Dagblaðið - 28.04.1978, Qupperneq 26

Dagblaðið - 28.04.1978, Qupperneq 26
30 1 GAMLA BIO Kyikinyndir FÖSTUDAGUR Austurbæjarbíó: Hringstiginn kl. 5, 7, 9. Bönnuð Kisulóra Skemmtilega djörf þýzk gamanmynd; í litum. íslenzkur texti Sýnd kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Nafnskírteini innan lóára. Bæjarbfó: Tuttugu og ein klukkustund í Miinchen kl. 9. Bönnuðbörnum. • Gamla bíó: Kisulóra kl. 5, 7, 9. Bönnuð innan 16 ára. NAFNSKÍRTEINI. Hafnarbíó: Einræðisherrann kl. 3, 5.30, 8.30, 11. Háskólabíó: Sigling hinna dæmdu kl. 5,9. Laugarásbíó: öfgar í Ameríku kl. 5, 9, 11. Innsbruck 1976, vetrarólympíiijeikarnir, kl. 7. Nýja bíó: Fyrirb-vðinn kl. 5, 7.10, 9.15. Bönnuð innan 16 ára. Regnboginn: A: The Reivers' kl. 3, 5, 7, 9, 11. B: Demantaránið mikla kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05, 11.05. C: Rýtingurinn kl. 3.10. 5.10 7.10, 9.10, 11.10. D: MANON kl. 3.15,5.15,7.15,9.15, 11.15. Stjörnubíó: Emanuelle I kl. 5, 7 9. Bönnuð innan 16 ára. Kaffivagninn Grandagarði Alls konar veitingar Opnar snemma — Lokarseint I1S9 Föstudagur 28. apríl 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar.Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Saga af Bróður Ylfing” eftir Friðrik Á Brekkan. Bolli Gústavsson les (II). 15.00 Miðdegistónleikar. György Sandor leikur á pianóSónölu nr. 1 i f-moll, op. I eftir Sergej Prokofjeff. Gervase de Peyer og Eric Parkin leika Fantaslu-sónötu fvrir klarínettu og píanó eftir John Ireland. Melu» tónlistarflokkurinn leikur Kvintett i A-dúr fyrir blásturshljóðfæri op. 43 eftir Carl Nielsen. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður- fregnir). 16.20 Popp. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Steini og Danni á öræfum” eftir Kristján Jóhannsson. Viðar Eggertsson les (6). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrákvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Viðfangsefni þjóðfélagsfræðinga. Stefán Ólafsson þjóðfélagsfræðingur flytur loka- erindi flokksins og fjallar um atvinnu- rannsóknir. 20.00 Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands I Háskólabiói kvöldið áður — fyrri hluti. Flytjandi með hljómsveitinni er Filharmóniu kórinn. Stjórnandi Martcinn H. Friðriksson. Einsöngvarar: Sieglindc Kahmann, Rut L. Magnússon, Sigurður Björnsson og Halldór Vilhelmsson. a. „Greniskógurinn” eftir Sigursvein D. Kristinsson (frumflutningr) b. Te Dcum eftir Zoltan Kodály. — Jón Múli Árnason kynnir tónleikana. 20.50 GestagtaggL Hnlli tWfB—|j|Éiy þætti um listir og menningarmál. 21.40 Ljóðsöngvar eftir Felix Mendelssohn. Peter Schreier syngur; Walter Olberts leikur á píanó. \ 22.05 Kvöldsagan: Ævisaga Sigurðar Ingjalds- sonar frá Balaskarði. Indriði G. Þorsteinsson les (3). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Valborgarmessa Valborgarmessuhátíð íslenzk-sænska félagsins verður haldin nk. sunnudagskvöld kl. 20.00 í Fáksheimilinu. Aðgöngumiðasala verður í Norræna húsinu í dag til kl. 19.00. Stjórnin Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykjavík vegna sveitarstjórnarkosninga 1978 hefst sunnudaginn 30. apríl nk. Kosið verður í Miðbæjarskólanum alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22, sunnudaga og helgidaga kl. 14—18. Mánudaginn 1. mai nk. verður aðeins kosið kl. 10— 12- Borgarfógetaembættið i Raykjavik Tjáningarfrelsi er ein meginforsenda þess að frelsi geti viðhaldist r ___ • S DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978 Útvarp Sjónvarp 9 Útvarpið í kvöld kl. 20,50: Gestagluggi Síðasti gestaglugginn Síðasti gestagluggi Huldu Valtýsdótt- ur er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 20,50. Sagðist Hulda m.a. ætla að ræða við Jónas Árnason um nýtt leikrit eftir hann Valmúinn springur út á nóttunni, en þetta leikrit er einmitt núna verið að æfa hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó. Þá mun hún ræða við Hrafn Gunnlaugsson framkvæmdastjóra Lista- hátíðar ’78 um listahátíðina í vor. Mun undirbúningur hennar vera þó nokkuð veláveg kominn. Einnig verður . rætt við Elvu Björk Gunnarsdóttur borgarbókavörð um Borgarbókasafnið en Elva hefur gegnt þessu starfi í 2—3 ár. Að síðustu les Hjörtur Pálsson Ijóð, sem hann velur sjálfur. Sagði Hulda þetta vera síðasta gesta- gluggann og að ekkert hefði enn verið um það talað hvort eitthvert framhald yrði á þeim þáttum síðar. Þættir Huldu hafa verið sérstaklega skemmtilegir og fróðlegir og munu væntanlega margir sakna þeirra og óska eftir áframhaldi síðar. Þátturinn er tæplega klukkustundar langur. RK Hulda Valtýsdóttir á lof skilið fýrir skemmtilega og fróölega þætti í út- varpinu í vetur. » > Útvarpið í kvöld kl. 20,00: Tónleikar Sinfóníunnar Sinfónían og Fílharmóraan Martcinn Hunger Friðriksson er stjórn- andi á hljómleikunum i kvöld kl. 20.00. Siðastliðinn fimmtudag voru haldnir tónleikar i Háskólabiói á vegum Sinfóniuhljómsveitar íslands og frum flutti Söngsveitin Filharmónia á þeim tónleikum þrjú verk undir stjórn Marteins Hunger Friðrikssonar. t kvöld kl. 20.00 fáum við að hlýða á fyrri hluta tónleikanna í útvarpinu og mun Jón Múli Árnason sjá um kynningu. Flutt verður verk eftir Sigursvein D. Kristinsson, Greniskógurinn, sem hann samdi árið 1974. Verkið er samið fyrir hljómsveit, baryton og kór við texta samnefnds kvæðis Stephans G. Stephanssonar. Þá verður einnig flutt Te Deum eftir Zoltan Kodály, sem samið ,ur I tilefni af því að 250 ár voru liðin frá frelsun Buda úr höndum Tyrkja. Áuk hlutverks kórsins, sem er mjög stór, eru fjórir einsöngvarar og stór hljómsveit. Verkið er sungið á latínu af þeim Sieglinde Kahmann, Rut L. Magnús- son, Sigurði Björnssyni og Halldóri Vilhelmssyni. Að síðustu verður flutt verk eftir Jóhannes Brahms, Sigurljóð (Triumplied), sem er hið viðamesta af þessum þremur verkum. Verkið er fyrir 8 radda kór, baryton og hljómsveit. Það er samið 1870—71 við texta úr opinberunarbókinni. Það hefur notið mikilla vinsælda en hefur að því er bezt er vitað aldrei verið hljóðritað á hljóm- plötu. Verkið er mjög stórt i sniðum og skiptist í þrjá kafla. Þessir tónleikar Sinfóníunnar og Fílharmóníunnar verða endurteknir laugardaginn 29. april kl. 14.30 í Há- skólabíói. -RK. Sjónvarpí kvöld kl. 20,35: Margtbýrí myrku djúpi FURÐUDÝRí ÚTHÖFUNUM „Myndin fjallar um rannsóknir brezkra visindamanna á sjávardýrum sem lifa í sjónum út af Grænhöfða i Atlantshafinu,” sagði Óskar Ingimars- son en hann er þýðandi og þulur heimildamyndarinnar Margt býr i myrku djúpi, sem er á dagskrá sjónvarpsins I kvöld kl. 20.35. Sagði Óskar að myndin hæfist á markaði i Corunna á Spáni, en þar eru seld alls kyns undarleg sjávardýr. Eftir heimsóknina ámarkað þennan fáum við síðan að sjá hvar þessi dýr eru veidd, hvernig þau eru veidd og hvernig þau líta út. Þar sem þessi dýr lifa á 1500- 2000 m dýpi eru notuð sérstök net til veiðanna sem ná svona langt niður. Margir af fiskunum eru útbúnir nokkurs konar Ijósabúnaði og fáum við að sjá hvernig hann er gerður. Þar sem hér er um að ræða mikið dýpi er ekki unnt að kafa alla leið niður k botn nema í köfunarkúlum, en þvi miður fáum við ekki að verða vitni að slíkri köfun í þessari mynd. Að undanförnu hefur ofurkapp verið lagt á könnun himingeimsins og oft ’leymist að verulegur hluti jarðar er ;nn ókannaður. Eru þessi undirdjúp og lifið í þeim við Grænhöfða gott dæmi um stað sem lítið sem ekkert hefur Eitt furðudýranna sem verða gerð' nánari skil i brezku fræðslumyndinni i sjónvarpinu i kvöld kl. 20.35. verið kannaður enn þá. Myndin er aðeins tæplega hálfrar klukkustundar löngogert litum. -RK. Sjónvarpí kvöld kl. 21,00: Kastljós Kröfluvirkjun er á dagskrá Kastljóss i kvöld kl. 21.00. Krafla 1 Kastljósi í kvöld verður rætt um Kröfluvirkjun í framhaldi af Kröflu- skýrslu iðnaðarráðherra, Gunnars Thoroddsens, en höfundur skýrslunnar er Júlíus Sólnes. 1 þessari 220 blaðsíðna löngu skýrslu kemur fram að áætlaður heildarkostnaður við Kröfluvirkjun er 11,2 milljarðar króna. 1 skýrslunni er einnig lögð á það áherzla að koma virkjuninni sem fyrst í rekstur til að bæta úr raforkuástandinu á Norður- landi. Einnig kemur þar fram að leita verður að nýju vinnslusvæði fyrir bor- anir til þess að afla þeirrar gufuorku sem nauðsynleg er. Hefur jafnvel komið til greina að hefja nýjar boranir í Náma- fjalli. Umsjónarmaður Kastljóss í kvöld er Ómar Ragnarsson og sagðist hann ætla að fá nokkra menn til spjalls við sig i sjónvarpssal. Meðal þeirra eru þeir Jón Sólnes og Vilmundur Gylfason. Einnig mun hann taka fólk tali á götum Reykja- víkur og Akureyrar og spyrja það álits á Kröfluvirkjun og áframhaldandi aðgerð- um þar. Þátturinn er I litum óg einnar klukku- stundar langur. RK

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.