörn Finnbjörnsson eitt. Fyrir Val
skoruðu Stefán Gunnarsson 9, Gísli Blöndal
4, Bjarni Jónsson 3, Björn Björnsson 2 og
Steindór Gunnarsson 2.
Egyptaland ekki á
HM íhandbolta
Handknattleikssamband Danmerkur til-
kynnti í gær, að Egyptaland hefði hætt við
þátttöku í heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik. Egyptar, sigurvegarar í Afríku-
riðli í HM, sendu símskeyti í gær og
tilkynntu að þeir mundu ekki keppa á HM
aðeins degi eftir að þeir höfðu staðfest þátt-
töku sína. Danir hafa tilkynnt Handknatt-
leikssambandi Afríku að það verði að
tilkynna aðra þátttökuþjóð frá Afríku fyrir
sunnudag annars bjóði Danir Frakklandi
þátttökuréttinn.
Egyptar stungu upp á að Túnis tæki sæti
þeirra á HM en alþjóðahandknattleikssam-
bandið hefur sett leikbann á Túnis vegna
þess, að á heimsmeistaramóti unglinga i
Svíþjóð í fyrra neitaði Túnis að leika við
ísrael.
Egyptaland átti að leika í riðli með
Rúmeníu, Ungverjalandi og Austur-
Þýzkalandi á HM.
Heimsmet
Sovétmaðurinn Jamaleidin
Parakov setti nýtt heimsmet í
jafnhendingu í létt-þungavigt í
Moskvu. Parakov lyfti 221 kílói.
KANARÍEYJAR
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER1977.
Sjötti tapleikurinn og markatalan í
landsleikjum versnaði um 37 mörk
íslenzka landsliðið í handknatt-
leik lék sjötta og síðasta landsleik
sinn í keppnisförinni til V-
Þýzkalands, PóIIands og Svi-
þjóðar í gær. Leikið var við Svía í
Málmey og sænska liðið vann
öruggan sigur, 20-14. Islenzku
landsliðsmennirnir koma heim í
dag eftir stranga för. Tapaði
öllum landsleikjunum og marka-
talan versnaði í landsleikjum
íslands um 37 mörk. V-Þjóðverjar
IR-ingar töpuðu sínum fyrsta
leik á Reykjavíkurmótinu í gær-
kvöld. Léku þá við Fram — og
lengi vel leit út fyrir stóran sigur
Fram í leiknum. En eins og svo
oft áður datt botninn úr Fram-
liðinu lokakafla leiksins. Sex
marka forusta hvarf nær alveg og
ÍR fékk tækifæri til að jafna á
lokasekúndunum en tókst ekki.
Fram sigraði 16-15.
Fyrri hálfleikurinn var ákaf-
lega slakur og leikmönnum lið-
anna gekk illa að finna leiðina í
unnu Island í tveimur landsleikj-
um með sjö marka mun, Pól-
verjar með 13 marka mun, og
Svíar í lokin með 17 marka mun í
tveimur leikjum.
Þessi för hefur því verið lítil
frægðarför enda reiknaði enginn
með góðum árangri. Landsliðið í
förinni nánast B-lið Islands og
lítill vandi að stilla upp íslenzku
liði gegn því, sem gæti sigrað það
með svipuðum mun og var í lands-
markið. Fram komst í 3-1 en IR
jafnaði og staðan í hálfleik var 5-4
fyrir Fram. Aðeins níu mörk
skoruð.
Framan af s.h. léku Framarar
vel og skoruðu fjögur fyrstu
mörkin, 9-4, en ÍR-ingar virtust
alveg heillum horfnir. Síðan
skiptust liðin á að skora og þegar
10. mín. voru til leiksloka hafði
Fram sex mörk yfir. En þá datt
botninn úr leik liðsins — en Ás-
geir Elíasson blómstraði í ÍR-
liðinu. Munurinn minnkaði — og
leikjunum ytra. Þarf ekki að líta
nema til þeirra leikmanna
íslenzkra, sem leika með er-
lendum liðum í því sambandi, auk
þeirra Geirs, Björgvins, Viggós,
sem ekki komust í utanförina
vegna meiðsla — og snjallra leik-
manna hér heima að öðru leyti
eins og Páls Björgvinssonar og
Stefáns Gunnarssonar. En það er
önnur saga — og alla vega hlýtur
mikill lærdómur að hafa fengizt í
þegar tæp mín. var eftir var eins
marks munur, 16-15. iR með
boltann síðustu 26 sekúndurnar
en tókst ekki að skora. Eftir þessi
úrslit hafa öll liðin á mótinu tapað
stigum.
Mörk Fram skoruðu Arnar
Guðlaugsson 5 (3 víti), Guðjón
Marteinsson 4, Gústaf Björnsson
3, Ragnar Hilmarsson 2, Sigur-
bergur Sigsteinsson og Jens Jens-
son eitt hvor. Fyrir ÍR skoruðu
Ásgeir 7, Bjarni Hákonarson 5,
Hörður Hákonarson 2 og Ölafur
Tómasson eitt.
þessari för. Það verður að gera
róttækar breytingar á skipan
islenzka landsliðshópsins ef ekki
á illa að fara i HM í Danmörku.
Framan af leiknum í gær stóð
Enski landsliðseinvaldurinn,
Ron Greenwood, hefur farið fram
á við enska knattspyrnusamband-
ið að samningur hans verði fram-
lengdur til næstu áramóta. Ekki
vildi hann segja blaðamönnum
hvort hann hefði hug á að haida
áfram eftir það. Enska knatt-
spyrnusambandið hefur ekki
tekið ákvörðun í málinu — en
hefur hug á að ræða við nokkra
menn um stöðuna.
Vestur-þýzka knatt-
spyrnufélagið Schalke vonast til
að ráða sænska lands-
liðsmanninn.Lennart Larsson frá
Hamstad, til sín í dag. Hefur'
boðið Svíanum 400.000 mörk eða
um 38 milljónir ísl. króna. Lars-
son er 24 ára framvörður.
íslenzka landsliðið vel í Svíum.
Hafði í upphafi yfir — síðan 7-6 í
f.h. en staðan í hálfleik var jöfn
8-8. I sJi. keyrðú Svíarnir upp
hraðann og skoruðu þá tólf mörk
gegn sex mörkum íslands. Nær
helmingurinn af mörkum tslands
í leiknum var skoraður úr víta-
köstum. Lokatölur 20-14.
Mörk íslands í leiknum
skoruðu Jón Karlsson 7 — sex úr
vítaköstum — Ólafur Einarsson 4,
Þorbergur Aðalsteinsson, Birgir
Jóhannesson, Fram, og Árni
Indriðason eitt hver. Það hefur
vakið athygli, að aðeins fjórir
leikmenn, Jón, Olafur, Þorbergur
og Þorbjörn Guðmundsson, hafa
skorað nær öll mörk tslands í
keppnisförinni. Aðrir varla
komizt á blað.
hsím.
Létt hjá
stúdentum
Stúdentar unnu auðveldan
sigur á Ármanni í islandsmótinu
í körfuknattleik í gærkvöld — ÍS
sigraði með 99 stigum gegn 73.
Bandaríkjamaðurinn Dirk
Dunbar lék að nýju með ÍS eftir
meiðsli og var liðinu mikill
styrkur, þó langt sé frá því að
hann sé orðinn heill.
Það var aðeins í byrjun, sem
Armann veitti ÍS einhverja mót-
spyrnu. Skoraði reyndar fjögur
fyrstu stigin, en síðan seig ÍS
framúr. Komst í 30-19 og staðari í
hálfleik 42-35. I s.h. juku stúdent-
ar muninn í 26 stig.
Flest stig ÍS skoraði Bjarni
Gunnar 21. Dunbar var með 20
stig, Jón Héðinsson 19, Ingi
Stefánsson 14, Guðni Kolbeinsson
7 — en aðrir færri. Hjá
Ármenningum skoraði Björn
Christiansen mest eða 24 stig.
Mike Wood var með 18 stig, Jón
Björgvinsson 14, Atli Arason 13
og Guðmundur Sigurðsson fjögur.
Alþjóðlegt júdómót í Reykjavík um helgina:
Keppendur frá fimm löndum
Opna skandinavíska meistara-
mótið 1977 verður haldið hér í
Reykjavík um helgina, og verður
keppt í Laugardalshöllinni bæði á
laugardag og sunnudag. Þetta er
fyrsta alþjóðlega júdómótið sem
háð er hér á landi, þ.e. mót sem
allir löglegir aðilar Alþjóða-
júdósambandsins mega taka þátt
í. Fyrir tveimur árum var hins
vegar haldið hér Norðurlandamót
í júdó sem þótti takast mjög vel.
Opna skandinavíska mótið er
haldið árlega til skiptis á Norður-
löndunum, og stendur Júdóasam-
band Norðurlanda að mótinu eins
og Norðurlandamótunum.
Keppendur á mótinu verða frá
5 Iöndum: Danmörku, Sviþjóð,
ísrael, Japan og Islandi. íslenzku
keppendurnir eru 20 að tölu.
Sérstaka athygli vekur sjö
manna hópur ísraelsmanna sem
kominn er hingað um langan veg
til að taka þátt í mótinu.
Keppt verður í öllum sjö þyngd-
arflokkum á mótinu. Verður
keppni í fjórum léttari
flokkunum á laugardag og í
hinum þremur þyngstu á sunnu-
da§-
A íaugardags hefst keppnin kl.
10 árdegis og verður keppt
sleitulaust til kl. 12 Síðan verður
hlé til klukkan tvö, en þá hefst
keppnin á ný.
Á sunnudag hefst keppni kl. 2
síðdegis.
Yfirdómari ' á mótinu verður
Manfred Jiirs, alþjóðadómari frá
Vestur-Þýzkalandi.
Um helgina og eftir helgi
verður haldið dómaranámskeið á
vegum Júdósambands tslands þar
sem verða um 20 þátttakendur.
Kennari á námskeiðinu verður
sænski alþjóðadómarinn Karl
Wöst.
FYRSTITAPLEIKUR ÍR-INGA
FLUCFÉLAC
LSLANDS
LOFMIDIR
Eins og undanfarin ár bjóðum við viku og tveggja vikna
ferðir til Kitzbuhel og St. Anton í Austurríki á verði
frá 69.900 og 80.900 krónum. Þeir sem veljatveggja
vikna ferðii; geta dvalið viku á hvorum stað ef þeir
kjósa heldur. Og nu er éinnig hægt að velja um gistingu
í fjallaskála eða á hóteli.
Brekkur eru þar jafnt fyrir byrjendur sem þá, sem betri
eru. Otivera í snjó og sól allan daginn, og þegar heim
er komið bíður hvíld, góður kvöldmatur og rólegt
kvöld við upprifjun á ævintýrum dagsins eða upplyfting
á skemmtistað, allt eftir óskum hvers og eins.
Flogið er frá Keflavíkurflugvelli til Luxemborgar og
þaðan til Múnchen. Frá Munchen er síðan ekið á
áfangastað, um 2ja til 3ja stunda akstur.
Austurrísku alparnir eru draumsýn allra skíðamanna -
við látum drauminn rætast fyrir verð sem þú raeður við.
Skíðafólk leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum okkar,
umboðsmönnum og ferðaskrlfstofum.
v