Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 2

Dagblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978. Gjallarhorn á almannafæri Einhverjir i Laugarneshverfi vilja lögbann á kirkjuklukkurnar sem hringja til messu á sunnudögum í fáar minútur. En hvað eigum við að segja sem bú- um og störfum við Laugaveginn og víðar í bænum. Það er grammafóngjallandi sem glymur um allt, margar verzlanir eru teknar upp á þvi að úívarpa gjallanda út á almannafæri og sumstaðar keppast þær hver á móti annarri að hafa sem mestan hávaða. Þetta er orðin óþolandi plága, sem verður að stöðva í tíma áður n verzlunargötur bæjarins verða einn allsherjar gjallandi öllum til ama og leiðinda. Veit ég að í 3. grein lögreglusamþykkt- ar Reykjavíkur eru skýlaus ákvæði er banna þetta fargan, lög og reglur skulu í heiðri hafðar. Það er skrambi hart að verzlanir þessar mega útvarpa gargandi hávaða út á götuna á almannafæri, þannig að útilokað er fyrir nágrannana að hafa vinnufrið. Umræddar verzlanir gæta þess vandlega að hafa mjög lágt stillt inni í- sínum eigin verzlunum, tekið hefi ég eftir þvi er þeir þvo glugga sina á morgnana þá lækka þeir gargið, þola sem sagt ekki sitt eigið garg, sem þeir neyða nágrannana til að hlusta á frá morgni til kvölds, dag eftir dag, viku og mánuð eftir mt mð. Ég og aðrir borgarar eigum heimtingu á vinnufriði í okkar húsum, nóg cr samt af öðrum hávaða í þessu stressaða þjóðfélagi. Borgari, sem ekki neyðir tóniist upp á nágrannana. ,,Það er ekki komið að þér góði” Löghlýðinn skrifar: Nýlega lagði ég leið mina í Bifreiða- eftirlitið og ætlaði að fá bilinn skoðaðan. Ég vissi að ekki var komið að mínum bil, en þar sem ég var á leiðinni út á land fannst mér heppi- legra að láta skoða „beljuna”, áður, til þess að lenda ekki í vandræðum. Mér var hins vegar tjáð að þar sem „ekki væri komið að mér” gæti ég ekki fengið bílinn skoðaðan. Þegar ég maldaði í móinn var því.svarað til að sumarfrí starfsmanna stæðu yfir og yrði ég að koma aftur á tilsettum tima. — Þegar ég spurði hvort hægt væri að skoða bílinn úti á landi var svarað „jú, það væri líklega hægt”. Það sakar ekki að geta þess að daginn sem ég kom þarna var mjög rólegt og a.m.k. einir sex bifreiðaeftir- litsmenn sátu aðgerðarlausir og spjölluðu saman. Mér finnst þetta óþarfa stirfni i viðskiptum. Allt annað hefði verið uppi á teningnum ef mikið hefði verið aðgera. Bréfritari óttast að helztu verzlunargötur séu að breytast f „einn allsherjar grammófóngjallanda”. DB-mynd Hörður. V ■ ■ - Þótt þú búir úti á landi getur þú samtsem áður notfært þér smáauglýsingar Dagblaðsins. Smáauglýsingaþjón- usta blaðsins svarar í símann fyrir þig og sendir þér öll tilboð sem berast, með næsta pósti, eða les þau upp í símann. Öll þessi þjónusta er þér að kostnaðarlausu, utan venjulegs birtingarverðs auglýsingarinnar. Dagblaðið,smáauglýsingasími 91 -27022. BIAÐIÐ Dagblaðiö er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, simi 27022 Skattskráin til umræðu: SUMIR FÁ „BARA SKÍT Á PRIKI” Skattskráin er nú sem fyrr tilefni umræðu og óánægju. DB-mynd: Bjarnleifur. 0454—0523 hringdi og vildi segja fáein orð i sambandi við útkomu skatt- skrárinnar. Hann sagðist vinna hjá rikisfyrirtæki þar sem u.þ.b. tvö Ökukennsla Kennslubifreiðin er Toyota Cressida ’78 ogannaðekki Geir P. Þormar ökukwmati SWnar 1B896 og 21772 (simsvarO. hundruð manns vinna og það væru alltaf sömu mennirnir sem kæmust hjá þvi að greiða skatta, áratugum saman. Öll nefndarstörfin í sambandi við skattamálin virtust engu breyta um þetta. Menn með vel yfir þrjár miUjónir í tekjur fá nánast engan skatt, „bara skít á priki”. Þá fengju tryggingarfélögin sára- lítinn skatt. Dreifingarkerfið á olíu væri alveg út í hött og frystihús of mörg. Þau ættu að vera færri en stærri og standa niður við hafnirnar. Þá þyrfti að loka fyrir flæking fólks út um allan heim og stöðva margs konar óþarfa innflutning svo sem margs konar iðnaðarvarnings enda ættum við toppmenn I iðnaði. „Ef menn geta ekki setið á sófa frá Gvendi blinda eða öðrum íslenzkum húsgagnafram- leiðendum þá er þeim hreinlega ekki viðbjargandi,” sagði 0454—0523 að lokum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.