Dagblaðið - 14.04.1978, Page 1

Dagblaðið - 14.04.1978, Page 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRlL 1978. 15 HVAÐ ER A SEYÐI UM HELGINA? Sjá miðopnu SJONVARP NÆSTU VIKU ^ Sjónvarp Laugardagur 15. apríl , 16.30 íþróttir. Umsjónarmaöur Bjarni Felixson. 17.45 Skiðaæfingar (L) Þýskur myndaflokkur. Tólfti þáttur. Þýðandi Eiríkur Haraldsson. 18.15 On We Go. Enskukennsla. 22. þáttur endursýndur. 18.30 Skýjum ofar (L). Sænskur sjónvarps- myndaflokkur í sex þáttum um þrjú börn, sem komast yfir sérkennilega flugvél. Með hjálp imyndunaraflsins geta þau flogið hvert sem þau vilja. 2. þáttur. Flóttamadurinn Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 19.00 Enska knattspyrnan (L). Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Á vorkvöldi (L). Umsjónarmenn Ólafur Ragnarsson ogTage Ammendrup. 21.20 Fjórir dansar. Félagar úr islenska dans- flokknum sýna dansa við tónlist eftir Asafiev, Tsjaikovský, Katsjatúrian og Spilverk þjóð- anna. Ballettmeistari Natalie Konjus. Frá syningu i Þjóðleikhúsinu i febrúar 1977. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.40 Afmælisveislan (L). iThe Bir'hday Party) Bandarisk biómynd frá árinu l%L byggð á samnefnduleikriti eftir Harold Pinter. Leik stjóri William Friedkin. Aðalhlutverk Robert Shaw, Dandy Nichols, Patrick Magee og Sydney Tafler. Leikurinn gerist á sóðalegu gistiheimili i Englandi. Miðaldra kona rekur heimilið og hefur einn leigjanda, Stanley að nafni. Tveir menn, sem virðast þekkja Stanley, falast eftir herbergi. Þýðandi Heba Július- dóttir. 23.40 Dagskrárlok. Sunnudagur 16. apríl 18.00 Stundin okkar (L). Umsjónarmaður Ásdís Emilsdóttir. Kynnir ásamt henni Jóhanna Kristin Jónsdóttir. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 19.00 Skákfræðsla (L). Leiðbeinandi Friðrik Ólafsson. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Húsfélagsfundur (L). Þessum þætti er einkum ætlað að leiðbeina óvönu fólki i fundarsköpum. Sýnt er, hvernig stýra má fundi, svo að sem styistur timi fari i hvert mál- efni, en þau hljóti þó öll afgreiðslu. Fundur þessi er húsfélagsfundur, en að sjálfsögðu gilda sömu reglur um alla aðra fundi, þar sem stjórnaö er eftir almennum fundarsköpum. Þáttur þessi er gerður i samvinnu við félaga í Junior Chamber Reykjavik. og eru þeir fundarmenn. Stjórn upptöku örn Harðarson. 21.00 Húsbændur og hjú (L). Breskur mynda- flokkur. Vandi fylgir vegsemd hverri. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 2I.50 Jasshátiðin í Pori (L). Þáttur frá tónleik- um. sem hljómsveitin Art Blakey's Jazz Messengers hélt á jasshátiðinni i Pori i Finn- landi sumarið 1977. Þýðandi Kristin Mántylá. (Nordvision — Finnskasjónvarpið). 22.25 Að kvöldi dags (L). Séra Kristján Róberts- son. sóknarprestur í Kirkjuhvolsprestakalli i Rangárvallaprófastsdæmi. flytur hugvekju. 22.35 Dagskrárlok. Sjónvarpfösudaginn21. apríl: „Vínarferöin” SKEMMTIFERÐ A STRÍÐSÁRUM Vinkonurnar tvær láta sig dreyma um lystisemdir lífsins. Vinarferðin eðá „Die Reise nach Wien ” nefnist nýleg, þýzk bíómynd, sem verður á dagskrá sjónvarpsins föstudaginn 21. april kl. 22.00. Myndin hefst er heimsstyrjöldin síðari stendur sem hæst árið 1943. í litlu þorpi í Rínardalnum búa tvær ungar konur sem leiðist alveg óskap- lega mikið, vegna þess að eiginmenn þeirra eru staddir á vígstöðvunum, eins og flestir aðrir karlmenn þorpsins. Þær láta sig dreyma um allar lysti- semdir lífsins. En ekki liður á löngu þar til draumarnir einir nægja þeim ekki lengur. Þær ákveðg þvi að gera eitihvað i málunum og leggja upp í skemmtiferð til Vinarborgar. Vafa- laust verður þessi skemmtiferð á styrjaldarárum nokkuð söguleg og vafalaust fer margt á annan veg en ætlað var í upphafi. Með aðalhlutverkin fara Elke Sommer, Mario Adorf og Hannelore Elsner, en leikstjóri er Edgar Reitz. Myndin, sem er einnar klukku- stundar og fjörutiu minútna löng, er í -litum og þýðandi er Kristrún Þórðar- dóttir. RK Mánudagur 17. apríl 20.00 Fréítir og veður. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 21.00 Lloyd George þekkti pabba (L). Breskt sjónvarpsleikrit. Aðalhlutverk Celia Johnson og Roland Culver. Leikurinn gerist á óðali Boothroyd lávarðar og konu hans. Ákveðiö hefur verið að leggja veg yfir landareignina, og lafðin tilkynnir, að hún muni stytta sér aldur. verði af vegagerð. Þýðandi Óskar lngimars. 21.50 Njósnarínn mikli (L). Bresk heimildamynd um Rcinhardt Gehlen, einn æðsta yfirmann leyniþjónustu Þjóðverja í siðari heimsstyrjöld- inni. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 22.40 Dagskrárlok. Þriðjudagur 18. apríl 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Pólitiskur brennidepill í Noröur-íshafi (L). Sænsk heimildamynd um Svalbarða, þar sem eru fimm byggðakjarnar án vegasambands. Lýst er hinni sérstæðu þjóðréttarlegu stöðu eyjunnar. sem Norðmenn ráða, og umsvifum Sovétmanna þar. Þýðandi og þulur Eiður Guðnason. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). 21.I0 Sjónhending (L). Erlendar myndir og mál- efni. Umsjónarmaður Sonja Diego. 21.30 Serpico(L). Bandariskur sakamálamynda- flokkur. í skugga dauðans. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 22.20 íþróttir (L). Umsjónarmaður Bjarni Felix- son. 22.50 Dagskrárlok. Miðvikudagur 19. apríl 18.00 Ævintýri sótarans (L). Tékknesk leik- brúðumynd. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóitir. 18.10 Drengur í Bangkok (L). Sænsk mynd um ungan dreng í Bangkok i Tailandi. Móðir hans er ekkja og á niu börn. Drengirnir vinna fyrir sér á ýmsan hátt, svo sem með sölumennsku á götum úti. Þýðandi og þulur óskar Ingimárs- son. (N^rdvision — Sænska sjónvarpiö). I8.40 Hér sé stuð (L). Hljómsveitin Fjörefni A+ skemmtir. Stjórn upptöku Egill Eðvarðs- son. J9.05 On We Go. Enskukennsla. 23. þáttur I9.20 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 „Hver rífur svo langan fisk úr roði?” Jón Hermannsson og Þrándur Thoroddsen gerðu þessa kvikmynd eftir þjóðsögunni alkunnu. 20.40 Nýjasta tækni og vísindi (L). Umsjónar- maður Sigurður H. Richter. 2l.l0 Charles Dickens (L). Leikinn, breskur myndaflokkur i þrettán þáttum um ævi Dickens. 3. þáttur Sverta. Efni annars þáttar: Lánardrottnarnir gera John Dickens lífið leitt, og hann flyst ásamt fjölskyldu sinni til Lundúna. Charles langar að komast i skóla, en fjárhagurinn leyfir það ekki, því að Fanny systir hans á að fara í tónlistarskóla. Hann reynir að læra að komast af í stórborginni. John Dickens lærir litið af reynslunni. Enn safnar hann skuldum, og eymdartímar ganga í garð hjá fjölskyldunni. Þýðandi Jón O. Ed- wald. 22.00 „Alltaf vorar í sálinni á mér” (L). Sumri fagnað i sjónvarpssal. Bein útsending. Meðal þeirra, sem skemmta, eru Björgvin Halldórs- son, Björn R. Einarsson. Halli og Laddi. Linda Gísladóttir. Magnús Ingimarsson, Pálmi Gunnarsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. Kynnir Magnús Axelsson. Stjórn útsendingar RúnarGunnarsson. 23.00 Dagskrárlok. Föstudagur 21. apríl 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Prúðu leikararnir (L). Gestur í þessum þætti en tónlistarmaðurinn Elton John. Þýð- andi Þrándur Thoroddsen. 21.00 Kastijós (L). Þámir um innlend málefni. UmsjónarmaðurSigr. . Sielánsdóttir. 22.00 Vínarferðin (L). tDie Reise nach Wien). Nýleg. þýsk biómynd. Leikstjóri Edgar Reitz. Aðalhlutverk Elke Sommer. Mario Adorf og Hannelore Elsner. Sagan hefst vorið 1943 í Rinardal. í litlu þorpi búa tvær ungar konur. Eiginmenn þeirra eru á vigstöðvunum. Þær •dreymir um lystisemdir lífsins og leggja upp í skemmtiferð til Vinarborgar. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 23.40 Dagskrárlok. Laugardagur 22. apríl 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. I7.45 Skíðaæfingar (L). Þýskur myndaflokkur. Þrettándi og siðasti þáttur. Þýðandi Eiríkur Haraldsson. '8.15 On We Go. Enskúkennsla. 23. þáttur endursýndur. 18.30 Skýjúm ofar (L). Sænskur sjónvarps- myndaflokkur i sex þáttum. 3. þáttur. Eyði- evjan. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 19.00 Enska knattspyrnan (L). Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Á vorkvöldi (L). Umsjónarmenn Ólafur Ragnarsson og Tage Ammendrup. 2I.20 Þjóðgarður í Þýskalandi (L). Landslag og dýralíf í Berchtesgadenþjóðgarðinum i þýsku ölpunum. Þýðandi og þulur Óskar Ólafsson. 22.05 Undir fargi óttans (L). (Fear on Trial). Bandarísk sjónvarpsmynd. Aðalhlutverk George C. Scott og William Devane. Myndin er byggö á sönnum utburðum og gerist i Bandarikjunum á sjötta áratug aldarinnar. McCarthy-timabilinu. þegar mcvðursýkislegar kommúnistaofsóknir ná hámarki i landinu. • Þýðandi óskar lngimarsson'. 23.40 Dagskrárlok. Sjónvarp laugardaginn 22. apríl: „Undirfargi óttans” „Myndin fjallar um McCarthy-tima- bilið en á því timabili var alls konar fólk ofsótt, t.d. listamenn og fréttamenn," sagði Óskar Ingimarsson okkur, en hann þýðir myndina „Undir fargi óttans’’ sem er á dagskrá sjónvarpsins laugardaginn 22. apríl. Gerist myndin í Bandafíkjunum á 6. áratug aldarinnar, þegar komm- únistaofsóknir ná hámarki þar. John Henry Faulk er útvarpsfréttamaður og er hann ofsóttur eins og svo margir Móðursýkislegar kommúnistaofsóknir aðrir. Hann 'gefst þó ekki upp og berst eins og hann getur gegn þessum ofsókn- um. John H. Faulk er leikinn af William Devane, en það er sá hinn sami og lék Kennedy i myndinni um Kúbudeiluna. Lögfræðingur Faulks er leikinn af George C. Scott sem er vel kunnur leikari. Sagði Óskar að það kæmi fram að sumir leikaranna lékju sjálfa sig, þannig að myndin er að einhverju leyti byggð á sönnum atburðum. Myndin er einnar og háifrar klukkustundar löng og er í litum. RK. William Devane (til hægri) leikur ofsótta fréttamanninn, John Henry Faulk, en John Houseman leikur vin hans, Mike Collins.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.