Dagblaðið - 06.06.1978, Síða 1

Dagblaðið - 06.06.1978, Síða 1
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.— AÐALSÍMI27022. HÆTT VIÐ YFIR- VvÍNNUBÁNNÍÐ? _ Ara k«nn uiA nnnhiR. aer kalrriflnnrnumnM íetaAmn — en bann við nætur- og helgidagavinnu f staðinn Forráðamenn Verkamannasam- bandsins íhuga nú hvort ekki eigi að haetta við ráðgert yfirvinnubann og hafa aðgerðirnar takmarkaðri. Kæmi þá til greina nætur- og helgidaga- |vinnubann, sem stæði fram yfir kosningar að minnsta kosti. Magir hafa orðið til að mótmæla yfirvinnubanninu og talið það til- gangslitlar fórnir hinna lægstlaunuðu. Með nætur- og helgidagavinnu- stöðvun mundi hvorttveggja • fara saman, mótmæli við kjaraskerðing- unni og við það sem forráðamennirnir telja óhóflegt vinnuálag víða um land.1 Víða er nú algengt að unnið sé til klukkan tíu á kvöldin, 3—4 daga í viku. Þetta mun mjög títt á Austur- landi, Akureyri og í Vestmannaeyjum. Sáttafundur verður á morgun í deilu Verkamannasambandsins og atvinnu- rekenda. Forystumenn í ASl þinga í dag um stöðuna. HH Hákarlar og aðrir karlar Akureyri í gær: Það er ekki á hverjum degi sem hákarl er skorinn á Akureyri. En þó kemur það fyrir að togarar útgerðarfélagsins fá hákarl í vörpuna og þá kaupir Jósep Kristjánsson þá gjarnan og verkar á hefðbundinn hátt. Hann var hress og kátur þar sem ég kom að honum þegar hann var að verka sjö hákarla sem veiðzt höfðu við Grænland. Hann áætlaði hvern hákarl um 500 kíló svo það verða nokkrar beitur það. Fax. Ölvaður unglingur otaði hníf að fólki Á ellefta tímanúm í gærkvöldi handtók lögreglan drukkin átjan ára ungling á Hallærisplaninu. Var hann þar í hópi unglinga með óslíðraðan beltishníf sem hann otaði að unglingum og vegfarend- um. Ekki hafði hann sært neinn er leikurinn var stöðvaður. í Ijós kom að eigandi vopnsins, tvítugur að aldri, sat álengdar í bif- reið. Var hann einnig áberandi ölvaður. Þeir félagar voru fluttir í lögreglustöð en yfirheyrslur voru árangurslitlar sakir ölvunar þeirra. Vopnið sem þeir höfðu undir höndum var venjulegur beltis- hnifur, lOsentimetra blaðogjafn- langt skaft. - ASL1 „Þorskastríðs- aðgerðir” „í skeyti frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals sf„ sem okkur barst í gær, segir að öll skip sem hyggist tefja eða muni trufla- veiðar íslenzku hvalveiðibátanna muni verða lögsótt,” sagði David McTaggard, leiðangursstjóri á Rainbow Warrior, í viðtali við DB í morgun. „Við hörmum slíkar þorskastriðsaðferðir og lýsum þvi yfir, að við teljum Kristján Loftsson ekki rétta aðilann til þess að vera með hótanir i þessu máli.” HP Vinnustöðvun yfir 100 manns hjá BÚH: SETUVERKFALLIÐ 0RÐIÐ AÐ MANN- RÉTTINDAVERKFALLI — segir formaður Hlífar— engin kom á vinnustað í morgun Ég get ekki kallað þetta annað en mannréttindaverkfall. Ég geri mér Ijóst að skv. stífustu lagareglum er þetta verk- fall ólöglegt, en sú staða getur komið upp að fólk háfi rétt til að brjóta lög og það verður að segjast að framkoma verkafólksins hér við slíkar aðstæður getur ekki talizt ámælisverð ef tillit er tekið til sömu stöðu sem upp kemur af og til viða erlendis, sagði Hallgrímur Pétursson, formaður verkamannafélags- ins Hlífar i Hafnarfirði. Sem kunnugt er lagði starfsfólk fisk- iðjuvers BÚH, á annað hundrað manns, niður vinnu sl. miðvikudag vegna megnrar óánægju með framkomu tveggja verkstjóra og krefst fólkið þess að þeir verði látnir víkja. Hefur starfsfólk mætt á vinnustað á virkum dögum og dvalizt þar dagvinnu- tímann án þess að vinna þar til í morgun aðenginn mætti. Sagði Hallgrímur það eðlilegt þar sem beðið væri nýrrar málamiðlunartillögu frá bæjarfulltrúum en síðasta tillaga þeirra í þá átt var felld í atkvæðagreiðslu verkafólks i gær. Funduðu bæjarfull- trúar enn um málið óformlega í gær- kvöldi en eftir hádegi í dag verður form-. legur fundur um málið og nýjar tillögur væntanlega mótaðar. Hallgrimur sagði að fólkið myndi fara fram á laun fyrir (ressa daga, hvernig svo sem gengi að standa á þeirri kröfu. G.S. ÍDBídag: HM-frettirnarí DB: DB ávallt fetí framar — ávallt nýjar HM- fréttír Blöðin i Brasilíu allt annað en ánægð með frammistöðu sinnamanna. „Aby Ericson, þjálfari Svía, notar Ralf Edström, kunn- asta ieikmann Svía, ekki gegn Austur- ríki. Sjá íþróttir I opnu Olíuskortur árið 1985 Sendiráðs- maðurvill bæturfyrir geislun — sjá erl. fréttir

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.