Dagblaðið - 24.02.1978, Qupperneq 1
A
l
I
:i. Arg. - - FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR 1978 — 42. TBL. ‘ritstjörn sidumula 12. AltGLYSINGAR OG AFGRKIDSLA ÞVERIIOLTI 11. — AÐALS ÍMI 27022.
f
Fyrstuaðgerðir
launþega-
samtakanna:
Verzlunarmanna
félagReykjavíkur
ekki með
ölöglegt allsherjar-
verkfall 1. og 2. marz
„Þeir fá þá nóg aö gera ef
þeir ætla aö láta dæma okkur
fyrir ólöglegt verkfall," sagði
ónafngreindur verkalýðsleið-
togi í viðtali við Dagblaðið í
morgun. Hann sagði að
launþegasamtökin stefndu að
ólöglegu allsherjarverkfalli
næstkomandi miðviku- og
fimmtudag, 1. og 2. marz.
Gert er ráð fyrir, að þetta
verði niðurstaða fundar mið-
stjórnar ASl um hádegið í dag.
„Þetta verða aðeins fyrstu að-
gerðir okkar,“ sagði þessi for-
ystumaður. Bandaiag starfs-
manna ríkis og bæja og Far-
manna og fiskimannasam-
bandið munu standa að þessu
ásamt ASl en þetta er enn í
athugun hjá Bandalagi háskóla-
manna. Ætlunin er að stöðva
atvinnulífið þessa daga, þótt að-
gerðirnar séu ólöglegar, þar
sem samningar renna ekki út
fyrr en 1. apríl. Flest öll verka-
lýðsfélög landsins hafa sagt
upp samningum. Launþegasam-
tökin hafa síðustu daga haldið
svæðaráðstefnur um landið og
þar verið einhugur um harðar
aðgerðir.
Eftir allsherjarverkfallið
verða sennilega skyndiverkföll
á ýmsum stöðum. „Við förum
ekki fram á neitt annað en að
staðið sé við þá samninga sem
voru undirritaðir," sagði for-
ystumaðurinn.
■ Greinilegt er, að forystu-
menn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur eru ekki á þátt-
töku. f hinum ólöglegu aðgerð-
um. „Forystumenn VR munu
ekki hvetja einn eða neinn til
ólöglegra aðgerða," sagði
Magnús L. Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri VR, í morgun.
„Það verður mál hvers og eins.
hvort hann gerir það.“ Hins
végar taldi Magnús, að VR
mundi segja upp samningum og
yrði það samþykkt á félags-
fundi á mánudag. Trúnaðar-
mannaráð mun bera fram til-
lögu um það. I því felst að sjálf-
sögðu andstaða við Guðmund
H. Garðarsson, formann félags-
ins, sem stóð á Alþingi að sam-
þykkt stjórnarfrumvarpsins
sem öll lætin eru út af.
- HH
Banaði eigin-
manni sínum
í rifrildi
Heiftarlegu rifrildi ungra
hjóna sem voru að skilja lyktaði
með manndrápi aðfaranótt sl.
sunnudags.
Það var um kl. hálf tvö um
nóttina að hringt var frá Skóla-
vörðustíg 21 A, og beðið um
sjúkrabíl. Þegar komið var á stað-
inn kom í l.jós- að þar var ungur
maður með hnífsstungu i brjósti.
Var hann þegar fiuttur á gjör-
gæzludeild Borgarspítalans þar
sem hann lést eftir tvo tíma.
Hann hét Arelius Viggósson.
fæddur 2. október 1955.
Eiginkona hans. Jenny Grettis-
dóttir. f. 24. mars 1952. var flutt
til yfirhevrslu hjá lögreglunni og
játaði hún þegar að hafa veitt
Areliusi hnífsstunguna. Sagði
hún svo frá. að þau hefðu hitzt á
dansleik þá um kvöldið og farið
síðan heim þar sem þau bjuggu
áður saman. til að ræða sín mál.
Kom 1i! deilu á milli þeirra og
lyktaði henni þannig. að Jenný
greip hníf .og lagði til Areliusar.
Hringdi hún síðan á sjúkrabíl.
þegar henni varð ljóst hversu
alvarleg stungan var.
Jennv Gréttisdóttir var úr-
skurðuð til að sæta gæzluvarð-
haldi í allt að 60 daga og jafn-
framt gert að gangast undir geð-
rannsókn.
OV
Tillögur um nýja landbún-
aðarstefnu
Magnús Finnsson, leiðtogi blaðamáhna i k^arádeilunni. þakkar
sáttasemjara rikisins. Torfa Hjartarsyni, fyrir hans þátt i lausn
deilunnar snemma í morgun. — DB-mynd R.Th. Sig.
Blaðamenn og útgefendur
sömdu í morgun
— og dagblöðin koma aftur eftir
vikuhlé—BAKSÍÐA
'í þessu húsi var voðaverkið framið um síðustu helgi. DB-mvnd Bjarnleifur.
Kraf la í fyrsta gír
af níu mögulegum
— sjá bls. 6
Er ekkert lengur í leynum
á milli karls og konu?
— sjá lesendabréf á bls. 2 og 3
Carter hótar að stoppa
kolaverkfallið
V-Þjóðverjar eyða mest
allra erlendis
— sjá erl. fréttir á bls. 4 og 5
„Ríkið” í fréttum:
Gerðuaðsúg
að vínbúðinni
-sjábls.6
Óð gegnum
hurð á vínbúð
— baksíða
Sífellt girnast nætur-
hrafnar vörurnar í „ríkinu".
Rúða er brotin en þá kveður
við þjófabjöllukerfi hússins.
‘Fljótlega var búið aö negla
fvrir brotnu rúðuna.
I