Dagblaðið - 03.06.1978, Qupperneq 7
DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNl 1978
7
Útisýningá
Hallærisplaninu:
Hoppaðá
tveggja
metra
stultum
Óhætt er að segja að sýning þýzka
leikhópsins Das Freies Theater
MUnchen er ólík öllum þeim
leiksýningum sem við höfum fram að
þessu séð. Ekki er nóg með að
hópurinn leiki úti undir berum himni
heldur er leikið á tveggja metra háum
stultum. Sýningar verða þrjár, tvær á
sunnudaginn, klukkan 14 og 19 og ein
á mánudagskvöldið klukkan 19. Sýnt
verður á Hallærisplaninu. Rétt er að
taka fram að sýningarnar byggjast á
því að veður verði gott.
Sýningar Das Freies Theater
MUnchen þykja sérstakir lista-
viðburðir hvar sem þær koma. Fólkið
leikur eins og áður sagði á stultum,
þremur stykkjum hver. Miðstultan er
eins konar sæti. Fólkið er siðan klætt I
föt sepi falla yfir stulturnar þannig að
það litur út eins og risar. Mönnum
þykir ótrúlegt hversu mikilli leikni
Þjóðverjarnir hafa náð og hversu
nákvæmt jafnvægi þeir hafa. Til
dæmis taka þeir stór stökk en detta þó
Das Freies Theater Munchen.
aldrei.
Vigdis Finnbogadóttir leikhússtjóri
sá um að fá hópinn til að koma hingað
en hún sá þá félagana þegar hún var i
ferðalagi í Þýzkalandi i fyrrasumar.
DS
Myndhöggvararsýna saman:
Gefast upp á Austurstræti
Höggmyndir gefst mönnum tækifæri
til að skoða í Ásmundarsal við Mímisveg
næstu daga. Sýningin á höggmyndunum
vérður opnuð á sunnudaginn og er opið
kl. 4— lOalla daga listahátiðar.
Það eru 12 félagar i Myndhöggvara-
félagi Reykjavikur sem sýna i Ás-
mundarsal ásamt einum gesti, Sigurjóni
Ólafssyni. Sýndir verða 27 skúlptúrar
eða þríviddarverk. Margvísleg efni eru
notuð í þetta, svo sem tré, járn, gifs, eir
og epoxy. Að sögn Ragnars Kjartans-
sonar formanns sýningarnefndar vekur
sérstaka athygli hversu mikið er sýnt af
eirverkum en islenzkir myndhöggvarar
hafa átt í erfiðleikum fram að þessu við
að fá verk sín steypt í eir. Nú hafa hins
vegar norrænir menn sett upp smiðju
sem Islendingar hafa nokkurn aðgang
að og þá lagast ástandið strax mikið.
Myndhöggvarafélagið hefur sýnt á
öllum listahátíðum og þá jafnan veríð
með útisýningar. Siðustu tvö skiptin
hefur verið sýnt i Austurstneti. En
vegna yfirgangs skemmdarvarga hefur
orðið að hætta við þess konar sýningar
þó gaman sé að þeim. En myndlistar-
mennirnir eru ekki búnir að gefast upp á
útisýningum. Til þess að forðast
skemmdarvargana hafa þeir einungis
flutt verkin upp á svalirnar á Ásmundar-
sal. Á um 100 fermetra suðursvölum
sýna þeir núna 8 verk.
Þeir myndhöggvarar sem sýna i Ás-
mundarsal eru: Hallsteinn Sigurðsson,
Helgi Gislason, Níels Hafstein, Jón
Gunnar Árnason, Magnús Á. Ámason,
Magnús Pálsson, Ragnar Kjartansson,
Rúri, Sigfús Thorarensen, Sigurður
Steinsson, Sverrir Ólafsson og Sigurjón
Ólafsson.
- DS
Ragnar Kjartansson virðir fyrir sér
uppsetningu i Ásmundarsal. DB-mynd
Höröur.
Laus staða
Staða sérfræðings hjá Veðurstofu íslands er laus til
umsóknar.
Sérfræðingur þessi á að vinna að hafisrannsóknum
og veita forstöðu upplýsingaþjónustu um hafís á
íslandsmiðum.
Laun samvk. launakerfí starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist Veðurstofu íslands, Bústaðavegi
9, Rvk. fyrir l.júlí 1978.
Veflurstofa íslands.
KAFFISALA
Sjómannadagskaffi verður að Hlégarði í Mos-
fellssveit sunnudaginn 4. júní kl. 15 til 18.
Allir velkomnir.
S.M.F.Á.
BLAÐBURÐARBÖRN
ÚSKAST STRAX:
Skjólin Aðalstrœti
Hagar Miðbœrinn
UppL á afgreiðslunni,
sími27022.
MMBBUBW
Strokkvartett Kaupmannahafnar.
FRUMFLYTUR TVÖ ÍSLENZK
VERK OG Ein ÚTLENT
Strokkvartett Kaupmannahafnar
heldur tvenna tónleika I Norræna
Bandansk list
íListasafninu
Á morgun kl. 2 verður opnuð i Lista-
safni tslands merkileg sýning á úrvali
bandarískra teikninga sl. fimmtiu ár.
Orðið teikning kann að vera misvisandi i
þessu sambandi því þarna er að sjá
margs konar aðferðir og margar
myndannaerulitrikar.
Það eykur á hróður listahátíðarinnar
að tsland er fyrsta landið utan Banda-
rikjánna sem fær þessa sýningu en hún á
að fara víða um lönd. Listasafnið
Minnesota Museum of Art sá um undir-
búning sýningarinnar en Jóhannes
Jóhannesson listmálari á veg og vanda
af uppsetningu sýningarinnar hér.
Dr. Selma Jónsdóttir getur þess i grein
sém fylgir vandaðri bandarískri sýning-
arskrá að Listasafni tslands hafi verið
boðið að senda íslenzka listsýningu til
Minnesota og er nú verið að kanna
hvort safnið geti ekki þegið hið góða
boð.
A sýningunni eru 75 verk sem komið
er fyrir i þremur aðalsölum safnsins.
Sýningin stendur út allan júnímánuð.
húsinu á listahátið og tekur þátt i þeim
þriðju. Fyrri tónleikar kvartettsins eru á
sunnudagskvöldið klukkan hálf niu en
þeir síðari á fimmtudagskvöldið á sama
tíma. Kvartettinn tekur svo þátt í
tónleikum þar sem leikin verða verk eftir
Jón Þórarinsson.
1 strokkvartett Kaupmannahafnar
eru þau Tutter Giskov, Mogens
Durholm, Mogens Bruun og Asger
Lund Christiansen. Þau stofnuðu
kvartettinn 1957 og héldu sína fyrstu
tónleika það ár. Síðan hafa þau ekki get-
að hætt þvi áheyrendur biðja sífellt um
meira. Heimalandið hefur ekki verið
látið nægja heldur ferðast kvartettinn
um allan heim og spilar bæði einn og
með öðrum listamönnum, til dæmis viðs
vegar á listahátíðum. Kvartettinn hefur
um 125 verk á verkefnaskrá sinni. Mesta
rækt leggja þó félagarnir i að leika
danska tórtlist og hefur meðal annars
orðið fyrstur til að leika tónlist af
gömlunt gullaldarhandritum, sem
fundizt hafa i Danmörku.
Á tónleikum strokkvartettsins hér
verða frumflutt tvö verk. Er hið fyrra
sem flutt verður á sunnudag eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og samið sérstaklega
fyrir kvartettinn. Hitt verkið sem
frumflutt verður, á fimmtudaginn, er
eftir Vagn Holmboe og er tileinkað
Listahátiðí Reykjavík 1978ogNorræna
húsinu í þakklætisskyni fyrir að
tónskáldið var gestur hér vorið 1977.
Einnig verða flutt klassisk verk gömlu
meistaranna.
Á tónleikum þeim sem verk Jóns
Ásgeirssonar verða fiutt á frumflytur
kvartettinn Tvo þætti fyrir strengja-
kvartett eftir Jón.
•DS.
Menntaskólanám
í Reykjavík
Umsóknum um menntaskólavist í Reykjavík er veitt viðtaka í
Menntaskólanum I Reykjavík, við Lækjargötu, mánudaga — föstu-
daga kl. 9—17 og laugardaga kl. 10—12. Umsóknarfresti lýkur 10.
júní.
Menntamálaréfluneytifl, 31. mal 1978.