Dagblaðið - 03.06.1978, Síða 23

Dagblaðið - 03.06.1978, Síða 23
23 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JÚNl 1978 Útvarp Sjónvarp Sjónvarpíkvöld kl. 21.00: Frá Listahátíð 1978 v Oscar Peterson og félagar leika jazz Heimsmeistarakeppnin í kna ttspyrnu FótboltiíArgentínu Joe Pass er einn virtasti jazzgitar- leikari heimsins. Hann hefur unniö lesendakeppni Down Beat og gagn- rýnendaverðlaun sama rits og hefur einnig verið útnefndur bezti gítarleikari heims af lesendum Swing Journal. Hann er fæddur árið 1929 I New Jersey og var níu ára gamall er hann hóf að leika á gít- ar. Hann hafði engan kennara, en með aöstoð föður sins fann hann hljóma i gitarnum og seinna fékk hann bækur sem hann hafði gagn af. Um tvítugt fór hann til New York og byrjaði að leika með Dizzy Gilliespie, Charlie Parker, Coleman Hawkins og Art Tatum. Hann hlaut Grammyverðlaun 1975 fyrir plötu sem hann lék inn á ásamt þeim Oscari Peterson og Niels-Henning Örsted Ped- ersen. Heimsmeistarakeppnin i knattspyrnu hófst í Argentinu sl. fimmtudag, 1. júní og lýkur henni 25. júní. Nú mun danska sjónvarpið annast móttöku á leikjunum um gervihnött og upptöku þeirra fyrir Island, þannig að við fáum aðsjá a.m.k. nokkra þeirra. Verður fyrsti leikurinn á dagskrá sjónvarpsins i dag kl. 18.15 og munu i þeim leik eigast við núverandi heims- meistarar, sem eru Vestur-Þjóðverjar, og Pólverjar, en þeir urðu í þriðja sæti í síðustu heimsmeistarakeppni. Svo ef að likum lætur verður þetta spennandi leikur. Miðvikudaginn 7. júní verður siðan sýndur leikur Brasiliumanna og Svía kl. 18.15 og laugardaginn 10. júni kl. 16.30 sjáum við leik Ítala og Ungverja. Ekki er þó knattspyrnunni lokið þann daginn. því kl. 18 verður gert smáhlé fyrir loka- þátt enskukennslunnar On We Go og kl. 18.15 fáum við aðsjá leik Brasiliumanna og Spánverja. Það ætti að auka enn á ánægju manna að myndirnar eru allar í litum. -RK. I kvöld kl. 21.00 verður sjónvarpað beint frá jazztónleikum Oscars Peterson i Laugardalshöllinni. Tríó Oscars skipa auk hans þeir Joe Pass og Niels- Henning örsted Pedersen. Stjórn út- sendingar annast EgUI Eðvarðsson og má geta þess að.þetta er i fyrsta skipti sem skemmtiefni er sjónvarpað beint hér. Sagt er að Oscar Peterson sé bezti jazzpíanóleikari heimsins og einn mesti jazzsnillingur sem uppi hefur verið. Aðdáendur hans skipta milljónum um allan heim og hefur hann staðið í sviðsljósinu í um þrjátíu ár. Hann er fæddur árið 1925 I Kanada. Hann hóf tónlistamám aðeins sex ára gamall og byrjaði þá með trompet en sneri sér ári seinna að píanóinu. Hann var aðeins 14 ára gamall er hann vann verðlaun í keppni áhugapíanóleikara og árið 1944 hóf hann að leika með Johnny Holmes Orchestra, sem var þá ein vinsælasta hljómsveit Kanada. Árið 1950 hóf hann að leika inn á plötur fyrir hinn virta hljómleikahaldara Norman Granz og eftir það voru honum allar leiðir opnar. Peterson hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum fyrir tónlistarflutning sinn. M.a. Down Beat verðlaunin fyrir bezta pianóleik í 12 ár samfleytt, Playboyverðlaunin og Grammy- verðlaunin 1975. Um Peterson hefur Norman Granz sagt m.a.: „Hann er einn af fáum píanó- leikurum, sem eru á við heila sinfóníu- hljómsveit, þótt hann sé einn.” Sjónvarp í dag kl. 18.15: Oscar Peterson er sagður bezti jasspianölcikari hcims. Niels-Henning Örsted Pedersen er tvimælalaust snjallastí jazzbassagítar- leikari á Norðurlöndunum. Hann er fæddur árið 1946 í Kaupmannahöfn. Hann hóf ungur tónlistarnám og byrjaði á píanóinu, en fljótlega heillaði bassinn hann. Aðeins 15 ára gamall lék Niels með Bud Powell inn á plötu. Fljótlega var hann ráðin til Radioens Big Band og hefur starfað þar síðan með hléum. Hann var árið 1977 kosinn jazzleikari ársins af lesendum Melody Maker. Hann er mjög eftirsóttur bassaleikari og hafa margir af þekktustu bazzaleikurum heims sótzt eftir samstarfi við hann. Ekki er endir þessa dagskrárliðar ákveðinn, en að honum loknum mun Dave Allen láta móðan mása. -RK. Laugarásbíó: Bílaþvottur MÁ HLÆJA EN ÞESS ÞARF EKKI Laugarásbió: Bílaþvottur (Car Wash). Leikstjóri Mkhael Schultz, tónlist Norman Whitfield, aöal- hlutverk Franklyn Ajaye, Sully Boyar, Richard Brestoff, Ivan Dixon, Antonio Fargas, Mkhael Fennal og Arthur French. Það væri rangt að tala mikið um söguþráöinn í Bílaþvotti. Hann skiptir hvort eð er minnstu máli er horft er á myndina. Aðalatriðið eruhinar ýmsur ólýsanlegu uppákomur. Þó má geta þess að mvndin gerist á einum degi í bilaþvottastöð i Los Angeles. Eins og verkstjórinn bendir á má skipuleggja stöðina þá arna mun betur því mestur tími strákanna fer i að slæpast og skemmta sér. Hvilíkur hressileiki og það strax og mætt er til vinnu á morgnana. Þegar skrifað er um Bílaþvott er ekki hægt að fara eftir neinu nema eigin áliti á þvi hvort myndin var skemmtileg eða ekki. Mér fannst hún mjög fyndin á köflum og svona la-la þess á milli. Aftur á móti heyrði ég aðra fussa og sveia á leiðinni út og skildi ég þá að sumu leyti vel. 1 þýðing- unni á tali myndarinnar fór líka fyndnin nokkuð í vaskinn, hana var einfaldlega ekki hægt að þýða. Myndin er byggð upp'líkt og Am- erican Graffiti að því leyti að útvarps- Kvik myndir tónlist glymur á bak við flest atriðin. Bæði tónlistin og myndin eru þó að flestu leyti mjög ólík. Mesta athygli mina vakti hversu þeir leikarar sem fram komu virtust skemmta sér með afbrigðum vel. Mér meira að segja datt i hug að myndin hefði verið gerð með þá fyrst og fremst í huga en ekki áhorfendur. En hvað um það, af myndinni má hafa verulegt gaman, en það þarf ekki, mönnum get- ur lika leiðzt vilji þeir það heldur. DS. Eins og sjá má fer mikill timi í hina ýmsu skemmtan á meðan bílarnir renna i gegnum vélarnar. Staða forstöðumanns fjármáladeildar Rafmagnsveitna ríkisins er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa viðskipta- eða hagfræði- menntun eða starfsreynslu í stjórnun og meðferð fjár- mála. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til 23. júní. Nánari upplýsingar um starfið veitir rafmagnsveitu- stjóri ríkisins. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi116 Reykjavík. Starf bæjarritara hjá Dalvíkurbæ er laust til umsóknar, enn- fremur hálfs dags starf á skrifstofum bæjarins. Umsóknir sendist bæjarstjóra fyrir 20. júní nk., sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Bæjarstjórinn á Dalvík. Símar 96-61370,61371. Staða tryggingalæknis Hjá Tryggingastofnun ríkisins er laus hálf staða tryggingalæknis. Laun samkvæmt samningi fjármálaráðherra og Læknafélags íslands. Umsóknir sendist Tryggingastofnun ríkisins, Laugavegi ll 4, Reykjavík, eigi síðar en 15. júní 1978. Tryggingastofnun ríkisins. Starf deildarstjóra við rafmagnsdeild tæknideildar Rafmagnsveitna rikisins er laust til umsóknar. Áskilin er menntun í raforkuverkfræði eða raf- orkutæknifræði. Umsóknarfrestur er til 23. júní 1978. Allar nánari upp- lýsingar veitir forstöðumaður tæknideildar. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi116 Reykjavík.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.