Dagblaðið - 28.04.1978, Síða 28
Eldhúsdagsumræðurnar f gærkvöldi:
..Efnahagsmálin verður
að taka fastari tökum”
— sagði Ólafur Jóhannesson
— skattaf rumvarpið tefst enn vegna ágreinings f stjórnarflokkunum
..Efnahagsmálin verður að taka
fastari tökum en hingað til hefur verið
gert og beita að sumu leyti nýjum
ráðum,” sagði Ólafur Jðhannesson
ráðherra i eldhúsdagsumræðunum í
útvarpi í gærkvöld. „Við þurfum á
þjóðarsátt að halda," sagði Geir Hall-
grimsson forsætisráðherra.
I ræðu Magnúsar Torfa Ólafssonar
(Samtökunum) kom fram. að
ágreiningur innan stjórnarflokkanna
hefur enn tafið framgang skattafrum
varpsins nú síðustu daga.
Forsætisráðherra sagði, að verk-
fallsaðgerðirnar sem nú standa yfir.
sköðuðu fyrst og fremst þá, sem að
þeim standa, og svo þjóðarheildina.
Karvel Pálmason (Samtökunum) taldi
gagnaðgerðir verkalýðssamtakanna
ekki hafa verið meðsem æskilegustum
hætti.
vinnuleysis, ef rekstrarhalli rikisins
hefði verið þurrkaður út.
Matthías Á. Mathiesen fjármála-
ráðherra kvaðst viðurkenna. að
skuldasöfnun rikisins siðustu ár hefði
neikvæð áhrif og væri verðbólguhvetj-
andi. Hins vegar þyrftu menn að
athuga. hvort ekki hefði leitt til at-
17 milljarðar
í Kröflu
Sighvatur Björgvinsson (A) sagði að
Krafla hefði hingað til kostað 17 mill-
jarða, eða álíka mikið og næmi öllum
tekjuskattinum. Hann hvatti til, að
ríkisstjórn og verkalýðssamtök gerðu
með sér kjarasáttmála. Gylfi Þ. Gisla-
son (A) sagði, að ný siðgæðisvitund
þyrfti að koma til og efla yrði sam-
vinnu og samstöðu í þjóðfélaginu. 1
ræðu forsætisráðherra kom frant. að
hann hefur undanfarna daga rætt við
fulltrúa verkafólks og vinnuveitenda
um möguleika á kjarabótum til hinna
lægstlaunuðu, að hans sögn. Ólafur
Jóhannesson sagði. að taka þyrfti upp
hóflegri lifnaðarhætti, bæði hjá hinu
opinbera og einstaklingum. Ragnar
Amalds (AB) sagði, að afkomu fjölda
bænda væri nú teflt i tvisýnu með
1000 króna bakreikningum fyrir
hvern dilk.
HH
frfálst, nháð dagblað
FÖSTIJDAGIJR 28. APRÍL 1978.
„Álverið
hefur oft
samið
óháð
öðrunT
sagðiSnorri
Jónssoní
morgun ogtelur
ekki um tíma-
mótasamninga
að ræða
„Þetta fyrirtæki virðist oft áður hafa
santið.svolitið óháð þvi. sem gerzt hefur
almennt,” sagði Snorri Jónsson, vara-
forseti Alþýðusantbandsins. i ntorgun
um samningána i Straumsvik. Hann
vildi fara varlega i að kalla þá tintamóta-
samninga en lagði áherzlu á að ánægju-
legt væri að þar hefði fengizt kauphækk-
un ofan á samninga.
Straumsvikursamningarnir munu
vera. með þeint hætti að upp er bælt
verðbótaskerðingin siðustu mánuði með
kauphækkunum. Siðar á að lita nánar á
verðbótaskerðinguna, sem verður á
næstu mánuðum.
Tiu manna nefnd Alþýðusambands-
ins ræðir við vinnuveitendur i dag
kiukkan þrjú.
- HH
KETTIR ÆTTU AÐ HAFA BJOLLUR UM VARPTIMANN
Litlir kettlingar eru einhver failegustu dýr sem hægt er aó hugsa sér, en þvi miöur vaxa þeir úr grasi og veróa aö stórum og
stundum grimmum köttum sem veiða litla fugia sem geta enga björg sér veitt Það ætti að krefjast þess að allir kettir hefðu
bjöllu um hálsinn, að minnsta kosti á vorin um varptimann og þangað til aUir ungar eru orðnir fleygir. A.Bj.
DB-mynd Guðjón Pálsson.
Orkustofnun:
■ ■
TIMAKAUP EBA UPPSOGN
Orkumálastjóri hefur beðið þrjáfíu af
starfsmönnum sínum, lausráðnum. að
skrifa undir timakaupssamning við
stofnuna til I. ágúst næstkomandi, en
eiga á hættu að verða sagt upp störfum
frá og með sama tíma ella, skv. upplýs-
ingum DB.
Þetta gerðist á fundi sem Jakob
Björnsson orkumálastjóri hélt með
starfsfólki sínu í gær.
Mest er hér um að ræða fólk sem
tekur laun éftir BHM-samningunum við
ríkið — jarðfræðingar. verkfræðingar og
tæknifræðingar.
Orkustofnun hefur sótt eftir að fá að
fastráða þessa sérfræðinga- en ekki
fengið leyfi yfirvalda. Fjárhagsvandi
stofnunarinnar er nú slíkur að ekki er
hægt að greiða öllu þessu fólki laun við
óbreyttar aðstæður og mun málaleitan
orkumálastjóra standa í sambandi við
það.
- JBP
■ ■
NYJASTA VERK JOKULS SYNT A USTAHATIÐ
Nú er verið að æfa nýjasta leikrit
Jökuls heitins Jakobssonar í Þjóðleik-
húsinu, Sonur skóarans og dóttir bakar-
ans, en verkið verður sýnt á Listahátið í
vor. Frumsýning verður í byrjun leikárs-
insihaust.
Leikstjóri er Helgi Skúlason en leik-
mynd er eftir Magnús Tómasson. Fjöldi
leikara er með í sýningunni en í stærstu
hlutverkunum eru Rúrik Haraldsson,
Þóra Friðriksdóttir, Kristbjörg Kjeld,
Arnar Jónsson og Kristin Bjarnadóttir.
Kristín hefur starfað í Danmörku en fer
nú með sitt fyrsta hlutverk hér á landi.
Áður en æfing hófst á miðvikudaginn
minntist Sveinn Einarsson þjóðleikhús-
stjóri Jökuls og hins sviplega fráfalls
hans. Hann var einmitt nýkominn til
landsins til þess að fylgjast með æfing-
um á verki sinu. Myndin er tekin er leik-
ararnir voru að hefja samlestur á verk-
inu. A.Bj.
Bílasýningunni
ferað Ijúka:
Komsuðurá
sýninguna
— fékk
farmiða til
írlands
Prófannir f ramundan:
Prófannir eru nú framundan í skólum
landsins og samkvæmt fréttum í Degi á
Akureyri eiga menntskælingar um land
allt erfitt uppdráttar því að fallprósenta
þeirra. sérstaklega í tveim fyrstu bekkj-
unum, hefur farið hækkandi undanfarin
ár.
Menntaskólinn á Akureyri er ekki
undantekning i þessu efni og því til stað
festingar skýrir Dagur frá því að tæplega
30% nemenda í þriðja bekk hafi fallið á
siðasta skólaári.
Að sögn Tryggva Gislasonar skóla-
meistara eru ástæður fyrir þessu þær
helztar að meiri kröfur hafa verið gerðar
til nemenda í einstökum greinum, nem-
endum hefur fjölgað til muna og þar eru
innan um áhugalitlir nemendur og auk
þess hafa ýmsar breytingar á skólakerf-
inuhaftsittaðsegja.
- HP
— DB-mynd Hörður
Um helgina verður siðasta tækifærið
til að skoða bílasýninguna Auto '78 í
Reykjavík. Sýningin hefur verið vel sótt
af fólki hvaðanæva. Að sögn forráða-
manna sýningarinnar eru gestir nú
orðnir yfir 50 þúsund og reiknað með að
þeir verði einhvers staðar milli 60 og 70
þúsund talsins. Á hverju kvöldi vinnur
heppinn gestur utanlandsferð. Hans
Magnússon, sem kom frá Hólmavik til
að sjá sýninguna, var hinn heppni í gær-
kvöldi. Hann vann Irlandsferð og geiur
því framlengt .suðurferðina talsvert
mikið.
Fallprósent- 0
an aldrei a
hærri
1