Dagblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 24
Srjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 18. NÖV. 1977.
Hækkun álagningar veldur
2-3 prósent verðhækkunum
Hækkun álagningar nú
veldur aö jafnaði 2-3 prósent
verðhækkunum á vörum al-
mennt öðrum en, fyrst um sinn,
landbúnaðarvörum og þeim
sem eru með ák'veðnu hámarks-
verði.
Álagning hækkar um 10 af
hundraði bæði í heildsölu og
smásölu sem þýðir að 10%
heildsöluálagning verður 11%
og 25% smásöluálagning
verður 27,5%. Sé dæmi tekið
um að vara kosti 100 krónur í
innkaupi leiddi 10% álagning í
heildsölu og 25% í smásölu
áður til þess, að verðið varð 165
krónur þegar 20 prósenta
söluskattur hafði verið lagður
ofan á. Við breytinguna nú
kostar þessi sama vara út úr
búð 170 krónur, sem er þrjú
prósent verðhækkun.
Aiagningin er yfirleitt
heldur minni en þetta, svo að
tala má um milli tvö og þrjú
prósent verðhækkun á vörum
almennt. Það gildir þó ekki, að
svo stöddu, um búvörur og
vörur með hámarksverði.
Meirihluti verðlagsnefndar
taldi aðleiðréttingarhefði verið,
þörf. Álagning i prósentum var
lækkuð samfara gengis-
fellingum í september 1974 og
febrúar 1975. Þessar lækkanir
voru bættar að nokkru í apríl
1975, en síðan hefur álagning í
prósentum verið nokkurn
veginn óbreytt.
Minnihlutinn, þrír fulltriiar
ASI og fulltrúar BSRB, voru
hækkuninni andvígir.
•HH.
Hreyf ing aftur
ásölu
loðnumjöls
50 hringnóta
bátar fylltu
kvóta sinn
26 eru enn að glíma við
200tonna kvótann
Það gengur erfiðlega hjá þeim
bátum sem veiða síld í hringnót
að fylla upp í þann kvóta sem
þeim er heimilt samkvæmt leyfi
sjávarútvegsráðuneytisins. Samt
er alltaf einn og einn bátur að
landa og þannig smásaxa á
skammtinn, sagði Jón B. Jónsson
fulltrúi í ráðuneytinu í símtali við
DR
Það voru 83 bátar sem sóttu um
leyfi til síldveiða í hringnót en af
þeim hófu aldrei veiðar, nema
76 bátar. Uni 50 þessara báta eru
búnir að fylla upp í kvótann sem
var 200 tonn á bát.
26 eru enn að en gæftir hafa
óft verið erfiðar að undanförnu.
Akveðið hafði verið að hætta síld-
veiðunum 15. nóv. því reynsla
undanfarinna ára er sú að eftir
þann tíma er síldin orðin léleg.
Nú var síldin hins vegar seinna á
ferðinni og því var heimilað að
bátarnir mættu vera að til 27. nóv.
Frá fiskifræðilegu sjónarmiði var
ekkert við slíkt að athuga.
-ASt.
Torkennilegt fólk á ferli ímiðbænum:
ÁSTANDSMEYJAR, GÍSLI
0G ERLENDUR SVEINN
„Jess of kors spík æ einglís,"
Ekki bar á öðru en að ástands-
meyjar lifðu upp liðna tíð, er
tveir sóldátar birtust skyndi-
lega í hundslappadrífunni í
miðbænum i gær. Ekki var þó
um eiginlega innrás að ræða að
þessu sinni, heldur var þar á
ferðinni Gfsli Rúnar Jónsson
leikari af guðs náð að auglýsa
nýja hljómplötu sína/ „Blessað
stríðið, sem gerði syni mína
ríka“. Sér til aðstoðar fékk Gísli
nokkrar glaðlegar stúlkur og
einnig var Erlendur Sveinn
Hermannsson þarna á vappi.
A plötu sinni lofsyngur Gísli
Rúnar hernámsárin, sem hann
telur reyndar að sé ekki lokið
ennþá. Honum tekst þar að
draga allt það skoplegasta fram
í dagsljósið og bregður sér í
allra stríðskvikinda líki.
ÁT/DB-mynd: Bjarnleifur.
FANGINN KVEIKTI
í DYNU SINNI
—og þöttist vera dauður
Allmikill tilflutningur fanga
varð í Reykjavík í gær eftir að
fanga á Skólavörðustíg hafði
tekizt að kveikja í dýnu sinni.
Jafnframt skaut hann rúmbálki
sínum fyrir dyr klefans og reyndi
á allan hátt að hindra björgunar-
menn í að komast inn. Þegar
inngangan tókst lá fanginn á
klefagólfi og þóttist dauður. Var
hann að vonum búinn að gleypa
mikinn reyk. Hann og tveir aðrir
voru fluttir til skoðunar í slysa-
deild en 5 aðrir fangar í fanga-
geymslur á Hverfisgötu og síðar í,
Síðumúlafangelsið.
Eftir skoðun bættust þeir þrír
sem til skoðunar voru fluttir í
fangaklefa í Síðumúla. Var þar
óvenju fjölmennt meðan loftað
var út úr Hegningarhúsinu.
ASt.
„Við seldum á þriðjudag 3100
tonn af loðnumjöli eftir lægð
undanfarinna vikna í sölu,“ sagði
Kristinn Baldursson, hjá Sfld-
arverksmiðjum ríkisins við DB.
„Þrátt fyrir að verð á sojamjöli
hafi lækkað mjög undanfarið og
bein tengsl hafi ávallt verið milli
sojamjöls og loðnumjöls, virðast
þessi tengsl hafa rofnað í sumar
vegna minna framboðs af mjöli.
Yfirleitt hefur framleiðslan
minnkað, und^ntekningin þar er
Island sem eitt hefur aukið fram-
leiðslu sína,“ sagði Kristinn enn-
fremur.
Birgðir af loðnumjöli voru um
síðustu mánaðamót um 21 þúsund
tonn og mun um helmingur
loðnubirgðanna vera hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins.
Verðið fyrir loðnumjölið hefur
verið gott, um 7 Bandaríkjadalir á
próteineiningu, og hefur það:
hækkað nokkuð síðustu vikur
þrátt fyrir verðfall á loðnumjöli.
„Salan virðist koma I gusum,“
sagði Kristinn, „þegar einn fer af
stað virðast aðrir fylgja eftir en
hvert framhaldið verður, bæði
hvað verð og sölu snertir, er
ómögulegt að spá um.“
h.halls.
Fimm sjónvarpsstöövar sameinast um verkefni:
Paradísarheimt kvikmynduð á
íslandi, í Utah og Danmörku
„Ahuginn á að kvikmynda
Paradísarheimt Halldórs
Laxness fyrir sjónvarp er
mikill, en málið er þó enn á
viðræðu- og samningsstigi,"
sagði Pétur Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins í
vitali við DB. „Gert er ráð fyrir
því að sjónvarpsstöðvar fimm
þjóða standi að kvikmyndinni.
Verður Nord Deutsche Rund-
funk þar Iangstærsti aðili og
yfirgnæfandi. Auk þeirra koma
svo til með að standa að þessu
íslenzka sjónvarpið, það sænska
og það norska og einnig er nú
talað um danska sjónvarpið."
Pétur sagði að hluti verksins
yrði kvikmyndaður hér á landi
en einnig yrði myndað í Utah
og í Danmörku.
„Málin eru þó öll enn á
umræðustigi," sagði Pétúr
„Handrit kvikmyndarinnar
liggur enn ekki fyrir, en það
semur Rolf Hadrick, sá hinn
sami og gerði handrit að
Brekkukotsannál."
Pétur sagði að ekki væri víst
hvort öllum undirbúningi
miðaði svo að kvikmyndun gæti
farið fram næsta sumar, en þó
væri stefnt að þvi.
-ASt.
Vextirhækka:
Víxilvextir í 20 % %
Seðlabankinn ákveður vaxta-
hækkun á fundi seinna í dag.
Sennilega verður hækkunin um
þrjú prós,ent, þannig að almennir
víxilvextir af nýjum lánum fari úr
1714% í 2014%.
Raunverulegir vextir af víxlum
eru þó hærri. Þannig eru lögð á
stimpilgjöld og fleira, sem valda,
að þessir vextir hafa í reyndinni
verið um 21 prósent og mundu því
hækka í 24 prósent.
Vextir af vaxtaaukalánum
verða líklega nálægt 30 prósent
eftir hækkunina, og aðrir vextir
eiga að hækka um nálægt þremur
af hundraði.
•HH.
Tveim Konicavélum stolið
Búast má við því að einhverjum
verði í dag boðnar til sölu Konica-
myndavélar. Tvær slíkar hurfu úr
kjallaraíbúð að Sóleyjargötu 19
og hefur rannsóknarlögreglan
fengið málið til meðferðar. Annað
innbrot var framið á Seltjarnar-
nesi en þar er ekki saknað annars
en 3000 króna.
ASt.