Dagblaðið - 05.07.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 05.07.1978, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1978. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLt 1978. 13 12 i Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Eitt silfur, eitt brons en neðsta sætiðíTel-Aviv — Þórunn Alfreðsdóttir hreppti silfur og Hermann Alfreðsson bronsíTel-Aviv Noregur hefur forustu 1 8-landa keppninni i sundi, sem níi fer fram í Tcl-Aviv i ísrael eftir fyrri dag’ keppninnar. tslendingar reka hins vegar lestina. íslendingar voru þó ekki án verðlaunapeninga. Þórunn Alfreðsdóttir varð önnur i 200 metra flugsundi er hún synti á 2:23.86 en sigurvegari varð Martine Verbreyt frá Belgiu á 2:22.88. Þá varð bróðir Þórunnar, Hermann Alfreðsson, I þriðja sæti i 100 metra bringusundi á 1:11.17. Þar varð sigurvegari Ron Kemrmann frá ísrael á 1:08.75 og annar Pardo, Spáni, á 1:08.79. Sem sagt, silfur og brons I Tel- Aviv. Annars varð árangur íslendbiganna sem hér segir: 100 metra skriðsund: Bjarni Björnsson 56.51 — hunn varð sjöundi. Sigur- vegari Barro, Spáni, á 53.42. 200 metra baksund: Hugi Harðarson 2:23.42 — hann varð áttundi. Sigur- vegari Thomann, Sviss, 2:14.76. 100 metra skriðsund kvenna: Guðný Guðjónsdóttir 1H)4J — áttunda. Sigurvegari Jensen, Noregi, 57.81. 200 metra baksund: Þórunn Héðinsdóttir 2:43.04, — áttunda. Sigurvegari Verbauwen, Belgíu, 2:21*52. lOOmetra baksund: Hermann Alfreðsson, 1:11.17. — þriðji. Sigurvegari Kemrmann, 1.08.76. 100 metra baksund kvenna: Sonja Hreiðarsdóttir, 1:21.17, — sjötta. Sigurvegari Olsen, Noregi, 1:16.75. 200 metra flugsund: Axel Alfreðsson 2:24.62 — áttundi. Sigurvegari Morris, Wales, 2KI9J7. 200 metra flugsund kvenna: Þórunn Alfreðsdóttir 2:23.86 — önnur. Sigurvegari Verbreyt, Belgiu, 2:22.88. 400 metra skriðsund: Bjarni Björnsson 4:18.76, -— sjötti. Sigurvegari Borgströmn, Noregi, 4d)1.97. 400 metra skriðsund kvenna: Ólöf Eggertsdóttir 4:5554 — áttunda. Sigurvegari Verbauwcn, Belgíu, 4:30.72. 4 X100 metra boðsund: ísland 452.07. Nr. 1. Noregur á 4:29.79. 4 X100 metra boðsund karla: tsland 4:23.64, númer átta — tsrael sigurvegari á 4:05.67. Staðan eftir fyrri dag er því: stig: 1. Noregur 90 2.Spánn 88 3. Belgfa 74 4. Sviss 68 5. tsrael 62 6. Wales 60 7. Skotland 46 8. ísland 30 A-þýzkt heimsmet Andrea Pollack frá A-Þýzkalandi setti annað heims- met sitt á a-þýzka meistaramótinu i sundi i A-BerUn Hún bætti eigið heimsmet i 200 m flugsundi er hún synti á 2:09.87,1.37 sekúndum betri tími en fyrra met hennar, sem hún setti i Leningrad fyrir þemur mánuðum. Áður hafði hún sett heimsmet i 100 metra flugsundi f A-BerUn. Giles til Leeds? Eftir að Jimmy Armfleld, stjóri Leeds, sagði af sér f gær hafa verið miklar getgátur um hver taki við af Armficld, sem ekki tókst að leiða Leeds til neinna sigra. Liklegastir til að taka við Leeds erutaldir Jackie Charlton, fyrrum leikmaður Leeds og enska landsUðs- ins, en hann er nú framkvæmdastjóri Sheflield Wednesday. Þá hefur Don Howe, þjálfari Arsenal, verið nefndur og Johnny Giles, fyrrum leikmaður Leeds. Giles tók sfðan við WBA, og kom Uðinu i 1. deild Hann er nú á trlandi. Finnskt met í tugþraut Jóhannes Lahti frá Finnlandi sigraði I tugþrautar- keppni Finnlands, Sovétrikjanna og A-Þýzkalands og bætti finnska mctið, sem hann átti sjálfur. Lahti náði 8094 stigum. Hann hljóp 110 m grindahlaup á 14.94, kastaði kringlu 40.06 m, stökk 4*30 f stangarstökki, kastaði spjóti 71.08 hljóp 100 metrana á 10.76, stökk 7,45 i langstökki. 14.48 f þristökki, 2.00 i hástökki, varpaði kúlu 14.94, hljóp 400 metrana á 49.75 og hljóp 1500 metra á 4:32.6. Annar i tugþrautinni varð Rainer Pottel, A-Þýzkalandi með 8034 stig og þriðji Kutsenko, Sovétrikjunum með 7.905 stig. A-Þýzkaland hlaut samanlagt 31.235 stig, Sovét- ríkin 31.096 og Finnland 29.471. Tony Knapp kom á ritstjórn DB f gær og eins og ávaUt lá vel á fyrrum landsUðs- þjálfaranum. — DB-piynd Hörður Vilhjálmsson. KR LAGÐIVÍKING — 1-OíLaugardal KR tryggði sér sæti í S-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gærkvöld er KR sigraði Víking 1—0 i Laugardal. Eina mark leiksins skoraði Sigurður Indriða- son, á 42. minútu síðari hálfleik eftir að Víkingsvömin hafði beinUnis sofið á verðinum. Víkingar sóttu mjög i síðari hálfleik en KR-ingar vörðust vel og skynsam- lega. Skyndisóknar þeirra gerðu iðulega usla. Þrátt fyrir að knötturinn væri mest á vallarhelming KR sköpuðu Víkingar sér ekki nema eitt verulega gott mark tækifæri, og hvilikt marktækifæri. Helgi Helgas. skaut framhjá af aðeins metra færi — það virtist erfiðara að koma knettinum framhjá en í netmöskvana. Víkingar sóttu stíft, en ekki að sama skapi skynsamlega. Ávallt upp miðjuna og þar var Ottó Guðmundsson kóngur — var mjög góður og ófáar sendingar strönduðu á höfði hans. KR-ingar léku skynsamlega, raunar má segja betur en þeir hafa gert undan- farin ár í 1. deild. Leikmenn reyndu ávallt að spila, halda knettinum niðri. Eitthvert vonleysi, nánast örvænting virtist rikja í liði Víkings. Leikmenn skortir allt sjálfstraust, alla leikgleði. Þá er og stór þáttur að hinn ungi og efnilegi Arnór Guðjohnsen er nú aðeins svipur hjá sjón miðað við fyrstu leiki sína í sumar. Virðist þarfnast hvíldar drengurinn — mikið hefur verið lagt á herðar hans, aðeins 16 ára. Jóhann Ingi einvaldur — gengið f rá ráðningu hans í gær HSl gekk I gær frá ráðningu Jóhanns Inga Gunnarssonar sem landsliðs- þjálfara Islenzka landsliðsins I hand- knattleik, eins og raunar var skýrt frá i DB i gær. Jóhann Ingi tekur að sér þjálfun karialandsliðsins og unghnga- landsliðsins — og verður einvaldur. Jóhanni Inga verður heimilt að nota þá leikmenn erlendis er hann telur að henta þurfi. Þá verður Jóhann Ingi í fullu starfi hjá HSt. „Við bindum miklar vonir við starf Jóhanns Inga,” sagði Sigurður Jónsson formaður HSÍ. Samningur Jóhanns Inga er til fjögurra ára en hann er aðeins 26 ára. ísland á mörgerfið verkefni framundan í vetur i handknattleik. B-keppnin fer fram á Spáni um mánaöamótin febrúar, marz. ísland getur þar tryggt sér sæti í A-riðli, verður raunar að gera þaö. Jóhann Ingi hefur náð góðum árangri með islenzk unglingalandslið og verður fróðlegt að sjá hvernig hinum unga þjálfara tekst til með landslið lslands. Þrír leikir íbikarnum Þrir leikir fara fram i bikarkeppni KSÍ i kvöld — Þróttur mætir ÍBK 1 Reykjavik, Einherji, Vopnafirði, fær Viking, Ólafsvik, i heimsókn og i Hafnarfirði eigast við FH og Fram. Síðasti leikur 16-liða úrslita fer fram á morgun, þá leika á Siglufirði KS og Valur. Fái ég þrjá íslendinga verður Viking meistari — næsta ár, sagði Tony Knapp, fyrrum landsliðsþjálfari, sem nú er á höttum eftir leikmönnum hér „Ég er kominn til tslands í frí auk þess sem ég er að leita eftir þremur leik- mönnum frá tslandi i lið mitt, Viking frá Stafangri. Fái ég þessa þrjá leikmenn sem ég hef augastað á, þá verður Viking meistari næsta ár,” sagði Tony Knapp, þegar hann leit inn á ritstjórn DB i gær. Knapp fyrrum landstiðsþjálfari tslands þjálfar nú norska liðið Viking frá Stafangri og Viking er i þriðja sæti i norsku deildinni. „Við höfum leikið 91 leik frá því að ég tók við snemma í vor og aðeins tapað einum leik. Víking var síðasta félagið i Noregi er tapaði leik í 1. deild, þá á heimavelli gegn Start. Á sama tíma i fyrra var Viking með 9 stig — nú 15 stig. Ég tel sex lið koma til greina um norska titilinn i ár, Start, með 17 stig, eftir 11 leiki, Likkeström 16, Viking 15, Valerengen 13 og síðan Bryne og Brann, en möguleikar þriggja efstu eru mestir. Norskir leikmenn eru flinkari en íslenzkir en Norðmenn hafa ekki skapgerð tslendinga. Þess vegna er ég á höttunum eftir þremur leikmönnum. Ef íslendingar hefðu leikni Norðmanna væru þeir með stórkostlegt lið — nú, eða öfugt, ef Norðmenn hefðu hina sterku skapgerð íslendinga. íslenzka landsliðið verður ávallt sterkara og betra. Ungir leikmenn eins og Janus Guðlaugsson, Pétur Pétursson, Guðmundur Þorbjömsson og Atli Eðvaldsson eru nú sjálfsagðir leikmenn í isl. landsliðið. Ég sakna þess að vera ekki lengur landsliðsþjálfari, sér- staklega þegar ég sé alla þessa ungu, snjöllu leikmenn. tslenzka liðið á að geta spjarað sig i Evrópukeppninni. Leikirnir við PóUand og Holland verða erfiðir. Pólska liðið er mjög gott en leikmenn famir að eldast. Hollendingar eru nú að skapa nýtt lið og eru með mjög gott lið. Að sjálfsögðu verða leikirnir við A-Þýzkaland einnig erfiðir en Sviss hefur aldrei gert neitt á alþjóðamælikvarða. Ég held þvi að tsland geti .spjarað sig vel og þegar ég ieit yfir leikmennina er Orðsending til allra golfklúbba innan G.S.t. __________ Vegna opna golfmótsins sem G.R. heldur 8. og 9. júlí var gerður samningur við Svein Egilsson og co. um Ford-bif- reið í verðlaun fyrir að slá holu i höggi af teig á 17. braut, en sá samningur hefur nú verið rofinn af Sveini Egilssyni á siðustu stundu. En stjórn GR „sló holu í höggi” ef svo má segja og náði sam- komulagi við Heklu hf. um AUDI 100 78 í verðlaun i staðinn fyrir „Fordinn góða” frá Sveini og co. Fyrir þennan stuðning við golfíþróttina hér á landi á Hekla hf. beztu þakkir skilið. En annars er það um keppnina að segja að kl. 21 á föstudagskvöld verður haldinn fagnaður fyrir væntanlega keppendur þar sem keppnisfyrirkomulag verður kynnt og til stendur að sýna nýjar golfmyndir frá Bretlandi, ásamt ýmsu öðru skemmtilegu. Nú eru síðustu forvöð að vera með þvi skráningu i keppnina lýkur i kvöld. Þeir sem ætla léku gegn Dönum þá kom tilfinningin fram — já, það var góður tími er ég var með islenzka landsliðið” sagði Tony Knapp, en hann verður hér í um 10 daga og mun að sjálfsögðu fylgjast með leikjum, mörgum leikjum. Hvort íslenzka leikmenn fýsir mjög að fara til Noregs skal ósagt látið en að vísu eru nú þegar margir leikmenn í Svíþjóð og Dan- mörku. að vera með og ekki eru þegar skráðir geta gert það í símum 30949 — 86651 - 75620 og 84735. í gær héldu G.R.-menn svonefnt Stereo-mót í tilefni af breytingu sem gerð hefur verið á vellinum, þ.e.a.s. að 16. braut sem hefur verið par 3 var lengd og er nú par 4 og er par vallarins nú komið í 71 högg. 16. brautin er nú orðin mjög skemmtileg og verður að spila hana af mun meiri nákvæmni en áður. Ragnar Ólafsson var beztur allra og lék á 77 höggum og er það nú vallarmet á vellinum eftir breytinguna, en það verður örugglega slegið fljótlega. Beztu menn án forgjafar voru þeir Ragnar Ólafsson á 77 höggum og Jón Þór Ólafsson á 79 höggum. Með forgjöf varð Jón Þór beztur á 71 höggi nettó, en Finnbjörn Finnbjörnsson varð annar á 72 og þriðji varð Magnús R. Jónsson á 74 HBK. Enn glæsilegri verð- laun en áður Akranes í erfiðleikum með KA á Skipaskaga — en meistarar ÍA sigruðu þó, 3-2 Íslandsmeistarar ÍA tryggöu sér sæti i 8-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ með sigri á KÁ á á Akranesi, 3—2 í gær- kvöld. Sigur Skagamanna var ekki sann- færandi, raunar hafði KA yfir i leikhléi og það var ekki fyrr en komið var fram yfir miðjan síðari hálfleik að ÍA jafnaði — og þá brotnaði KA-liðið. Meistarar ÍA voru aðeins svipur hjá sjón í fyrri hálfleik, léku langt undir getu. Þrátt fyrir að ÍA sækti meir sköpuðu leikmenn sér ekki tækifæri. KA skoraði hins vegar á 34. minútu. Ármann Sverrisson stökk hæst og skallaði knöttinn í netið eftir hom- ■ spyrnu. Heldur lifnaði yfir Skagamönnum í síðari hálfleik en mörkin létu á sér standa. Það var síðan á 23. minútu að lA jafnaði, Jón Alfreðsson tók auka- spyrnu, sendi vel fyrir og þar var fyrir Pétur Pétursson, sem skallaði knöttinn i netið, 1—1. Leikmenn KA gáfu nú eftir og þegar á næstu minútu kom Matthías Hallgrímsson Skagamönnum yfir, Pétur sendi knöttinn á Kristin Björnsson, sem síðan renndi knettinum til Matthíasar sem skoraði, 2— 1.' Þriðja mark sitt skoraði ÍA á 35. mínútu og nú var Kristinn Björnsson á ferð, skallaði i netið eftir fyrirgjöf Jóns Áskelssonar. Á 40. mínútu minnkaði KA muninn, Jóhann Jakobsson komst innfyrir vörnina og skoraði — en mikil rangstöðulykt, að ekki séu sterkara til orða tekið, var af markinu. KP. Blikarnir sluppu naumt fyrir horn — sigruðu Fylki, 2-1 Breiðablik slapp naumlega fyrir hom i bikarkeppni KSÍ i gærkvöld — tvö mörk á síðustu mín. leiksins forðuðu liðinu frá algjörri niðurlægingu gegn nýliðum 2. deildar, Fylki. Blikarnir skoruðu Eyjamenn unnu Þór stórt, 4-1 — áAkureyri Eyjamenn tryggðu sér sæd i 8-liða úrslitum bikarkeppni KSt með ömggum sigri á Þ6r á Akureyri í gærkvöld, 4—1. Þ6r hafði þ6 yfir I leikhléi, 1—0 en í síðari hálfleik vom yfirburðir iBV algjörir og fjögur mörk tryggðu sigur. Sigtryggur Guðlaugsson, hinn kunni handknattleiksmaður skoraði fyrir Þór þegar á 2. minútu. Þrátt fyrir mun meiri sóknarþunga IBV tókst ekki að jafna fyrir leikhlé. I siðari hálfleik tóku Eyjamenn ÖU völd i sínar hendur. Karl Sveinsson jafnaði, Sigurlás Þorleifsson bætti við tveimur mörkum og undir lokin skoraði Óskar Valtýsson fjórða mark lBV — öruggur sigur, þrátt fyrir að Þór hafi haft yfir í leikhléi. St.A. tvivegis síðustu minúturnar og sigruðu, 2-1. Fylkir hafði yfir lengst af, á 24. mínútu skoraði Hörður Antonsson lag- legt mark en vöm Blikanna var þá illa á verði. Blikamir sóttu mun meir, en eins og svo oft áður létu marktækifærin á sér standa. Látlaus sókn Blikanna var i síðari hálfleik og þeir fóru illa að ráði sinu. Það var ekki fyrr en á 84. minútu að Blikarnir náðu að jafna, Sigurður Halldórsson var þá að verki. Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Heiðar Breiðfjörð sigurmark Blikanna, 2—1. Blikarnir því áfram í 8 liða úrslit. Loks tókst því Blikunum að binda enda á átta leiki í röð án sigurs — en liðið er enn án sigurs í 1. deild, aðeins eitt stig, ej afrakstur 9 leikja. Fylkir kom nokkuð á óvart í Kópavogi og greinilegt að Fylkir er að ná frambærilegu liði. Óskarannar í Stokkhólmi íkrínglukastinu, 60.40, ogErlendur þríðji, 58.36 Óskar Jakobsson, ÍR, sannaði enn hve mikið efni hann er þegar hann varð annar á Gata-leikunum i Stokkhólmi, kastaði kringlunni 60.40 m. Erlendur Valdimarsson varð þriðji með 58*36 en sigurvegari i Stokkhólmi varð Banda- rikjamaðurinn Mac Wilkins, 65J4. Óskar Jakobsson náði sinum bezta árangri á erlendri grund, 60.40, og það gaf honum annað sætið i Stokkhólmi. Erlendur Valdimarsson er nú óðum að ná sér eftir meiðsli sem hafa hrjáð hann i vor. En Gata-leikirnir í Stokkhólmi voru Bandarikjamanna, nánast eign Banda- ríkjamanna, hvað I. sæti snertir. Clancy Edwards, sem á beztan heimstíma í ár í 100 metra hlaupi, setti nýtt vallarmet i Stokkhólmi, í 200 metra hlaupi, er hann hljóp á 20.43. Annar varð James Gilkes, Panama, 20.46 og þriðji Guy Abrahams, Panama, 21.28. Martin Liquiri frá Bandarikjunum sigraði í 5000 metra hlaupi, 13:26.1. íþróttir Hann skaut Rod Dixon frá Nýja- Sjálandi aftur fyrir sig, 13:17.37. Jafnvel í 200 metra hlaupinu varð bandarísk stúlka sigurvegari, skaut þar Irenu Szewinskuafturfyrirsig. Þásetti Banda- ríkjamaðurinn Reynaldo Nchemiah vallarmet i 110 metra grindahlaupi 13:28.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.