Dagblaðið - 27.09.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978 — 213. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.— AÐALSÍMl 27022.
Úlpurábömin
ískólann:
Á5-20
ÞÚSUND
KRÓNUR
-Sjábls.4
„Sjö bömá
landi ogsjö
r m r«■
ISJO
- Sjá kjallaragrein
Erlings Gfsla-
sonar leikara
ábls. 10-11
Árni Gunnarsson ritstjóri Alþýðublaðsins
BOÐAR STJÓRNARANDSFÖÐU
UNGU MNGM ANNANNA
Árni Gunnarsson, alþingismaður
og ritstjóri Alþýðublaðsins, boðar I
forsiðugrein I blaði sínu í morgun I
raun, að þingmenn Alþýðuflokksins
verði I harðvitugri andstöðu við rikis-
stjórnina í mörgum helztu málum.
„Þeir verða ekki bundnir á flokks-
klafa þagnarinnar,” segir Árni.
Alþýðuflokkurinn hafi orðið að
bíta i það súra epli að gerast aðili að
stjórnarsamstarfi án þess að koma
nema hluta af umbótamálum sínum
á blað og án þess að gjörbreytt efna-
hagsstefna hans fengi hljómgrunn.
Þeir fengu ekki inn í stjórnarsátt-
málann orð um það, hve harkalega
skyldi barið á verðbólgunni, segir
Árni. „Þeir hafa litla trú á því, að
reynt verði i alvöru að breyta visitöl-
unni. Orðin um athafnir eru of loðin.
Jafnvel orðið kjarasáttmáli mátti ekki
sjást i samstarfsyfirlýsingunni. Ungu
krötunum þykir of lítil alvara liggja
að baki ráðstöfunum stjórnarinnar.”
Árni segir, að-aðeins tvær leiðir
séu færar. Annars vegar að láta reka
á reiðanum, hins vegar stjórna af
hörku, gera uppskurð á efnahagskerf-
inu, vísitölu, peningamálum og
hamla gegn þrýstihópum kröfugerð-
armanna.
Flokkurinn hafi unnið mikinn
kosningasigur, en þetta mikla fylgi
gæti horfið eins og dögg fyrir sólu, ef
athafnir fylgi ekki orðum.
„Kjósendur Alþýðuflokksins munu
heyra frá hinum ungu þingmönnum
Alþýðuflokksins,” segir Árni Gunn-
arsson. Alþingi verði vettvangur
þeirra til að berjast fyrir umbótamál-
unum.
-HH
Maraþonboðhlaup Breiðabliks og
Dagbiaðsins í Kópavogi um helgina
Það verður fjör I Kópavogi um helg-
ina. Maraþonboðhlaup, sem Breiðablik
og Dagblaðið gangast fyrir. 25 hlaupar-
ar hlaupa. Taka við hver af öðrum og
hlaupa eins marga kflómetra og þeir
hafa þrek til.
Keppnin hefst á laugardag, 30. sept-
Brezksjávar-
útvegsráð-
stef na hér
Fiskveiðideild brezka sjávarút-
búnaðarráðsins hyggst kynná hér
hluta brezkra framleiðenda, er
framleiða útbúnað fyrir fiskiskip.
Nefnir deildin þetta þing og
tækniráðstefnu, sem haldin'
verður 3. og 4. október.
Þá stendur til að ræða tæknileg
og viðskiptaleg vandamál og
möguleika á samvinnu við þá
framkvæmdastjóra, sem sækja
munu þingið. 19 fyrirtæki munu
sýna framleiðslu sína og þjónustu
á þinginu og þar verða fulltrúar
brezka sjávarútbúnaðarráðsins.
Síðari dag ráðstefnunnar verður
sýningin opin frá 19.30 til 21.30.
-G.S.
ember, kl. 14.00 með þvi að yngsti
hlauparinn leggur af stað. Niu ára
hnokki, Björn Már Svcinbjörnsson.
Hlaupinn er stór hringur i Kópavogi og
þeir, sem þolnastir eru, bregða kannski
á að hlaupa upp á Vatnsendahæð, i
Garðabæ og á fleiri staði. Það verður
hlaupið og hlaupið. Allan laugardaginn,
laugardagskvöldið, aðfaranótt sunnu-
dagsins, og áfram stanzlaust, eitthvað
fram á sunnudag.
Hlaupararnir úr Breiðabliki voru að
æfa i gær i Kópavogi. Auðvitað var
Boggi biaðamaður á staðnum. Hann
verður einnig í eldlinu Dagblaðsmanna,
þegar hlaupið hefst og á meðan á þvi
stendur.
Nánar er sagt frá maraþon-
hlaupinu á íþróttasiðum blaðsins i
opnu.
Verðlagsmálin:
SIS MEÐ 5% HÆRRAINN-
KAUPSVERÐ EN HEILDSAU
samkvæmt vörureikningum yfir eina tegund leikfanga
Ekki verður annað ráðið af vöru-
reikningum, sem DB hefur séð en
Samband ísl. samvinnufélaga flytji inn
í það minnsta eina tegund leikfanga á
5% hærra innkaupsverði en stórkaup-
maður nokkur I Reykjavík. Kaupa
báðir frá sama aðila I London sömu
vöru með þriggja vikna millibili,
snemma á þessu ári. Samkvæmt reikn-
ingunum lætur stórkaupmaðurinn
lækka svokallað f.o.b. verð vörunnar
um 5% enSÍSekki.
Ef aðrir kostnaðar og álagningarlið-
ir eru jafnir svo sem flutningsgjald,
tryggingar og álagning hefur þessi
vara verið dýrari flutt á vegum SÍS en
stórkaupmannsins.
Samkvæmt upplýsingum Kjartans
P. Kjartanssonar framkvæmdastjóra
hjá SÍS mun það hafa haft umboð
fyrir þessa umgetnu vörutegund til
skamms tíma. Hugsanleg skýring á
þessu væri sú að stórkaupmaðurinn
léti skipta umboðslaunum sinum
þannig að hluti þeirra kæmi fram sem
lækkun á innflutningsverði. Aftur á
móti gæti verið að SlS hefði ekki gert
það heldur hefðu umboðslaun þeirra
fyrir þessa vöru verið flutt heim og
gerð á þeim skil eins og venja væri um
öll umboðslaun Sambandsins. Kjartan
tók fram að þó svo þessi 5% munur
hefði verið á inrikaupsverði væri ekki
þar með sagt að söluverð úr verzlun
eða heildsölu þeirra yrði hærra. Þar
kæmi meðal annars til að álagning
gæti verið lægri.
-ÓG
Könnunin ekki
til verð-
samanburðar
segjaSvíar
- Sjá bis. 5
Ódýrara
raf magn og
minni mengun
á næstu
grösum
laf ntef li—
jafntefli...
Jón L. Ámason
skrifarum skák
- Sjá bls. 7