Dagblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978.
7
KSnnun á gæðum páskaeggja:
„Brjóstsykurinn þrælgóður
og endist ævilangfT
— Nói þótti langbeztur en
Víkingur fylgdi fast á eftir
Nú eru páskarnir ekki langt
undan og eitt sem tilheyrir þeim
eru páskaeggin, sem jafnan eru á
boðstólum nokkrar vikur fyrir
páska. DB fór á stúfana og keypti
nokkur páskaegg í viðurkenndri
stórverzlun. Þar voru eggin vegin
á nákvæma vog og vigtin skrifuð
niður. Ætlunin var að athuga
hvernig verðinu væri háttað,
hvaða stærð af eggjum gefi ,,mest
af eggi“ og hvernig tegundirnar
bragðast.
Við kevptum sex egg, tvö sem
talizt geta i ,,stærri“ flokknum.
annað frá Crystal og hitt frá Vík-
ingi, síðan þrjú egg af millistærð,
frá Nóa. Milka (reyndist vera frá
Víkingi) og eitt ómerkt (reyndist
vera frá Crystal) og síðan eitt
mjög litið frá Nóa.
I ljós kom að verð eggjanna
miðað við þyngd var mjög svipað.
Þó voru minnstu eggin örlítið
ódýrari en þau stærstu en
munurinn var svo lítill að hann er
ekki umtalsverður.
Súkkulaðið í eggjunum var
nokkuð mismunándi en blaða-
mönnum sem brögðuðu skipulega
á öllum eggjunum kom saman um
ANNA
BJARNASON
að Nóa-eggið væri langbezt. Hins
vegar var Víkingseggið í öðru
sæti hvað bragð snerti. Sömu-
leiðis hafði það einnig mest að
geyma, enda líka langstærsta
eggið. Súkkulaðið í Crystalseggj-
unum þótti bera of mikinn keim
af kakói, og býsna líkt bragð af
konfektmolunum sem voru inni í
egginu. Málshættir voru i öllum
eggjunum.
ÍJtlit eggjanna var mjög álika.
Unginn á einu egginu frá Milka
(Víkingi) reyndist ætur.
,,Toppsúkkulaði,“ sagði einn
blm. um stærra Crystal eggið.
•..Dálítið kakóbragð af súkkulað-
inu en konfektið ágætt," sagði
annar um sama eggið.
„Ofsagott súkkulaði," sagði
einn um Nóa-eggin. ,,Þetta er lík-
lega það bezta.“ sagði annar.
„Gott súkkulaði,“ ^sagði einn
blm. um Víkingseggið. „Agætis
egg, en súkkulaðið full bragð-
dauft,“ sagði annar um sama
eggið. „Brjóstsykurinn er þræl-
góður og endist ævilangt,“ sagði
einn um brjósts.vkurinn í Víkings-
egginu.
Það er þvi greinilegt að smekk-
urinn á páskaeggjum er eins mis-
munandi og mennirnir eru marg-
ir.
Hér fer á eftir tafla yfir verð og
þyngd eggjanna. Innihald þeirra
má sjá á meðfvlgjandi mvndum.
- A.Bj.
Þvngd Verd Verð pr.
gramm 11
Crvstal 350 gr. 1.676 4.78
Vikingur 300 gr. 1.443 4,81
Ómerkt (Crvstal) 200 gr. 933 4,66 'O
Nói — 3 — 150 gr. 697 4,64
Milka (Víkingur) 120 gr. 527 4,39 m
Nói — 2 — 80 gr. 354 4,42 iim
Þarna eru eggin sem við kevptum áður en þeim var slátrað.
SjáHstæðisflokkurínn á Sauðárkróki:
AÐEINS EITT FRAMBOÐ BARST
22 hafa veríð tilnefndir af kjörstjórn
Innihald eggja var dáiítið mismunandi. Eins og vera ber er auðvitað
mest i stærstu eggjunum. Það var áherandi meira í Víkingsegginu en
því frá Crvstal, sem var þó 50 g þvngra. 1 Crvstalsegginu voru hins
vegar átta konfektmolar.
DB-mvndir Bjarnleifur.
Ætli þetta sé ekki almennt
áhugaleysi, það geta ekki nema
forstjórar og framkvæmdastjórar
staðið I þessu," sagði Haraldur
Friðriksson, formaður kjörnefnd-
ar Sjálfstæðisflokksins á Sauðár-
V króki, i viðtali við Dagblaðið. en
. þar gengur erfiðlega að koma
saman framboðslista fyrir próf-
kjör vegna bæjarstjórnarkosnfng-
anna i vor.
„Það barst aðeins eitt framboð
fyrir tilsettan tíma,“ sagði Har-
aldur ennfremur. „Við höfum nú
gripið til þess ráðs að tilnefna 22
menn og er verið að bíða eftir
skriflegu samþykki þeirra.“
Akveðið hefur verið að efna til
prófkjörsins dagana 1. og 2. apríl
og sagði Haraldur að þeir von-
uðust til að svör þeirra, sem til-
nefndir hefðu verið, bærust fyrir
næstu helgi, enda væri lítill tími
til stefnu.
- HP
ÞÓRIR ER EKKISÁ ÞÓRIR
Þórir Jónsson forstjóri hafði
samband við blaðið og sagðist
ekki vera sá Þórir Jónsson sem er
á lista þeim er DB birti i gær og
skráður er í Reykjavlk. I fvrsta
lagi byggi hann í Garðabæ og í
öðru lagi ætti hann enga peninga
á erlendum bankareikningum.
- HP
VORUBILAR
BENZ
1623 M/BÚKKA ÁRG. ’68.
1519 ÁRG. 71-73.
1418 ÁRG. ’65-’67.
1413 ÁRG. ’66-’69.
V0LV0
485 OG 495 0G TITAN, ÝMSAR
ÁRG
F 86 2JA ÖXLA ÁRG. 1974.
F 88 M/BÚKKA ÁRG. '67-74.
SCANIA
75 SUP. M/BÚKKA ÁRG. '62
76 SUP. M/BÚKKA ÁRG. '65 67.
80 SUP. ÁRG. ’69 >g 74.
110 SUP. ÁRG. 71-74.
140 SUP. ÁRG. 74.
M.A.N.
19.230 HA 3JA ÖXLA FRAMD&
15.200 ÁRG. 1972 M.]KRANA ÁRG. 74.
9.186 FÁRG. ’69.
9.186 HA, FRAMDRIF, ÁRG 70.
9.168 FÁRG. 73.
VINNUVÉLA- & VÖRUBIFREIÐASALA.
VAGNHÖFÐA 3 REYKJAVÍK.
SÍMI 85265.
rJÖLDI ANNARRA BIFREIÐA Á SÖLUSKRÁ. STÓRT SÝN-
INGARSVÆÐI. SKOÐUNAR- OG VIÐGERÐARÞJÓNUSTA.
DRÁTTARVAGNAR — BEIZLISVAGNAR — PALLAR OG
GRJÓTPALLAR. EINNIG BÍLKRANAR AF ÝMSUM STÆRÐ-
UM.
EINNIG MIKIÐ ÚRVAL AF ÝMSUM GERÐUM OG TEGUNDUM
VINNUVÉLA.