Dagblaðið - 07.02.1978, Page 1
4. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR 1978. — 32. TBU. . RITSTJORN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞÝERHOLTl 11. — AÐALSÍIVU 27022.
—jTöríákstafrartátuTvéÍa^ana^b^deenPt-
FA enga fyrirgreiðslu
í SKOZKIIHÖFNINNI
Þorlákshafnarbáturinn
ölduberg AR-18 liggur nú í
höfn í Aberdeen i Skotlandi og
fær ekki viðgerð, að því er DB
hefur fregnað. Sex af þrettán
skipverjum eru enn um borð í
skipinu í Skotlandi en sjö komu
heim sl. föstudagskvöld. Hafa
skipverjarnir enga fyrir-
greiðslu fengið í Aberdeen,
ekki einu sinni Ioforð um að
kóma skipinu i slipp — þar sem
engin önnur verkefni bjða.
Það var á sunnudagskvöldið
29. janúar, þegar öldubergið
var á leið úr söluferð til
Cuxhaven í Þýzkalandi, að
bilun varð í skrúfu skipsins og
gat það ekki lengur siglt fyrir
eigin vélarafli. Eftir nokkra
stund bar að brezkan dráttar-
bát, sem dró öldubergið 150
mílur til hafnar í Aberdeen, og
var komið þangað á þriðjudags-
kvöld.
Hafa skipverjar verið þar
síðan að mestu í reiðileysi, eins
og frásagnarmaður DB orðaði
það. Hafði einn skipverja við
orð, að eini munurinn á að vera
í höfn í Skotlandi og því að hafa
rekið úti á reginhafi, væri sá að
minni sjógangur væri í
höfninni.
Hefur nú orðið úr að dráttar-
báturinn Goði, sem ætlað var að
færi til Svíþjóðar f morgun með
Sigurð RE í togi, haldi þaðan til
Aberdeen og sæki öldubergið,
sem er 148 tonna stálbátur.
I morgun héldu eiginkonur
eigenda skipsins, sem eru með
þvi í Aberdeen, utan ásamt
fulltrúa tryggingafélags þess
hér heima. -ÓV.
*
Sú bezta erlenda
íCannes 76:
ÚRSKURÐUÐ
KLÁM HÉR
Saksóknari 'og rannsóknarlög-
reglustjóri ríkisins hafa kveðið
upp úrskurð um að bezta erlenda
kvikmyndin í Cannes 1976 sé
klám. Myndin nefnist á íslenzku
Veldi tilfinninganna og er gerð i
Japan. Sýna átti myndina I
Háskólabíói í dag á vegum Kvik-
i.iyndahátíðar 1978.
í tilkynningu, sem fram-
kvæmdastjórn Listahátíðar ■ í
Reykjavík barst frá Þórði Björns-
syni ríkissaksóknara og Hallvarði
Einvarðssyni rannsóknar-
lögreglustjóra, segir að sýning á
kvikmyndinni Veldi tilfinning-
anna varði við 210. grein
hegningarlaganna, eins og hún sé
túlkuð í dag. I henni segir meðal
annars:
„ — Sömu refsingu (þ.e. allt að
6 mánaða fangelsi innskot DB)
varðar það að búa til eða flytja
inn I útbreiðsluskyni, selja, út-
býta eða dreifa á annan hátt út
klámritum, klámmyndum eða
öðrum slíkum hlutum, eða hafa
þá opinberlega til sýnis, svo og að
efna til opinbers fyrirlestrar, eða
leiks, sem er ósiðlegur á sama
hátt.“
í tilkynningu, sem Listahátíð I
Reykjavfk sendi fjölmiðlum I
gær, segir að sýningar á Veldi
tilfinninganna hafi af þessum
sökum verið stöðvuð.
EKKIFEITT—EKKIFEITT—SPRENGIDAGURIDAG
Ekki feitt, ekki feitt segja
frúrnar gjarnan þegar þær eru
að kaupa saltkjötið sitt tii
sprengidagsins. Þess vegna er
lika sjálfsagt að ieyfa þeim að
velja sjálfar eins og gert var í
Víði í Starmýrinni í gær.
I dag er sprengidagur og þá
borða menn yfir sig af saltkjöti
og baunum. I dag á kjötið að
vera magurt en einu sinni viidi
Islendingar helzt af öllu gæða
sér á spikfeitu kjöti. DB-mynd
Ragnar Th.
A'.Bj.
Dauðaslys á loðnumiðunum eystra
Veldi tilfinninganna þykir
mörgum, sem séð hafa, allgróf
kvikmynd. Framkvæmdastjóri
eíns kvikmyndahússins í Reykja-
vík tjáði Dagblaðinu að hefði
hann tekið myndina til sýninga
hefði hann ekki séð sér fært að
láta klippa hana sjaldnar en
ellefu til tólf sinnum.
Kvikmyndahátíðin sýnir I dag
kl. 7 myndina Sæt mynd í stað
japönsku verðlaunamyndarinnar.
Verður það sfðasta sýning
myndarinnar.
AT
Dauðaslys varð á loðnumiðun-
um í morgun. Einn af áhöfn
Eldborgar GK 13 hlaut höfuð-
högg og þó allt væri gert sem
unnt væri manninum til
bjargar varð það án árangurs.
Hann lézt um borð í rann-
sóknarskipinu Arna Friðriks-
syni á sjöunda tímanum.
Það var um kl. 6 í morgun að
slysið varð. Hlaut hinn látni
höfuðhögg en með hverjum
hætti er ekki vitað. Var sam-
stundis beðið um aðstoð frá
landi og hinn særði var fluttur
um borð I Arna Friðriksson.
Slysavarnafélag tslands
gerði þegar í stað ráðstafanir til
sjúkraflugs út á miðin og var
þyrla tilbúin til flugtaks kl.
6.42. Um það leyti var hjálpar-
beiðnin afturkölluð frá Árna
Friðrikssyni því þá var sjó-
maðurinn látinn.
Slysið varð á miðunum um
50-60 mflur austur af L.anga-
nesi. ASt.
í 20 kvalaf ullar mínútur mátti
áhorfandinn horfaá
■ ■
sóðaskapinnflista-
hátfðarkvikmyndinni
— sjá lesendabréf á siðum 2-3
Hinar hroðalegu afleiðingar
umferðarslysanna:
Man ekki síðustu
10-15 árineftirað
hann lentiíslysi
— sjá baksíðu
Þulirnirhældu
Sigurðiá
hvert reipi
— sjá íþróttir
íopnu
Hverjir
eru þeir
gleymdu
íþjóð-
félaginu?
Það eru þeir sem þurfa að
dvelja á stofnunum eins og
t.d. Skálatúni, Kópavogs-
hæli, Sólheimum og fleiri
sllkum. Almenningur vill
helzt ekki vita af því að
þetta fólk sé til. Það er helzt
ekki minnzt á það I umræð-
um. Nú stendur til að hrinda
af stað heilmikilli fjár-
söfnun til þess m.a. að gleðja
þetta fólk. Sjá bls. 8.