Dagblaðið - 02.05.1978, Blaðsíða 8
rvA/'ini a rvirv knir»i! ir» * r>i in mi imo
Innlend myndsjá
Lærifaðirinn og skákmeistarinn
Skáklíf hefur verið með miklum
blóma í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi
undanfarna vetur, — trúlega kviknaði
áhuginn ekki hvað minnst eftir að Hort
tefldi hið fræga fjöltefli sitt á vegum DB
og Skáksambandsins í fyrravor. Á
myndinni skoðar Ólafur H. Óskarsson
skólastjóri farandgrip, sem Sverrir
Sverrisson vann, en hann varð skák-
meistari skóla síns. Og vel á minnzt.
Skólinn er kominn í heimsmetabók
Guinness vegna fjölteflis Horts þar.
Þetta með hundahaldið.
Hundahald er vist bannað i höfuð-
borginni. En hver nennir að vera með
einhvers konar Gyðingaofsóknir gegn
þessum elskulegu ferfætlingum?
Áreiðanlega eru þessir hundar á mynd-
unum bara sveitahundar í heimsókn á 1.
maíhátíðahöldunum, svona til að setja
fram sínar kröfur um almennilega fram-
komu sér til handa (og fóta). DB-myndir
R.Th. Sig. og Guðjón Pálsson.
RISAGARUR HAFSINS
Húsgögn fyrír fólk a öllum aldrí
iivjnjavinui iii.
Verd
mjög
hagstætt
Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691
t?
Nei, þetta eru ekki vatnsgárur í
baðkeri heldur Atlantshafinu við SV-
strönd íslands. Þessar mjúku linur eru
risastórir hvirfilstraumar og „venju-
legir” straumar. Myndin er tekin úr
gervihnetti Landmælinga Bandaríkj-
anna, sem heyra undir innanríkisráðu-
neytið þar í landi.
*<-
Bandariskur vísindamaður, dr.
Richard S. Williams, Jr.,hefur verið
hér um margra ára skeið við jarðfræði-
legar rannsóknir ásamt islenzkum
vísindamönnum.
*!-
Gervihnötturinn, sem myndin var
tekin úr, er einkum notaður til að kort-
leggja ög kanna náttúruauðæfi í jörðu
og hafdjúpum, ’aÁ sögn Williams, seni
gérir sér riú vöriír lím að takast megi að
riÖtá !hnö’ttinn Iril enn 1 frekari haf:
straumarannsókna.
34-
Á myndinni, segir Williams, má finna
að minnsta kosti átta hvirfilstrauma og
þrjá „tvöfalda”, þ.e. hvirfilstrauma, sem
snúast hvor í sina áttina. Hver hvirfil-
straumur er allt að 19 km í þvermál og
einstakir straumar eru allt að 70 km á
lengd áður en þeir verða tvöfaldjr
hvirirfilstraumar. Myndin er tekin úr
915 km hæð og er af hafsvæði, sem er
34.250 ferkílómetrar að stærð.
-ÓV