Dagblaðið - 02.06.1978, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978.
Blikkval s.f.
Höfuin opnað nýja blikksmiðju að Smiðjuvegi 54,
sími 76655, Kópavogi. Önnumst hvers konar
blikksmíði, svo sem loftræstikerfi, þakrennur og
niðurföll. Einnig þakkanta, ventla, túður o. m. fl.
Tökum einnig að okkur viðgerðir á bensintönkum.
Reynið viðskiptin.
Nýir umboðsmenn Dagblaðsins.
Reykjahlíð v/Mývatn
Erla Sigfúsdóttir, Helluhrauni 5, sími 44133.
Sauðárkrókur
Branddís Benediktsdóttir, Raftahlíð 40, sími
5716.
EMBIABW
TILBOÐ
óskast í eftirfarandi bifreiðir í tjóns-
ástandi:
FIAT132 árg. 1978
MERCURY COMET árg. 1974
MAZDA 929 árg. 1977
MAZDA 818 station árg. 1975
SAAB 99 GLárg. 1976
CORTINA árg. 1971
FIAT127, gulur, árg. 1974
FIAT127, grænn, árg. 1974
FIAT850 árg.1971
TOYOTA COROLLA árg. 1971
Bifreiðirnar verða til sýnis að Melabraut 26,
Hafnarfirði laugardaginn 3. júní nk. kl. 13—
17.
Tilboðum óskast skilað til aðalskrifstofu
Laugavegi 103 fyrir kl. 17 mánudaginn 5. júní
nk.
Brunabótafélag íslands
BLAÐBURÐARBÖRN
ÚSKAST STRAX:
Skjólin Aðalstrœti
Hagar Miðbœrinn
UppL á afgreiðslunni;
sími27022.
MMBIAÐW
LISTAHÁTÍÐ
|| 1978
Þótt hinir myndlistarmennirnir séu
góðir og jafnvel meira en þaö kemst
líklega enginn sýning á listahátíö í
hálfkvisti við sýningu Errós á Kjar-
valsstöðum. Hann sýnir I47 verk, mis-
ntunandi stór og frá hinum ýmsu tím-
um lifs síns. Er þetta því nefnd yfirlits-
sýning.
Myndir Errós eru flestar stórar og í
hverri þeirra má sjá ótal smáatriði
sem endalaust er hægt að skoða. Þrátt
fyrir það segist hann hafa málað um
tvö þúsund myndir, hvílík afköst. Að-
eins 17 myndanna eru til sölu, ein-
staka stórt málverk og svo litlu mynd-
irnar Kína i Reykjavik sem sérstaklega
eru gerðar fyrir listahátíð. Kosta þær
um hundrað þúsund. Fyrir þá sem
ekki geta keypt myndir er huggun i því
að póstkort af mörgum þeirra eru til
Hvað er í boði á morgun?
ERRO RISINNI
MYNDUSTINNI
sölu á eitt og tvö hundruð krónur.
Plakat eins og það sem víða hefur ver-
ið sett upp i tilefni sýningarinnar verð-
ur einnig hægt að fá áritað og númer-
að(60eintök).
Erró eða Guðmundur Guðmunds-
son eins og hann heitir i rauninni er
fæddur i Ólafsvik árið ] 932-
Hann útskrifaðist úr Myndlistaskólan-
um í Reykjavík árið 1949. Árin
1955-58 var hann við nám á Italíu og
settist að i Paris ’58.1967 bjó hann um
tíma á Kúbu og má sjá áhrif þeirrar
dvalar glögglega á myndum hans eftir
það. Frá I972 hefur hann dvalið leng-
ureðaskemur i Thailandi og Austur-
löndum fjær og hafa aðstæður þar
eystra sett mikið ntark á myndir hans.
Má í því sambandi vísa á myndasyrp-
una Kína í Reykjavík.
Aðalsteinn Ingólfsson mun i næstu
viku verða með langt viðtal við Erró í
blaðinu, liklega hið lengsta sem hann
hefur veitt islenzkum blöðum. Þangað
til verða þessar upplýsingar látnar
nægja. DS.
Peterson, Pedersen og Pass
Að öðrum dagskrárliðum ólöstuðum
er hingaðkoma triós Oscars Petersons
stærsti liðurinn á þessari listahátíð.
Enda sýndi miðasalan það að menn ætl-
uðu ekki viljandi að láta tónleika þeirra
félaganna fram hjá sér fara. Þegar fjall-
að er um einhvern hinna þriggja tríó-
nianna. Oscar Peterson, Joe Pass eða
Nils Pedersen, eru þeir yfirleitt taldir
þeir allra beztu hver á sitt hljóðfæri. Og
trióið i heild á ekki marga alvarlega
keppinauta um efsta sætið á gæðalistan-
um.
Oscar Peterson er liklega frægastur
þeirra félaganna. Sagt er að hann sé ein-
faldlega bezti jasspíanisti heims. Oscar
Peterson er einn af fáum pianóleikurum
sem er á við heila sinfóniuhljómsveit.
Niels Pedersen bassaleikari. DB-mynd
Ragnar.
Peterson er fæddur í Kanada árið
1925. Þegar hann var 6 ára hóf hann að
leika á trompet en varð að hætta því
vegna berklaveiki. Þá tók pianóið við.
Aðeins 14 ára hafði hann útvarpsþátt
einu sinni í viku og hafði þá þegar unnið
til verðlauna. Á síðustu árum hefur Pet-
erson samið æ meira af verkum til flutn-
Sjálfur Oscar Peterson.
fyrir Pedersen, því að hann sé bezti
bassaleikari i heimi og engir aðrir komist
þar nálægt.
Pedersen er fæddur árið 1946 i Dan
mörku. Hann er því langyngstur i tri-
óinu. Fyrst hóf hann nám á píanó en
þegar jassinn náði tökum á honum
ákvað hann að kontrabassinn væri það
hljóðfæri sem hann helzt vildi leika á.
Strax upp úr fermingu var Niels farinn
að leika með þekktum jassistum og var
fljótlega fastráðinn í Big-Bandi danska
útvarpsins. Með því hefur hann lcikið af
og til hin seinni ár en þess á milli með
ýmsum frægum köppum. Niels heiðraði
okkur með nærveru sinni og félaga sinna
í apríl og vakti mikla hrifningu.
Af þessari upptalningu ætti að mega
sjá að þeim tíma sem varið er i að hlýða
á þetta trió, sem haldið hefur verið fram
að væri hið bezta í heimi, er hreint ekki
illa varið.
Samkvæmt fregnum sem bárust i
morgun kemur Joe Pass ekki hingað
vegna veikinda. DS.
Joe Pass gitarleikari.
ings og jafnan flutt þau sjálfur. Hann
gerði tilraun til að reka skóla en það
gekk ekki vegna timaskorts.
Joe Pass er núna virtasti jassgítaristi
heims. Hann heitir fullu nafni Joseph
Antoni Jacobi Passalaqua og er sagður
hafa mótað spunastil og tæknisnilld sem
eigiengansinnlika.
Joe er fæddur 1929 í New Jersey og
byrjaði fyrst að glamra á gitar níu ára
gamall. Um tvitugt var hann kominn til
New York og farinn að spila með fræg-
'um mönnum. Núna er Pass eftirsóttui
konserttónlistarmaður og leikur með
fólki eins og Oscari, Ellu Fitzgerald og
Count Basie.
Niels-Henning Pedersen er virtasti
bassaleikari heims. Lesendur Melody
Maker kusu hann jassbassaleikara ársins
i fyrra. Þó finnst ýmsum öðrum jassist-
um sem nokkuð skorti enn á virðinguna
EKKIEINIR AF ÞEIM BEZTU,
HELDUR ÞEIR BEZTU
Hjóninf kjallara Norræna hússins
BLANDA AF NÆFNi OG ÝKTU RAUNSÆI
Listamennirnir Seppo Mattinen og hjón, sýna málverk og grafik i kjallara
Helle-Vibeke Erichsen, sem reyndar eru Norræna hússins frá og með morgun-
Helle-Víbckc og Scppo hcngja upp vcrk sin. DB-mynd Hörður.
deginum og út listahátið. Verðursýning-
in opin kl. I4—19. Hjónin eru komin
hingað til lands til þess að vera viðstödd
opnun sýningarinnar.
Seppo er fæddur i Helsingfors árið
1930. Hann er mjög virtur listamaður og
er verk hans að finna i flestum meiri-
háttar listasöfnum á Norðurlöndum og
annars staðar. Hann hefur tekið þátt i
opinberum listsýningum viða í Evrópu,
Kanada og Bandaríkjunum.
Helle-Vibeke er fædd í Danmörku ár-
ið 1940 og búa þau hjónin núna þar.
Hún er talin meðal fremstu grafiklista-
manna í Danaveldi og er einnig málari
góður. Hún og Seppo hafa vakið athygli
fyrir sérstæðan stíl i verkum sinum sem
helzt mætti lýsa sem blöndu af næfni
(naívisma) og ýktu raunsæi.
Á sýningu hjónanna eru 55 málverk
og 50 grafikmyndir og eru nokkrar
þeirra til sölu.
DS.