Dagblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15.ÁGÚST 1978. 28311 28311 Fasteignasalan Eignavör Hverfisgötu 16 A. Til sölu: 2 herbergja íbúð á 3. hæð í Hlíðunum. 2 herbergja íbúð á Stokkseyri. Ekkert áhvílandi. 3 herbergja íbúð við Kópavogsbraut. 3 herbergja íbúð við Njálsgötu. 4 herbergja ibúð við Álfhólsveg. 4—5 herbergja við Álfaskeið í Hafnarfirði. 5 herbergja við Miklubraut. 5 herbergja íbúð við Leifsgötu. Einbýlishús á byggingarstigi í Breiðholti. Einbýlishús, ca 120 fm á Selfossi. Bein sala eða skipti. Fokhelt einbýlishús í Þorlákshöfn. Einbýlishús á Eyrarbakka. Sumarbústaður í Þrastarskógi á eignarlandi. Skipti á bíl möguleg. Verð: 4 milljónir. Heimasímar eru: 41736 Einar Óskarsson 74035 Pétur Axel Jónsson lögfræðingur. BILAPARTASALAN Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreida, tildæmis: i Land-Rover '65, Chevrolet IMova '67, Saab '68, Hillman Hunter '70, VW 1600 '69, Willys '54. Einnighöfum vid úrval af kerruefni, til dæmis undir vélsleda. Sendum um alltland. BÍLAPARTASALAN Höföatúni 10 — Sími 11397 Lokað vegna sumarleyfis frá 19. ágúst til 31. ágúst. Vilberg Guðnason Ijósmyndari, Eskrfirði. Dodge Ramcharger 1977 Eigum til afgreiðslu nokkra DODGE RAMCHARGER jeppa árg. 1977, með sórstöku afsláttarverði. Bílarnir eru nýkomnir til landsins og í þeim er m.a.: 8 cyl. 318 cu. in. vél, sjálfskipting, vökvastýri, lituð framrúða, o.m.fl. Verð ca. kr. 5,2 millj. Hafiö samband viö sölumenn Chrysler-salarins. Símar 83330 og 83454. Vökull hf. ARMÚLA 36 REYKJAVÍK Sími 84366. á neytendamarkaðí Okkar uppskrrft 9 stk. miðlungs laukar (um 300 kr.) 1 hvítkálshaus (alveg um 1 kg) (360 kr) 4 grænir tómatar (123 kr.) 3 gular paprikur, 3 grænar og3rauðar (1215 kr.) 1/2 bolli salt 4 bollar sykur 2 matsk. sinnepsfræ 2 matsk. selleri flögur (fundum ekki fræ) 1/2 tesk. turmerik 3 bollar edik og 1/2 bolli vatn Fyrst ætluðum við að nota grænmetiskvörnina (þrífót) til þess að rífa grænmetið en fannst það ekki ganga nógu vel svo við tókum fram hakkavél. Það gekk prýðilega, en viss- ara er að setja gömul dagblöð á gólfið og jafnvel fötu, því úr grænmetinu lekur heilmikiðaf safa. Á tímabili leit út fyrir að safinn ætlaði upp úr hakkavélinni og af þvi til voru tvær agúrkur var þeim skellt út í (þær vógu um það bil 800 gr). Þegar 'allt var hakkað var saltið látið á og allt látið biða í einn sólarhring. Þá suðum við saman löginn, edikið búum við til úr edikssýru og kryddið látið út í, siðan grænmetið. Við helltum ekki( vökvanum af, eftir nóttina, eins og stundum er gert í piklesgerð, — en það á aðallega við ef verið er að matreiða agúrkur. Þetta sauð síðan í fáeinar mínútur og þá látið á glös. Það varð heilmikið úr þessu, eða alls um 4,5 kg af relish. Efniskaup hljóða upp á um 2344 kr., þannig að kílóverðið er mjög hagstætt eða um 520 kr. hvert kg. Heinz-relish, sem hér fæst og er mjög gott, kostar hins vegar 502 kr. 296 ml, þannig að litrinn af því kostar um 1866 kr. Takið eftir að annað er mælt i lítrum en hitt í kg, þannig að kílóverðið af okkar framleiðslu er sennilega aðeins hagstæðara því hvert kg af relish vigtar aðeins meira en einn lítri gerir. -A.Bj. Uppskrift dagsins Raddir neytenda Dr. Jón Óttar Ragnarsson: Athugasemd um „morgunkom” Fyrir nokkru hringdi í mig blaða maður af Dagblaðinu og spurði mig álits á ýmiss konar „morgunkorni”. Tilefnið var, að nú væri verið að kynna hér á landi matvöru í þessum flokki, ósætar hveitiflögur, sem eru kallaðar Wheetabix. Skildist mér, að hún hefði hug á að fræðast um þessár fæðutegundir almennt. Við spjölluðum síðan saman um þessar matvörur og lagði ég mesta áherzlu á, að fólk reyndi að varast1 sykurríkustu tegundirnar. Sjálfur sagðist ég að jafnaði borða tegund í þessum flokki, sem ég tilgreindi, en á fátt sameiginlegt með maís- og hveiti- flögum. Þegar greinin birtist I blaðinu kom i ljós, að Neytendasíðan þann daginn var einkum helguð ofangreindu Wheetabixi. Gat litið svo út sem ég væri að mæla með þessu vörumerki og leiðréttist það hér með. Mér þykir það hart, að þetta viðtal hafi verið notað I auglýsingaskyni fyrir ákveðið vörumerki, ekki sist þar sem um er að ræða merki, sem ég veit næsta lítið um. Þessi reynsla hefur enn styrkt mig I þeirri trú, að sérfræðingar og fræðimenn eigi að skrifa sem mest í blöðin milliliðalaust. Af gefnu tilefni legg ég til, að fyrir- spurnum um fyrrgreint vörumerki verði beint til réttra aðila, þ.e. til um- boðsmanna hins erlenda fyrirtækis hér á landi. Með þökk fyrir birtinguna. DALSGARÐS-RELISH Afar Ijúffengt á mjög hagstæðu verði » Þarna er meirihlutinn af fram- leiðslunni. Það er notaleg tilflnning að eiga slikan varning i búrhillunni — ég tala nú ekki um þegar það er i þeirri vissu að stórfé hefur sparazt fyrir heimilið. Frá Dalsgarði (gróðrarstöðinni í Mosfellssveit) fengum við uppskrift af relish. Við notuðum helgina til þess að prófa uppskriftina og árangurinn varð alveg stórkostlegur. Að vísu minnkuðum við uppskriftina nokkuð og skal nú greint frá árangrinum. Upphaflega uppskrtftin: 12 miðlungsstórir laukar 1 hvitkálshaus 10 grænir tómatar 12grænarpaprikur 6 rauðar paprikur 6 bollar sykur 2 matsk. sinnepsfræ (mustard seeds) 1 matsk. sellerffræ 1/2 tesk. turmerik 4 bollar edik 2 bollar vatn 1/2 bolli salt Relishið er gott að nota með kjöti eða út 1 remúlaðisósu með steiktum Gski. Þá er gott að láta dálitið af safanum leka af, til þess að sósan verði ekki of þunn. DB-myndir Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.