Dagblaðið - 29.03.1978, Síða 5

Dagblaðið - 29.03.1978, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978. 5 SÖKNUÐUR — í minningu söngvara Mérfihnst ég varla heill né hálfur madur og heldur ósjálfbjarga því er ver Ef værir þú hjá mér, vild'égglaður verða betri en ég er. Svo kvað Vilhjálmur Vilhjálmsson um vin sinn og starfsfélaga, Jón Heið- berg flugmann, sem fórst í þyrluslysi fyrir tæpu ári. Þessar Ijóðlinur rifjuð- ust óhjákvæmilega upp þegar lát Vilhjálms í Lusemburg spurðist hingað heim. Vegna kunnugleika síns i Luxem- burg var Vilhjálmur fenginn til að lið- sinna íslenzkum ferðahópi sem þurfti að hafa viðkomu þar á leið sinni frá ísrael um siðustu helgi. Undanfarna mánuði hafði hann unnið á vegum Arnarflugs i Afríku sem aðstoðar- flugmaður. Aðeins þrír mánuðir voru þangað til hann átti að fá starfið, sem hann hafði lengi dreymt um, flug- stjórastöðu. Annað viðfangsefni beið hans einnig: að syngja vinsælustu lögin sín inn á hljómplötu, — lög sem öll þjóðin þekkir og hefur raulað með við ólíkustu tækifæri. En þá var tekið í taumana. Söngferill Vilhjálms Vilhjálmssonar hófst á menntaskólaárum hans á Akureyri. Siðar gekk hann til liðs við Ingimar Eydal og söng nokkur lög inn á hljómplötur með hljómsveit hans. Sem dæmi um vinsæl lög með Vil- hjálmi og Hljómsveit Ingimars Eydal má nefna Litla sæta Ijúfan góða og Vor í Vaglaskógi. Textann við hið siðarnefnda gerði Kristján skáld frá Djúpalæk. Síðar söng Vilhjálmur inn á heila plötu lög við texta Kristjáns. Að loknu stúdentsprófi frá MA kenndi Vilhjálmur einn vetur á Akur- eyri og einnig stundaði hann blaða- mennsku um tima. En loks lá leiðin suður og i Háskólann. Þar nam hann læknisfræði í tvo vetur, en leizt ekki á fagið. Jafnframt söng Vilhjálmur með hljómsveit Magnúsar Ingimars- sonar og síðar með Haukum og hljóm- sveit' Ólafs Gauks. Þar með lauk hljómsveitarferlinum en frá árinu 1969 er hann söng með Ólafi Gauki á Hótel Borg komu út með honum all- margar plötur. Á sumum söng hann einn, á öðrum með Ellý systur sinni. Að aðalstarfi var Vilhjálmur Vil- hjálmsson þó flugmaður. Hann vann um margra ára skeið sem flugmaður i Luxemburg og eignaðist þar marga vini. Radio Luxemburg minntist hans i gærmorgun, daginn eftir umferðar- slysið. — Eftir að heim kom starfaði hann hjá Flugleigu Sverris Þórodds- sonar, Flugskóla Helga Jónssonar og siðast hjá Arnarflugi. — Þá var Vil- hjálmur meðeigandi i Hljómplötuút- gáfunni hf. og virkur stjórnarmaður þar. Við kynntumst Vilhjálmi fyrst og fremst sem söngvara. Ekki þarf að tiunda hæfileika hans á þvi sviði. — þjóðin öll þekkir rödd hans. En hann var mikið meira en röddin, — vinur vina sinna og skilningsríkur með af brigðum. Kímnigáfu átti hann einnig i rikum mæli og var allra manna kát- astur i gleðistúndum. Þar sat bó ekki gáloahúmorinn i fyrirrúmi, heldur nett kimni og græskulaus. Við sem viljum telja okkur til vina Vilhjálms Vilhjálmssonar minnumst hans með trega og söknuði. Ein sinn verða allir menn að deyja ejiir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma,það. en sanu ég verð að segja að sumarið liðurallt oj fljótl. Dagblaðið sendir eiginkonu Vilhjálms, Þóru Guðmundsdóttur. börnum hans, foreldrununt i Merki nesi og ættingjum öllum innilegar samúðarkveðjur. ÁT—HP—ÓV. AðalfundurVerzlunarbankans: Vaxtaaukinn blífur Innlán í Verzlunarbankanum jukust í fyrra meira en við var búizt eða um rúman milljarð í fyrsta skipti. Aukning- in varð 33,6 af hundraði og langmest i vaxtaaukainnlánunum, tæplega 79 af hundraði. Vaxtaaukainnlánin voru um ára- mótin 15,6 af hundraði af öllum spari- innlánunum. Útlánin jukust hins vegar aðeins um 23,3 af hundraði, sem varð þó heldur meira en samkomulag við Seðlabank- ann gerði ráð fyrir. Útlán með vaxta- auka jukust mikið, úr 5 prósentum af öllum útlánum upp í 11,9 prósent. Innstæður Verzlunarbankans í Seðla- bankanum námu um áramótin 1093 milljónum. Þar af var bundin innstæða um 925 milljónir. 1 heild batnaði staða bankans gagnvart Seðlabankanum um rúmar436milljónir. Verzlunarlánasjóður vinnur að lang- mestu leyti með lánsfé, aðallega frá Lifeyrissjóði verzlunarmanna, sem lagði í sjóðinn 150 milljónir á síðasta ári. Útlán sjóðsins námu i árslok um 597 milljónum og höfðu aukizt á árinu um 45,8 af hundraði. Aðalfundur bankans samþykkti að tvöfalda hlutafé hans með útgáfu jöfnunarhlutabréfa, þannig að það ykist úr 100 milljónum i 200 milljónir. Einnig samþykkli fundurinn aukningu hluta- fjár i 500 milljónir með innborgunum á árunum 1979-1981, 100 milljónir hvert árið. Þorvaldur Guðmundsson forstjóri, sem átt hefur sæti i stjórn bankans frá upphafi og gegnt þar formennsku um árabil, gaf ekki kost á sér til endurkjörs sem formaðuren situr áfram i bankaráð- inu.Pétur O. Nikulásson stórkaupmaður var kjörinn formaður bankaráðsins. Hluthöfunum verður greiddur 13% arður. HH Utvegsbankinn opnar á Nesinu „Seltjarnarneskaupstaður hefur stækkað mjög mikið siöustu árin og var orðin brýn nauðsyn á að bankaútibú yrði stofnsett þar," segir i tilkynningu fá Útvegsbankanum en bankinn hefur nú opnað útibú við Nesveg á Seltjarnar- nesi. Verður þar veitt öll innlend banka- þjónusta, auk þess sem það verður keyptur og seldur erlendur gjaldeyrir, veitt viðtaka inn- og útflutningsskjölum og bankaábyrgðir opnaðar. Við útibúið starfa fjórir starfsmenn en útibússtjóri verður Hilmar Gunnarsson, sem áður gegndi starfi féhirðis við Útvegsbankann i Kópavogi og er myndin af honum. DB-mynd Hörður v Mjallofiskur Morkið s«m vann haröfisknum nafn Mir Fœithjá: KJOTBUÐIN BORG ÆBrltmt rgjjljtffi Laugavegi. ^ •ÆTT'- Hjallur hf. - Sölusímí 23472 Þorvaldur Guðmundsson 1 Síld og Fisk, fráfarandi formaður Verzlunarbankans, og hinn nýkjörni formaður, Pétur O. Nikulásson stórkaupmaður. Öskum eftir fólki í eftirtalin störf: Deildarstjóra í ýmsar greinar sérvara. Afgreiðslustörf í matvörubúðum. Skrifstofustörf, bókhald, tollskjöl, verðútreikningar. Upplýsingará skrifstofu KRON, Laugavegi 91r kl. 10-12 næstu daga ekki í sfma. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.